Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 20

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 20
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða hefur einnig tekið nokkum tíma ráðsins en það er von okkar í efnisorðaráðinu að námskeiðið hjálpi okkur við stefnumótun og veki áhuga þeirra sem vinna að lyklun við að taka upp agaðri og betri vinnu- brögð. Það er ósköp eðlilegt þegar svona mörg söfn sameinast í nýjan bókfræði- gmnn að það taki tíma að sníða af helstu hnökrana og koma sér saman um verklag við lyklun og val á efnisorðum. Þegar nafnmyndaskrá er komin í gagnið verður mun auðveldara að halda utan um þetta verkefni. Með stofnun efnisorðaráðs er komin að- ili sem sker úr um vafamál og sér um framþróun Kerfisbundins efnisorðalykils. Nú á næstunni mun Landskerfið koma honum á vefinn þannig að allir eiga að geta stuðst við hann. Efnisorðaráð tekur við fyrirspumum, tillögum og ábendingum og er best að senda þær til ritstjóra efnis- orða, Rögnu Steinarsdóttur, á netfangið ragnas@bok.hi.is. en að sjálfsögðu tökum við allar við pósti um þessi mál. Elisabet Halldórsdóttir Verkefnisstjóri á Borgarbókasafni Leiðtogafundur um upplýs- ingasamfélagið 2005 world summit on the information society Geneva 2003 - Tunis 2005 Fyrsti Leiðtogafundurinn um upplýsinga- samfélagið var haldinn í Genf í Sviss dag- ana 10. til 12. desember 2003. Sjá Fregnir 3/2003, bls. 8-10 og 1/2004, bls. 7-8. Markmiðið með leiðtogafundunum er m.a. þróa sameiginlegan skilning á upplýs- ingasamfélaginu og þeirri byltingu sem orðið hefúr í upplýsingatækni. Annar leiðtogafundurinn um upplýs- ingasamfélagið verður haldinn í Túnis dagana 16.-18. nóvember næstkomandi. Fyrir síðasta leiðtogafund beitti IFLA, Alþjóðleg samtök bókavarðafélaga og stofnana, sér fyrir mikilli vakningu í bóka- safnaheiminum til að vekja athygli á mikil- vægi bókasafna í upplýsingasamfélaginu og auka vægi þeirra í samþykktum fundar- ins. IFLA hefur nú hafið skipulagningu starfs til undirbúnings seinni hluta Leið- togafundarins í Túnis, sjá http://ifla.org/III /wsis.html. Þegar hafa verið haldnar tvær undir- búningsráðstefnur (PrepCom), í Hamma- met, Túnis í júní 2004 og í Genf í febrúar síðastliðnum. Önnur undirbúningsráð- stefna verður haldin í Genf í september næstkomandi. Þórdís T. Þórarinsdóttir Upplýsingar um fundinn í Túnis: WSIS: www.itu.int/wsis/ WSIS (upplýsingar á íslensku): www.un.dk/ icelandic/WSIS/main.htm. WSIS: http://ifla.org/III/wsis.html Landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum - hvar.is Umsjónarmaður landsaðgangs kynnti að- ganginn haustið 2004 á nokkrum stöðum. 16. september var aðgangur kynntur meðal stúdenta fyrir utan Þjóðarbókhlöðu sem voru að mótmæla skertum afgreiðslutíma þar. 30. september var farið til ísafjarðar og Bolungarvíkur, 20. október var að- gangur kynntur á Bifröst, í Verslunar- skólanum 12. nóvember, 15. nóvember lá leiðin til Akureyrar og 17. nóvember á Akranes. 20. janúar 2005 var farið til Homafjarðar. Umsjónarmaður naut að- stoðar bókavarða á hverjum stað. Askriftir að Blackwell Synergy og Karger Online voru endumýjaðar. Gengið var frá samningum við Blackwell í febrúar 2005 og Karger í mars 2005, sem gilda til ársloka 2006. Eiríkur Þ. Einarsson, Sólveig Þorsteinsdóttir og Þorsteinn Hallgrímsson sömdu fyrir hönd Islands við Blackwell. Sólveig og Þorsteinn sáu um samninga við Karger. Nýr vefur hvar.is komst í gagnið 1. mars 2005 eftir undirbúning á árinu 2004. Sett var upp ný upplýsingahögun (in- formation architecture) fyrir vefinn, nýtt útlit og hann settur í vefumsjónarkerfi. Stöðug og mikil vinna er að viðhalda vef sem þessum enda er hann bæði aðgangs- 30. árg. - I. tbl. 2005 - bls. 20

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.