Fregnir - 01.03.2005, Qupperneq 23

Fregnir - 01.03.2005, Qupperneq 23
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða eldri sjá um þau yngri eða afi og amma sjá um bamabömin eða bama- bamabömin. Millikynslóðin (foreldr- amir) hefur þurrkast út og sér því hvorki um böm né gamalmenni. Nú er talið að meðalaldur þeirrar kynslóðar sem er að alast upp verði u.þ.b. 30 ár. Hver ætli séu framtíðaráform eða framtíðardraumar þeirra sem reikna með að deyja innan við þrítugt? Hyggja þeir á langskólanám? Aðrir fyrirlesarar bentu á bestu upplýs- ingaveitumar og gagnasöfnin um Afríku. Fundarmenn vom leystir út með bókinni Att studera Afrika: vagar till kállorna en hún er mjög góð handbók um helstu heim- ildir þar að lútandi. Hana má prenta út af slóðinni: http://www.nai.uu.se Fundarmönnum var boðið til kvöld- verðar á mánudagskvöldið en áður en við mættum í boðið heimsóttum við Carolina bókasafnið í Uppsölum. Carolina Rediviva er sá hluti háskólabókasafns Uppsala sem hýsir safnkost um hugvísindi, trúarbrögð og félagsfræði. Safnið á stórkostlegt handritasafn og það var einmitt forstöðumaður handrita- safnsins, Viveca Halldin Norberg, sem leiddi okkur um þetta safn. Þessi heimsókn verður okkur ákaflega minnistæð. I safninu er hátt til lofts þó ekki sé jafn vítt til veggja og bókaverðir standa í stigum til að ná í bækur. Ekki ósvipað og af myndum frá bókasafninu í Alexandríu. Viveca þekkir hverja bók í sínu safni og sagði sög- ur margra eintaka eins og Uppsala Edd- unnar og Olafs sögu Helga svo og Silfur- biblíunnar (Codex Argentus) sem er ein verðmætasta bók heims. Þessir tveir dagar í Uppsölum voru ákaflega lærdómsríkir og skemmtilegir. Við tölum um hreina loftið á Islandi en Stokkhólmur og Uppsalir í haustlitum, þar sem sólin gyllir rauðlitaðar byggingar, virtust friðsælli og hreinni en nokkurt þorp á íslandi. Júlíana Þórhildur Lárusdóttir og Haima Þórey Guðmundsdóttir Váxjö í nóvember 2004 - Upplýsingafæmi og staðlar Pedagogik - en yrkeskompetens för biblio- tekarier och Nordiska standarder för in- formationskompetens - önskedröm eller fálla? eða „Uppeldisfræði - fæmiþáttur í starfí bókasafns- og upplýsingafræðinga og norrænir staðlar um upplýsingafæmi - óskadraumur eða gildra?“ var yfírskrift málþings sem NORDINFOlit hélt í Váxjö í Svíþjóð dagana 10.-12. nóvember árið 2004. Markhópurinn var kennarar sem sjá um kennslu í bókasafns- og upplýsinga- fræði á Norðurlöndum og bókasafnsfræð- ingar sem áhuga hafa á upplýsingafæmi og kennslu. I háskólanum í Váxjö var sett á fót nýtt þriggja ára nám í bókasafns- og upplýs- ingafræði árið 2003 undir stjóm Ingrid Kjellquist en í því er sérstök áhersla lögð á uppeldisfræðilega þætti starfsins. Það var því við hæfí að halda málþingið, sem var annað málþingið á vegum NORDINFOlit, í Váxjö. Að vera bókasafns- og upplýsingafræð- ingur í dag felst m.a. í því að geta leiðbeint notendum í hraðvaxandi rafrænu upplýs- ingaflóði og að geta unnið í hópi kennara eða leiðbeinenda við skóla og fyrirtæki. Ræða átti hvemig norræna menntunin mætir þessari kröfu vinnuveitenda og mikilvægi uppeldisfræði og námskenninga í námi bókasafns- og upplýsingafræðinga. Að auki var til framhaldsumræðu afstaða bókasafns- og upplýsingafræðinga til nor- rænna staðla um upplýsingafæmi. Um 120 þátttakendur frá öllum Norðurlöndum sóttu þingið. Frá Islandi fóm undirrituð og Elín Björg Héðinsdóttir frá Landsbóka- safni íslands - Háskólabókasafni og einnig Agústa Pálsdóttir lektor í bókasafns- og upplýsingafræði við HÍ. Þingið hófst með starfi í vinnuhópum (work shops) síðdegis þann 10. nóvember. Þar var um að ræða fjögur mismunandi viðfangsefni: 1. Ola Pilerot: Upplýsingafæmi - ekki bara upplýsingaleit. 2. Stýrihópur Nordinfolit: Hvemig get- um við mótað norræna staðla um upp- lýsingafæmi. 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 23

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.