Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 25
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og
nemendum skipað í fimm manna hópa eftir
námsstíl. Árangurinn er betri og ábyrgari
nemar. Þeir hafa fengið hagnýta reynslu,
meiri þekkingu, líka í öðrum greinum. Þeir
sýna aukna námsánægju og virkari þátt-
töku. 66% af árganginum 2003 stunda
safnkennslu.
Fyrir Finnland talaði Maija-Leena
Houtari. í Finnlandi er nám í bókasafns-
fræði staðsett í Tampere, Oulu og Ábo. I
náminu er lögð áhersla á að skilgreina
hugtakið upplýsingalæsi. Upplýsingalæsi
nær til túlkunar og skilnings, ekki aðeins
fæmi. Fjölmiðlar, bókasöfn, tölvur, net og
rafrænt læsi vísa til fæmi sem þarf að
temja sér og hæfíleika sem þarf að sýna en
einnig til þekkingar sem hugtaks, sbr.
rannsóknir í þekkingarfræði.3 Staðallinn
ALA vísar til fæmi á sex sviðum. Þar er að
finna valdar upplýsingar í þekkingar-
gmnni.
Mismunandi áherslur em í Tampere,
Oulu og Ábo. Tampere: Markmiðið er að
nemendur verði upplýsingalæsir, gmnn-
kennsla er fyrir alla stúdenta í Tampere.
Oulo: Upplýsingavinna I—III (gmnnur og
framhald). Upplýsingar og nám -
framhald.4 Ábo: Tjáskipti og nám. Sál-
fræðileg og uppeldisfræðileg viðhorf til
upplýsingafæmi. Félagsmenningar- og
þekkingarviðhorf til upplýsingafæmi.5 Hún
vitnaði einnig í Heimström.6 Byggja þarf
upplýsingalæsi inn í nám á öllum stigum.
Ágústa Pálsdóttir ræddi um HI, sögu há-
skólans og námið í bókasafns- og upplýs-
ingafræði við HÍ og þátt upplýsingalæsis í
því.
Fmmmælendur vom sammála um að
nauðsynlegt væri að tengja upplýsinga-
fæmi við annað námsefni, að bókasafns-
fræðingar og kennarar þyrftu að vinna
saman og að upplýsingafæmi tengdist ævi-
löngu námi. Menntakerfið og þekkingar-
heimurinn breytast í takt við margmiðlun-
ina. Gagnrýnin hugsun er mikilvæg í þessu
sambandi.
Ralph Catts frá Ástralíu, sem margir
muna eflaust eftir frá CKIII á Akureyri
2003, var síðastur á mælendaskrá. Hann
hefur haft forystu um þróun matstækis íyr-
ir upplýsingalæsi í áströlskum háskólum. I
máli hans kom fram að byrjað var að meta
kennsluáætlanir (Program evaluation) í
notendafræðslu 1997. Brjóta þarf niður
hindranir milli bókasafna og háskólafólks.
Víða er það á stefnuskrá stjómvalda að há-
skólafólk sé upplýsingalæst. Tryggja þarf
gæðin - hvemig fer háskóli að því? Auka
þarf skilning á upplýsingafæmi. Catts
benti á að í módeli Dunnes megi sjá hvem-
ig innihald námsgreinar og þekking ásamt
árvekni og reynslu í starfi hafa gagnverk-
andi áhrif hvað á annað og á almenna
þekkingu.7 Catts mælir með því að nota
staðla sem gátlista. Upplýsingafæmi þarf
að launa með einingum. Catts notar mót-
andi tækni, gefur endurgjöf, helst einkunn
- vinna með kennara er mikilvæg. Skilyrði
fyrir árangri í kennslu í upplýsingafæmi
em: Stefna stofnunar, stuðningur stofnunar
við kennsluna og kennslustefnuna, stefna
bókasafns og upplýsingalindir. Flestar há-
skólastofnanir em á eftir hvað varðar upp-
lýsingafæmi. Nauðsynlegt er að safn-
fræðsla sé þáttur í námskrá háskóladeilda.
í lok málþingsins var samþykkt að ástr-
alski staðallinn skyldi þýddur á Norður-
landamál og að hann ætti ekki að nota sem
staðal heldur til hliðsjónar, sem gátlista.
Eg vil að lokum leggja áherslu á mikil-
vægi þess að sækja málþing sem þetta. Það
gefur okkur færi á þátttöku í umræðunni,
tækifæri til að fræðast um það sem efst er
á baugi og að hitta starfssystkin á hinum
Norðurlöndunum.
Stefanía Arnórsdóttir
Tilvísanir
1) SACO er Samband háskólamanna í Sví-
þjóð
2) http://www.cenes.ro/information services
/sources/on line/bologna.htm
3) Bawden 2001 vísar í Doyle 1994 í
greininni „Infonnation is the Ability to
Access“ í Journal of Documentation, s.
231.
4) http://herkules.oulu.fi /isbn 9514274725/
5) http://acta.uta.fi
6) Heimström, Jannica: Fast surfers, broad
scanners, deep diversity: Personality and
information seeking behavior. Ábo, Ábo
Akad. Press 2002 (er til í Lbs-Hbs).
7) Sjá glæmr Catts á www.nordinfolit.org
undir Nordinfolit > Seminarier www.hum.
vxu.se/utb/program/bop/nordinfo/index.
html.
Þar em einnig glærur annarra fyrirlesara.
30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 25