Fregnir - 01.03.2005, Side 26
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
Kostnaður og ávinningur af
þátttöku í starfí NVBF
Skýrsla til stjómar Upplýsingar
Okkur undirritaðar, sem verið höfum ís-
lenskir fulltrúar í stjóm NVBF (Nordiske
vitenskapelige bibioteksforeninges for-
bund) nokkur undanfarin ár, langar til að
deila með ykkur hugleiðingum um ávinn-
ing íslenskra bókasafns- og upplýsinga-
fræðinga af starfi NVBF en hann er að
okkar mati umtalsverður.
Til að lengja ekki málið um of bendum
við á nýlegar greinargerðir um starfið inn-
an NVBF:
Erindi um NVBF. flutt á ráðstefnu um
norrænt samstarf um bókasafns- og upp-
lýsingamál 5. febrúar 2004, birt í Fregnum
29. árg., 1. tbl. mars 2004, s. 29-30.
Arlegar skvrslur um starfsemi NVBF
lagðar fram á aðalfundi Upplýsingar, sú
síðasta 10. maí 2004, birt í Fregnum 29.
árg., 2. tbl. júní 2004, s. 16-17.
Einnig skal vísað á heimasíðu NVBF
http://dpb.dpu.dk/nvbf/nvbf.html þar sem
m.a. má lesa reglur (vedtekter) NVBF.
Fulltrúar Upplýsingar í stjóm NVBF
starfa samkvæmt erindisbréfi sem sam-
þykkt var 6. mai 2003 og birta samkvæmt
ákvæðum í því bréfí fundargerð í Fregnum
eftir hvem stjómarfund.
Kostnaður
Á stjómarfundi NVBF í Þrándheimi í mars
2000 var m.a. rætt um hvemig bregðast
bæri við þeirri stöðu sem upp kom þegar
allir bókasafnsfræðingar og aðrir starfs-
menn bókasafna sameinuðust í eitt félag
eins og raunin var orðin hér á íslandi og í
Svíþjóð. Ágæt niðurstaða fékkst í málið að
okkar mati og er reglan nú sú að allir
félagar í þessum félögum teljast fullgildir
félagar í NVBF og njóta fríðinda sam-
kvæmt því. Árgjald (15 nok) er þó einung-
is greitt fyrir þá félaga sem starfa innan
sérfræði- og háskólasafnageirans. Ofan á
þá upphæð em lögð 15% til að tryggja öll-
um félögum þessara tveggja félaga aðgang
að atburðum á vegum NVBF. Árið 2004
greiddi Upplýsing 1.825 nok (tæplega
20.000 íkr) til NVBF.
Árið 1996 samþykkti stjóm NVBF að
greiða ferðakostnað eins stjómarmanns frá
íslandi á hvem stjómarfimd en annars
greiða aðildarfélögin ferðir og uppihald
sinna stjómarmanna á fundina. Þetta þýðir
að Upplýsing greiðir ferðakostnað fyrir
sína fulltrúa einu sinni á ári. Fundimir em
langoftast haldnir á föstudögum og þá hafa
íslensku fulltrúamir fram að þessu flogið
út á fimmtudegi og komið heim á sunnu-
degi til að fá sem hagstæðust flugfargjöld
en gefið sinn helgarfrítíma í staðinn. I
sumum tilvikum hafa fulltrúar þurft að
nota orlof sitt í ferðimar en sem betur fer
hafa vinnuveitendur langoftast verið vel-
viljaðir og heimilað að þessir fundir séu
sóttir í vinnutíma viðkomandi.
Avinningur
Fjórar NVBF-ráðstefnur hafa verið haldnar
hér á undanfömum fímm ámm og allar
vom þær mjög vel sóttar og heppnaðar. í
öllum tilvikum hefur vel tekist til við að
manna undirbúningsnefndir fyrir ráðstefn-
umar og hefur nefndarmönnum tekist með
ómældri vinnu og ósérhlífni að halda ráð-
stefnur sem virkilega hafa staðist faglegar
kröfur og vakið aðdáun fulltrúa stærri
félaga. Ráðstefnumar hafa meira að segja
skilað peningum í kassa NVBF og Upplýs-
ingar. Láta mun nærri að hagnaður Upp-
lýsingar af ráðstefnunum sé um það bil
jafnhár kostnaði félagsins af aðild að
NVBF og ferðum íslenskra fulltrúa á
stjómarfúndi NVBF á þessu tímabili.
Vissulega höfðu félagar í öðmm aðild-
arfélögum NVBF um tíma uppi efasemdir
um að við hér réðum við að halda ráðstefn-
ur af þessu tagi, nógu áhugaverðar til að
nógu margir sæju sér fært að koma alla
leið til Islands. Við höfum sýnt og sannað
að þessar efasemdir vom óþarfar og ekkert
lát virðist vera á áhugasömum norrænum
bókasafns- og upplýsingafræðingum sem
vilja sækja ráðstefnur á íslandi. Við teljum
raunar að hróður okkar hafí aukist talsvert
við það að við höfúm alltaf staðið við að
halda ráðstefnur þegar að okkur kom - og
raunar tókum við að okkur ráðstefnuna
vorið 2000 með tiltölulega skömmum
fyrirvara þegar Finnar sáu sér ekki fært að
halda hana.
Islenskir bókasafns- og upplýsinga-
fræðingar hafa tekið þessum ráðstefnum
mjög vel og fjölmennt á þær. Sem dæmi
má nefna að um 40 íslendingar sóttu ráð-
30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 26