Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 27

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 27
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða stefnuna í júní 2004 (af um 90 þátttakend- um). Faglegur ávinningur fyrir stéttina af þessum ráðstefnum er án nokkurs vafa um- talsverður og augljóst að ólíkt fleiri geta sótt ráðstefnur sem haldnar eru hér á landi en þær sem í boði eru erlendis. Ohætt er að fullyrða að mikið munar um ráðstefnur NVBF í þeirri ráðstefnuflóru sem í boði er hér á landi fyrir okkar stétt. Nokkrir íslenskir bókasafnsfræðingar hafa hlotið ferðastyrk NVBF sem auglýst- ur er og úthlutað árlega. Hver styrkur nem- ur 7.000 nok og er miðað við að einn styrkur fari til hvers lands árlega. Loks má minna á námsferðimar sem NVBF skipuleggur. Þær hafa þótt vel skipulagðar og lærdómsríkar. Rétt er að geta þess að NVBF leggur yfírleitt ekki fé í þessar ferðir heldur er allur undirbúnings- kostnaður reiknaður inn í gjaldið sem þátt- takendur greiða. Þórhildur S. Sigurðardóttir í stjórn NVBFfrá hausti 1999 Hrafnhildur Hreinsdóttir í stjórn NVBFfrá vori 1998 til vors 2003 Guðrún Pálsdóttir í stjórn NVBF'frá hausti 2003 Stjómarfundur NVBF í Reykjavík 4. mars 2005 Stjómarfúndur NVBF var að þessu sinni haldinn í Reykjavík í húsnæði Kennarahá- skóla íslands (KHÍ). Þórhildur S. Sigurðar- dóttir, forstöðumaður safns Menntasmiðju KHÍ og annar fulltrúa Upplýsingar í stjóm- inni, hafði veg og vanda af undirbúningi og umgjörð fundarins. Kristín Indriðadótt- ir, framkvæmdastjóri Menntasmiðju KHI, sýndi stjómarmönnum Menntasmiðjuna í hádegishléi. Hádegisverður var í boði Upplýsingar. Stjómarformaður NVBF er Gunilla Hakli frá Finnlandi og stýrði hún fundi. Starfsmaður stjómar er Poul Erland- sen, Danmörku. Þess má geta að flestir stjómarmenn bmgðu sér á óperuna Toscu á föstudagskvöld og létu vel af, sem og öllu skipulagi kringum stjómarfundinn. Ferðastyrkir NVBF Hér í blaðinu er auglýst eftir styrkumsókn- um fyrir árið 2006. Einn styrkur (7.000 NOK) fer til hvers Norðurlandanna. Um- sóknir þurfa að hafa borist til Poul Erland- sen fyrir 20. september 2005. Ferðastyrkjum NVBF fyrir árið 2005 var úthlutað haustið 2004 eins og greint var frá í nóvemberhefti Fregna. Þeim sem vilja fræðast meira um styrkina er bent á að lesa skýrslur styrkþega á vefsetri NVBF, http://dpb.dpu.dk/nvbf/ og skýrslu íslenska styrkþegans 2004 í þessu hefti Fregna. Styrkþegar þurfa að skila skýrslu til NVBF og í Fregnir um ferðina. Vakin er athygli á því að nemendur í bókasafns- og upplýsingafræði, sem em félagar í Upp- lýsingu, geta einnig sótt um þennan styrk. Ráöstefnur Bæði sjötta millisafnalánaráðstefna NVBF sem haldin var í Þrándheimi í Noregi um mánaðamótin september - október 2004 (þátttakendur vom rúmlega 200) og eins dags ráðstefna um „bestu leiðir í milli- safnalánum“ (Assess the ILL/DD Environ- ment) 26. nóvember 2004 (95 þátttakend- ur) í Konunglega bókasafninu í Kaup- mannahöfn skiluðu hagnaði. Lokatölur yfir fjárhag þeirra hafa þó ekki borist. Sam- þykkt var að þeir sem sjá um ráðstefnur á vegum NVBF skili bráðabirgðauppgjöri eftir þrjá mánuði og lokauppgjöri eftir sex mánuði. Undirbúningur að vorráðstefnu NVBF í Finnlandi hefur ekki gengið eins og best er á kosið og vildi stjóm NVBF helst að henni yrði frestað þar sem dagskráin þótti tæplega fullmótuð og tími til kynningar allt of skammur. Ráðstefnuhaldarar treystu sér hins vegar ekki til að fresta henni. Var því ákveðið að þetta yrði hringborðsráð- stefna og verður hún haldin dagana 14.-15. apríl 2005 í Gustavelund, Tusby (rétt utan við Helsinki). Ráðstefnuheitið er Great Expectations! Biblioteksutbildningen und- er det 21. árhundradet. Förvántningar och krav pá personalen. Ahugasamir eru hvatt- ir til að kynna sér efni ráðstefnunnar á vef- setrinu http://pro.tsv.fi/stks/. Væntanlegir þátttakendur þurfa að skrá sig sem fýrst, helst ekki síðar en 30. mars. Þess má geta að Kristín Indriðadóttir, framkvæmdastjóri Menntasmiðju KHÍ, er meðal fýrirlesara á ráðstefnunni. Stjóm NVBF hefur borist erindi um að taka við ráðstefnuröðinni Creating Know- 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 27

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.