Fregnir - 01.03.2005, Page 29

Fregnir - 01.03.2005, Page 29
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða hún er skiplögð. Þau byggja kennsluna á „problem based leaming“ aðferðum. Nem- endur koma í safnkennslu í náinni sam- vinnu við kennara og í tengslum við þau verkefni sem þeir em að vinna að í skólan- um. Heimsókn mín á safnið var mjög vel skipulögð og vel tekið á móti mér. í há- deginu fékk ég höfðinglegar móttökur þar sem mér ásamt starfliði safnsins var boðið upp á danskt smurbrauð eins og það gerist best. Kann ég þeim sem tóku þá ákvörðun að veita mér styrkinn bestu þakkir fyrir og aftur hvet ég alla sem geta að sækja um slíka styrki og heimsækja kollega í öðmm löndum. Asa Þorkelsdóttir Námskeið í bókaviðgerðum. Þann 4. mars síðastliðinn var haldið eins dags námskeið í léttum bókaviðgerðum fyrir starfsfólk bókasafna. Námskeiðið fór fram á heimili bókbindarans, Kristjönu Emilíu Guðmundsdóttur og manns hennar, í Kópavogi. Við vomm níu konur frá mis- munandi söfnum sem settumst saman kringum stofuborð þeirra hjóna og fengum mjög notalegar móttökur á fogrum föstu- degi með vor í lofti. Sem verkefni fyrir námskeiðið áttum við þátttakendur að draga fram nokkur illa farin rit og taka með okkur til viðgerða. Eg tók með mér tvær slitnar orðabækur, farnar á límingum og þá þriðju sem vantaði kjöl- inn á og enn aðra sem vantaði allt utan á. Upp á stofuborðið vom dregnar alls konar bækur, stórar og litlar, sem meira og minna vom dottnar í sundur eða kjölurinn farinn og mátti í flestum tilfellum fullyrða við fyrstu sýn að þetta væm ónýtar bækur. Kristjana Emilía, kölluð Emilía, hóf kennsluna á því að afhenda okkur bækling- inn: Bók er best vina - leiðbeiningar í meðferð og hirðingu bóka. Tilsögn í auð- veldum bókaviðgerðum, útgefinn í júní 2004. Bæklingurinn er hennar samantekt og að sögn var hugmyndin með honum að veita tilsögn í léttum bókaviðgerðum og um leið að vísa til bókauppeldis bama. Bæklingurinn er aðeins fimm síður, með nokkmm skýringamyndum. Efnið skiptist í tvo aðal kafla: „Meðferð og hirð- ing bóka“ og „Verklegar viðgerðir". I fyrri kaflanum er fjallað um hvemig opna skal nýja bók og í nokkmm stuttum greinum er hvatt til þess að kenna bömum að fara vel með bækur og að nota bókamerki, því að „bók er best vina“. Einnig er minnt á að matur og bók fer ekki vel saman og að gæta þarf að hættum eins og raka og kulda þegar bækur eiga í hlut. Emilía lagði mikla áherslu á að þrífa bækur og benti sérstak- lega á að gera það reglulega á skólasöfnum þar sem böm em notendur. í verklega kafla bæklingsins er í byrjun fjallað um hvaða efni þarf til viðgerða og hvemig meta skal ástand ritsins, hvort gera á við eða ekki. Þótt útlitið væri ekki gott fyrir framan okkur á borðinu hvatti Emilía okkur til dáða og sagði að í langflestum til- fellum væri mikið hægt að gera með litlum tilkostnaði. Hún byrjaði á að sýna okkur hvemig best væri að líma rifnar síður á jöðmm og hvemig líma má lausar arkir aftur inn í bækur og í okkar tilfelli þurfti einnig að sauma inn í eina bókina. Því næst var farið yfir hvemig best væri að styrkja og lagfæra skemmd hom á bókar- spjöldum. Stundum þarf að laga trosnaðar brúnir og sýndi Emilía okkur sérstök lím- bönd sem hægt er að nota til styrkingar. Svo kom að því vandasama verki að lag- færa kjöl og jafnvel að byggja upp nýjan. Til þess verks var notaður sterkur pappír sem brotinn var saman í sérsniðinn kjal- hólk, hann límdur við grisju og svo límt við bókina og bókarspjöldin eftir kúnstar- innar reglum. Ef búa þurfti til nýjan kjöl var hann sniðinn til úr pappaspjaldi og þegar búið var að festa hann við kjalhólk- inn var notað breitt límband til að loka samskeytum og styrkja kjölinn með. Þegar bækumar höfðu verið límdar og styrktar á kilinum vom þær settar í bókbandspressu sem staðsett var á eldhúsborðinu. Slíka pressu og öll önnur efni og áhöld sem nota þarf er hægt að fá hjá ákveðnum innkaupa- aðilum sem versla með séhæfðar bók- bandsvömr. Eftir að hafa þegið drykk og meðlæti í notalegum garðskála við húsið kynnti Emilía fyrir okkur hvemig gott væri að ganga frá fylgihlutum rita, eins og geisla- diskum, og að síðustu sýndi hún okkur tvenns konar aðferðir við að plasta bækur. 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 29

x

Fregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.