Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 31

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 31
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða Eftirtaldir aðilar hafa nú gert samning um samstarf við skorina: Borgarbókasafn Reykjavíkur, Aðalsafn Borgarbókasafn Reykjavíkur, Arsafn Borgarbókasafn Reykjavíkur, Gerðuberg Borgarbókasafn Reykjavíkur, Kringlusafn Borgarbókasafn Reykjavíkur, Foldasafn Borgarbókasafn Reykjavíkur, Seljasafn Borgarbókasafn Reykjavíkur, Sólheimasafn Bókasafn Fjölbrautaskóla Vesturlands Bókasafn Flensborgarskólans Bókasafn Garðabæjar Bókasafn Hafnaríjarðar Bókasafn Iðnskólans í Hafnarfirði Bókasafn Kópavogs Bókasafn Landspítala - Háskólasjúkrahúss Bókasafn og upplýsingaþjónusta Listaháskóla Islands Bókasafn Mosfellsbæjar Bókasafn Náttúrufræðistofnunar Bókasafn Reykjanesbæjar Bókasafn Seltjamamess Bókasafn Sjómannaskólans Bókasafn Veðurstofu íslands Menntasmiðja Kennaraháskóla Islands Samningamir em að mestu leyti samhljóða fyrsta samstarfssamningnum sem gerður var og í þeim felst meðal annars eftirfar- andi: • Að taka á móti hópum nemenda í heimsókn hluta úr degi. • Að taka einstaka nemendur í vettvangsnám í eina viku í senn. • Að veita upplýsingar nemendum sem vinna rannsóknarverkefni um starfsemina. • Að bjóða nemendum upp á að vinna rann- sóknarverkefni sem yrði hluti náms þeirra með umsjón starfsmanns sem skorin sam- þykkir. Samstarfíð við bókasöfnin er háð því að aðstæður leyfí á hverjum stað á þeim tíma sem leitað er eftir. Upplýsingar um vett- vangsnámið verða tíundaðar í Kennsluskrá Háskóla íslands fyrir háskólaárið 2005 - 2006. Unnið er að því að leita eftir samstarfi við enn fleiri söfn og sé áhugi á samstarfí fyrir hendi er hægt að hafa samband við mig í tölvupósti, jg@hi.is. Forstöðumönn- um bókasafnanna, sem þegar hafa gert samninga um samstarf við skorina, eru færðar innilegar þakkir fyrir góðvilja í garð skorarinnar og faglegan rnetnað fyrir hönd fræðigreinarinnar. Vegna velvildar starfsfólks bókasafnanna og áhuga þess um samstarf bendir nú allt til þess að brátt verði hægt að bjóða öllum nemendum í bókasafns- og upplýsingafræðiskor upp á vettvangsnám einhvem tíma á námsferlin- um. Jóhanna Gunnlaugsdóttir lektor í bókasafns- °g upplýsingafræðiskor Háskóla Islands Doktorsefni Á vef NORSLIS - Nordic Research School in Library and Information Science er listi yfir doktorsnema í bókasafns- og upplýs- ingafræðum á Norðurlöndunum. Við fimm skóla í Svíþjóð em 40 doktorsnemar í þessum fræðum, þar af einn Islendingur, 17 við þrjá skóla í Noregi, 17 við tvo skóla í Danmörku, 43 við þrjá skóla í Finnlandi, þar af þrír íslendingar, sjö í Eistlandi, 34 í Litháen og sjö í Lettlandi. Alls em þetta 165 doktorsnemendur og virðist heilmikil gróska í faginu eftir áhugasviðum þessa fólks að dæma. Frá danska bókavarða- skólanum, sem tók upp mastersnám fyrir nokkmm ámm hafa útskrifast sjö doktorar á síðustu tveimur ámm. Sá nýjasti heitir Stuart Hamilton og ritgerðin hans nefnist „Fri og lige adgang til Intemettet“. Von- andi leiðir hið nýja MLIS nám hjá okkur til þess að fleiri fari í doktorsnám í bóka- safns- og upplýsingafræði. Líklegt er að fleiri íslendingar séu í slíku námi í öðmm löndum. Olöf Benediktsdóttir Gerðubergsráðstefnan 2005 Árleg ráðsefna um bamamenningu var haldin í Gerðubergi 12. mars síðastliðinn. Að ráðstefnunni stóðu Borgarbókasafnið, Félag skólasafnskennara, IBBY, Menn- ingarmiðstöðin Gerðuberg og Upplýsing. Dagskráin hófst um kl. 10:30. Ragnheiður Gestsdóttir stjómaði samkomunni og kynnti fyrirlesara. Annette Lassen flutti fyrst erindi sem hún kallaði „Norræn byrjun H.C. Ander- sen.“ Annette er cand. mag. í dönsku frá Kaupmannahafnarháskóla og er nú lektor við Háskóla íslands. I erindi sínu sagði hún frá fyrstu tilraunum Andersens á rit- vellinum, þá sem leikritahöfundar, en hann 30. árg. - I. tbl. 2005 - bls. 31

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.