Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 38

Fregnir - 01.03.2005, Blaðsíða 38
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og npplýsingafrœða Tímaritið Bókasafnið: Verklagsreglur um útgáfu 1. Útgefandi Upplýsing - Félag bókasafns- og upplýs- ingafræða, Lágmúla 7, 108 Reykjavík 2. Hlutverk og markmið 2.1. Hlutverk Bókasafnið er fagtímarit bókasafnsfræð- inga, bókavarða og áhugamanna um bóka- safna- og upplýsingamál. 2.2. Útgáfutíðni Bókasafnið er ársrit og kemur út í kringum dag bókarinnar ár hvert (23. apríl). Upplag blaðsins er 700-1000 eintök samkvæmt nánari ákvörðun ritnefndar. 2.3. Útbreiðsla Allir skuldlausir félagar Upplýsingar fá Bókasafnið sent í áskrift, skv. lista ífá stjóm. Ritnefnd fær nafnalista hjá stjóm Upplýsingar og pantar hann með viku fýr- irvara. Einnig sendir ritnefnd út aðrar áskr- iftir eftir eigin lista. Ritnefnd leitast við að vinna að aukinni útbreiðslu blaðsins, t.d. með dreifíngu á kynningareintökum og með lausasölu. Stjóm Upplýsingar sendir út þau ritaskiptaeintök sem eru á hennar vegum. 2.4. Vefsetur A vefsetri blaðsins er birtur útdráttur eða upphaf greina og jafnframt bent á að blað- ið fái félagar í Upplýsingu ókeypis og áhugasamir eru hvattir til að ganga í félag- ið. Einnig er bent á að kaupa megi blaðið í lausasölu á skrifstofú Upplýsingar. A vef- setri blaðsins kemur fram netfang Upplýs- ingar, verð blaðsins og greiðslumáti. 3. Stjómun 3.1. Ritnefnd Ritnefndin sér um að gefa út og dreifa Bókasafninu. Ritnefnd starfar sjálfstætt og ber faglega og fjárhagslega ábyrgð gagn- vart Upplýsingu - Félagi bókasafns- og upplýsingafræða. Ritnefnd Bókasafnsins er skipuð fímm fulltrúum, sem kosnir em á aðalfundi Upp- lýsingar í maí ár hvert. Skipunartími hvers ritnefndarfulltrúa er lágmark tvö ár. Rit- stjóri skal kosinn sérstaklega til 3ja ára með möguleika á framlengingu um eitt ár í senn. Ritnefnd er heimilt að fela utanað- komandi aðila söfnun auglýsinga fyrir blaðið. Ritnefnd kemur saman a.m.k. einu sinni fyrir sumarleyfi ár hvert og skiptir með sér verkum. Ritnefnd kýs m.a. ritara og gjald- kera úr sínum hópi. Nefndarmenn annast söfnun greina og mynda, lestur prófarka og bera ábyrgð á öflun auglýsinga. Aug- lýsa skal eftir efni í blaðið í júníhefti Fregna ár hvert. Ritnefnd skilar reikningum (rekstrar- reikningi, ársreikningi) og starfsskýrslu vegna útgáfú Bókasafnsins til útgefanda sem kynnt em á aðalfundi Upplýsingar að vori. 3.2. Ritstjóri Ritstjóri er ábyrgðarmaður blaðsins. Hann er formaður ritnefndar og kallar hana sam- an til funda. Ritstjóri annast samskipti við prent- smiðju og leitar jafnan hagstæðasta tilboðs í samráði við gjaldkera. Hann býr handrit til prentunar og skiptir verkum með nefnd- armönnum. Ritstjóri gerir skýrslu um störf ritnefnd- ar í lok hvers starfsárs og skilar til útgef- anda fyrir aðalfúnd Upplýsingar að vori. 3.3. Ritari Ritari semur fúndargerðir ritnefndar og sendir nefndarmönnum eigi siðar en viku eftir hvem fund. 3.4. Gjaldkeri Gjaldkeri sér um fjármál Bókasafnsins. Hann gerir fjárhagsáætlun í samráði við aðra nefndarmenn og tekur saman árs- reikninga. Gjaldkeri innheimtir áskriftir og auglýsingar og greiðir kostnað við blaðið, s.s. prentun, gíróseðla o.fl. 3.5. Umsjónarmaður vefseturs Umsjónanuaður vefseturs sér um að setja útdrátt úr greinum blaðsins eða upphaf þeirra á vefsetur þess www.bokasafnid.is. Ef tenglar em í texta skal sjá til þess að þeir séu virkir en tenglar em ekki upp- færðir eftir að efnið er komið á Netið. Um- sjónarmaður vefseturs getur tekið út óvirka tengla. Þau tilvik em merkt sérstaklega. Umsjónarmaður vefseturs skilar ársfjórð- ungsskýrslu til ritnefndar vegna heimsókna á vefsetur blaðsins. 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 38

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.