Fregnir - 01.03.2005, Síða 44

Fregnir - 01.03.2005, Síða 44
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða Frá Gagnastýringu ehf.: Lausnir fyrir Gegni Fyrir um ári, þegar Gegnir var tekinn í notkun, komu upp vandamál varðandi still- ingar á strikamerkjalesurum (handskönn- um) og var þá haft samband við undir- ritaðan. Einnig kom í ljós að ekki var hægt að prenta bókamiða úr Gegni sambærilega þeim sem prentaðir voru úr Feng. Fljótlega komum við hjá Gagna- stýringu með lausnir á þessu sem reynst hafa fjölmörgum bókasöfnum mjög vel. Lausnir okkar samanstanda af stillingu á strikamerkjalesurum, prentun á bókamið- um og lánþegaskírteinum ásamt kvittana- prentun. Nánari lýsing á lausnum Gagna- stýringar: Útbúið var forrit fyrir PC vélar sem tók við lestri á eldri strikamerkjum og breytti þeim til að passa fyrir nýja Gegni og hand- skannar voru stilltir þannig að hægt var að lesa öll eldri strikamerki úr Feng og nota þau við Gegnis kerfíð. Með þessari aðgerð var komist hjá mikilli vinnu við endur- merkingu á bókum. Gagnastýring útbjó einnig prentlausn fyrir Gegni. Lausnin samanstendur af Zebra prentara sem búið var að forrita og forriti til númeraúthlutunar, því Gegnis- kerfið úthlutar ekki strikamerkjanúmerum. Með prentlausninni er prentaður bókamiði sem samanstendur af strikamerkjamiða, kjalmiða og einum miða með bókfræði- legum upplýsingum. Þá er hægt að prenta út lánþegaskírteini og er það ýmist að bókamiðamir em notaðir eða sérstakir lím- miðar sem em eingöngu gerðir fyrir út- prentun á lánþegaskírteinum. Nýjasta lausnin frá Gagnastýringu er kvittanaprentun sem fengið hefur mjög já- kvæð viðbrögð. Tengdur er kvittana- prentari við Gegni og prentast þá úr honum kvittun fyrir útlánum að afgreiðslu lokinni með nafni lántakanda, titli hverrar bókar sem tekin er að láni auk skiladags fyrir hverja bók. Einnig er mögulegt að prenta út útlánastöðu hvers lántakanda og prentast þá út sambærileg kvittun yfír þær bækur sem viðkomandi lántakandi er með í láni og skiladagur hverrar bókar. Fjölmörg bókasöfn hafa nú þegar tekið í notkun lausnir frá okkur og hafa þær reynst bókasöfnunum mjög vel. Þetta spar- ar mikla vinnu fyrir stærri sem minni bókasöfn auk þess sem kostnaður við að prenta miðana þrjá er lægri en kostnað- urinn við að kaupa forprentaðan strika- merkjamiða. Að teknu tilliti til vinnu- spamaðar og hagræðingar er þessi lausn hagkvæm jaft fyrir minni sem stærri söfn. Jón Sœvar Jónsson, Gagnastýringu ehf. Zebra prentari, strikamerkjalesari og kvittana- prentari Fyrirlestur á vegum fræðslu og skemmtinefndar Fræðslu- og skemmtinefnd LFpplýsingar stendur fyrir morgunverðarfundi þann 28. apríl nk. kl. 8.15- 9.30 á Grand Hóteli. Umræðuefnið verður: Geta bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar nýtt sér tól markaðsfræðinnar. Fyrirlesari er Magnús Pálsson MBA-GeM, forstöðumaður þróun- arsviðs Sparisjóðs Hafnarfjarðar, sem hef- ur áralanga reynslu í markaðsmálum og kennir m.a. sölu- og markaðsfræði við Endurmenntun Háskóla Islands. Verð fyrir félagsmenn er 1150 kr. en 2000 kr. fyrir utanfélagsmenn. Vinsamlegast skráið ykkur fyrir kl. 12 miðvikudaginn 27. apríl. Sjá einnig vefsetur Upplýsingar. Frœðslu- og skemmtinefnd 30. árg. - 1. tbl. 2005 - bls. 44

x

Fregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.