Alþýðublaðið - 30.09.1969, Síða 6
6 A'lþýðubl’aðið 30. septemiber 1969
□ Nýlega var haldia á vegum Osta og^smjörsölunn-
ar, Snorrabraut 54, kynning á ostuim og ostaréttum-
Aðalliður k'ynninSarinnar var að gefa fólki kost á
að bragða nýstárlegan rétt — osta fendue — sem cr
eins konar ostbráð. Einnig var sýning á ofnbökuðum
' ostarétti, ostatertu og skreytingum ostabrauðs.
Margrét Kristinsdóttir, húsmæðrakennari, gaf
kvennasíðunni góðfúslega leyfi til að birta uppskrift
ir um gerð ostarétta úr bæklingnum, er þama voru
á boðstólum.
’ I bæklingnum um gerð osta fondue segir svo:
I>egar talað er um fondue er
í flestum tilfellum átt við fræg-
an svissneskan rétt, ostafondue,
j
sem er sjóðandi heit ostabrað,
búin til úr hvítvíni og osti,
þykkt með maizenamjöl, krydd
( uð með kirsuberjavíni og er
borðuð þannig að hver hefur
sinn disk og gaffal og dýfir síð-
an létt ristuðum brauðteningi í
bráðina, hjúpar hann og færir
upp á diskinn.
Orðið fondue er uppruna-
lega komið af franska orðinu
„fondre“ sem þýðir að bræða.
■Að veita fondue í Sviss er
regluleg hefð og hafa skapazt
margar skemmtilegar reglur
um hvernig beri að neyta þess.
Þó ekki sé nauðsynlegt að fara
eftir þeim, eru hér nokkrar
til gamans.
Fondue potturinn stendur á
miðju borði, allir sitja eða
standa umhverfis og dýfa brauð
teningi í, hver á eftir öðrum.
Þeir sem ekki geta beðið eftir
að röðin komi að þeim verða
að sitja hjá í næstu umferð.
Eftir hverja umferð verður
hver einstakur að láta til sín
heyra, segja helzt eitthvað
spaugilegt, sá sem þegir verður
að sitja hjá í tvær umferðir.
Ef kona missir brauðtening
sinn í pottinn verður hún ið
kyssa borðherra sinn og hús-
ráðanda. Hendi það karlmann
verður hann að bjóða upp á
flösku af víni eftir matinn eða
annað tilsvarandi.
Áhugi íslendinga á osti
og ostagerð er sífellt að aukast
og er þessi skemmtilegi sviss-
neski réttur einmitt tilvalin til
að reyna sig við, sjálfum sér
og öðrum til ánægju.
Leiðbeiningar
um FONDUE gerð.
Það er í rauninni mjög vanda
lítið að búa til gott fondue.
Byrjendur eru þó ragir fyrst
í stað, en ástæðulaust er að
óttast mistök ef eftirfarandi
ráðleggingar eru hafðar í huga.
Það kemur oft fyrir að
fondue verður of þunnt —
þykktin er háð tegund ostsins
sem notuð er. Sú regla gildir
að nota feitan ost, (45%) en
jafnvel feitur ostur er mismun-
andi vatnsríkur, þess vegna
getur þykktin verið breytileg
frá einu skipti til annars. Not-
ið því aidrei allan vökvan sem
gefin er upp í uppskriftinni,
takið dálítið frá — verði fondu-
ið of þykkt er hægur vandi að
þynna það út með því að bæta
í það éökvanum sem tekin var
frá. Verði fondueð of þunnt
má þykkja það með því að
hræra það út með maezine eða
kartöflumjöli.
Látið fondue aldrei bullsjóða,
en vera alveg við suðu. Sjóði
öf mikið getur það aðskilizt.
Komi það fyrir er oft hægt að
bæta úr því, með því að setja
ískaldan vökva útí, þykkja síð-
an með kartöflumjöli eða
maezinamjöli.
Fondue sem brauðteningum
er dýft í, verður að halda vel
heitu, annars er hætt við að
það stífni og verði bæði of
þykkt og seigt. Mikilsverðasti
þáttur fonduegerðar er ostur-
inn. Ýmsar tegundir má nota,
aðeins ekki magran ost. Feitir
ostar bráðna auðveldar og gerð
in verður fínni. Sérstaklega vilj
um við mæla með Brseddum
Gouda 45% (steyptum) osti,
mildum eða sterkum, sem góð-
um og þægilegum fondue osti,
hann bráðnar fljótt, samlagast
vel vökva og verður ekki seig-
ur. Ennfremur er Schweizer
osturinn góður og smurostar
eins og rækjuostur, Sveppa-
ostur og Góðostur.
Rífið fasta osta á rifjárni,
steypta osta er nóg að skera
í litla bita, en smurosta er nóg
að setja beint í pottinn.
. Varizt að nota of mikið ai
sterku víni, svo það yfirgnæfi
ekki ostbragðið. Fondue er gott
að krydda með örlitlu hvítlauks
salti, nýmöluðum pipar og saiti.
Ágætt er að bera með fleiri
kryddtegundir t.d. múskat,
papriku, karry, rósmarín og
timian.
ÁHÖLD.
Sérstakk fondue potta úr
kopar eða leir, sem halda má
heitum yfir sprittloga, langir
gafflar og leirdiskar eru hlutir
sem gaman er að eignast, en
eru samt ekki nauðsynlegir til
að búa til fondué. Vel er hægt
að.nota álpott (síður emalerað-
an eða stálpott.) Venjulega
gaffla má nota í brauðbitana, en
betra er að þeir séu með ein-
angruðu skafti svo að þeir hitni
ekki óþægilega.
OSTAFONDUE:
3 dl. hvítvín
500 gr. Gouda 45%.
1/6 tsk. pipar
1/6 tsk. hvítlaukssalt
1/6 tsk. múskat
1 tsk. kirsuberjavín eða
koníak.
Hitið saman hvítvín og ^st
við vægan hita, þar til ostur-
inn er bráðnaður. Hrærið í á
meðan. Kryddið með kirsuberja
víni eða koníaki, múskati, hvít-
lauks, salti og pipar. Verði bráð
in of þykk má þynna hana með
hvítvíni. Berið réttinn fram í
pottinum, haldið jlionum vel
heitum og berið létt ristaða
brauðteninga með og langa
gaffla til að dýfa þeim í osta-
bráðina.
i
KALT OSTABRAUÐ.
Leggið þykkar ostasneiðar
(gouda) á smurðar brauðsneið-
ar. Skerið hreðku í sneiðar og
leggið sneiðarnar yfir ostinn.
Söxuðum graslauk stráð efst.
Þekið ljóst brauð eða kex
með grænum alpaosti. Leggið
1—2 hringi af rauðri papriku
yfir.
Framhald á bls. 11.
réfakassi
kwennasíö-
nniiar
□ Kvermasíðun ii hefur borizt bréf frá húsmóður í
Reylýiavík, þar sem hún gerir að umtalsefni ,síau ný-
lega útkomna bók, „Ungbarnabókina.“
Vill kvennasíðan taka eindregið undir ummæli hús-
móður um ágæti bck^rinnar og ættu allar mæður og
/ þá sérstaklega verðandi mæður að ‘eignast eintak af
henni.
Af þessu tilefni vill kvennasíðan taka það fram,
að allar slíka rábendingar eru bakksamlega þegnar cg
birtir hér bréf húsmóður í heild.
h - ......
□ Kæri þáttur. Mig langar
til að vekja athygli lesenda
þinna á nýútkominni bók, sem
heitir yUngbarnabók.ai Gefin
út af Kvöldvökuútgáfunni 1869
hún er þýdd úr norsku.
Höfundar:
Eyvinn Tveteraas, yfirlæknir
á barnadeild sjúkrahúss i Nor-
egi. Dr. Olav Sato, augnsérfræð
ingur. Rimor Vesje, ráðunaut-
ur um meðferð ungbarna. Guð-
rún Hilt, kennari við fóstru-
skóla í Noregi. Roald Rinvik,
sérfræðingur í barnalækning-
um. Ase Gruda Skard barna-
sálfræðingui’. Kare Ohma, skuro
læknir í Noregi.
Þessi upptalning sérfræðinga,
sem skrifa þessa bók, gefur að
verulegu leyti til kynna, um
hvað bókin ræðir. Hún veitir
leiðbeiningar um flest, sem
varðar ungbarnið. Til dæmis:
Allan fatnað, sem þarf að hafa
til þegar barnið fæðist, um
rúm þess og þessháttar; um
fæðu þess og blöndun hennar,
bætiefni og fleira; um hirðingu
á barninu; barnasjúkdóma;
bólusetningar; æskilegan fatn-
að og um leikföng.
Þar er einnig fjallað um and
legan og líkamlegan þroska
barnsins stig af stigl. Afbrigði-
leg börn og meðferð á þeim.
Vernd gegn sjúkdómum.
í stuttu máli; Allt er þarna
að finna sem þýðingarmest er
varðandi ungbarnið, frá því að
það fæðist ósjálfbjarga — og
skynjar lítt umhverfi sitt og
þar til það stendur upprétt,
sigurglatt eftir að hafa komizt
yfir örðugasta hjallann, fyrsta
aldursskeiðið.
Eftir lestiyinn sannfærðist- ég
um, að þetta var einmitt bók-
in, sem ég hafði óskað mér að
hafa með höndum, þegar börn-
in mín voru ung. Það veitir ör-
yggi að hafa svona bók á heim-
ilinu, lesa hana og læra um dag
lega umönnun barnsins, og
fletta upp í henni ef út af ber.
Það er mjög þýðingarmikið að
barnið hljóti frá frumbernsku
rétta umönnun. Lengi býr að
fyrstu gerð.
Bókin er líka falleg, bæði
myndirnar og pappírinn, svo er
hún líka létt og handhæg, dá-
lítið hátiðleg eins og vera ber
þegar fjallað er um ungbarn,
sem lætur ljósið sitt skína.
Bókin, sem allar ungar
mæður ættu að kynna sér.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Húsmóðir.