Helgarpósturinn - 08.12.1994, Síða 7
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
7
Bankastjórar ríkisbankanna auka tekjur sínar gífurlega með aukasporslum og aukastörfum, enda eru
grunnlaun aðeins þriðjungur af tekjum þeirra
Fá þrettánda mánuðinn
og háar greiðslur við
starfsafmæli
Ef grunnlaun bankastjóra ríkis-
bankanna eru skoðuð kemur í ljós
að þau standa oftast nær ekki undir
nema þriðjungi launa þeirra.
Heildarlaun þeirra samanstanda af
margvíslegum þáttum svo sem
risnu, aksturspeningum en síðast
en ekki síst þá fá þeir greitt íyrir
fjöldann allan af nefndarsetum,
sumt jafnvel vegna fyrirtækja sem
bankarnir hafa orðið að leysa til sín
vegna skuldastöðu þeirra. Inn í
heildarlaun bankastjóranna kemur
síðan 13. mánuðurinn, eins og
bankamenn fá samkvæmt samn-
ingum Sambands íslenskra banka-
manna. Bankastjórar semja við
bankaráð um sín kjör en virðast
þiggja allar sérgreiðslur banka-
manna eins og sést af 13. mánuðin-
um og „starfsafmælisgreiðslum.“
Bankastjórarnir fá sérstakar
starfsafmælisgreiðslur sem eru vel
útilátnar eins og sést af því að árið
1992 skiptu fjórir þeirra á milli sín
2,6 milljónum króna. Þessar
greiðslur fá þeir á fimm ára fresti en
þær eru greiddar samkvæmt samn-
ingum SÍB. Árið 1992 fékk fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarsjóðs,
632.216 krónur í slíka greiðslu.
Ef launasamsetning bankastjór-
anna á síðasta ári er skoðuð kemur
margt fróðlegt fram og er þar stuðst
við upplýsingar sem koma fram í
Bankabókinni eftir Örnólf Árna-
son sem er nýkomin út.
Alttof
há laun
Finnst þér raunhæft að veita
bankastjórunum 13. mánuðinn?
„Ég get bara ekkert um það sagt
því ég hef ekki kynnt mér þessa
samninga. Opinberir starfsmenn fá
greitt fyrir 13. mánuðinn og ein-
hvern tíma heyrði ég að bankastjór-
arnir væru komnir með 14. mánuð-
inn, hvort sem það er rétt eða ekki.
Það er miklu frekar að velta fyrir sér
hvort bankastjóralaun ættu að fara
fyrir Kjaradóm.“
En finnst þér ástæða til að rann-
saka launakjörin frekar?
„Já, það er ekki eðlilegt að banka-
stjórar Seðlabankans séu með lægst
laun bankastjóra í landinu. Aðal-
bankastjóri Seðlabankans nær ekki
aðstoðarbankastjóralaunum í við-
Grunnlaun banka-
stjóra miðuð við
hæstaréttardómara
Árið 1992 byrjaði Landsbankinn
að miða launagreiðslur bankastjóra
við laun hæstaréttardómara eins og
þau voru ákveðin af kjaradómi. Of-
an á grunnlaun var síðan greitt sér-
stakt starfsaldursálag, hæst 17 pró-
sent eftir 15 ára starf. Að auki fengu
bankastjórar sérstakar launa-
greiðslur samkvæmt ákvörðun
bankaráðs. Þann 1. desember 1993
tóku síðan gildi nýir kjarataxtar
fyrir yfirmenn Landsbankans. Sam-
kvæmt þeim eru mánaðarlaunin,
þegar þrettándi mánuðurinn er
reiknaður með, 445.250 krónur á
mánuði fyrir bankastjóra og
295.086 krónur fyrir aðstoðar-
bankastjóra, að viðbættum kr.
43.662 fyrir setu á bankaráðsfúnd-
um.
Um fasta risnu gildir það sama
og í Búnaðarbankanum, banka-
stjórar hafa 190 þúsund á ári og að-
stoðarbankastjórar 152 þúsund.
Önnur risna er greidd samkvæmt
framlögðum reikningum. Banka-
stjórar Landsbankans fá til umráða
bíla og greiðir bankinn rekstrar-
kostnað þeirra. Aðstoðarbanka-
stjórar fá greiddan bílastyrk fýrir 22
þúsund km akstur á ári.
Þröstur Olafsson, formað-
ur bankaráðs Seðlabanka
íslands, telur laun banka-
stjóra Seðlabankans óeðli-
lega lág.
skiptabönkunum. Það eru ekki eðli-
leg hlutföll í því. Svo geta menn deilt
um hvað beri að gera í því.“
Hefur þú einhverja skoðun á
hvort bankastjórar viðskiptabank-
anna fái of há laun eða Seðlabanka-
stjóramir of lág laun?
„Mín skoðun er sú að þessi háu
laun sem menn hafa verið að lesa
um í Frjálsri verslun, ef þau eru rétt,
séu allt ofhá.“ lae
Björgvin Vilmundarson:
meðallaun 1.056.000
Bankastjóralaun 445.250
Föst risna 15.833
Akstur o.fl. (áætlað) 75.000
Bankaráðsfundir 43.662
Formennska hjá Landsbréfum 69.927
Hömlur 43.662
Kreditkort 47.401
Fiskveiðasjóður, formennska 83.309
Formennska í samninganefnd banka 100.000
Reginn ólaunað
Rekstrarfélagið ólaunað
Kirkjusandur ólaunað
Alls 924.044
Mismunur 131.956
Borga skatt af
bílanlunnindum
sinna manna
Bankaráð Seðlabankans ákvað á
fundi 26. nóvember 1975 að laun
bankastjóra þar tækju mið af laun-
um hæstaréttardómara. Þar á ofan
kemur 10 prósenta álag á laun for-
manns bankastjórnar. Starfsaldurs-
álag hefur verið greitt síðan 1. okt-
óber 1987, hámark 17 prósent eftir
15 ára starf. Við ákvörðun starfsald-
ursálags er tekinn til greina starfs-
tími hjá ríkinu við hliðstæð störf
þannig að í reynd eru bankastjórar
ævinlega í efsta þrepi þegar þeir
heíja störf. Þessi föstu laun Seðla-
bankastjóra, að meðtöldum 13.
mánuðinum og fastri orlofs-
greiðslu, sem er kr. 49.410 með
júnílaunum, jafngilda 324.524
krónur á mánuði.
Aukagreiðslur og hlunnindi í
Seðlabankanum eru með svipuðu
sniði og í Landsbankanum, risna
hin sama, kr. 190 þúsund á ári, bif-
reiðahlunnindi einnig þau sömu.
Búnaðarbankinn tekur hins vegar
að sér að greiða skatt af bifreiða-
hlunnindum bankastjóranna sinna.
Bankaráðsmenn allra ríkisbank-
anna hafa nálægt 40 þúsund króna
mánaðarlaun fyrir setu sína þar
samkvæmt ákvörðun viðskiptaráð-
herra en þessi upphæð er síðan tvö-
föld í Búnaðarbanka vegna setu í
stjórn Stofnlánadeildar. Formenn
bankaráða fá tvöfalda þessa upp-
hæð en þessir fundir fara venjulega
fram á skrifstofutíma.
Benda má á að ef vinnuframlag
bankastjóranna er óvenju mikið þá
fá þeir aukagreiðslur eins og kom
fram þegar bankastjórar Lands-
bankans fengu sérstaka greiðslu
vegna aukins vinnuframlags vegna
kaupa á Samvinnubankanum árið
1991 og vinnu í sambandi við upp-
gjör á skuldum SlS og tengdra fyr-
irtækja á árunum 1992 og 1993.
Ríflegar
eftirlaunagreiðslur
Lífeyrisgreiðslur bankastjóranna
eru síðan einstakar þar sem þeir
þurfa ekki að greiða iðgjöld í lífeyr-
issjóð en fá sérstaka eftirlauna-
samninga. Bankastjórar í Búnaðar-
bankanum fá 90 prósent af föstum
launum eftir 15 ára starf. Banka-
stjórar í Seðlabanka og Landsbanka
fá 90 prósent af föstum launum eft-
ir 18 ára starf en sú regla kom til ár-
Sighvatur Björgvinsson
iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra hefur beðið í 11 mán-
uði eftir að formenn banka-
ráðanna svari honum.
Svaraekki
Sighvati
Fyrir tæpum 11 mánuðum, eða
14. janúar síðstliðinn, boðaði Sig-
hvatur Björgvinsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, til blaðamanna-
fundar og kynnti skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um starfskjör helstu
ríkisbanka og sjóða sem heyra
undir iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neyti. Þar sagði hann að í fram-
haldi af þessari úttekt Ríkisendur-
skoðunar myndi hann kalla á for-
menn bankaráðanna og óska eftir
endurskoðun á launakerfinu og
fara fram á breytingar á því, enda
er uppbygging sniðin eftir óskum
formanna bankaráðanna. Að sögn
Þorkels Helgasonar, ráðuneytis-
stjóra í iðnaðar-og viðskiptaráðu-
neytinu, hefur ráðuneytunum ekki
enn borist nein viðbrögð frá for-
mönnum bankaráðanna en þeir
eru Kjartan Gunnarsson fýrir
Landsbanka íslands, Pálmi Jóns-
son fyrir Búnaðarbankann og
Þröstur Ólafsson fyrir Seðla-
banka íslands.
„Ef ég man rétt þá kallaði ráð-
herra á formenn bankaráðanna og
bað þá um að gera sér tillögur um
athugasemdir í málinu og þar við
situr,“ segir Þorkell. „Við Sighvatur
vorum einmitt að tala um fyrir
svona viku eða hálfum mánuði að
fara að hnippa í þá.“
ið 1986. Jóhannes Nordal er því
með um 400 þúsund krónur í eftir-
laun. Tómas Árnason nýtur síðan
sérstakra kjara því hann nýtur
ráðningarkjara frá því fyrir 1989 en
það þýðir að lífeyrisgreiðslur til
hans verða hátt í hálf milljón króna
Sverrir Hermannsson:
meðallaun 960.000
Bankastjóralaun
Föst risna
Akstur o.fl.
Bankaráðsfundir
Landsbréf
Lýsing 4
Hömlur, formaður
Iðnþróunarsjóður
Rekstrarfélagið, formaður
Kirkjusandur, formaður
Reginn, formaður
Alls
Mismunur
445.250
15.833
(áætlað) 75.000
43.662
34.964
2.342
87.324
43.662
ólaunað
ólaunað
ólaunað
788.037
171.963
Stefán Pálsson: meðallaun 944.000
Grunnlaun bankastjóra 17% álag Föst greiðsla 273.852 46.555 79.166
Akstur o.fl. (áætlað) 90.000
Bankaráðsfundir 43.063
Stofnlánadeildarfundir 43.063
Framleiðnisjóður 39.750
Reiknistofa bankanna 76.910
Tryggingasjóður viðskiptabanka 19.875
Samninganefnd bankanna (óstaðfest) Alls 50.000 778.067
Mismunur og þar af leiðandi óskilgreint 165.933
■ Stefán Pálsson á sæti í stjóm eftirlaunasjóðs Búnaðarbankans
sem er launað starf, en ekki er vitað hver þóknunin er. Sömuleiðis situr hann í stjórn Sambands viðskiptabanka.
Sólon Sigurðsson:
meðallaun 800.000
Grunnlaun bankastjóra 273.852
17% álag 46.555
Föst greiðsla 79.166
Akstur o.fl (áætlað) 90.000
Bankaráðsfundir 43.063
Stofnlánadeildarfundir 43.063
Greiðslumiðlun hf. 43.662
Kaupþing 63.283
Lýsing 42.342
Þróunarfélagið 33.000
Alls 730.756
Mismunur 69.244
Jón Adolf Guðjónsson:
meðallaun 864.000
Grunnlaun bankastjóra 273.852
17% álag 46.555
Föst greiðsla 79.166
Akstur o.fl (áætlað) 90.000
Bankaráðsfundir 43.063
Stofnlánadeildarfundir 43.063
Kaupþing 42.189
Lýsing 84.684
Kreditkort 43.775
Alls 762.180
Mismunur 101.820
Halldór Á. Guðbjarnarson:
meðallaun 936.000
Bankastjóralaun
Föst risna
Bankaráðsfundir
Landsbréf
Lind, formaður
Hömtur
Rekstrarfélagið
Kirkjusandur
Reginn
Alls
Mismunur
445.250
15.833
43.662
34.964
87.324
40.303
ólaunað
ólaunað
ólaunað
667.336
268.664