Helgarpósturinn - 08.12.1994, Síða 19
MORGUNPÓSTURINN SPORT
19
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
Enn er alls óvíst hvar landsliðs-
maðurinn Arnar GréTARSSON mun
leika á næsta tímabili. Arnar stað-
festi að hann væri enn óráðinn og
ekki væri víst að Breiðablik yrði fyr-
ir valinu ef ekkert yrði úr atvinnu-
mennskunni. Arnar sagðist hafa
fengið mörg tilboð og þau yrðu
skoðuð í ró og næði...
Ivar ÁSGRÍMSSON, sem þjálfað hef-
ur meistaraflokk Skagamanna í
körfubolta að undanförnu, hefur
ákveðið að taka sér frí frá þjálfun og
einbeita sér frekar að leik með lið-
inu. Við starfi ívars tekur Elvar
ÞóRÓLFSSON en hann er einnig leik-
maður liðsins en hefur verið meidd-
urí vetur...
að vakti athygli í leik ÍR og Vals í
körfuboltanum á sunnudag hversu
fáir áhorfendur voru á leiknum. IR-
ingar eru vanir að styðja vel og
dyggilega við sína menn og því var
unadrlegt að sjá hálftómt hús í
borgarslagnum. Skýringin á þessu
mun vera sú að fólk vissi ekki betur
en að leikurinn færi fram á sunnu-
dagskvöldið eins og venjan er. Þess í
stað var leikurinn á sunnudeginum
kl. 14 og margir sem síðan mættu
um kvöldið hittu fyrir á handbolta-
leik ÍR og Víkings í 1. deildinni í
handbolta...
Knattspyrnumaðurinn Arnar Grétarsson stendur í ströngu þessa dagana. Hann hefur haft í nógu
að snúast með landsliðinu og ferðataskan hefur verið heimili hans að undanförnu. En Arnar er einnig
í prófum og á sama tíma er umboðsmaður hans í viðræðum við nokkur stórlið í Evrópu um
væntanlegan atvinnumannasamning
Enn að
EbIIII CIU Bandarikjamaðurinn John Johnson er ekkert á
því að gefast upp og hætta í sinni íþrótt. John, sem nálgast nú fer-
tugt, kom fyrst til íslands árið 1978 og hefur leikið með Fram, Val og
Akranesi í úrvalsdeildinni en leikur nú með Selfyssingum í 1. deild-
inni. „Ég kom til íslands eftir að hafa verið í hópi þeirra leikmanna
Los Angeles Lakers sem komust ekki að i aðalhópinn. Valið stóð þá
á milli Frakklands, Grikklands eða Spánar og varð litla ísland fyrir
valinu. Ég sé alls ekki eftir því,“ segir John. John kom til landsins í
september og er upptekinn þessa dagana því út er að koma bók eft-
ir hann á næstu dögum. „Þetta er kennslubók í körfubolta," segir
hann og bætir við að hún sé ætluð leikmönnum tíu ára og eldri.
Bih/hb
„Hefði viljað hafá Inga
Bjömáfmm“
segirAmar og telur Breiðablik hafa misst manninn sem það þufti.
spennandi og þau, sem gætu komið
síðar og ég féllst á þau rök. Ef ekk-
ert kemur hins vegar út úr þessu hjá
umboðsmanninum er alveg eins
víst að ég skreppi til Svíþjóðar og
láti reyna á þetta.“
Hvaða sœnsku lið sýndu þennan
Ahuga?
„Það voru Trelleborg, Frölunda
og AIK frá Stokkhólmi. Trelleborg
sýndi einna mestan áhuga og vildi
fá mig strax. Það dæmi er hins veg-
ar búið núna vegna þessara mála.
Þeir vildu klára sín leikmannamál
fyrir jól og það gat ég ekki fallist á.
Kannski á ég eftir að sjá eftir þessu,
Trelleborg er stórt og ríkt félag, sér-
staklega eftir að hafa slegið enska
liðið Blackburn út úr Evrópu-
keppninni."
Heldurðu að þú eigir eftir að sjá
eftir þessu?
„Ég vona ekki. Umboðsmaður-
inn minn telur líkurnar á því að ég
kornist í atvinnunrennsku vera svo
góðar að ekki sé hægt að spilla fyrir
þeim með öðrum viðrséðum á
sama tíma. Hins-
vegar veit maður alveg að ekkert er
öruggt í þessu og líkurnar eru fljót-
ar að breytast. Maður verður að
taka sjensinn.“
Nú hefur þessi straumur til
Skandinavíu aukist mikið á tneðal
knattspyrnumanna. Sumir segja að
það sé ekki nógu gott, lið í Svíþjóð og
Noregi jafnist ekki á við lið frá meg-
inlandinu og leikmönnum geti farið
aftur. Hvaðfinnst þér?
„Þessu er ég ekki sammála. Hefði
ég ekki möguleika á að komast að í
Þýskalandi eða Sviss hefði ég gripið
Svíþjóðartækifærið fegins hendi.
Atvinnumennskan er hins vegar sú
sama að mínu mati, íslenskur leik-
maður, sem fer til Svíþjóðar er auð-
vitað í þessu íoo prósent og gerir
ekkert annað á meðan. Þar að auki
hafa sænsk lið sýnt það að undan-
förnu að uppgangurinn og framfar-
irnar eru miklar þessa dagana.“
Ekki sáttur við eigin
frammistöðu
Seturðu stefnuna á atvinnu-
mennsku í vetur?
„Já, það geri ég. Ég setti mér það
markmið í haust eftir að tímabilinu
lauk hér heinia að reyna að komast
út. Ég veit ekkert hvort úr því verð-
ur en maður verður að reyna."
Varstu sáttur við eigin frammi-
stöðu í sumar?
„Nei, ekki fyllilega. Mér fannst
að ég hefði getað gert betur og
sömuleiðis liðið. Hins vegar lentum
við í mjög miklum og erfíðum
meiðslum og það setti mikið strik í
reikninginn. I heildina hefði þetta
mátt vera betra.“
Nú segja tnargir að tímabilið hafi
ekki verið nógu gott, liðin ekki leikið
skemmtilega og til að kóróna allt hef-
ur ekkert gengið hjá landsliðinu.
Þetta er ekki gott ár eða hvað?
„Hvað landsleikina varðar er
ljóst að afraksturinn er ekki mikill.
Við vorum óheppnir gegn Svíun-
um þótt auðvitað hafi verið slæmt
að tapa honum eins og leiknum
gegn Sviss. Leikurinn gegn Tyrkj-
um var síðan mjög lélegur og það
getur alltaf komið uppá. Það er ekki
hægt að búast við einhverjum
klassafótbolta leik eftir leik. En að
fara að krefjast afsagnar Ásgeirs
Elíassonar og endurskoðunar
hans vinnubragða er bara bull. Ár-
angur Ásgeirs hefur verið mjög
góður og er hægt að líta til HM-rið-
ilsins í því sambandi en þar náðum
við okkar besta árangri frá upphafi.
Síðan Ásgeir tók við hefur liðið far-
ið að leika betur og skemmtilegri
fótbolti hefur litið dagsins ljós.“
Erfitt að skora mörk
Er sóknin höfuðverkur iandsliðs-
ins?
„Sóknin hefur ekki gengið nógu
vel í síðustu leikjum liðsins það er
alveg rétt. Það er auðvitað ekki gott
að ná ekki að skora mark í þremur
leikjum í röð, en það er heldur ekki
hægt að skella skuldinni alfarið á
sóknarmennina. Sóknin þarf að fá
eitthvað til að moða úr og þar hefur
miðjan líka brugðist. Sendingarnar
okkar voru kannski ekki nógu góð-
ar. Liðið verður að spila val saman
og þá eru allir meðtaldir.“
Nú hefur verið deilt á Ásgeir vegna
vals hans á mönnum, Bjarki Gunn-
laugsson hefur ekki fengið á byrja
inn á í leikjum, Þórður Guðjóns-
son cr ekki valinn í hópinn og Eyj-
ólfur Sverrisson hefur ekki fundið
sig. Hvernig metur þú þetta?
„Það er alltaf hægt að gagnrýna
val manna í landslið. Sú umræða á
sér sjálfsagt alltaf stað og alltaf
heyrast einhverjar óánægjuraddir.
Ég hef lítið séð til Þórðar og tvíbur-
anna úti og get því lítið dæmt úr frá
því. Því er hins vegar ekki að leyna
að Bjarki átti mjög góða innkomu í
Svíaleiknum og stóð sig þar mjög
vel. Mér þykir ekki ólíklegt að hann
verði í byrjunarliðinu í næstu leikj-
um, liðinu hefur ekki gengið vel og
mér finnst líklegt að Ásgeir geri ein-
hverjar breytingar í kjölfarið á því.“
að
Arnar leggur stund á viðskipta-
fræði í Háskólanum og er á öðru
ári. Vegna fótboltans hefur hann
þurft að minnka við sig og tekur nú
próf í tveimur fögum. „Ég hef verið
í burtu meira og minna með lands-
liðinu og lítill tími hefur gefist til
æfinga. Þessi tími mælist í mörgum
vikum og það gefur auga leið að
ekki er hægt að Iáta allt hafa for-
gang.“
„Konan mín vissi
nverju hún gekk“
„Ég setti mér það markmið í haust, eftir að tímabilinu lauk hér heima,
að reyna að komast út. Ég veit ekkert hvort úr því verður, en maður
verður að reyna.“
Hvað segir konan þín við þessu?
„Hún getur nú lítið sagt við því.
Hún vissi þetta þegar við kynnt-
umst og ætti þess vegna ekki að
vera undrandi.“
Fá landsliðsmenn nokkuð frí.
Er þetta ekki í gangi allt árið?
„Ég verð allavega ekki var við frí-
in. Eftir sumartímann er venjulega
tekið frí í einn mánuð og síðan far-
ið af stað með þrekæfingar. Þegar
menn eru í landsliðinu þurfa þeir
að vera í góðu formi allt árið. Síðan
bætir ekki úr skák hjá mér að ég er
að æfa með þessum stórfélögum og
verð að koma vel út ef ég er settur í
einhver þolpróf.“
Nú hafa Blikar skipt um þjálfara.
Ingi Björn Albertsson var ekki
endurráðinn og Bjarni Jóhanns-
son er tekinn við. Hvernig líst Arn-
ari á nýja þjálfarann?
„Ég þekki Bjarna lítið og get því
lítið sagt um hann í sjálfu sér. Ég
var þó ósáttur við að ekki skyldi
vera samið við Inga Björn og tel að
hann hefði verið besti kosturinn.
Það voru allir ánægðir með hann
og enginn haíði undan honum að
kvarta.
Ingi Björn er einfaldlega toppka-
rakter. Hann er hreinn og beinn,
kemur heiðarlega fram og ég hef
ekki kynnst mörgum sem hafa hans
hæfileika. Hann veit allt um fót-
bolta og á mjög auðvelt með að
miðla öðrum af reynslu sinni. Ég
held að Breiðablik hafi tapað miklu
með þessu og er ósáttur við það.
Það er ekkert launungarmál.“
Hvernig líst þér á deildina fyrir
nœsta sutnar?
„Það hafa verið rnjög skrýtnar
sviptingar í gangi að undanförnu
og mörg lið hafa tekið stakkaskipt-
um. Ef við göngum út frá því að
breytingarnar verði ekki miklar í
viðbót held ég að 2-3 lið eigi eftir að
berjast um titilinn, en önnur lið
verði mjög jöfn alveg niður úr.
Ég held að Skagamenn og KR-
ingar verði mjög sterkir og svo er
ekki ólíklegt að Framarar blandi sér
í þá baráttu. Valsmenn, FH- ingar
og Keflvíkingar hafa misst marga
menn og líklega verður erfitt fyrir
þessi lið að jafna sig á því. Eyja-
menn, Grindvíkingar og Leifturs-
menn hafa bætt við sig mörgum
mönnum á meðan Blikar hafa nán-
ast ekki gert neitt.“
Björn Ingi Hrafnsson
Arnar Grétarsson knattspyrnu-
maður í Breiðabliki er einn þeirra
leikmanna, sem hvað mestar vonir
eru bundnar við varðandi framtíð-
ina. Drengurinn er enda mjög
hæfileikaríkur og nú eru allar líkur
á því að hann sé á leið utan til at-
vinnumennsku í Þýskalandi eða
Sviss. Á dögunum fékk hann líka
freistandi tilboð frá þremur sænsk-
um liðunr, en litlar líkur eru á því
að samningar takist við þau, Arnar
og þýskur umboðsmaður hans eru
sammála um að reyna fyrst við
stærri liðin á meginlandinu.
„Ég er kominn með umboðs-
mann þarna úti og hann er að
vinna í þessum málum,“ segir Arn-
ar þegar hann er spurður út í þessi
mál. „Ég gerði samning við hann til
31. janúar og vonast til þess að mál-
in skýrist endanlega á þeim tíma.“
Umboðsmaður þessi er þýskur
og heitir Dieter Langhals. Arnar
komst í kynni við hann fyrir milli-
göngu bróður síns, Sigurðar Grét-
arssonar, og þýska þjálfarans Fie-
del Rausch, sem meðal annars
kom með Kaiserslautern hingað í
haust. „Þeir félagar þekkjast mjög
vel og Rausch lagði inn mjög gott
orð fyrir mig,“ segir Arnar.
Svíþjóð ekki á
dagskrá í bili
E11 erþá útiir myndinni aðfara til
Svíþjóðar og spila þar?
„Umboðsmaðurinn minn lagði á
það áherslu að við biðum með
sænska dæmið fram yfir önnur
lönd Evrópu. Hann mat það svo að
sænsku tilboðin væru ekki eins