Helgarpósturinn - 08.12.1994, Síða 36
36
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
sv ÞV Titill Flytjandi
02 01 LÖG UNGA FÓLKSINS UNUN
01 02 GIRL, YOU’LL BEAWOM... URGE OVERKILL
04 03 SWEETJANE COWBOY JUNKIES
11 04 THE WILD ONES SUEDE
03 05 BUST BUBBLEFLIES
12 06 T0M0RR0W SPOON
08 07 FEELING SO REAL MOBY
16 08 MURDER WAS THE CASE SNOOP DOGGY DOGG
— 09 BETTER THINGS MASSIVE ATTACK
05 10 MAÐUR ÁN TUNGUMÁLS BUBBI MORTHENS
14 11 WORKAHOLIC BONG
09 12 HIGHER ANDHIGHER JETBLACKJOE
13 13 AÐEINS FYRIR ÞIG TWEETY
— 14 NOTHINGMAN PEARLJAM
06 15 BANG AND BLAME R.E.M.
07 16 YELLOWLEADBETTER PEARLJAM
— 17 ÉG GEF MÉR KOLRASSAKRÓK.
— 18 THE MAN WHO SOLD THE WORLD NIRVANA
20 19 CONNECTION ELASTICA
— 20 ME AND MY BIG BROWN BELLY URMULL
kraumandi undir...
GOTT MÁL (REMIX) TWEETY
ODE TO MY FAMIL Y CRANBERRIES
TILL NOW BUBBLEFLIES
LOVE SPREADS STONE ROSES
íslenskt topplag!! Lög ungafólksins með Un-
un er nú komið á toppinn. Gáfnaljós vik-
unnar eru Suede og lagið þeirra Wild Ones
sem fer upp um 7 bekki. Hœsta nýja lagið
eiga Massive Attack ásamt söngkonunni
Tracey Thom, Better Thingsfer beint á 9.
bekk. Fimm ný lög koma inn á listann þessa
vikuna. 9 hopparar eru á listanum en fal-
listarnir eru 5. Eitt lag stendur í stað.
X-Domino’s listinn er valinn vikulega af hlustendum og dagskrár-
gerðarmönnum X-ins. Listinn er frumfluttur á fimmtudögum kl.
16:00-18:00 og endurleikinn á laugardögum kl. 14:00-16:00. Það er
Einar Örn Benediktsson sem sér um’ann!
mmMorgun A \
Posturmn
Nú fara jólin að koma. Ég sá að
bóndinn var með aðventukrans uppi
á borði á sunnudaginn. Það er viss
passi að þegar kransinn er kominn
upp á borð, þá er stutt til jóla.
Og þá er líka stutt þar til að bóndinn
dregur upp litlu stytturnar af kindun-
um að borða litla barnið í jötunni
með englana hangandi yfir sér.
Hafiði einhvern tímann náð út á
hvað það gengur, þetta með barnið í
jötunni? Mannfólkið étur lömb alla
sunnudaga, allan ársins hring. Svo
tekur það þessar styttur fram, þar
sem hlutverkunum hefur verið
við, og heldur hátíð.
Út á hvað gengur*
þetta eiginlega?
Þetta er einhvers konar friðþæging.
Það veit upp á sig skömmina, setur
upp einhverja leiksýningu þar sem
grey rollurnar fá að borða eitt barn í
staðinn fyrir öll lömbin sem það hef-
Sigling um Svartahafið
Rithöfundar segj a
Þann fjórtánda nóvember hélt úr
höfn í Piraeus á Grikklandi bátur
með mannabein í maganum, nánar
tiltekið fjögur hundruð rithöfunda
sem áttu að sigla um Eyjahaf og
Svartahaf með viðkomu í sjö borg-
um en ferðin átti að enda í Delphi.
Fimm íslenskir rithöfundar voru
valdir úr hópi fjölda umsækjenda til
að taka þátt í ferðinni en það voru
þau Þórunn Valdimarsdótir, Sig-
urður Pálsson, Sigurður A.
Magnússon, Steinunn Sigurðar-
dóttir og Jóhannes Helgi. Þrír
þeirra hittust aftur og ræddu ferða-
lagið ásamt blaðamanni.
Það var formaður sænska rithöf-
undasambandsins Peter Curman
sem fékk þá brjálæðislegu hugmynd
að sigla með rithöfunda af 29 þjóð-
ernum um Eystrasaltið 1992 og á
fundi í Istanbul í nóvember 1993 var
ákveðið að endurtaka ævintýrið og
sigla nú um Svarta hafið þar sem
þjóðirnar, sem áður voru einangr-
aðar sökum ógnarstjórnar komm-
únista, eru nú einangraðar sökum
fátæktar og menning þeirra sem fyrr
öðrum þjóðum lokuð bók. Eftir ár-
angursríka fjársöfnun sem
teygði sína löngu fingur í hina
ýmsu borgarsjóði, ríkissjóði,
Unesco og menningarsjóði fyr-
irtækja, meira að segja Onassis-
sjóðinn, var haldið af stað með
660.000 bandaríkjadali, draum-
urinn varð að veruleika. Von
forvígismannanna er sú að
þetta megi verða til þess að reist
verði skrifta- og þýðingarmiðstöð
fyrir bókmenntir þeirra þjóða sem
liggja að Eyja- og Svartahafi og styrki
auk þess önnur markviss menning-
artengsl við þessar þjóðir. Miðstöðin
á síðan að fá nafnið Word Renaiss-
ance Centre sem er bein tilvísun í
nafnið á skipinu en það heitir Mts
World Renaissance. Eftir siglinguna
um Eystrasalt var sett á laggirnar slík
stofnun í Visby á Gotlandi af þar-
lendum rithöfundum sem ber heit-
ið, Baltic Centre for Writers.
Grískur Fjalla-
Eyvindur
Ferðin hófst í Pireaus á Grikk-
landi þar sem Þórunn Valdimars-
dóttir kleif upp í kirkjuturn heilags
Georgs til að sjá Akrapolis skína í
morgunsólinni. Síðan hófst sjálf
siglingin en um tveggja daga leið var
til Odessu í Úkraníu. Á leiðinni tii
Odessu hélt Sigurður A. fyrir-
lestur um Fjalla-Eyvind
sem grískan
harmleik og að
honum loknum
hágrét allur salur-
Þorunn og Steinunn
ásamt þeirri græn
lensku.
Sigurður Pálsson
hitti frœtiku gatnals
vinar síns afSelect
maður að
koma af
h a f i .
„Odessa
Úkr-
Sigurður A. ásamt rúmenskum
dansmeyjum.
inn. Dagskráin um borð
samanstóð af stöðugum fyr-
irlestrum, upplestrasam-
komum og kvikmyndasýn-
ingum alla leiðina.
Sigurður Pálsson segir að
ferðalagið hafi ekki síst verið kjörið
vegna þess að til hafnarborga eigi
breiðir sig á
móti hafi eins og
faðmur." Veðrið
var kalt og rakt og
þokuslæðingur
yfir. Að borginni
liggja hinar sögu-
ffægu Eisenstein-tröppur sem eru
kenndar við kvikmyndina frægu
sem fjallaði um þann sögufræga at-
burð þegar sjóliðauppreisnin var
barin niður árið 1907, einn undan-
Þórunn
flytur Ijóð sitt í
keppninni með
tilþrifum.
fari byltingarinnar sem síðar varð.
„Odessa er falleg borg með afar
gamla sögu og menningu,“ sagði
Sigurður A. „En hún er niðurnídd
og mengunin er gífurleg.”
„Vatnið var áður mengað," segir
Sigurður Pálsson en nú er það ban-
eitrað og kólera og aðrar farsóttir
grassera í borginni."
Ferðafélagar hans benda á að þeg-
ar hersingin hafi haldið á krá inni í
borginni hafi þeim verið borinn ein-
faldur vodki í stóru vatnsglasi og
náði skammturinn upp í hálft glas.
Sigurður Pálsson steinkaði þá vitin
eða sótthreinsaði þau upp úr glas-
inu, þvoði hendurnar og kenndi sér
einskis meins í ferðinni öfugt við
hina sem sumir urðu fýrir barðinu á
sjóveiki og magapínu í einhverjum
mæli.
Þrírfyrir einn
Á barnum
með Andrési
Café Romance
Lækjargötu 2
★★★★
Café Ópera hefur um langt skeið
verið einn vinsælasti veitingastaður
Reykjavíkur. 1 tengslum við hann
er rekinn barinn Romance, sem
einnig hefur notið verulegra vin-
sælda þrátt fýrir smæð. Nýlega var
hins vegar stækkað við staðinn, því
á jarðhæð bættist verulegt rými við.
Á daginn er þar rekið bistró með
nýbökuðum kræsingum, en þegar
kvöldar rennur bistróið saman við
barinn. I raun og veru er hægt að
njóta þriggja býsna ólíkra staða á
einum og sama staðnum, ef menn
halda sér á hreyfingu á milli hæða.
Það, sem staðirnir eiga þó sameig-
inlegt er frábær þjónusta og gott
úrval matar og drykkjar.
Á Romance er það Jóhann Jó-
hannsson — betur þekktur sem
Jói — sem ræður ríkjum og það
eins og herforingi. Hann er tví-
mælalaust einn flinkasti barþjónn
landsins. Fyrir utan það að vera af-
skaplega lipur og þægilegur þjónn,
er varla til sá drykkur sem hann
kann ekki að reiða fram, og það
gerir hann fljótt og örugglega. Á
barnum er mjög gott úrval drykkja
og að því leyti er Romance til stök-
ustu fýrirmyndar.
Romance er á tveimur hæðum
(þremur ef bistróið er talið með). Á
neðri hæðinni er aðalbarinn, þar er
notalegur arinn og flygill sem leikið
er á hvert kvöld. Flygillinn er
reyndar sérstakur fyrir þær sakir að
lokið á honum er úr gleri og neon-
Ijós ofan í hljómkassanum, en allt
um kring standa gestirnir og nota
flygilinn sem borð. Á næstu hæð
fyrir ofan, undir súð, er rólegra lók-
al með mun minni bar, en fyrri-
hluta kvölds er þar aðallega að
finna fólk, sem hefur lokið snæð-
ingi á Óperu.
Það er blandaður söfnuður, sem
sækir Romance, en megnið er kom-
ið yfir þrítugt og það eru gerðar
kröfur til klæðaburðar. Flestir eru
enda í sínu fínasta pússi og staður-
inn gerir óneitanlega út á fólk, sem
gerir kröfur og er tilbúið til þess að
borga fyrir þá. Sumum finnast gest-
irnir vafalaust snobbaðir, en aðrir
myndu einfaldlega segja að svona
eigi alvöru barir að vera. Og það er
talsvert til í því. Það svífur allt að
því erlent andrúmsloft inni á Ro-
mance og off á tíðum þarf maður á
slíku að halda þegar Morrinn fer
hamförum fyrir utan.
MYND: JIM SMART