Helgarpósturinn - 08.12.1994, Qupperneq 39

Helgarpósturinn - 08.12.1994, Qupperneq 39
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF 39 Það er beðið eftir þér á Stefnumótalínunni Aðeins 39,90 mínútan „Hce, ég er 16 ára og mig latigar til að komast í sambatid við strák. Ég er svo- lítið rómatitísk ogsvotia, ogget boðið hottum heim í mat ogsvotta. Ég er að hugsa uttt rómantískt samband, hittast á hverjum degi og kannski sleep toget- her ogioo prósent trúnaður. Efþið leggið inn nafn og símanúmer þá mun ég hafa samband sem fyrst. “ „Rúmlega fertug kona óskar eftir að kynnast annarri konu. Áhugamál, handavinna og fleira. Hafið samband." Átti ekki von á að geta lifað af listínni fyrr en umsextugt Sjofn Haraldsdóttir myndlistarmaður segist mála af innsæi. Hún ólst upp við Breiðafjörðinn og skyldi ekkert hvað útlendingarnir voru að hafa fyrir því að mynda miðnætursólina. „Hún var alltaf þarna!“ segir hún. Það er kannski klisja að segja að drifkraftur, ævintýraþrá og þörf fyrir að vera án fjötra einkenni listamenn. Það eru engu að síður lýsingarorð sem eiga vel við stemmningskonuna Sjofn Har. sem fátt virðist geta hindrað á myndlistarbrautinni, nema ef til vill örlögin. Vart er þó hægt að klína klisjunni upp á allar hliðar Sjafnar. Hún er nefnilega afar tæknivæddur myndlistarmaður í því sem snýr að sendiboðum nú- tímans. Það reyndist enda auðvelt að hafa uppi á henni. Ekki fyrír stúlkur Sjofn Har. var aðeins sextán ára þegar hún fékk inni í Myndlista- og handíðaskóla íslands og í dag á hún ellefu ára myndlistarnám að baki. „Þegar ég var sextán ára var ekki til siðs að stúlka utan af landi færi í Myndlista- og handíðaskólann, eða eins og faðir minn orðaði það var sá skóli eingöngu fyrir fyllibyttur og aumingja. Hann stóð á því strangur og stífur að stelpan færi í rnenntó og notaði stór orð... ég sem var með góðar einkunnir átti að fara í kennaranám; eða eitthvað annað hagnýtt nám. Móðir mín stóð hins vegar með mér.“ Á árunum 1960 til 1970 var ekki lagt nrikið upp úr teiknikennslu í skólurn yfirleitt og þaðan af síður úti á landi. Áhuginn kviknaði snemma en hún fékk enga kennslu. „Ég elskaði að teikna, Iita og mála sem ég gerði óspart ef mér leið illa. Að vísu tala ég alltaf um að- stöðuna hjá nunnunum í Stykkis- hólmi sem rninn fyrsta myndlistar- skóla.“ Þrátt fyrir mótbyr gafst stúlkan ekki upp og hélt á mölina eftir að hafa sannfært föður sinn unr að myndlistarmenn gætu unnið fyrir sér með kennslu. Hátt í 80 manns sóttu unr skólann, þriðjungur komst inn. Sjofn var ein af þeim. Þetta var árið 1969. „Borgarbörn notuðu erlend orð í öðru hverju orði svo mér fannst eins og allir væru að tala útlensku í kringum mig. Ég læddist með veggjum fyrsta árið. Síðan fór maður að aðlagast borgarlífinu og fá meiri kjark. Áhuginn alveg ódrepandi. Það var heldur ekkert um annað að ræða en að standa sig eftir alla fyrirhöfn- ina.“ Myndlistarkennsla voru enn rök- in fyrir skólavistinni, þó blundaði listamaðurinn alltaf í henni. „Ég sá fyrir mér að ég gæti aldrei lifað af listinni fyrr en í fyrsta lagi um sex- tugt.“ Vann með hálft til tvo tonn af leir Hún lauk fimm árum í Mynd- lista- og handíðaskólanum og eftir að hafa aflað sér tekna með kennslu í nokkur ár stóð hún enn framrni fyrir gamla Stykkishólmsdraumn- um. Nú var kominn tími á að hrökkva eða stökkva. Sá senr átti stóran þátt í því að hún sótti um í Kaupmannahöfn var Sigurður Sigurðsson listmálari og kennari úr Myndlista- og handíðaskólan- um. „Hann sagði svo margar skemmtilegar sögur frá Kaup- mannahöfn að ég heillaðist og mér til undrunar kornst ég inn í Kon- unglegu dönsku Kunstaka- demiuna." Um það bil 400 til 500 sækja þar um á ári hverju en ekki nema 30 komast inn, þar af 10 prósent út- lendingar. Ennfremur fékk Sjofn að sleppa við fyrstu tvö árin og fór því beint inn á prófessorinn, eins og það er kallað. Hann hét Robert Jakobsen og er í hópi þekktari myndhöggvara Dana. „Hann var alveg yndislegur karl. Ef einhvern tíma var heillaengill yf- ir mér var það þá.“ Enn þurfti hún að sanna sig til þess að komast í framhaldsnám í kennaradeild aka- demíunnar. „Ég sótti þó ekki um til þess að safna kennaragráðum heldur til þess að konrast í verkstæðin þeirra sem eru með þeim betri sem til eru. Þar lærir maður rnikil vísindi, með- al annars að búa til leirinn frá grunni.“ I Kaupmannahöfn kom fyrir að Sjofn ynni með allt að hálft til tvö tonn af leir í einu, meðal annars þegar hún var að vinna að vegg- mynd fyrir SDS-bankann í Dan- mörku ásamt prófessornum sínum. „Oft var þetta hörkupúl. Ég hef lík- lega aldrei verið í betra líkamlegu formi en þá.“ Þegar löngum námsferli lýkur var Sjofn búin að ganga í gegnum ýmsar greinar listarinnar; keramik, ljósmyndun, glerlist, málaralist, unnið að rannsóknum, setið á fyr- irlestrum, kennt, gert veggmyndir fyrir banka, sem hún gat ferðast um næstum öll Bandaríkin fyrir, hún hafði unnið með mósaík, ferskó, plast, steypu og svo mætti áfram telja. Eftir rr ára námferil sat í henni veggmyndagerðin sem hún hugðist leggja fyrir sig. Litasfjrengja eftir En örlögin höguðu hlutunum öðruvísi en hún ætlaði sér. Þegar vígja átti mynd eftir hana á St. Fransiskuspítalanum í Stykkis- hólmi árið 1988 lenti hún í bílslysi og skaddaðist á hálsi með þeim af- leiðingum að ógerningur reyndist fyrir hana að burðast með þungan leir. Þótt þetta væri eðlilega mikið áfall var ekkert annað fyrir hana að gera í stöðunni en að sætta sig við orðinn hl'ut og „vippa“ sér aftur yf- ir í málverkið. I dag segist Sjofn ánægð í litríku málverkinu. „Þegar maður vinnur með leir- og kera- mikplötur sér maður ekki litina fyrr en eftir brennslu, eða fyrr en eftir tvo mánuði. Maður verður þá að vita hvað maður er að gera! Ætli það sé ekki skýringin á því hversu litaglöð ég er í dag,“ segir hún og skýrir þetta með litina enn frekar. „Ætli það hafi ekki orðið lita- sprengja hjá mér þegar ég loks sá alla Iitina korna skæra út úr túp- unni. Ég rnála ekki ljósbláa himna til þess að geðjast einhverjum úti í bæ,“ útskýrir hún. Utanveltu í listalífinu Frá ^980 hefur Sjofn haldið sex einkasýningar sem allar hafa verið afar vel sóttar. Að auki eru nokkur verk hennar í eigu ýmissa aðila víða um heim. Það er því ekkert nýtt fyrir henni þótt keyptar hafi verið af henni tíu rnyndir, eins og gerðist í London á dágóðu verði, og MORGUNPÓSTURINN greindi frá á mánudag. Eftir því sem næst verður komist hefur hún svo að segja selt upp tvær einkasýningar, fyrst í Djúpinu árið 1980 sem gaf henni góðan vasapening er hún var í miðju námi í Kaupmannahöfn, og áratug síðar á Gallerí Borg. I framhaldi af vel sóttri myndlist- arsýningu í London ætlar Sjofn að efna til einkasýningar frá og með næstu helgi í Listhúsinu í Laugar- dal, þar sem hún hefur jafnframt eigin vinnustofu. Þar ætlar hún að hengja upp fimmtíu verk af þeim sextíu sem hún sýndi í Crypt Gall- ery í London af sýningunni „Look North.“ En hugmyndin um sýninguna í London kemur í framhaldi af stór- útflutningi íslenskra listamanna þangað á undanförnum misserum. Eitt sinn þegar menningarfulltrú- inn í London, Jakob Frímann Magnússon, var hér á ferð ákvað Sjofn að fara á hans fund. „Á fund- inum gerði ég honum grein fyrir því að ég hefði áhuga á að sýna í London einhvern tíma í framtíð- inni. Ég var tilbúin til þess, enda al- komin til Islands og búin að jafna mig á heimkomunni. Skömmu síðar frétti ég af ferðunr hans hérlendis, hringdi í hann og spurði kurteislega hvort eitthvað væri að frétta. An nokkurs orða- gjálfurs segist hann þegar búinn að taka ákvörðun, sýningartíminn sé ákveðinn og galleríð svo að segja einnig. Ég átti auðvitað ekki von á þessu svona fljótt og hvað þá að einkasýning væri í burðarliðnum." Hún telur Jakob sjálfsagt hafa verið búinn að hlera eitthvað um hana. „Þessi ákvörðun hans var þó greinilega sérákvörðun, því svo margir eru um hituna. Ef til vill hefur hann veitt því athygli að ég er svolítið utanveltu í listalífinu, eða ekki í neinum listamannaklíkum og í framhaldi af því tekið þá ákvörð- un að ég sýndi ein.“ Þetta var rétt fyrir áramótin í fyrra. „Ég hugsaði bara með mér, guð minn góður, ég á eftir að rnála heila sýningu, en var auðvitað í sæluvímu. Ég hóf því strax að skipuleggja mig; sjá hvað ég ætti mikið af striga, litum, gera pantanir og svo framvegis.“ I febrúar segist Sjofn hafa verið búin að teikna upp alla sýninguna, enda átti hún heilmikið í bankan- urn frá því um sumarið. En sumrin nota hún og eiginmaður hennar, Ármann Ármannsson, gjarnan til þess að ferðast um landið, horfa og gera skissur sem hún vinnur svo úr á veturna. Sýningin varð smátt og smátt til og í nóvember var komið að Lundúnarsýningunni. Þegar upp var staðið var hún alsæl með valið á galleríinu. Galleríið er staðsett í kirkju á Trafalgartorgi, sem Sjofn kallar menningarjárnbrautastöð, auk gallerísins er þar að fínna konsert- sal, veitingastað, bókabúð og margt fleira. Af öllu virðist sem opnun sýn- ingarinnar í London hafi verið hin fjörugasta, auk fjölda gesta voru margar uppákomur enda kýs Sjofn að dreifa athyglinni frá sjálfri sér. íslenskar sjávarafurðir, sem hafa keypt margar rnyndir eftir Sjofn, slógu upp sjávarréttaveislu með Sigurð Hall fremstan í flokki, Jak- ob Magnússon flutti tölu og Jón Sigurðsson söng nokkur þjóðleg lög. „Þarna ríkti frábær sýningar- andi enda fagmenn í hverju rúmi. Gestirnir fengu allt í senn; konfekt fyrir augu, eyru og maga. öll vinna Jakobs var til fyrirmyndar.“ Guðrún Kristjánsdóttir Ríkissjónvarpið Fimmtudagur 17:00 Fréttaskeyti 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Jól á leið til jarðar 18.05 Stundin okkar (e) 18.30 ÚHhundurínn (25:25) 19.00 Él 19.15 Dagsljós 19.45 Jól á leið til jarðar (e) 20.00 Fréttir, íþróttir og veður 20.40 Syrpan 21.05 Sólin skfn líka á nóttunni II sole anche di notte Um barón i hirð Karis konungs III iNapólísem geríst einsetumunkur. Frönskufilar og aðrír pervertar athugið: Charl- otte Gainsbourg leikur eittaf aðal- hlutverkunum. 23.00 Ellefufréttir 23.15 Þingsjá 23.35 Dagskrárlok Föstudagur 16.40 Þingsjá (e) 17.00 Fréttaskeyti 17.05 Leiðarljós 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Jól á leið til jarðar 18.05 Bemskubrek Tomma og Jenna 18.25 Úr ríki náttúrunnar 19.00 Fjör á fjölbraut (9:26) 19.45 Jól á leið til jarðar (e) 20.00 Fréttir, íþróttir og veður 20.40 Kastljós Nú verður fjallað um kynskipti. Kannski Logi Bergmann farí í að- gerð? 21.10 Derrick (14:15) 22.15 Sonur forsetans Fay Weldon stuð! 23.45 Alnæmistónleikar Blur, Suede, St. Etienne og fleirí bönd ístuði. Vonandi að fleiri hafi mætt enn ÍKolaportið. 01.00 Útvarpsfréttir í dagskrár- lok Laugardagur 09.00 Morgunsjónvarp 10.50 Hemmi aftur á tali 11.50 Hlé 14.00 Kastljós (e) 14.25 Syrpan (e) 14.55 Enska: QPR - Man. Utd. 17.00 íþróttaþátturinn 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Jól á leið til jarðar 18.05 Einu sinni var... (10:26) 18.25 Ferðaleiðir (10:11) 19.00 Strandverðir (3:22) 19.45 Jól á leið til jarðar (e) 20.00 Fréttir, íþróttir og veður 20.40 Lottó 20.50 Konsert SSSól fuðrar upp. 21.20 Hasar á heimavelli (14:22) 21.50 Draumastúlkan Áströlsk gamanmynd. 23.30 Eldhugamir Þyrlumynd. 01.15 Útvarpsfréttir í dagskrár- lok Sunnudagur 09.00 Morgunsjónvarp bam- anna 10.20 Hlé 12.15 Eldhúsið(e) 12.30 Yrkjum ísland (e) 14.30 Jól í óbyggðum 16.00 Listin að stjóma hljóm- sveit (2:2) 17.00 Ljósbrot 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Jól á leið til jarðar 18.05 Stundin okkar 18.30 SPK 18.55 Undir Afríkuhimni (25:26) 19.20 Fólkið í forsælu (23:25) 19.45 Jól á leið til jarðar (e) 20.00 Fréttir, íþróttir og veður 20.40 List og lýðveldi Kristin Atladóttir tékkará leikhús- inu, dansinum og óperunni. 22.35 Helgarsportið 23.00 Gull Abrahams Tveir bæjarar hafa ólikar skoðanir um nasismann. 00.40 Útvarpsfréttir í dagskrár- lok 09.00 Sjónvarpsmarkaðurinn 12.00 Hlé 17.05 Nágrannar 17.30 Með Afa (e) 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19:19 20.20 Sjónarmið Stefáns Jóns 20.55 Böm heimsins Stöð 2 istuði íEþiópíu og Ind- landi. 21.55 Seinfeld 22.30 Ofríki Deadly Relations. Blóðug svikam- ylla kemursmám saman íljós. Bla bla bla. 00.00 Feðginin The Tender Djönk frá hnignunar- tímabili John Travolta. 01.30 Dáin í díkinu (e) 03.00 Dagskrárlok Föstudagur 09.00 Sjónvarpsmarkaðurinn 12.00 Hlé 16.00 Popp og kók (e) 17.05 Nágrannar 17.30 Myrkfælnu draugamir 17.45 Jón Spæjó 17.50 Emð þið myrkfælin? 18.15 NBA-tilþrif 18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn 19.19 19:19 20.20 Eiríkur 20.55 Imbakassinn 21.35 Kafbáturínn (18:23) 22.35 Herra Johnson Afríka. 3 áratugurinn. Johnson er skarpur drengur en gengur hálf brösuglega að sanna sig. 00.25 Staðgengillinn The Temp Duglega stelpan sem vinnursig upp ífyrírtækinu er i raun geðveikur morðingi. Já, ein afþessum myndum, og þessi er meira að segja i verra lagi. 02.00 Glæpagengið 03.55 Hættuspil 05.25 Dagskráriok Laugardagur 09.00 Með Afa 10.15 Gulur, rauður, grænn... 10.30 Baldur búálfur 10.55 Ævintýrí Vífils 11.20 Smáborgarar 11.45 Eyjaklíkan 12.15 Sjónvarpsmarkaðurinn 12.40 Dagbók í darraðadansi Taking Care of Business með James Belushi. 14.35 Úrvalsdeildin 15.00 Hook Spilberg er svo frábær. 17.15 Addams fjölskyldan Algert möst yfir þynnkupitsunni. 17.45 Popp og kók 18.40 NBA-molar 19.1919:19 20.05 Fyndnar fjölskyldumyndir 20.45 Bingó lottó 22.05 Hvað með Bob? Ekki svo galin gamanmynd með Murrey og Dreyfuss. 23.50 Á réttu augnabliki Public Eye. Slöpp mynd. 01.25 Past Midnight 03.05 Refskák 05.00 Dagskráríok Sunnudagur 09.00 Kolli káti 09.25 í barnalandi 09.50 Köttur út í mýri 10.15 Sögur úr Andabæ 10.40 Ferðalangar á furðusl. 11.00 Brakúla greifi 11.30 Listaspegill 12.00 Á slaginu 13.00 íþróttir á sunnudegi 16.30 Sjónvarpsmarkaðurínn 17.00 Húsið á sléttunni 18.00 í sviðsljósinu 18.45 Mörk dagsins 19.19 19:19 20.05 L.A. Law 21.05 Jóladagskráin 1994 21.35 Fimmburamir (1:2) The Million dollar babies. Hörku- spennandi kellingamynd um fimmbura sem fæðastáríð 1934. 23.15 60 mínútur 00.05 Bugsy 02.15 Dagskráriok

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.