Helgarpósturinn - 08.12.1994, Page 40
I hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 99 15 16.
■ Café Romance blœs út ■ Dentchev út,
Valur inn ■ Bannað að borða nesti í Þjóðar-
bókhlöðunni og ekki hœgt að lesa vegna kulda
J_/igendur Café Romance eru bún-
ir að yfirtaka hæðina fyrir neðan
kaffihúsið í Lækjargötu en þar
opnaði bístró veitingastaður fyrir
tveimur vikum. Staðurinn hefur
ekki verið opnaður formlega ennþá
en úr því verður bætt á föstudaginn
milli kl 18 og 20. Þá verður opið
hús með húllum hæi og veitingum
fyrir þá sem langar að koma og
kíkja á staðinn...
£nn stendur íslenski Búlgarinn
Dían Valur Dentchev í miklum
hremmingum. Eins og kunnugt er
hefur hann átt í harðri deilu um
umgengnisrétt sinn við barnsmóð-
ur sína, Hönnu Ragnarsdóttur,
og í sumar brá hann á það ráð að
fara í 50 daga hungurverkfall til að
freista þess að ná fram rétti sínum.
Að lokum samþykkti Hanna að
veita honum eðlilega umgengni en
um leið og íslenski Búlgarinn tók
til matar síns skellti hún hurðinni
á nefið á honum. Dían brá þá á það
ráð að leita til Mannréttindadóm-
stólsins í Strassburg sem er að fara
yfir umsókn hans. Á dögunum
þurfti Dían Valur að bregða sér á
Hagstofuna og afla sér gagna fyrir
dómstólinn og komst þá að þvi sér
til mikillar furðu að búið var að
breyta nafni sonar hans úr Davíð
Valdimar Dentchev í Davið Valdi-
mar Valsson. Fyrtist Búlgarinn is-
lenski við þessa breytingu enda
hafði barnsmóðir hans ekki fyrir
að spyrja hann um álit hans á nýja
nafninu. Dían verður væntanlega
að bíta í það súra epli að eftirnafn-
inu var hent, því samkvæmt ís-
lenskum lögum ræður það foreldri,
sem hefur barnið hjá sér hvaða
kenninafn það hefur. Hjá Þjóðskrá
fengust þær upplýsingar að fólki sé
hætt til að rugla saman nafngjöf og
skírn því nafngjöfinni sé einungis
smellt með þegar prestarnir vökva
börnin og þau eru ekki skírð
kenninöfnum sínum...
-Þó Þjóðarbókhlaðan hafi verið
tekin í gagnið með pompi og prakt
fyrir viku síðan við mikla gleði
margra eru nemar við Háskóla ís-
lands síður en svo ánægðir með þá
aðstöðu sem þeim er boðin þar.
Ekki er nóg með að opnunartími
bókhlöðunnar sé mjög takmarkað-
ur heldur mega stúdentar sem
koma með nesti að heiman ekki
borða það í húsinu þrátt fyrir að
þar sé hin vistlegasta kaffistofa.
Þannig hefur orðið eitthvert uppi-
stand á kaffistofunni á hverjum
degi frá opnuninni vegna svangra
nema sem hafa ætlað að næra sig á
heimasmurðu eins og þeir hafa
fengið að gera óátalið í kaffístofum
Háskólans. Þeim hefur verið visað
á dyr með harðri hendi af af-
greiðslustúlkum kaffistofu bók-
hlöðunnar og bent á að ekki sé ~
leyfilegt að neyta annarra veitinga
en þeirra sem eru keyptar þar inn-
andyra. Þessu vilja Háskólanemar
illa una og hafa á orði að það sé
ansi hart ef ætlast sé til þess að þeir
lifi á kaffiteríubakkelsi ef þeir vilji
nýta sér lesaðstöðu Þjóðarbók-
hlöðunnar...
Ekki er nóg með að opnunartími
Þjóðarbókhlöðunnar og nestisað-
stöðuleysið þar sé að plaga Há-
skólanema heldur þykir lesaðstað-
an í húsinu síður en
svo vera heilsusamleg.
Lesaðstöðunni er
þannig háttað að
drjúgur hluti hennar
er á þeirri hæð bók-
hlöðunnar þar sem út-
Veggirnir samanstanda
aðallega af risastórum
gluggum. Fremur kalt
hefur verið í veðri frá
opnun hússins og hafa
gluggarnir þótt veita
fremur takmarkað
skjól fyrir kuldanum
utandyra...
Kaffihúsakynslóðin vex upp Þótt þau sé rétt skriðin á skólaaldur finnst þeim ekkert
sjálfsagðara en að fara á kaffihús eftir rölt í miðbœnum. Nú má segja að kynslóðin sem fær fyrsta smjörþef-
inn af almennilegri kaffihúsamenningu sé að vaxa upp. Þessir ungu krakkar, sem eru í æfingadeild Kennara-
háskólans, litu við á Kaffi Reykjavík í gærmorgun, þó ekki í kaffi heldur kakó og skúffuköku. En vertarnir á
Kaffi Reykjavík hafa verið iðnir við að bjóða til sín unga fólkinu að undanförnu, eða krökkum úr hinum ýms-
ustu grunn- og leikskólum landsins í „kaffi“ eftir skoðunarferð um útstillingaglugga bæjarins. Síðan fara
gjarna foreldrarnir þangað í jólaglögg og piparkökur á kvöldin og ömmurnar og afarnir í kaffi og rjómatertu
á sunnudagseftirmiðdögum.
Bjartmar á íslandi eítir nærri þriggja ára útilegu
Úr seríósinu yfir í rokk
ogról
Skærasta „barnastjarna“ seinni
tíma, Bjartmar Guðlaugsson, er
kominn til landsins eftir nærri
þriggja ára útilegu. Hann er þó ekki
kominn til að vera heldur til þess að
anda að sér íslenskum jólum og
rokki og róli. Bjartmar er nefnilega
horfinn seríósinu og súrmjólkinni
og kominn yfir í hrátt rokk og ról
með félögum sínum í Svíþjóð þar
sem hann stundar nú myndlistar-
nám. Hann segist kominn nær
upprunanum því áður en Bjartmar
fór að syngja fyrir börn á plötunni í
fylgd með fullorðnum var hann
harður rokkari af pönkkynslóðinni.
En eins og aðrir sem eignuðust
börn og bú mýktist Bjartmar og fór
að kanna barnaheiminn. Þótt börn
hans séu komin á legg segir hann
þó alltaf pláss fyrir eitthvað barna-
legt og heiðarlegt.
„I gegnum sænska rokkið kynnt-
ist ég einum besta textahöfundi
Svíþjóðar, Steffan Sundström,
sem var kveikjan að því að ég fór að
starfa með hljómsveitinni Bad Li-
ver.“ En fyrr í þessum mánuði tók
sú hljómsveit, sem inniheldur
gamla pönkara, upp læf og sú plata
er að koma út í dag. Verður henni
dreift hér á landi.
Sökum velgengni úti segist Bjart-
mar ekkert á leið heim enda eigi
hann tvö ár eftir af náminu. „Það er
þó alltaf gott að koma heim,“ við-
urkennir hann og segist ætla að
stefna að því að gera meira af því í
framtíðinni. GK
Leikhús Leikhúsin eru að sull-
ast íjólafrí en það
j má benda á
'tjj Kirsuberjagarðinn
/[L*. / sem verður sýnd-
SfJC/ ur þrisvar sinnum
yfir helgina. Must
síog það fyrr en seinna þvíEmil-
ía er á leið upp í Borgó í Kabar-
ett.
Myndlist Gagnrýnandi morg-
unpóstsins er ekki spar á stjörn-
urnar þegar hann tekur samsýn-
ingu í Listasafni Kópavogs til
umfjöllunar. Kópavogurinn leynir
á sér.
Popp Og enn
má vekja athygli
á stjörnugjöf því
stjarnan Sigurjón
í Ha... Olympíu
er fimm stjörnu
virði samkvæmt
barflugu blaðs-
ins, en hann
treður upp í
Kazablanka á
föstudagskvöldið
(Sigurjón, ekki
fulli kallinn).
Klassík Síð-
asta sýning á
Valdi örlaganna
er á laugardags-
kvöld. Jú, það er
uppselt en það
má alltaf finna
smugur á Þjóð-
leikhúsinu.
Bíó Það er áhrifarík belgísk
mynd í Háskólabíói sem er allra
athygli verð „ísenn stórísniðum
og stílhrein," svo vitnað sé í hinn
glögga krítíker blaðsins.
Sjónvarp Það
er furðuslappt
sjónvarpið þrátt
fyrir að sjón-
varpsstöðvarnar
auglýsi grimmt
frábæra des-
ember-dagskrá.
Bara að sleppa
þvíen sjónvarps-
fíklum skal þó
bent á Strand-
verði á laugar-
dag. Þar er fólkið
vanskapað afeinskærri fegurð.
Fimmtudagur
Norðaustan hvassviðri með
snjókomu eða slyddu en
sums staðar suðlæg eða
vestlæg átt, kaldi eða stinn-
ingskaldi eða skúrir.
Horfur á föstudag,
laugardag og sunnudag
Hæg breytileg eða norðvest-
læg átt og smáél á stökustað.
Kólnandi veður, frost víða 2 til
8 stig.
Á oðfeUa ttiður
virðisaukaskatt af
bókumf
Veðrið um helaina
Greiddu
atfcvæði
39,90 krónur mínútan
Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á
spurninguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á
símtækinu þínu. A sunnudaginn verður síðan talið upp úr Kjörkass-
anum og niðurstöðurnar birtar í mánudagsblaði MORGUNPÓSTSINS.
Hlustum
allan
sólarhringinn
2 1900
*