Helgarpósturinn - 12.12.1994, Síða 32
Spurt var:
Á aðfella niður
virðisaukaskatt af
bókum?
( hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 99 15 16.
Framarar stefna hátt
- ■ Anthony Karl ogfé-
lagaskiptin ■ Ótrú-
legar tölur í kvenna-
körfunni
Ljóst er að Fram-
arar stefna hátt
fyrir næsta tímabil.
Liðið hefur fengið
marga snjalla leik-
menn í sínar raðir
og á dögunum
barst tilkynning
um skipti varnar-
mannsins KristjAns JóNSSONAR yfir í
liðið frá Bodö Glimt í Noregi. Þetta
fannst flestum Frömurum mikil
gleðitíðindi og segja menn nú raun-
hæfan möguleika á að keppa við KR
og ÍA um íslandsmcistaratitilinn
næsta sumar...
etta er kannski ekki svo fjarlæg-
ur möguleiki. Liðið vann innan-
hússmót á Selfossi um helgina með
yfirburðum og sýndi þar mjög góða
knattspyrnu. Heimamenn urðu i
öðru sæti og KR-ingar í því þriðja...
.A.thygli vekur
hversu djúpa
bcygju mál Ant-
HONY KARLS
Gregory hafa
tekið. Fyrir
nokkrum vikum
virtust flest lið á
landinu vilja leik-
manninn í sínar rað-
ir en síðan þögnuðu þær raddir
skyndilega. Eyja-
menn misstu
áhugann og sömu-
leiðis KR- ingar.
Sagt er að Eyja-
menn hafi verið
svo ánægðir við
þau tíðindi að
Tryggvi Guð-
MUNDSSON VÍljÍ
koma aftur frá KR
að þeir hafi misst áhugann á Ant-
hony Karli og sömu sögu hafi verið
að segja um KR, þegar fréttist af
kömu Mihajlo bibercic til liðsins
var allt annað dregið í land...
LJrslitin í leik KR og Fylkis í bik-
arkeppni kvenna vekja óncitanlcga
athygli. Sérstaklega þegar haft er í
huga að KR- ingar hvíldu sinn besta
mann og tefidu fram breyttu liði frá
venjulegum leikjum. Leikurinn fór
nefnilega 127:5 fyrir Vesturbæjar-
stelpum...
Hinn stórefnilegi Grindvíkingur, Pétur Guðmundsson, leggur hér boltann í körfuna. Hann skoraði tólf stig
og átti góðan leik eins og flestallir samherjar hans.
Þorvaldur Orlygsson „Það var kominn tími á að boltinn færi aftur að
rúlla rétt fyrir mér.“
Þorvaldur Örlygsson með tvö
mörk fyrir Stoke gegn Burnley
Kominn
tími á þetta
Þorvaldur Örlygsson var mað-
ur dagsins í Stoke á laugardaginn.
Hann gerði þá bæði mörkin í 2:0
sigri liðsins á Burnley, það fyrra úr
vítaspyrnu sem hann náði sjálfur
og hið seinna eítir glæsilegt spil.
Lárus Orri Sigurðsson kom inn á
sem varamaður í leiknum.
„Ég hitti á mjög góðan leik,“
sagði Þorvaidur í samtali við blað-
ið. „Það var líka kominn tími á það.
Við höfum verið að leika ágætlega
undanfarið en átt í erfiðleikum
með að skora. Þessi sigur var því
kærkominn.
Fyrra mark Þorvaldar kom eftir
að hann var gróflega felldur í víta-
teig Burnley-manna. Vítaspyrna
var dæmd og auk þess var leikmað-
urinn sem braut á Þorvaldi rekinn
af leikvelli. „Ég átti bara eftir að
leggja boltann í netið þannig að
þetta var hárréttur dómur,“ sagði
Þorvaldur aðspurður um atvikið.
Seinna markið kom síðan eftir lag-
legt spil Þorvaldar og félaga hans í
gegnum vörn Burnely-manna.
Lárus Orri Sigurðsson kom inn á
sem varamaður þegar stutt var eftir
af leiknum. „Þjálfarinn vildi halda
fengnum hlut og setti því Lárus inn
fyrir sóknarmann,“ sagði Þorvald-
ur. Aðspurður um álit hans á fram-
tíð Lárusar Orra sagðist hann vera
bjartsýnn. „Hann á auðvitað margt
eftir ólært en málið er að hann ger-
ir sér grein fyrir því og vill læra. Það
getur verið lykilatriði."
Mikið hefur verið rætt um fram-
tíð Þorvaldar hjá liðinu og jafnvel
verið talað um hugsanlega sölu
hans á næstunni. „Ég vil lítið tala
um þetta núna. Hlutirnir hafa
breyst rnikið eftir að Joe Jordan
hætti með liðið og rnikið hefur ver-
ið spekúlerað. Ég leyni því ekkert
að ég hef aldrei verið hrifinn af að-
ferðum Lou Macari og margt sem
hann gerir og segir vekur furðu
mína. En eins og staðan er nú verð
ég hér áfram.“
Bih
Veðurhorfur næsta sólarhring:
Hæg norðlæg eða breytileg átt og
skýjað á annesjum norðan til en
annars léttskýjað. Frost 1-10 stig.
Horfur á þriðjudag:
Hægur vindur og víða bjartviðri.
Talsvert frost um land allt. Gengur í
vaxandi suðaustan átt allra syðst
síðla dagsins.
Horfur á miðvikudag:
Nokkuð hvöss sunnan- og suðaust-
an átt og hlýnandi veður. Snjókoma
eða slydda sunnan lands og vestan
en úrkomulítið norðaustan lands.
Horfur á fimmtudag:
Útlit fyrir suðvestan strekking og
kólnandi veður. Éljagangur á Suður-
og Vesturlandi, en þurrt norðan
lands og austan.
Veður
r /
Á aðfriða tjúpuna?
Greiddu
atkvæði
39,90 krónur mínútan
Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á
spurninguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á
símtækinu þínu. A sunnudaginn verður síðan talið upp úr Kjörkass-
anum og niðurstöðurnar birtar í mánudagsblaði MORGUNPÓSTSINS.
Hlustum
allan
sólarhringinn
2 1900