Helgarpósturinn - 09.01.1995, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTASKÝRING
7
Jóhann G. Bergþórsson eftir fund með Alþýðuflokksmönnum í nótt
Málefnagrundvöllur
byggist á stefnuskrá
Sjátfstædisflokksins
Kratar telja miklarlíkurá nýjum meirihlutai
„Það fór bara vel á með okkur.
Við ræddum hvernig hugsanlegt
samstarf gæti litið út, en það þarf
frekari skoðunar við,“ sagði Jó-
hann G. Bergþórsson þegar blað-
ið náði í hann í nótt eftir samninga-
viðræður hans við Alþýðuflokkinn.
Menn voru á þvi að fundurinn
hefði gengið vel og sammála um að
líkur væri mun meiri en minni á að
nýr meirihluti yrði myndaður inn-
an skamms.
„I raun eru jafnmörgum spurn-
ingum ósvarað og áður, nema að
það er vilji til þess starfa saman og
málefnagrundvöllur þykir nokkurn
veginn liggja fýrir,“ sagði Jóhann.
Þegar hann var spurður á hverju sá
málefnasamningur byggðist sagði
hann strax: „Stefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins í meginatriðum. Hún ligg-
ur fyrir.“
Jóhann sagði að hljóðið í mönn-
um væri greinilega þannig að menn
„vildu gjarnan" ná saman og sagði
„allar líkur til þess“ að fýrra meiri-
hlutasamstarf væri liðið undir lok
og nýtt að fæðast, „en það getur allt
gerst.“ Hann sagðist túlka það
þannig að mun meiri líkur en minni
væru á nýjum meirihluta.
Árni Hjörleifsson bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins sagði að niður-
staða fundarins hefði verið að halda
áfram að ræðast við. „Já við teljum
að af nýju meirihlutasamstarfi geti
orðið, en það er best að segja ekkert
um það fýrr en endanleg niðurstaða
er komin. En menn eru að minnsta
kosti ákveðnir í að halda áfram að
ræðast við. Það hefúr verið ágætis
andi yfir þessu,“ sagði Árni eftir
fúndinn.
Jóhann G. Bergþórsson sagði
Jóhann G. Bergþórsson segir fullkominn trúnaðarbrest hafa valdið
slitum á meirihlutasamstarfmu í Hafnarfirði. Þetta starf sé honum
hins vegar ekkert hjartans mál
Þægilegt að spavka
í liggjandi mann
segirJóhann og vænirMagnús Gunnarsson, oddvrta sjálfstæðismanna, um þvermóðsku
sem sé til trafala fyrir flokkinn.
Magnús Gunnarsson. Samþykktu ályktun á fundinum þar sem skor-
að var á bæjarfulltrúa að leita sátta. Jóhann telur því ekkert frekar
beint til sín.
Blaðið náði í Jóhann G. Berg-
þórsson þegar hann var að fara á
fund með fulltrúum Alþýðuflolcks-
ins um nýtt meirihlutasamstarf í
Hafnarfirði og spurði hvað hefði
orðið til þess að hann teldi elcki
grundvöll til áframhaldandi sam-
starfs með sitjandi meirihluta.
„Það eru ótal atriði en nú í lokin
endar þetta í hreinum trúnaðar-
bresti."
Er það mcginatriðið að Sjálfstœð-
isflokkurinn getur ekki stutt þig í
stöðu bœjarverkfrœðings nema þú
vtkir sem bœjarfulltrúi?
„Það er bara einn anginn af þessu
og þetta starf er elckert hjartans mál
fyrir mig. Þetta er bara spurning
hvort menn standa við gerða samn-
inga, skriflega og handsalaða. Ef
menn virða það ekki er spurning
hversu mikils virði er að starfa með
þeim. Það getur komið eitthvað
annað þegar þessu er lokið.“
Gœti það bjargað meirihlutasam-
starflnu ef þeir myndu styðja þig í
embœttið óháð setu þintii í bœjar-
stjórn?
„Það vil ég ekki játast undir eða
neita á þessu stigi en ég hef aldrei
heyrt þá hugmynd."
Ingvar Viktorsson. Drög að mál-
efnasamningi liggur fyrir milli Al-
þýðuflokksins og Jóhanns G.
Bergþórssonar
Hvaða málefni lcggur þú til
grundvallar í viðrœðum við Alþýðu-
flokkinn?
„Það er fyrst og fremst spurning
hvert þeir eru að fara því ég hef elcki
óskað eftir viðræðum. Frumkvæðið
er alfarið hjá þeim. En ef það verð-
ur til samstarfsfæri þá verður það í
meginatriðum að stefnuskrá Sjálf-
stæðisflolcksins verði virt.“
Ferðu einn til vœntanlegs sam-
starfs við Alþýðuflokkitm?
„Ég get engu svarað til um það.
Það er ómögulegt að spá í pólitík,
allra síst á þessu stigi þegar allt er
hér logandi."
Lýkur þessutn viðrœðum fyrir síð-
ari umrceðu flárhagsácetlunar á
þriðjudag?
„Nei nei. Það eru engin lög um
að fjárhagsáætlun skuli afgreidd
næstkomandi þriðjudag. Nema
þeir séu að leita lögfræðiálits á því.“
Varst þú ósáttur við að félagar
þtnir leituðu lögfrœðálits?
„Nei, nei, en þetta er ekki lög-
fræðilegt álit. Menn geta haft alls
konar hugleiðingar. Ég hef rætt við
fimm lögfræðinga sem eru allir á
öndverðu við þessa. Dómstólarnir
eru nú venjulega til að leysa úr
Tryggvi Harðarson. „Gamli
meirihlutinn er sprunginn og ég
tel það standa upp á okkur Al-
þýðuflokksmenn að koma á fót
starfhæfum meirihluta hér í bæj-
arfélaginu."
ágreiningi lögfræðinga.“
Hvaða lögfrœðingar eru það?
„Það eru virtir lögfræðingar. Þú
getur til dæmis fengið túlkun Árna
Grétars Finnssonar, fyrrum bæj-
arfulltrúa og lögfræðings. Friðrik
Sophusson lýsti því yfir í sjón-
varpinu að það væru engin lög sem
hindruðu þetta. Enda held ég að þá
mætti ráðherra ekki vera á þingi og
bæjarstjóri mættLekki sitja í bæjar-
stjórn. Á síðasta kjörtímabili var
Jóna Ósk Guðjónsdóttir, bæjar-
fulltrúi krata, forstöðumaður Hús-
næðisnefndar og úr okkar röðum
voru skólastjórar. Ellert Borgar
var eitt sinn skóiafulltrúi sem er
sambærilegt embætti í bæjarkerf-
inu og bæjarverkfræðingur. Þannig
að það eru ótal fordæmi. Á síðasta
kjörtímabili voru í nokkrum sveit-
arfélögum bæjarverkfræðingar sem
voru bæjarfulltrúar. Þetta snýst
ekkert um það heldur persónu
mína.“
Þú telur að annað liggi á bak við
þetta en meint brot á stjórnsýslulög-
um?
„Já, það er alveg á hreinu. Staða
mín er náttúrlega ekki til að hrópa
húrra fyrir og það er voðalega
þægilegt að sparka í liggjandi
mann. Það er engin spurning að
það er málið.“
Er ekki Ijóst að þú munt ekki
starfa tneira meðþessum meirihluta?
„Ég get ekki fullyrt neitt á þessu
stigi en það er ljóst að það er veru-
legur vilji stórs hluta fólksins í
flokknum að þessari þvermóðsku
Magnúsar Gunnarssonar linni.
Ég held að það sé ljóst að mörgum í
flokknum ofbýður þessi meðferð.“
Ett þú telur Alþýðujlokkinn vam-
legri kost?
„Mér finnst alveg út í hött, í ljósi
þess hvernig staðan er, að hlusta
ekki á hvað þeir eru að vilja.“
Og verður embœtti bœjarverk-
fræðittgs sett á oddinn?
„Nei það er af og frá. Það er ekki
búið að semja um neitt slíkt við þá
og ég er eldci að krefja rnenn um að
standa við eitthvað sem menn eru
ekki búnir að semja um. Ég ætla að
hlusta á það sem þeir hafa að segja.
Ég er ekkert í vandræðum með
vinnu. Það hefur aldrei verið nein
nauðung að hafa mig í vinnu, nema
fyrst núna.“ -pj
Jóhann G. Bergþórsson „Það er vilji til þess starfa saman og mál-
efnagrundvöllur þykir nokkurn veginn liggja fyrir, sem byggir í megin-
atriðum á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins."
það ekki rétt, sem fram hefði kom-
ið, að Magnús Gunnarsson odd-
viti Sjálfstæðismanna hefði komið á
sinn fund til að leita sátta. „Ég hef
ekkert heyrt frá honum. Hins vegar
komu hingað formenn félaganna og
formaður fulltrúaráðsins og lögðu
fram bréf með áskorun til bæjarfull-
trúa að jafna málin. Ég tók við mínu
bréfi og bað þá að láta hina fá það
líka.“ En er einhver sáttatónn innan
Sjálfstæðisflokksins? „Ekki hef ég
fengið að heyra hann,“ sagði Jó-
hann að lokum.B
Tryggvi Harðarson segir ljóst að gamli
meirihlutinn sé sprunginn og ekkert úti-
loki samstarf við Jóhann
Stíf fundahöld
í allan gærdag
„Það er náttúrlega ljóst að gamli
meirihlutinn er sprunginn og ég
tel það standa upp á okkur Al-
þýðuflokksmenn að koma á fót
starfhæfum meirihluta hér í bæj-
arfélaginu. Við erum að því og
munum vinna að því áfram og ég
vona að það taki stuttan tíma,“
sagði Tryggvi Harðarson líklegt
bæjarstjóraefni Alþýðuflokksins í
viðræðum þeirra við Jóhann G.
Bergþórsson. Hann sagði að
hann sæi ekkert sem útilokaði
samstarf við Jóhann og að um-
ræða um meint brot á stjórnsýslu-
lögum kæmi ekki í veg fyrir það. „1
fýrsta lagi liggur ekkert f)TÍr að
hann verði bæjarverkfræðingur og
í öðru lagi — þó ég þekki ekki
stjórnsýslulögin tit og inn — þykir
mér nú ólíklegt að menn séu van-
hæfir eða missi borgaraleg réttindi
við það að gegna ákveðnum störf-
um. Hins vegar erum við ekkert að
ræða það að gera hann að bæjar-
verkfræðingi. Það er bara annað
mál. Við höfum engar áhyggjur af
því að lausn finnist ekki, það er
ekkert vandamál hjá okkur,“ sagði
Tryggvi.
Vildu ekki styðja
Jóhann sem bæjar-
verkfræðing
Það sem endanlega varð til þess
að Jóhann G. Bergþórsson hætti
stuðningi við meirihluta Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðubandalags í
Hafnarfirði var „trúnaðarbrestur“
þeirra að mati Jóhanns.
Magnús Gunnarsson lýsti því
yfir að ekki kæmi til greina áð Jó-
hann tæki við starfi bæjarverk-
fræðins Hafnarfjarðarbæjar sant-
hliða setu sinni í bæjarstjórn. Bæj-
arstjórinn Magnús Jón Árnason
var sömu skoðunar. Því til stuðn-
ings voru tvö lögfræðálit, sem
sögðu hann vanhæfan til þess.
Hins vegar ætluðu Sjálfstæðis-
menn að styðja Jóhann í embættið
ef hann viki úr bæjarstjórn. Fyrir
fulltrúaráðsfund sjálfstæðismanna
á fimmtudag lá fyrir skýrsla Lög-
giltra endurskoðenda hf. um við-
skipti Hagvirkis-Klétts við Hafn-
arfjarðarbæ. 1 henni kom fram að
þar væri um óeðlilega viðskipta-
hætti að ræða og því eru margir
komnir á þá skoðun að Jóhann
geti ekki sinnt embætti bæjarverk-
fræðings. Þeir sjálfstæðismenn,
sem blaðið ræddu, við sögðu að
hér væri þó fýrst og fremst um sið-
ferði í stjórnmálum að ræða og
ekki kæmi til greina að hann
gegndi báðurn embættum.
Þegar meirihlutinn var mynd-
aður í vor var samkomulag um að
Jóhann yrði bæjar\'erkfræðingur
ef hugur hans stæði til þess. Hins
vegar er deilt um hvort það hafi
verið bundið því að hann hætti þá
í bæjarstjórn. Það frestaðist ítrek-
að af mörgum ástæðum, meðal
annars að beiðni Jóhanns. I lok
nóvember vildi Jóhann loks að
gengið )töí frá málinu, en Magnús
tilkynnti honum að þá yrði hann
að víkja úr bæjarstjórn. Jóhann
vísaði því á bug og sagðist ekki
starfa með meirihlutahópnum
fyrr en gengið væri frá málinu. Að
fengnu lögfræðiáliti var málið rætt
á bæjarmáiafundi Sjálfstæðis-
manna og niðurstaða fundarins
var sú að þessi tvö embætti færu
ekki saman í höndum eins og
sama mannsins. Af fjórum bæjar-
fulltrúum og fjórum varabæjar-
fulltrúum voru sex á því að þetta
gengi ekki upp. Jóhann og Ellert
Borgar tóku ekki þátt í þeirri at-
kvæðagreiðslu. I kjölfarið sagði
Jóhann að hann myndi ekki
standa að fjárhagsáætlun og nú er
hann kominn í viðræður við Al-
þýðuflokkinn.
Fundir hjá íhaldi
og krötum
í kjölfar yfirlýsinga Jóhanns
Bergþórssonar um að Ellert Borg-
ar fyndi til „sömu þreytu" gagn-
vart meirihlutasamstarfinu og
hann var boðað til skvndifundar
hjá Sjálfstæðiflokknum um fjög-
urleytið í gær. Jóhann var ekki
boðaður til þess fundar. Magnús
túlkar niðurstöðuna sem full-
komna stuðningsyfirlýsingu við
sig og kjölfarið var reynt að leita
sátta. Þær umleitanir báru engan
árangur.
Síðla í gær var svo boðað til
fundar hjá Alþýðuflokknum. Þar
var ákveðið að ganga til viðræðna
við Jóhann um nýtt meirihluta-
samstarf og var fý'rsti fundur þess
efnis í gærkvöldi og stóð frarn á
nótt. Fulltrúum þeirra var veitt
fullt umboð til þeirra samninga-
viðræðna.B