Helgarpósturinn - 09.01.1995, Page 23
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN MENNING
23
vinna sem hún hefði sýnt. „Þetta
fannst mér grátbroslegt því ég hafði
ekki fengið þessa einkunn frá þess-
um mönnum fýrr en ég var hætt.
Þá var ég allt í einu svona vönduð."
Menn hættu
að tala við hann
Martin Regal er dósent við Há-
skóla íslands og fjallaði fyrir nokkr-
um árum um leikhús í Helgarpóst-
inutn, Pressunni og í útvarpi.
„Ég er bæði bókmennta- og leik-
húsfræðingur og var fenginn til að
skrifa um leikhús, líklega ekki síst
vegna þess að ef ég segi eitthvað af
viti þá er það vegna þess að ég er
fræðimaður og útlendingur (sem
skiptir máli) og ef ég segi eitthvað
vitlaust þá er það í lagi því það er
vegna þess að ég er útlendingur og
skil ekki. Það er ekki hægt að tapa á
mér. Ég er alveg óháður, annað
hvort sem fræðimaður eða vitleys-
ingur. Það var mjög sniðugt í
mörgum tilfellum. Ef menn voru
sammála þá er það mjög gott og ef
ekki þá: „Ja, hvað, þetta er Breti.
Hvað skilur hann? Hann fattar ekki
leikritin."
Varðandi viðhorf leikhúsfólks þá
segir Martin að í fyrstu hafi hann
haft talsvert saman að sælda við
leikara, sérstaklega yngri leikara, en
þegar hann hafði skrifað í nokkrar
vikur í Helgarpóstinn þá hafi tekið
að falla á engilinn. „Það var í fyrstu
talað við mig eins og manneskju og
ég var með, eftir nokkrar vikur sem
gagnrýnandi breyttist tónninn í
fólki og í dag, þá eru það örfáir leik-
arar eða leikhússtjórar sem tala við
mig lengur.“
Stundum gáfu leikarar sig á tal
við Martin á kaffihúsum og á bör-
um og ræddu skrif hans og Martin
segir að það sem þeir hafi haff fram
að færa hafi oftast verið rétt. En
hann segist líka hafa lent í ýmsu.
„Til dæmis gerði ég eitt sinn at-
hugasemd við leikstíl Árna Péturs
í „Kossi Köngulóarkonunnar“ sem
mér fannst yfirdrifinn. Hann skildi
ekki alveg hvað ég var að fara en ég
var þá að vinna við Ríkisútvarpið og
fékk hann til að koma og svara því
sem ég sagði. Þannig að mér er það
1 síst á móti skapi að gagnrýni sé
I svarað.“
1 Óþægilegustu reynsluna sem
1 gagnrýnandi segir Martin vera í
1 sambandi við „Marmara" sem hon-
e um fannst vera sérstaklega leiðinleg
1 sýning og langdregin. „Ég var ekki
að gagnrýna ieikarana heldur leik-
ritið sem slíkt. Mig minnir að ég
- hafi sagt í útvarpi að leikritið
minnti mig mest á minningargrein
- í beinni útsendingu, eða eitthvað í
i þeim dúr. Aðili frá Þjóðleikhúsinu
8 fór upp í útvarp og bað um að pist-
- illinn yrði ekki sendur út aftur. Sem
betur fer ákvað útvarpsráð að taka
ekki mark á því og ég var ekki á
- staðnum sjálfur en ég veit að gagn-
i- rýnin snerist um það að ég hefði
L‘ ekki skilið verkið vegna þess að ég
f væri útlendingur.“
f Martin segist muna eftir mörg-
um sem ekki hafa talað við sig eftir
gagnrýni, til dæmis leikara, leik-
stjórum og leikskáldum.
„Menn eru mjög viðkvæmir en
þetta er ekki öðru vísi í Bretlandi,
þar eru enn sterkari viðbrögð ef
eitthvað er. Það er eðlilegt að fólk
taki gagnrýni persónulega. Ég
hugsa að ég mundi gera það sjálfur.
Það er mjög erfitt að vera leikari og
ég hef alltaf dýrkað það fólk sem
getur þetta. Og það er örugglega
ekki eins erfitt að vera gagnrýnandi
og að vera leikari — langt því frá.
Það er tilfinningalega erfitt starf og
ef einhver hakkar sýningu í sig þá er
eðlilegt að því sé tekið illa.“
Martin segir það fara í taugarnar
á sér þegar talað er um leikhús-
gagnrýnendur sem einhverja bók-
menntafræðinga í niðrandi merk-
ingu. „Þetta er klisja, eins og við
höfum ekki áhuga á leikhúsi? Og
hörðustu dómarnir koma oftast frá
fólki sem elskar leikhús og vill ekki
Jóhanna Kristjónsdóttir
„Ogað taka einhverja
leikara fyrir—það
sver ég afmérfull-
komlega. “
sjá annað en það besta. Og þá á ekki
að fara í fólkið heldur í stefnuna.
Mér finnst ekki við hæfi að skrifa
persónulega um leikara, hvort sem
það er á jákvæðum nótum eða nei-
kvæðum. Og viðhorfið, að gæði
sýningar fari eftir því hversu margir
vinna við hana og hversu lengi, er
út í hött. Þúsund manns geta verið
að gera sömu mistökin saman.“
Martin var gagnrýndur íyrir það
að hafa gengið út í hléi á Spansk-
flugunni. „Ég ætlaði ekki að leyfa
mér að horfa á þessa vitleysu í
klukkustund í viðbót. Leikhús-
menn sögðu við mig að ég fengi
borgað fyrir það að vera þarna og
mætti ekki labba út. Ég vil mót-
mæla þessu, mér dauðleiddist og
var að sofna á gamanleik! Þetta
kassastykki gekk hins vegar vonum
framar en mér fannst það hund-
hundleiðinlegt og gat ekki á nokk-
urn hátt mælt með því við aðra.“
Martin segir stöðu gagnrýnanda
einkennilega. Það séu bæði kröfur
frá íjölmiðlinum, en gagnrýni sé
reyndar illa launað starf, og leik-
húsmenn vilji yfirleitt ekki taka
mark á gagnrýninni nema hún sé
jákvæð. „Þetta er hins vegar ekki
séríslenskt fyrirbæri. Ég hef rnikið
verið að pæla í því hvort leikhús-
gagnrýnandi, eins og til dæmis
Súsanna, geti drepið leiksýningu.
Ég held ekki. Fólk sem ætlar að fara
í leikhús fer í leikhús.“
-Jakob Bjarnar Grétarsson
J um sínum eftir að platan var tekin
upp. Það er auðheyrt á hljóm-
kringlunni „Frygð“ að hljómsveitin
er undir miklum áhrifum frá þeirri
tónlist sem meðlimir hennar eru
sjálfir að hlusta á. Tónlist sveita á
borð við Big black, Wiseblood og
Nine inch nails skín í gegn um tón-
smíðar 2001 svo stundum þykir
manni nóg um. En þegar horft er
framhjá áhrifavöldunum verður að
1 segjast að Frygð er ágætlega vel
t heppnuð plata. Hljóðfæraleikur
- þeirra félaga er prýðisgóður, ber
þar sérstaklega að nefna trommar-
ann Sölva Blöndal sem er kominn
• í hóp betri trommara landsins þó
hann sé fullmikið íyrir að sýna
færni sína. Lög sveitarinnar eru hrá
og hávær. Krafturinn skín í gegn.
2001 er tvímælalaust framtíðarsveit
í íslensku rokklífi. Frygð er kannski
< ekki fullkomin rokkplata en hún
gefur góð fyrirheit og ætti að nægja
í öll nema allra heitustu partí. Það
sem er mikilvægast er að 2001
skyldi hafa séð sér fært að koma
efni sínu á framfæri strax og án allt-
of kunnuglegra málalenginga. Það
er nefnilega svo í rokkinu að það
sem gildir er að hika ekki. Það hafa
alltof margar íslenskar hljómsveitir
staðnað og lagt svo upp laupana
vegna þess að þær hafa ekki
komið sínu efni frá sér. 2001
brjóta upp hefðina og það þótt
útgefendur hafi ekki sýnt þeim
nokkurn áhuga. Svona byrjuðu
Sykurmolarnir jú! Þess má að
lokum geta að umslag Þórarins
Leifssonar í 25 tímum er frá-
bært eins og hans var von og
vísa.
Frygð er kröftug rokkskífa þó
hún beri æsku hljómsveitarinnar
2001 nokkur merki. Skífan er fýrst
og fremst merkileg fyrir að hafa
komið út þrátt fýrir logndeyðu í
neðanjarðartónlist Reykjavíkur.
Ottarr Proppé
Þetta er skifa sem gæti opnað
nýjar viddir í tattóveruðum sam-
kvæmum þeirra sem halda að
þeir fylgist með.
Mjög íslenskt
Kol
Klæðskeri keisarans
Kópavogurinn hefur ekki orðið
að þeirri gróðrarstíu í rokkinu sem
reiknað var með eftir að Fræb-
blarnir ruddu pönkinu veginn á
sínum tíma. Ef miðað er við minni
kaupstaði og kauptún er eiginlega
furðulegt hvað mannskapurinn
sunnan Nauthólsvíkur hefur lítið
látið í sér heyra. En ein er sú sveit
sem starfað hefur í Kópavogi öðr-
um lengur og er það hljómsveitin
Hyskið (nei það var ekki átt við Ríó
tríó). Hyskið tók að vísu aldrei upp
nema eina plötu, sem skilaði sér
heldur ekki á markað nema sem
snælda, en þessi sveit þjónaði sínu
hlutverki sem uppeldisstöð tónlist-
armanna og gerði það með sóma.
Undirritaður ætti nú að þekkja það
enda leikið með einum fjórum fyrr-
verandi trommurum Hyskisins. Nú
er Hyskið allt og má segja að Kol
séu tekin við. Hljómsveitina Kol
skipa fyrrum meðlimir Hyskisins
og höfuðpaur þeirrar sveitar, Hall-
grímur Guðsteins-
son, betur þekktur í
„bransanum" sem
Halli gulltönn, leikur
á bassa í sex laganna.
Tónlist þeirra Kola
verður seint talin
framsækin. Flutning-
urinn er fagmannleg-
ur mjög sem og
hljóðstjórn Tómasar Tómasson-
ar en lögin frekar flöt og dálítið
eins og maður hafi heyrt þau áður.
Yrkisefnin eru í alvarlegri kantin-
um, ádeilan ráðandi og kannski
ekki nógu ljóðræn til þess að vera
fullkomnlega öpp dú deyt. Þetta er
hljómplata sem hefði getað slegið í
gegn í kringum 1985 með hljóm-
sveit sem eflaust hefði burstað
músíktilraunir á svipuðum tíma.
Klæðskeri keisarans er ágæt sklfa
sem eflaust á eftir að falla vel í
kramið hjá aðdáendum Bubba
Morthens og Grafíkur en virkar
samt eins og endurútgáfa frekar en
ný afurð.
Óttarr Proppé
Kol er prýðissveit en eins og
fræg kona sagði einhvern tim-
ann: „Great but ten years late.“
Horfið á sió
með Dr
Látið Dr. Gunna leiða ykkur um frumskóg dagskrárinna
Rikissjónvarpið Stöd 2
£
IVIánudagur 9. janúar
Fréttaskeyti
Leiðarljós
Táknmálsfréttir
Þytur í laufi
Hafgúan
Flauel
Dagsljós
17.05 Nágrannar
17.30 Vesalingarnir
17.50 Ævintýraheimur
Nintendo
18.15 Táningarnir í Hæðagarði
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.15 Eirikur
20.00 Fréttir, (þróttir og veður
20.40 Danska Þorpið (7:12)
21.05 Kóngur í uppnámi (2:4)
22.05 Ofnæmi er ekkert grin
Nei, það segirðu sko aldeilis satt.
23:00 Ellefufréttir og
Evrópubolti
23.20 Viðskiptahomið
23.30 Dagskrárlok
20.35 Matreiðslumeistarinn
21.10 Vegir ástarinnar (7:10)
22.00 Dazzle (1:2)
Dazzle fjallar um Ijósmyndarann
Jazz sem lendir íbazzli þegar fað-
ir hennar fellur frá.
22.35 Banvænir þankar (e)
01.15 Dagskrárlok
Þnðjudagur 10. janúar
Fréttaskeyti
Leiðarljós
Táknmálsfréttir
Moldbúamýri
SPK (e)
Nágrannar
Pétur Pan
Ævintýri Villa og Tedda
Ég gleymi þvf aldrei
Sjónvarpsmarkaðurinn
19:19
Eldhúsið
Dagsljós
Fréttir, íþróttir og veður
Feðgar (4:4)
Ofurefli (1:3)
Sænskur sakamálaþáttur um
hjálparstarfsmenn sem komast í
slæman bobba.
22.05 Söfnín á Akureyri (2:4)
Nú er Nonnasafniö sivinsæla tekið
fyrir.
22,25 Sprett úr sporí (e)
23.00 Ellefufréttir og
dagskárlok
Sjónarmið Stefáns Jóns
Visasport
Handlaginn heimilisfaðir
Dazzle (1:2)
Óður til hafsins
Prince of Tides Aðvörun: Barbara
Streisand leikur í og leikstýrir
þessari mynd...
01.15 Dagskrárlok
Miðvikudagur 11. janúar
17.00
17:05
17.50
18.00
18.30
19.00
19.15
20.00
Fréttaskeyti
Leiðarljós
Táknmálsfréttir
Myndasafnið
Völundur
Einn-X-tveir
Dagsljós
Fréttlr, (þróttir og veður
17.05 Nágrannar
17.30 Sesam opnist þú
17.55 Skrifað i skýin
18.15 Visasport
18.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 19:19
20.45 Á tali hjá Hemma Gunn
Fróbær skemmtiþáttur á heims-
mælikvarða. Ýmis skemmtiatriði,
þ.á.m. hljómsveitin Unun.
20.20 Eirikur
20.35 Melrose Place (24:32)
21.25 Stjóri
22.15 Lifið er list
Bjarni Hafþór aftur kominn íloftið,
„eins og honum einum er lagið“.
21.45 Hvfta tjaldið með
Völu Matt
22.10 Bráðavaktin (1:24)
Löng framhaldsmynd um fólk á
spítala.
23.00 Ellefufréttir
23.15 Bráðavaktin framhald
23.55 Einn-X-tveir (e)
23.30 Dagskráríok
II
22.40 Tfska
23.05 Fjárkúgarinn (e)
The Master Blackmailer Sherlock
Holmes knésetur glæpahyski.
01.05 Dagskrárlok