Helgarpósturinn - 09.01.1995, Qupperneq 26
26
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
Kappakstur
Mansell ætiar
að halda áfram
Breski ökuþórinn Nigel Man-
sell sagði þúsundum stuðnings-
manna sinna á föstudag að hann
hefði ekki í hyggju að hætta keppni
eins og talið hafði verið.
í síðustu viku bárust fregnir þess
efnis að Williams-fyrirtækið hygð-
ist ekki nota Mansell sem ökuþór
eins og verið hefur. Við þessar
fréttir, sem komu verulega á óvart,
spruttu strax upp sögur um að
þessi 41 árs gamli ökuþór væri
hættur keppni.
Mansell hélt hjartnæma ræðu
fyrir landa sína á föstudag og sagði
að á meðan hann héldi stuðningi
þeirra og velvild myndi hann ekki
hætta. „Styrkur minn kernur frá
ykkur,“ sagði hann. „Á meðan að
það endist held ég ótrauður
áfram.“
Á fundinum var Mansell spurður
hvort það væri rétt að hann væri nú
þegar búinn að semja við McLaren-
fyrirtækið. Sögusagnir hafa verið í
gangi þess efnis og er málið talið
fullfrágengið. Mansell myndi þá
keppa við hlið Finnans Mika
Hakkinen.
Flest kappakstursliðin hafa nú
mannað áhafnir sínar fyrir kom-
andi átök. McLaren-fyrirtækið á þó
eftir að tilkynna lið sitt opinberlega
og á meðan að það ástand varir
grassera sögusagnirnar.B
Stefan Effenberg
Fiorentina
efastum
framtið hans
ítalska liðið Fiorentina hefur enn
ekki tekið ákvörðun um framtíð
Þjóðverjans Stefan Effenberg hjá
félaginu. Effenberg, sem verið hef-
ur í láni hjá þýska liðinu Borussia
Mönchengladbach í vetur, hefur
verið til sífelldra vandræða utan
vallar og þykja sumar yfirlýsingar
hans hafa verið hálf ævintýralegar.
Skemmst er að minnast þess þegar
hann var sendur heim á HM í sum-
ar fyrir það að veifa löngutöng
framan í landa sína.
Innan vallar hefur hins vegar allt
gengið piltinum í hag og þykir
hann hafa staðið sig mjög vel í vet-
ur. Þess vegna hafa mörg stórfélög
spurst fyrir urn hann og leitað fyrir
sér hjá Fiorentina sem á leikmann-
inn þar til 1997.
„Enn hefur ekki verið tekin
ákvörðun um framtíð Stefans,“
sagði forseti Fiorentina í viðtali um
helgina. „Við ræddum við Stefan
þegar hann var hér í fríi um daginn
og vitum hug hans í málinu.“
Effenberg lék með Fiorentinalið-
inu síðastliðin tvö tímabil og þótti
standa sig mjög vel. Hann lenti þó í
tilvistarkreppu þegar brasilíski
varnarmaðurinn Marcio Santos
var keyptur til liðsins fyrir þetta
keppnistímabil og var allt í einu
orðinn fjórði útlendingurinn hjá
liðinu. ■
Stórtíðindi á Spáni
Romario
á förum
heim
segja spænsk dagblöð
og telja líklegt að hann
gangi tilliðs við
Flamengo.
Brasilíski framherjinn Romario
hjá spænska stórliðinu Barcelona er
orðinn leiður á vistinni á Spáni og
er á förum heim ef marka má
fregnir spænskra dagblaða um
helgina. Ef af flutningunum verður
þykir líklegast að stórliðið Fla-
mengo frá Rio de Janeiro verði fyrir
valinu.
Romario hefur oftsinnis viður-
kennt að honum líki ekki alls kostar
vistin á Spáni. Hann segir það ein-
ungis vera af persónulegum ástæð-
um og þykir með því vera að forð-
ast að styggja spænska aðdáendur
sína sem eru fjölmargir.
Kleber Leite, formaður Fla-
mengo, ræddi við forráðamenn
Barcelona fyrir helgi og segir málið
aðeins vera á frumstigi. Hann sagði
þó við blaðamenn að vandræði Ro-
mario væru aðeins af persónuleg-
um toga og að þau yrðu best leyst
heima fýrir. „Fjölskyldan hans er
aðalástæðan og þegar svo er vilja
landar hans hjálpa," sagði formað-
urinn við blaðamenn.
Spænsk dagblöð voru efins um
fjárhagslega hlið málsins og sögðu
ólíklegt að Flamengo gæti borgað
meira en fjórar milljónir dala fyrir
kappann sem er miklu lægra en
raunverð hans er. Aðspurður um
þetta sagði formaður Flamengo að
peningar væru ekki aðalmálið í
þessu dæmi. „Félög gætu boðið tí-
falda þessa upphæð án þess að Ro-
mario tæki því,“ sagði hann. „Ro-
mario vill fara heim og ég sé ekkert
sem kemur í veg fyrir það.“
Samningur kappans við Spánar-
meistara Barcelona rennur út í júní
1996 og hefur Johan Cryuff, þjálf-
ari liðsins, sagt hann falan fýrir rétt
verð. „Við hlustum á alla sem koma
með alvarleg og raunhæf tilboð,“
sagði Cryuff og neitaði að tjá sig
meira um málið.B
Romario Besti leikmaður nýliðinnar heimsmeistarakeppni er ef til vill á
förum heim til Brasilíu frá spænska liðinu Barcelona.
Frá A til Ö með Degi Sigurðssyni, landsliðsmanni
og fyrirliða Vals
Aukavinna: Kofi Tómasarfrænda
Bjór: Julio
Dagur: Mættur!
Endalaust: Æfingar
teitar konur: Eitthvað lag með Kátum piltum
Græðgi: Góð í hófi
Helgar: Vinna
Island: íallegt
Jól: Tveggja daga frí
Kofinn: Stórkostlegur staður
Leti: Sjaldgæf
Mjólk: Ergóð
Nöfn: Mannanafnanefnd
Oskarsverðlaun: friðrik Þór
Pasta: Alltaf fyrir leik
Bisi: íúsi lína
Svíar: Rosalega góðir
Tískan: ílauel
Unglingar: Bestu skinn
Valur: félagið mitt
Þorbjöm Jensson: Lélegur dómari
Ææ: Meiddi mig!
Ossur Skarphéðinsson: Skemmtileg týpa úr stjórnmálunum
Þorbjömer
lélegur
dómari
Frakkland
Nantes enn langefst
Þrenna í fyrri hálfleik frá fram-
herjanum Patrick Loko tryggði
fránska liðinu Nantes sigur gegn
Lille á laugardag og jók forskot liðs-
ins í frönsku deildinni upp í sjö
stig. Paris Saint Germain, sem eiga
titil að verja og eru í raun þeir einu
sem geta veitt Nantes keppni um
titilinn, fengu frí þar sem ntikil
snjóalög voru á sparkvöllum
franskra.
Allt er nú á suðupunkti í Frakk-
landi vegna stórleiks liðanna sem
verður á miðvikudagskvöldið. Þetta
er sá leikur sem sker úr um hvort
Nantes stingur endanlega af í deild-
inni eða hvort PSG tekst að saxa á
forskotið. Síðari ntöguleikinn þykir
nokkuð vænlegri af knattspyrnu-
forystunni í landinu sem er um-
hugað að halda spennunni og fá
áhorfendur til að flykkjast á leiki í
deildinni.
Patrick Loko hefur aldeiiis slegið
í gegn í frönsku knattspyrnunni.
Hann er nú markahæstur i deild-
inni með fimmtán mörk og
frammistaða hans að undanförnu
hefur leitt til þess að hann var val-
inn í franska landsliðið á dögunum.
Cannes, Bordeaux og Auxerre,
sem öll eru í baráttunni um Evr-
ópusætin, unnu öll leiki sína um
helgina.H
Staðan Nantes 22 41:16 48
PSG 21 32:17 41
Cannes 22 32:20 37
Ðordeaux 22 31:26 36
Auxerre 22 36:20 35
Lyon 21 30:21 35
Lens 22 28:21 33
Strasbourg 22 28:24 32
Mónakó 22 23:17 30
Martigues 22 26:31 30
Le Havre 22 26:23 29
Metz 21 27:30 29
St. Etienne 22 29:26 27
Lille 22 15:27 24
Rennes 22 24:37 24
Nice 22 18:30 21
Bastia 22 19:32 21
Montpellier 22 20:34 19
Caen 22 19:33 18
Sochaux 21 21:40 18
Um dómara-
nefnd KSI
Pátt hef-
ur unmð
gottstarf
JRH hringdi og vildi koma því á
framfæri að honum fyndist
ómaklega vegið að Páli Braga-
syni, fyrrum formanni dómara-
nefndar KSÍ, í smáfrétt hér í
blaðinu á fimmtudag.
JRH telur Pál hafa unnið mikið
og fórnfúst starf fyrir dómara-
hreyfinguna og hann sé aðeins
fórnarlamb klíkuskapar innan
knattspyrnuhreyfingarinnar.H