Helgarpósturinn - 09.01.1995, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 09.01.1995, Blaðsíða 31
r ---- MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995 MORGUNPÓSTURINN SPORT 31 Körfubolti Óvæntur skell- ur Grindhríkinga á heimavelíi í gærkvöidi fóru fram sex leik- ir í úrvalsdcildinni í körfubolta og gerðust nokkur óvænt tíð- indi, meðal annars óvæntustu úrslit ársins, nýtt félagsmet og þjálfarar drjúgir í stigaskorun. UMFG-Skallagrímur 79-86 Sennilega óvæntustu úrslitin á Islandsmótinu. Grindvíkingar, sem höfðu aðeins tapað þremur leikjum fyrir umferðina, þurftu að lúta í núnni pokann fyrir bar- áttuglöðu iiði Skallagríms. Alex- ander Ermolinskij, Úkraínu- maðurinn hjá Skallagrími, skor- aði 30 stig og Grétar Guðlaugs- son bætti við 15 stigum. Hjá Grindvíkingum var Guðmund- ur Bragason atkvæðamestur með 16 stig og Marel Guð- laugsson með 13. Valur-ÍA 106-87 Vaismenn unnu dýrmætan sigur á Akurnesingum í sann- kölluðum botnslag. Hinn nýi þjálfari Valsmanna, Ragnar Pór Jónsson, fór fyrir sínum mönn- um og skoraði 38 stig. Banda- ríkjamaðurinn frábæri hjá Val, Jonthan Bow, skoraði einu stigi minna og er stigahæsti leikmað- ur DHL-deildarinnar um þessar mundir. B.J. Thompson skor- aði 37 stig fyrir Akurnesinga sem eru í vondum málum. ÍR-Haukar 98-87 ÍR-ingar héldu órjúfanlegri sigurgöngu á heimavelli sínum og í gærkvöldi urðu Hafnfirð- ingar fórnarlömb þeirra. Jonat- han Bow, hinn viðkunnanlegi þjáifari Breiðhyltinga, átti stór- leik, 24 stig og 30 fráköst sem ku vera félagsmet hjá IR. „Gull- drengurinn“, Herbert Arnars- son, bætti við 23 stigum. Sigfús Gizurarson var stigahæstur Haukamanna með 25 stig. ÍBK-Snæfell 110-78 Keflvíkingar áttu í engum vandræðum gegn Snæfelli sem tapaði enn öðrum leiknum. Leikstjórnandi landsliðsins, Jón Kr. Gíslason, skoraði 18 stig fyr- ir ÍBK og Davíð Grissom 17. Hjá Snæfellingum var Karl Jónsson atkvæðamestur með 26 stig. Tindastóll-Njarðvík 89-108 AJlt lítur út fyrir að Njarðvík- ingar ætli að renna gegnum ísl- ansmótið létt og lipurlega sem sannkallað yfirburðaiið. Það má segja að þetta kvöld hafi verið kvöld þjálfara því Valur Ingi- mundarson, þjálfari Njarðvík- ur, varð fjórði þjálfarinn til að leiða lið sitt í stigaskorun. Hann skoraði 32 stig og Ronday Ro- binson 19. John Torrey, sem kom aftur í Tindastólsliðið úr leikbanni, var atkvæðamestur heimamanna eins og svo oft áð- ur í vetur með 39 stig. KR-Þór 94-80 Stig KR: Ólafur Jón Ormsson 31, Ingvar Ormarsson 19, Falur Harðarson 15, Ósvaldur Knud- sen 9, Birgir Mikaelsson 9, Atli Einarsson 4, Brynjar Harðarson 4, Óskar Kristjánsson 3. Skot innan teigs: 12/24, utan 8/18, 3-stiga 15/31 (Ólafur 10/15), víti 9/15. Fráköst 26 (6 í sókn), tapaðir 8, stolnir 8, Stoðsending- ar 29 (Birgir 7, Falur 9). Stig Þórs: Kristinn Friðriks- son 25, Sandy Anderson 18, Örv- ar Erlendsson 10, Konráð Ósk- arsson 9, Hafsteinn Lúðvíksson 7, Einar Valbergsson 6, Birgir Ö. Birgisson 5. Skot innan teigs 22/35, utan 2/15, 3-stiga 6/23 (Kristinn 5/16), víti 14/19. Fráköst 42 (13 í sókn) (Anderson 22 fráköst), tapaðir 20 (Anderson 9), stolnir 5, Stoð- sendingar /.■ Útsala á KR-flugeldum Ömggt allan tímann „Radarínn“ ÓliJón með tíu þríggja stiga körfur. Ólafur Jón Ormsson skoraði 10 3-stiga körfur í gær- kvöldi. Hér reynir hann að senda boltann framhjá Haf- steini Lúðvíkssyni (nr 13). Leikur KR og Þórs frá Akureyri í gærkvöldi var ekki jafnspennandi og við var að búast en leikurinn bauð samt sem áður upp á mikla skemmtun fyrir áhorfendur. Það hefur Iíklega verið nægur afgangur af flugeldum hjá KR eftir áramóta- söluna því hittni þeirra var með ein- dæmum. Það var búist við jöfnum leik og KR-ingar virtust aumkunnarverðir þegar litið var á byrjunarlið þeirra. í því voru þrír bakverðir og tveir framherjar. Fljótlega kom þó í ljós að þetta herbragð KR-inga var ekki svo vitlaust. Þeir gjörsamlega völt- uðu yfir Þórsara með gríðarlegum hraða og svo virtist sem Þórsarar nenntu ekki að hlaupa í vörn og þegar þeir loksins dröttuðust þang- að þá nenntu þeir ekki að taka al- mennilega á KR- ingum. Hreyfan- leikinn var svo að segja enginn og oft stóðu KR- ingar óáreittir undir körfunni og lögðu boltann ofan í. Til marks um linkindina fengu Þórsarar ekki dæmda á sig villu fyrr en tíu mínútur voru liðnar af leikn- um. Fram af því hafði skotsýning KR-inga gengið án mótspyrnu. Það var reyndar fyrst og fremst fyrir stórleik Sandy Ander- son sem Þórsarar héldust inni í leiknum. Hann var ódrepandi í fráköstum og enduðu flestar sóknir Þórsara á því að hann tók sóknarfrákast og skoraði. KR-ingar léku stórvel í vörninni og fengu gest- irnir lítið sem ekkert rúm til að skipuleggja sóknar- aðgerðir sínar sem fyrir bragðið urðu mjög sund- urtættar og tilviljunar- kenndar. í hálfleik var staðan 54- 43 heimamönnum í vil og voru Þórsarar í raun heppnir að munurinn hafi ekki verið meiri. í seinni hálfleik tók svo við þáttur Ólafs Jóns Orms- sonar. Eftir að hafa skorað fjórar þriggja stiga körfur í fyrri hálfleik var hann ekki á þeim buxunum að láta af skotsýningunni. I seinni hálf- ieik bætti hann sex stykkjum við og hefur önnur eins skotsýning ekki sést á Nesinu síðan Lárus Árnason var upp á sitt besta. „Radar“ eygði von um að jafna metið í vetur, 11 3- stiga körfur í einum leik, en mis- tókst úr nokkrum opnum færum undir lok leiksins. Óli Jón þakkaði fyrst og fremst staðgóðum morgun- verði þennan árangur en hann fékk sér ristað brauð í morgunmat. „Við erum bara farnir að leita að hverj- um öðrum, það er það sem skiptir máli,“ sagði Ólafur eftir leikinn. Þetta eru svo sannarlega orð að sönnu því sóknar- leikur KR-inga var oft á tíðum gullfallegur og náði liðið hvorki fleiri né færri en 29 stoðsendingum sem ér ótrúleg tala. Fljá Þórsurum lék And- erson ágætlega en hann tapaði boltanum svívirði- lega oft í sókninni. Krist- inn Friðriksson átti ágæta spretti en hvarf inni á milli. Kristinn er einn besti sóknarleikmaður íslands og ótrúleg skytta. Af ein- hverjum ástæðum virðist hann hitta betur þegar varnarmaður er alveg í andlitinu á honum en þegar hann fær opin skot. KR-ingar áttu einn sinn besta leik í vetur. Þeir léku útlend- ingslausir eins og oft áður og hafa þurft að ganga í gegnum ýmislegt misjafnt í vetur.I raun eiga allir KR- ingar hrós skilið fyrir þennan leik. Nú er bara að sjá hvort þeir haldi haus og missi ekki niður um sig buxurnar í næsta leik. -ÞK íslendingar sigruðu Þjóðverja í tveimur landsleikjum um helgina Ótrúlega kafíaskiptur leikur Patrekur Jóhannesson skorar hér eitt af þremur mörkum sínum í seinni leik íslendinga og Þjóðverja. Hann var lítt áberandi í sóknar- leiknum í síðari hálfleik en var sem klettur í vörninni allan leikinn. íslendingar og Þjóðverjar áttust við í tveimur vináttulandsleikjum í handknattleik hér á landi um helg- ina. Fyrri leikurinn fór fram á laug- ardag í Smáranum í Kópavogi og lyktaði með tveggja marka sigri ís- lenska liðsins, 22:20, eftir að staðan í leikhléi hafði verið 10:8, íslenska liðinu í vil. Þjóðverjar náðu að jafna stráx í upphafi seinni hálfleiks en þá fór íslenska vélin í gang og náði mest fimm marka forskoti, 19:14.1 lokin gáfu íslensku strákarn- ir aðeins eftir, Þjóðverjarnir gengu á lagið og náðu að minnka muninn í tvö mörk áður en yfir lauk. I gær- kvöldi fór svo síðari leikur þessara liða fram Höllinni fyrir framan tæplega eitt þúsund áhorfendur. Leikurinn fór hægt af stað og var varnarleikurinn í aðalhlutverki hjá báðum liðum. Fyrsta markið leit ekki dagsins ljós fyrr en eftir tæpar fjórar mínútur. Voru þar Þjóðverj- ar að verki og var þetta í eina skipt- ið sem þeir höfðu forystu í leikn- um. Patrekur Jóhannesson kom íslendingum á blað eftir rúmlega sex mínútna leik. íslenska liðið náði síðan mest fjögurra marka for- ystu í fyrri hálfleik, 11:7, en Þjóð- verjar áttu síðasta orðið í hálfleikn- urn og staðan í leikhléi því 11:8. I upphafi seinni hálfleiks áttu íslend- ingar síðan mjög góðan Ieikkafla sem lagði öðru fremur grunninn að sigri í þessum leik. Þá réðu Þjóð- verjar ekkert við sterka vörn ís- lenska liðsins, og aldrei þessu vant gengu hraðaupphlaupin upp. ís- lendingar náðu sjö marka forskoti, 17:10, en þá var eins og menn hættu hreinlega og héldu að sigurinn væri í höfn. Þjóðverjar gengu á lagið og náðu að jafna, 20:20, þegar þrjár og hálf mínúta lifði af leiknum. Is- lenska liðið náði að halda haus og skora tvö mörk gegn einu marki Þjóðverja, og lokatölur urðu því 22:21. Bjarki Sigurðsson var bestur ís- lensku leikmannanna að þessu sinni og skoraði sex glæsileg mörk. Sigurður Sveinsson skoraði einn- ig sex mörk, öll úr vítum, en annars bar lítið á honum að þessu sinni. Bjarni Frostason stóð allan tím- ann í marki Íslands og varði alls tólf skot. Besti maður vallarins var Þjóðverjinn Jan Fegter sem skor- aði níu mörk alls staðar af vellinum og virtist lítið þurfa að hafa fyrir hlutunum. Hornamaðurinn Stef- an Krerzschner skoraði einnig níu mörk, þar af sex úr vítum. íslenska liðið getur vel við unað eftir landsleikina gegn Þjóðverjum. Að vísu teljast Þjóðverjar vart með- al allra bestu liða heims um þessar mundir en hafa engu að síður á góðu liði að skipa. Þeirra aðal er vörn og markvarsla, og að skora 22 mörk í leik gegn þessari vörn er ekkert til að væla út af. Hins vegar er sóknarleikur liðsins ekki upp á marga fiska og sést það best á því að aðeins tveir leikmenn skora 18 af 21 marki liðsins. Greinilegt er að þeir sakna sárt stórsleggjunnar Volkers Serbe, sem er meiddur og komst ekki með til íslands. Hefði hann verið í för með þeim er ekki víst að tveir íslenskir sigrar hefðu orðið staðreynd. -RM Italski boltinn Ravanelli frábær Juventus efst eftirgóðan sigurá Parma. Hinn silfurhærði snillingur Fa- brizio Ravanelli var enn einu sinni í sviðsljósinu með Juventus þegar liðið mætti Parma í ítölsku 1. deild- inni í gærdag. Fyrir leikinn voru liðin í tveim efstu sætum deildar- innar og tvö mörk framherjans gerðu það að verkum að toppsætið er Juvemanna þrátt fyrir að Parma hafi komist yfir í leiknum. Þar var einmitt að verki Dino Baggio sem lék með Juventus lið- inu þar til í sumar. Hann skoraði með föstu skoti sem Anghelo Peruzzi, markvörður Juve réði ekki við. Markið var mjög gegn gangi leiksins og það var því nolck- uð sanngjarnt þegar Portúgalinn Paolo Souza skoraði en slysalegra gat það ekki verið. Giovanni Galli hinn gamalreyndi markvörður Parma, missti þá boltann yfir sig en rétt áður hafði hann komið inn á sem varamaður fyrir Luca Bucci sem bera varð af leikvelli. Sigur- mörk Ravaneliis komu síðan á fjög- urra mínútna leikkafla, hið fyrra með sérdeiiis glæsilegum skalla eft- ir góða sendingu Gianluca Vialli og hið seinna úr vítaspyrnu eftir að Vialli var brugðið. Til að fullkomna tap Parma var Portúgalinn Fernando Couto rek- inn af leikvelli skömmu fyrir leiks- lok fyrir fólskulegt brot á Vialli. Roma er komið í þriðja sæti deildarinnar eftir 2:0 sigur á Bari og voru þeir Abel Balbo og Franc- esco Totti að verki fyrir Rómverja. Liðið bætir sig nú með hverjum leiknum og þykir eiga raunhæfa möguleika á titli í fyrsta sinn í mörg ár. Fiorentina saknaði greinilega argentínska framherjans Gabriel Batistuta í viðureign sinni við Tórínó og tókst ekki að skora. Á sama tíma var Batistuta að leika með landsliði Argentínu gegn Jap- an í álfumótinu í Ryadh. AC Milan hélt uppteknum hætti Jafnt hjá AC Milan Mílanómenn gerðu enn eitt jafnteflið í ítölsku 1. deildinni í gær. Að þessu sinni stálu Napolímenn öðru stiginu og á myndinni eru þeir Benito Car- bone (t.v.) og Paolo Maldihl að berjast um boltann. og gerði jafntefli í viðureign sinni, nú gegn Napolí. Reyndar héldu leikmenn liðsins uppi stanslausri skothríð allan leikinn en ótrúleg mistök markvarðarins Sebastiano Rossi eyðilögðu allt einni mínútu fyrir leikslok. Mílanómenn voru mikið í því að kanna styrkleika tré- verksins í marki andstæðinganna og var aðeins millimetraspursmál nokkrum sinnum hvort boltinn færi inn eða út úr slíkum skotum. I stórleik gærkvöldsins áttust síð- an við Sampdoria og Lazio í afar fjörugum leik. Sampdoria komst snemma yfir í þeim leik með marki Mihajlovic en markahrókurinn Körfubolti Staðaní úrvalsdeildinni A-riðili L U T st Njarðvík 22 21 1 42 Skallagrimur 21 12 9 24 Pór Akureyri 20 11 9 22 Haukar 22 7 15 14 Akranes 20 6 14 12 Snæfell 20 0 20 0 B-riðill Grindavík 22 18 4 36 ÍR 22 16 6 32 ÍBK 22 14 8 28 KR 22 11 11 22 Valur 22 7 15 14 Tindastóll 22 6 16 12 Handbolti ísland - Þýskaland 22:21 Mörk íslands: Sigurður Sveins- son 6/6, Bjarki Sigurðsson 6, Pat- rekur Jóhannesson 3, Konráð Ol- avsson 3, Ðagur Sigurðsson 2, Geir Sveinsson 1, Róbert Sighvatsson 1. Varin skot: Bjarni Frostason 12. Mörk Þýskalands: Jan Fegter 9, Stefan Krerzschner 9/6, Martin Schmidt 2, Christian Scheffler 1. Varin Skot: Jan Holpert 5/1, Andreas Thiel 3. Brottvísanir: Island 2 mínútur og Þýskaland 10 mínútur. Dómarar: Rune Forbord og Ole Jorstad frá Noregi. Dæmdu í heild- ina þokkalega en óneitanlega vöktu sumir dómar þeirra furðu. ■ Ítalía Leikimir Brescia - Reggiana 1:0 Lupu 29. Cagliari - Inter 1:1 Muzzi 47. - Sosa 5. Foggia - Genóa 2:1 Bresciani 59., Cappeiiini 78. - Onorati 67. AC Milan - Napolí 1:1 Simone 73. - Cannavaro 89. Padova - Cremonese 3:2 Longhi 20., 40. og 90. - Pirri 45., Miianese 72. Parma - Juventus 1:3 Dino Baggio 57. - Sousa 61., Ravanelli 70. og 74. Roma - Bari 2:0 Balbo 69., Totti 86. Sampdoria - Lazio 3:1 Mihajlovic 7., Platt 35., 70. - Signori 11. Staðan Juventus 14 25:13 33 Parma 15 26:13 31 Roma 15 21:8 27 Fiorentina 15 30:20 26 Lazio 15 28:19 25 Sampdoria 15 25:12 24 Bari 15 16:18 22 Foggia 15 18:16 21 AC Milan 14 11:10 19 Tóríno 14 13:15 19 Inter 15 12:13 18 Cagliari 15 12:17 18 Napolí 15 20:25 17 Cremonese 15 14:20 15 Padova 14 15:34 14 Genóa 15 17:25 13 Reggiana 14 10:19 9 Brescia 15 82:4 8 Guiseppi Signori var ekki lengi að jafna metin. Það voru síðan tvö mörk frá enska landsliðsfyrirliðan- um David Platt sem gerðu út um leikinn, sitt í hvorum hálfleiknum, það fyrra úr vítaspyrnu.B

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.