Helgarpósturinn - 27.02.1995, Blaðsíða 6
6
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 199£
Vonskuveöur
Allt fluq
úr skorðum
Allt flug innan lands og utan fór
úr skorðum síðdegis í gær vegna
veðurs. Þotur Flugleiða frá Osló,
Stokkhólmi, Lúxembúrg og Amst-
erdam gátu ekki lent á Keflavíkur-
flugvelli og var snúið til Glasgow.
Meðal farþega var fjöldi fólks á
leiðinni á þing Norðurlandaráðs og
í gærkvöldi komust vélarnar loks til
landsins. Reykjavíkurflugvöllur var
einnig lokaður mestan hluta dags-
ins í gær og opnaðist ekki aftur fyrr
en undir kvöldið. Þó tókst einni vél
frá Kúbu að lenda á vellinum á
meðan skyggnið var sem verst og
tókst lendingin vel. ■
Raufarhöfn
Ölvaður öku-
maður eltur
Lögreglan á Raufarhöfn hafði
hendur í hári á ölvuðum ökumanni
á laugardagskvöldið. Lögreglu-
menn við eftirlitsstörf veittu ein-
kennilegu aksturslagi hans athygli
og gáfu honum merki um að stöðva
bílinn en hann sinnti því engu. Eft-
ir töluverðan eltingaleik um þorpið
tókst iögreglunni að króa bílstjór-
ann af og reyndist hann í annarlegu
ástandi og er grunaður um ölv-
un. ■
Vestmannaeyjar
Ónæði undir
morqun
Nokkur ölvun var í Vestmanna-
eyjum um helgina án verulegra
árekstra. Einn maður var þó settur í
fangageymslur eftir að hafa verið
með háreysti í bænum. Maðurinn
var að ónáða fólk með því að berja
íbúðarhús þess að utan snemma
morgun sunnudags en gat ekki gef-
ið neinar skýringar á framferði
sínu. Ekki var neinu tauti við
manninn komandi og því var hon-
um stungið í steininn þar sem hann
svaf úr sér ölvunarvímuna. ■
A batavegi
eftir hnífs-
stungu
Maðurinn sem særðist lífshættu-
lega þegar sonur hans lagði til hans
með hnífi í Fossvogi fyrir hálfum
mánuði er nú á batavegi. Sonurinn,
sem er 35 ára og á við geðræn
vandamál að stríða, er vistaður á
lokaðri deild á geðsjúkrahúsi og
ólíklegt er talið að hann verði
ákærður fyrir hnífsstunguna vegna
andlegs ástands hans. Unnið er að
því að koma honum í sérstaka ör-
yggisvistun til frambúðar. ■
Börnin úti í kuldanum eftir að verkfalls-
verðir KÍ og HÍK beindu þeim tilmælum til
íþróttafélaga og presta að vaxandi starf-
semi þeirra tefji fyrir að verkfallið leysist
Báðiraðilar
neita að hafa
staðið fýrir
barnagæslu
„Ástæðan fyrir því að við gáfum
eftir var sú að bæjaryfirvöld í Kópa-
vogi vildu ekki efna til deilna út af
þeim atriðum sem skilgreind eru á
gráu svæðum,“ segir Ingi Þór
Ingason framkvæmdastjóri
Breiðabliks, en eftir að kennarafé-
lögin beindu því til Breiðabliks og
fleiri íþróttafélaga í landinu að
kennarar teldu það „hreint og klárt
verkfallsbrot" að skipulögð starf-
semi fyrir skólakrakka færi fram á
skólatíma í skólahúsnæði hafa
íþróttafélögin látið í minni pokann.
Jafnframt hafa kennarar lýst
áhyggjum sínum yfir því að óvænt-
ur vöxtur væri hlaupinn í ferming-
arundirbúning hjá einhverjum
prestum. Að sögn Gunnlaugs Ast-
geirssonar eins af verkfallsvörð-
um í yfirstandandi kennaradeilu
eru þessar athugasemdir og tilmæli
kennara liðir í því að hafa kennara-
verkfallið sem harðast og styst.
„Það lá strax fyrir í upphafi að
við ætluðum aldrei að skipta okkur
af kennaradeilunni,“ segir fram-
kvæmdastjóri Breiðabliks. „Við
gáfum það strax í skyn við kennar-
ana. Kannski vorum við of einföld í
okkar fari að trúa því að íþrótta-
starfsemin gæti gengið. En þar sem
þetta var túlkunaratriði hvort þessi
tilraunastarfsemi íþróttaskólans
væri verkfallsbrot eða ekki var vaf-
inn látinn ráða.“
Var íþróttastarfsemin í Köpavogi
hugsuð sem barnagœsla fyrirforeldra
í verkfallinu?
„Við litum ekki beinlínis á þetta
sem barnagæslu. Þessi starfsemi var
fremur hugsuð út frá því að allan
ársins hring bjóðum upp á íþróttir
og aðra heilbrigða starfsemi fýrir
börn. Við starfrækjum íþróttaskóla
á veturna, utan skólatíma og allan
daginn á sumrin. Við ætluðum því
Gunnlaugur Ástgeirsson verk-
fallsvörður í kennaraverkfallinu.
„Við vitum af alvarlegum vand-
ræðum barna og foreldra víða, en
þessi vandræði verða ekki leyst
nema aðilar semji.“
bara að nota tækifærið eins og alltaf
þegar skólarnir er ekki starfandi.
Við fórum af stað með þessa starf-
semi með fullri vitund og vilja bæj-
aryfirvalda, en það var ekki fyrr en
verkfallið var orðið áþreifanlegt að
þessi skilgreining barst frá verk-
fallsstjórn kennarafélaganna. Sam-
kvæmt samningi sem við höfum
við Kópavogsbæ hefur bærinn for-
gang að húsinu á skólatíma, eða á
milli átta og þrjú á daginn. Þetta var
því niðurstaða bæjarins til þess að
efha ekki til ófriðar. Menn hafa
hins vegar látið það ótalið að ef
flokkar félagsins fara hér inn fyrir
tíma, en það eru einkum eldri
flokkar félagsins.
Ingi Þór segir að vissulega hafi
breytt starfsemi íþróttaskólans
Geir Waage formaður prestafé-
lagsins. „Við prestar eigum ekki
svo miklar þakkir að gjalda þess-
um verkalýðssamtökum í sam-
bandi við kjaradeilur yfirhöfuð."
einnig komið til af samúð með
þeim börnum sem ganga sjálfala:
„En því miður er það þannig í verk-
falli að verkfallsvopnið snýst að
þriðja aðila. Til þess að verkfalls-
vopnið verði beitt verður einhver
að verða fyrir barðinu á því. Okkur
þykir það miður að það séu börnin.
Við hefðum gjarnan viljað fá tæki-
færi til að reka þessa starfsemi okk-
ar eins og alltaf þegar skóli er ekki
starfandi. Öskudaginn fáum við
hins vegar að skipuleggja með góð-
fúslegú leyfi bæjaryfirvalda.
Formaður Prestafélags Islands
Geir Waage sá ekkert athugavert
að ofvöxtur væri að hlaupa í ferm-
ingarundirbúninginn. „Ég leyfi mér
að efast um að prestar séu með
aukinni fermingarfræðslu að taka
Ingi Þór Ingason framkvæmdastjóri Breiðabliks. „Við hefðum gjarnan
viljað fá tækifæri til að reka þessa starfsemi okkar eins og alltaf þegar
skóli er ekki starfandi."
við einhverju gæsluhlutverki af
skólanum. Það hvarflar ekki að mér
að nokkur prestur láti sér detta það
til hugar að blanda sér í kennara-
deilurnar með þeim hætti. Hitt er
annað mál að í tengslum við ferm-
ingarfræðsluna hafa prestar yfirleitt
þurft að taka tillit til skólanna.
Námskrá segir okkur að við skulum
kenna 32 tíma að lágmarki fram að
fermingu. Vegna þess að skólarnir
hafa ýmsa aðra tengda starfsemi á
sinni könnu eins og ferðalög og
fleira til rétt hefst að merja þessar
stundir sums staðar. Ég get því ekki
ímyndað mér að kennarar finni fyr-
ir því að fermingarfræðslan sé auk-
in. Ég veit ekki nokkurt dæmi um
það að skugga hafi borið á samstarf
skólanna og prestanna.“
Standa prestar tneð kennurunum
í kjaradeilunum?
„Við tökum ekki afstöðu til
kennaraverkfalls og blöndum okk-
ur ekki í það með einum eða nein-
um hætti. En ef út í það ætti að fara
hvar prestar standa í kjaradeilum
þá lítur það mál ekki einfalt út. Við
prestar eigum ekki svo miklar
þakkir að gjalda þessum verkalýðs-
samtökum í sambandi við kjara-
deilur yfirhöfuð."
Nokkuð laustengdari samvinna
er á milli íþróttahúsa einstakra
íþróttafélaga en þess íþróttahúss
sem Breiðablik og Kópavogsbær
hafa sameiginlega á sinni könnu. Af
þeim sökum telst það ekki verk-
fallsbrot þótt sum íþróttahús haldi
uppi starfsemi á skólatíma. „Við
höfum mest á móti skipulagðri
starfsemi í verkfalliriu sem er ígildi
skólastarfsemi, en ef tilfæringar
með kristnidómsfræðsluna eru
innan kirkjunnar sjálfrar getum við
ekki gert miklar athugasemdir við
það,“ segir Gunlaugur Ástgeirsson
en benti á að margt af þessu hafi
verið gert í hugsunarleysi því menn
þekki ekki þessi gráu svæði.
En hvað finnst honum, eru kenn-
arar ekki með þessum tilmœlum sín-
um að hugsa meira um eigin hag en
hag barnanna sem í engin hús hafa
að venda?
„Um það er ekkert annað að
segja en að eðli málsins samkvæmt
hefur verkfall kennara þessi áhrif.
Við vitum af alvarlegum vandræð-
um barna og foreldra víða, en þessi
vandræði verða ekki leyst nema að
aðilar semji. Á það skal jafnframt
bent að verkfall er lögleg aðgerð í
kjarabaráttu.“ -GK
Bætifláki
Þess vegna kaupi ég ekki hiá Olís
Leó Löve segir
heldur ófagra sögu af
viðskiptum aldraðar
móður sinnar við
starfsmenn Olís í
grcin í fimmtudags-
blaði Tímans. Fyrir-
sögn greinar Leós er:
„Þess vegna kaupi ég
ekki hjá Oh's“ og er
ástæðan þessi: Einn
morgun i'yrir skómmu
hringdi 75 ára gömul
ntóðir Leós í hann og bað hann að-
stoðar þar sem hún hafði orðið fyr-
ir því óhappi að sprungið hatði á
dekki á bíl hennar. Móðir Leós
hringdi frá bensínstöð Olís við
Hamraborg, sem hún skiptir að
sögn I.eós rnikið við,
en þar hafði ungur
starfsmaður gefið
henni þau svör að
hann gæti ekkert gert
fyrir hana. Og auðvit-
að rauk Leó af stað
móður sinni til hjúlp-
ar.
„Eftir 10 mínútur
var ég kominn á stað-
inn og þar beið móöir
mín elskuleg. Inni á
bensínstöðinni voru þrír karlmenn
(?), tveir fúllorðnir og ungi maður-
inn. Ekkert var að gera við bensín-
dælurnar enda rólegt á miðjum
morgni. Ég skipti um dekk og
spurði móður mína hvar hún hefið
verið þegar hún hringdi.
„Beint fyrir framan afgreiðslu-
borðið," svaraði hún.“
Endar Leó síðan grein sfna með
því að segja að það muni örugglega
líða langur tínii áður en hann fari á
Olís-stöð ótilneyddur.
Sophanías Áskelsson bensín-
afgreiðslumaður hjá Olís Harnra-
borg: „Það eina rétta í þessari grein
Leós er að það var ekkert að gera
hjá okkur. Móðir hans kom hérna
og bað okkur um að dæla lofti í
dekkið. Þessi ungi maður fór út að
gera það og hún með honum. ör-
skömmu síðar kom hún inn og
fékk að hringja. Ég heyrði nú ekki
hvað hún sagði í símann enda
varðar okkur ekkert um hvað okk-
ar viðskiptavinir eru að tala. Svo
kemur þessi maður bara og skiptir
um dekkið. Það rétta er að við vor-
um tveir hérna inni en strákurinn
var ennþá úti að bisa við dckkið
þegar hún hringdi. Við sem vorum
héma inni vissum ekki að það væri
spmngið. Konan orðaði það aldrei
við okkur að skipta um dekk enda
hefðum við gert það með glöðu
geði ef hún hefði beðið okkur um
það.
Maður kennir dálítið í brjósti
um svona menn eins og Leó, það
hlýtur að vera eitthvað að þeim. Ég
kann ekki aðra skýringu á þessu
háttalagi að rjúka með svona mis-
skilning i blöðin.“B
Jarðskjálfti í
Hveragerði
Allsnarpur jarðskjálfti varð kl.
11.40 í gærmorgun 6 kílómetra norð-
an við Hveragerði. Skjálftinn mæld-
ist 3,4 stig á Richterkvarða og fylgdi
honum fjöldi minni eftirskjálfta.
Skjálftavirkni hefur verið stöðug á
svæðinu norðan við Hveragerði frá
því snemma í fyrrasumar og náði
hún hámarki í ágúst þegar nokkrir
skjálftar mældust af stærðinni 4 stig
og stærri á Richterkvarða.
„Menn fundu skjálftann í Hvera-
gerði, á mörgum bæjum í Ölfúsi og
jafnvel í Reykjavík,“ segir Barði Þor-
kelsson jarðskjálftafræðingur.
„Þetta er bara áframihald af þeim at-
burðum sem hafa orðið á þessum
slóðum ffá því í fyrrasumar og það er
ekkert sem bendir til að neitt meiri-
háttar sé á ferðinni." ■