Helgarpósturinn - 27.02.1995, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 27.02.1995, Blaðsíða 14
14 MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1995 Pösturihn Útgefandi Ritstjórar Fréttastjórar Fram kvæm d astj ó ri Auglýsingastjóri Setning og umbrot Filmuvinnsla og prentun Miðill hf. Páll Magnússon, ábm. Gunnar Smári Egilsson Sigurður Már Jónsson Styrmir Guðlaugsson Kristinn Albertsson Örn ísleifsson Morgunpósturinn Prentsmiðjan Oddi hf. Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum og kr. 280 á fimmtudögum. Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku. Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt. Barnapíur en ekki kennarar Verkfallsverðir kennarafélaganna hafa staðið í ströngu und- anfarna viku við að gera athugasemdir við námskeiðahald hjá ýmsum félögum og einnig fermingarundirbúning hjá prestum. Þeir gerðu meira að segja athugasemdir við að foreldrar barna í einum skóla borgarinnar skipulögðu gæslu á skólatíma. Kenn- ararnir líta svo á að þeir sem standa fyrir skipulagðri starfsemi ætlaðri börnum á þeim tíma sem börn væru í skóla ef ekki væri kennaraverkfall, séu í raun verkfallsbrjótar. Kennarar hafi einkarétt á að hafa ofan af fyrir börnum á skólatíma - og þó svo þeir kjósi að gera það ekki þessa dagana vegna kjaradeilna við ríkið - þá sé öðrum ekki heimilt að skipta sér af börnum á þess- um tíma. Þetta eru náttúrlega kostuleg rök. Kennarar eiga ekki börnin. Það eru foreldrar sem eiga börnin. Og ef foreldrar standa frammi fyrir því að velja á milli þess að hafa börnin sín á ver- gangi eða í skipulögðu starfi hjá íþróttafélögum eða í kirkjum þá kemur kennurum það ekki við. Enn síður kemur kennurum það við þó eitt foreldri gæti barna annars foreldris á meðan það er við vinnu og enga kennslu er að fá í skólum landsins. Það er í raun afskaplega brengluð lífssýn hjá verkfallsvörðum kennara- félaganna að láta sér detta það í hug að þeir geti einhverjar skoð- anir haft á hvar foreldrar finna börnum sínum verkefni á meðan kennarar sitja heima til að leggja áherslu á kjaramál sín. Þegar mér var sagt það af kunningja mínum að tengdaforeldr- ar hans, sem eru kennarar, hafi neitað að gæta barna hans á meðan á verkfallinu stendur vegna þess að það drægi úr áhrifum verkfallsins, þá hefði maður undir eðlilegum kringumstæðum átt að hlæja að gamansemi kunningja míns. En í ljósi þess sem sagt var hér að ofan þá er auðséð að kunningi minn var ekki að grínast. Kennarafélögin hafa í fúlustu alvöru farið fram á það við félagsmenn sína að þeir taki hag félagsins fram yfir hag fjöl- skyldu sinnar. Þetta er einkennileg lífssýn, að fólk skuli líta framhjá þörfum sinna nánustu til þess að geta verið betri félagsmenn í stéttarfé- lagi sínu. En það er í anda við annað í þessu verkfalli kennara. Það sem kemur manni einna mest á óvart við þessar áherslur kennaranna er sú sjálfsímynd stéttarinnar sem skín út úr þeim. Kennarar virðast fyrst og fremst líta á sig sem barnapíur. Þegar þeir leggja niður vinnu veltir fólk ekki fyrir sér hvað verður um nám barnanna heldur hvar hægt sé að finna gæslu handa þeim. Og því miður hefur þessi sjálfsímynd kennaranna smitað út frá sér. Foreldrar barna í grunnskólum verða sífellt minna varir við hvað börnin læra í skólanum. Á meðan allur þorri nemenda varð læs á einu eða tveimur árum fyrir nokkrum áratugum, þá er búið að teygja lestrarnám yfir nokkur ár í dag. Og þegar börn- in síðan útskrifast með stúdentspróf um tvítugt standa háskóla- kennarar frammi fyrir spurningunni um hvort hefja eigi nám í algjörum grundvallargreinum í háskólanum - lestri, skrift og reikningi. Ef til vill verður það helsti ávinningur þessa verkfalls að menn munu átta sig á ástæðum slælegrar kennslu í skólum landsins — kennarar telja það ekki megin hlutverk sitt að uppfræða börnin heldur að hafa ofan af fyrir þeim á meðan foreldrarnir eru við vinnu. Gunnar Smári Egilsson Pósturmn Vesturgötu 2, 101 Reykjavík, sími 552-2211 fax 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2243 Tæknideild: 552-4888 Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241 Dreifing: 552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577 Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 17:00 Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 17:00 virka daga, til 21:00 á briðju- og miðvikudögum og milli 13:00 og 21:00 á sunnudögum. • Á‘*;, Uíúi! Ummæíi NýShirley Temple? „Ég á að leika jjögurra ára stelpu sem gerir allt vitlaust.“ Anna Mjöll Ólafsdóttir kvikmynda- stjarna. Já, landspósturinn „Pósturinn verður að ganga sinn gang.“ Halldór Blöndal samgönguráðherra. Eru það ekki skíðagallamir? „Þar við bœtist að Akureyringar eru afskaplega vel klœttfólk, en um leiðfrekar leiðinlega klassískt í klæðaburði.“ Heiðar Jónsson snyrtir. Er fólkið í hvftum sloppum? „Ég vil þakka móður minni en það erfyrst ogfremst henni að þakka að ég heffengið að skrifa ífriðifyr- ir fólki sem er skrýtið í tauinu og að ég skuli standa hér í dag.“ Sjón Um verkfallsofbeldi Allir Islendingar þekkja vdT þá aðstöðú sem jafnan kemur upp þegar eitthvert stéttarfélag í landinu boðar til verkfalls á hendur vinnu- veitendum sínum. Þá gerist það jafnan að stéttarfélaginu telur sér verða heimilt að halda uppi vald- beitingu til að koma í veg fyrir að þau verk séu unnin, sem verkfalls- menn unnu fyrir verkfall. Þetta er kallað verkfallsvarsla. Er henni þá gjarnan stjórnað af einhverri nefnd, sem stéttarfélagið skipar til verks- ins. Birtast reglulega í fjölmiðlum viðtöl við formenn verkfallsnefnda sem tala fjálglega um hvort hin eða önnur athafnasemin verði heimil- uð eða ekki. Að baki býr oftast hót- un um að verkfallsverðir niuni beita ofbeldi til að framfylgja ákvörðunum verkfallsnefnda hlýði menn þeim ekki. 1 tilefni af þessu má varpa fram tveimur spurningum: í. Er einhvers staðar í settum lög- um eða gildum réttarheimildum öðrum að fínna bann við því að störf verkfallsmanna séu unnin af öðrum mönnum meðan þeir eru í verkfalli? 2. Hvaðan kemur stéttarfélagi réttur til að beita samborgara sína Þungavigtin Jón Steinar Gunnlaugsson Hæstaréttar- LÖGMAÐUR valdi til að framfylgja skoðunum sínum á því hverjir megi vinna? Um í. Öllum ætti að vera ljóst að mönnum er heimilt að vinna og láta vinna öll lögmæt störf ef því eru ekki settar sérstakar skorður í lögum eða menn hafa ekki sérstak- lega skuldbundið sig með samning- um til að virða slíkar skorður. I lög- um um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 segir svo í 18. gr.: „Þegar vinnustöðvun hefúr verið löglega hafín er þeim, sem hún að ein- hverju leyti beinist gegn, óheimilt að stuðla að því að afstýra henni með aðstoð einstakra meðlima þeirra félaga eða sambanda, sem að vinnustöðvuninni standa.“ I 18, gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er svipað ákvæði um opinbera starfsmenn í verkfalli. Þar er þó aðeins talað um að óheimilt sé að stuðla að því að afstýra verkfalli með aðstoð ein- stakra félagsmanna þess félags sem að verkfallinu stendur. I þessum ákvæðum felst það eitt sem í þeim segir. Það er sem sagt ekkert at- hugavert við það að lögum, þó að menn utan félagsins eða samtak- anna sem verkfallið boða, vinni þau störf sem verkfallsmenn hafa lagt niður. Launþegar hafa með öðrum orðum ekki annan og meiri ráð- stöfunarrétt yfir störfum sínum en þann að mega bindast samtökum um að leggja þau niður í verkfalli til stuðnings kjarakröfum. Allir félags- menn verða þá að hlíta verkfalli, líka þeir sem kunna að hafa verið andvígir boðun þess. Hins vegar hefur félagið engan rétt til að meina öðrum mönnum sem enga aðild eiga að verkfalli að vinna störfin. Lögfræðingar verkalýðsfélaga hafa reynt að halda því fram að í einum af dómum Félagsdóms felist önnur niðurstaða og sé þar komin réttar- heimild fyrir afstöðu verkalýðsfé- laga um þetta. Þetta fær þó ekki staðist. Er of langt mál að skýra það nánar í þessari stuttu blaðagrein en væri hægt að gera síðar ef á þarf að halda. Um 2. Sú meginregla gildir í samfélögum eins og okkar, að rétt- arvarsla (löggæsla og dómgæsla) er í höndum ríkisins, þ.e. stjórnvalda og dómstóla. Einstaklingar eða samtök þeirra, eins og til dæmis stéttarfélög, geta aldrei tekið sér vald til að framfýlgja sjálfir mein- ingum sínum um réttarstöðu sína. Það er eins og sumir menn telji að lög og réttur falli úr gildi þegar til verkfalla er stofnað. Þá sé heimilt að setja á stofn nefndir á vegum einkaaðila (stéttarfélaga) til að ákveða rétt og órétt samborgara eftir ólögfestum geðþóttasjónar- miðum. Síðan megi framfylgja geð- þóttanum með ofbeldi. Þetta er auðvitað fjarri öllum sanni. Atferli af þessu tagi er einfaldlega ólög- mætt. Með því er brotinn réttur á öðrum mönnum. Siðleysið er svo oftast nær kórónað með atbeina at- vinnurekendanna eftir verkfall með því að semja um að ekki skuli leitað til dómstóla til úrlausnar um lög- mæti ofbeldisaðgerðanna. Ástæða er til að hvetja alla þá sem verða fyrir tjóni vegna sjálf- töku verkfallsvarða í verkföllum að leita réttar síns eftir á fyrir dómstól- um og láta ekki hótanir fæla sig frá þeim sjálfsagða rétti. „Birtast reglulega í fjölmiðlum viðtöl við formenrt verkfalls- nefnda sem talafjálg- lega um hvort hin eða önnur athafnasemin verði heimiluð eða ekki. Að baki býr oft- ast hótun um að verk- fallsverðir muni beita ofbeldi til aðfram- fylgja ákvörðunum verkfallsnefnda hlýði menn þeim ekki. “ Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Erlendsson, Jón Steinar Gunnlaugsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.