Helgarpósturinn - 27.02.1995, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 27.02.1995, Blaðsíða 12
12 MORGUNPÓSTURINN ERLENT MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1995 Evrópskar kvikmyndir Fólk kemur ekki i jafnvel þótt því væri sðaltali fara 75 til 80 af öllum kvótum oe vilja að hut>mynd- skuli leeeia ákveðinn hluta veltu IflfÍlrmifnHano Að meðaltali fara 75 til 80 af hundraði bíógesta í Evrópu að sjá bandarískar myndir. Það er örsjald- an að Evrópumenn ná að gera kvik- myndir sem geta keppt við banda- rískar aðsóknarmyndir á borð við Forrest Gump, TrueLieseða TheLion King. Innan Evrópubandalagsins hafa menn af þessu miklar áhyggjur. Nú er alls kyns ný tækni að líta dagsins ljós í fjölmiðlun og íjarskiptum og kvíða menn því að einnig á þeim markaði muni Bandaríkjamenn verða nær einráðir. Bandaríkjunum muni veitast létt að valta yfir hinar dreifðu og smáu Evrópuþjóðir. Þetta er ekki einungis spurning um menn- ingu, heldur ekki síður um fjármuni. Nefnd á vegum Evrópusambandsins hefur áætlað að þarna gæti verið um tvö milljón störf að tefla og gríðar- lega fjármuni. Jacques Delors, fyrrum forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur sagt: „Við megum ekki tapa þessari orr- ustu eins og við töpuðum orrust- unni um einkatölvurnar og heimilis- tækin.“ En hvernig getur Evrópa brugðist við? í aðra röndina hafa hlutirnir verið að þokast í átt til meira frjáls- ræðis. Alis kyns reglur um símaþjón- ustu, kapalkerfi og fjarskiptahnetti hafa verið afnumdar til að hvetja til aukinnar fjárfestingar á þessu sviði. Væri þá ekki skref aftur á bak að fara að setja einhverja reglugerðarbálka til að stjórna kvikmyndagerðinni? Kvóta á bíómyndir? Frakkar fara fremstir í flokki í bar- áttunni gegn flóði bandarísks kvik- myndaefnis. Þeir vilja herða kvóta sem kveða á um að sjónvarpsstöðvar skuli verja meira en helmingnum af dagskrá sinni í að sýna evrópskt efni. Um þetta hefur þeim ekki tekist að sannfæra bandamenn sína í Evrópu- sambandinu. Jacques Santer, for- maður framkvæmdastjórnar þess, er andsnúinn kvótum og Martin Bangemann, Þjóðverji sem hefur með hátæknimál að gera í fram- kvæmdastjórninni, telur að þeir muni hamla fjárfestingum. Fyrir rúmri viku hittust menning- armálaráðherrar Evrópusambands- ins í Bordeaux og ræddu þessi mál. Þar fékk hugmyndin um slíkt kvóta- kerfi litlar undirtektir, en Jacques Toubon, menningarmálaráðherra Frakklands, var ekki á því að láta í minni pokann og sagðist æda að berjast áffam. Hann sagðist mundu taka málið upp á fúndi með ráðherr- um, háttsettum embættismönnum og kaupsýslumönnum sem haldinn var í Brussel um helgina til að ræða þróun hátæknivædds upplýsinga- samfélags. Þann fúnd sat Al Gore, varaforseti Bandaríkjanna. Banda- ríkjamenn eru náttúrlega andsnúnir öllum kvótum og vilja að hugmynd- ir um frjálsa samkeppni fái að ráða. En Frökkum er dauðans alvara. Það lá við að ágreiningur um kvik- myndir hefði gert út af við viðræð- urnar um GATT-samninginn 1993. Þá var ákveðið að slá málinu á frest án þess að niðurstaða fengist. Kjarni málsins er náttúrlega sá að kvik- myndagerð í Evrópu stendur mjög höllum fæti. Aðsókn að evrópskum myndum hefur hrunið: í kringum 1980 voru gestir á evrópskar myndir um 600 milljónir árlega, nú fara ekki nema um 100 milljón Evrópubúar árlega að sjá evrópska mynd. Að meðaltali sjá um 450 milljónir bandaríska mynd á hverju ári. Þess utan eru Bandaríkjamenn geysi fyr- irferðarmiklir á myndbandamarkaði og í sjónvarpi og þar er um mikla fjármuni að tefla. Á sama tíma geng- ur Evrópumönnum afleitlega að selja myndir sínar til Bandaríkjanna; markaðshlutdeild evrópskra mynda þar er ekki nema svona eitt prósent. Menn hafa rætt þetta fram og aft- ur og skrifað langar skýrslur en skýr- ingin er auðvitað einföld þegar öllu er á botninn hvolft: Evrópumönn- um lánast einfaldlega ekki að búa til myndir sem almenningur vill sjá ólíkt því sem var þegar stjörnur á borð við Jean-Paul Belmondo og Alain Delon voru upp á sitt besta. Þetta vita eigendur bíóhúsa; þegar hvað mest var rætt urn hugmyndir um kvóta á bandarískar ntyndir mótmæltu kvikmyndahúseigendur á Spáni með því að loka sölum sínum í einn dag. Eindreginn ríkisstuðningur í smærri löndum á borð við Grikkland og írland eru Bandaríkja- menn nánast einráðir á markaðnum. Staða þeirra er líka mjög sterk í Bret- landi; markaðshlutdeildin þar er 92 af hundraði. Hin glæsta kvikmynda- hefð ítala hefur látið mjög á sjá og er sagt að þar fari léleg bandarísk mynd létt með að slá við þokkalegri ítalskri mynd. í Þýskalandi eru framleiddar um 100 myndir á ári, en þar hafa Bandaríkin um 80 prósenta mark- aðshlutdeild. Sterkust er þó kvikmyndahefðin í Frakklandi. Þar eru ffamleiddar um 130 myndir á ári. Margt er líka gert til að styðja við bakið á kvikjnynda- gerðinni; það er sagt að Frakkar séu reiðubúnir að gera allt til að styðja bíómyndirnar sínar — nema horfa á þær. Franskar kvikmyndir njóta gríðarlegs fjárhagsstuðnings. Pen- inganna er falað með 11 prósenta skatti á bíómiða og 2.5 prósenta skatti á sölu og leigu myndbanda. Auk þess er lagt sérstakt gjald á klámmyndir og í gildi eru ákvæði um að sjónvarpsstöðvar, hvort sem þær eru í ríkiseigu eða einkaeigu, leggja ákveðinn hluta veltu sinnar í kvikmyndagerð. Sjónvarps- stöðvunum er meinað að sýna bíó- myndir á miðvikudags- og laugar- dagskvöldum, en þá er vonast til að almenningur flykkist í bíó. En allt kemur fýrir ekki. Á síðustu tíu árum hefur aðsókn á franskar myndir hrunið úr 94 milljónum gesta niður í 40 milljónir gesta. Á sama tíma jókst aðsókn á bandarísk- ar myndir um 10 prósent og fór upp í 76 milljónir árlega. Síðasta ár var þó hið svartasta fyrir ffanskar myndir: þær höfðu ekki nema 27 prósenta hlutdeild af markaðinum, enda þótt alls ekki sé hægt að kvarta yfir því að ekki sé nægt ffamboð af þeim í bíó- sölum. Aðeins ein frönsk mynd náði að vera á listanum yfir tíu aðsóknar- mestu myndirnar: Léon eftir Luc Besson. Hún er tekin í New York. La Reine Margot, einhver dýrasta og glæsilegasta mynd sem Frakkar hafa gert, lenti í 15 sæti. Vonarglæta Þó er ekki þar með sagt að evr- ópskar myndir eigi alls enga mögu- leika. Gamanmyndin Les Visiteurs varð til dæmis aðsóknarmesta mynd Ríkisstyrkir til kvikmyndagerðar Portúgal j Noregur| Bretland I Svíþjóð I Þýskaland I Spann Italia Frakkland H&mild: Kagan WoridMedia, 1993 Kvikmyndagero f Evrópu er mjpg á fallanda fæti. Bandarískar kvikmyndir sækja alisstaðar á. Fyrir um fimmtánárum fóru EvrópumepiréOO milljón sinnum á ánjaðrsjá evrópska mynd, núlara þeir ekki nema 100 , milljón sinnum. . * 15 20 milljarðar króna Það er sagt að Frakkar séu reiðubúnir til að gera allt fyrir kvikmynda- gerðina sína — nema horfa á franskar myndir. Léon eftir Luc Besson var eina franska myndin sem komst á lista yfir tíu aðsóknarmestu myndir í Frakklandi á síðasta ári. Myndin gerist í New York. í Frakklandi 1993 og skaut meira að segja Jurassic Parc á bak við sig. Vandinn er hins vegar sá að slíkar myndir sem gerðar eru fyrir heima- markað eiga sjaldnast mikla mögu- leika þegar komið er út fyrir landa- mærin. Þýsku grínmyndirnar um Ottó hafa dregið ótal Þjóðverja í bíó en strax og komið er yfir landamær- in til Strasbourg hafa þær ekkert gildi. Evrópskt sjónvarp virðist hins vegar ekki jafn illa á sig komið. Heimatilbúið efni er að meðaltali um 65 prósent af útsendingartíma. Fólk tekur það ffam yfir bandarískar þáttaraðir; á þær er horft ef ekki er annað í boði. Vandinn er hins vegar sá að heimatilbúnar þáttaraðir hafa afar lítið sölugildi þegar komið er til útlanda; Þjóðverjar vilja fremur eitt- hvað í Dallasstílnum en sápuóperu frá Frakklandi. Það er mikið í húfi. Bandaríkja- menn eru taldir hafa þénað um 8 milljarða dala af sölu kvikmynda og sjónvarpsefnis á síðasta ári og kemur kvikmyndaiðnaðurinn næstur flug- vélaiðnaðinum hvað varðar útflutn- ingstekjur. 60 prósent af þessum fjármunum koma ffá Evrópu. Þetta er þymir í augum margra Evrópu- manna sem telja að þarna geti verið mikill vaxtarbroddur í atvinnulífi í álfunni, eins og reyndar segir í einni skýrslu Evrópusambandsins. Óhollir styrkir? En hver er sökudólgurinn? Jack Lang, fyrrum menningarmálaráð- herra Frakklands sem er þekktur fyr- ir annað en að tala fallega um Banda- ríkin, segir að við þau sé alls ekki að sakast: „Það þýðir ekki að ætla að finna syndasel á fjaríægum strönd- um. Þetta ólán er ekki upprunnið í hinum volduga bandaríska iðnaði. Það erum við sjálf sem berum ábyrgð.“ Sjónir þeirra sem eru á sama máli og Jack Lang hafa einkum beinst að tvennu. I fyrsta lagi þykir dreifingar- kerfi evrópskra kvikmynda í algjör- um molum. Mörg lítil fýrirtæki bít- ast um markaðinn. Fæst þeirra eru fjölþjóðleg, heldur einungis bundin við heimamarkað. Stærstu dreifing- arfýrirtækin eru í eigu Bandaríkja- manna. Hitt vandamálið sem menn þykj- ast hafa komið auga á eru sjálfir styrkirnir. Margir telja nefnilega að þeir eigi stóran þátt í að ganga af kvikmyndagerðinni dauðri. Myndir séu gerðar til að krækja í styrki, ekki í áhorfendur. Kvikmyndagerðar- mennimir viti að þeir muni ekki tapa á myndum sínum — allt sé borgað úr evrópskum sjóðum eða sjóðum heima fyrir. I Bandaríkjunum hefur það löng- um verið ríkjandi viðhorf að kvik- myndagerð sé iðnaður. í Evrópu hafa menn hins vegar hallast ffekar að því að þetta sé list. Kannski er það að breytast og kannski þarf það að breytast ef Evrópumenn eiga að geta staðist Bandaríkjamönnum snúning. Að minnsta kosti er það skoðun David Puttnam, Breta sem er fýrr- um forstjóri Columbia- kvikmynda- versins bandaríska. Hann segir: „Menn eru farnir að átta sig á því að við höfum verið heimskir en Banda- ríkjamenn klárir. Loksins eru menn farnir að líta á þetta sem alvöru iðn- að.“ -eh. (byggt á Reuters og Newsweek.) Bill Clinton. Er það forseta sæm- andi að vera svona til fara? Klæðaburður Eru Kanar subbur? Eru Bandaríkjamenn subbur? Þessari spurningu veltir tímaritið Newsweek fýrir sér og kemst að þeirri niðurstöðu að líklega sé sú raunin. Klæðaburði Bandaríkja- manna hafi hrakað stórlega síðustu áratugina. Til sannindamerkis birtir blaðið myndir af ýmsu fólki, bæði þekktu og óþekktu; þarna eru myndir af sjálfúm Bandaríkjafor- seta, Bill Clinton, kvikmynda- stjörnunum Bruce Willis og Demi Moore, kvikmyndaleikstjóranum Steven Spielberg, kántrísöngkon- unni Lorettu Lynn og glæpafor- ingjanum John Gotti yngri. Ekkert af þessu fólki er klætt þannig að frambærilegt geti talist og það er ekki heldur sauðsvartur almúginn, sem líka fær mynd af sér í blaðinu. En kannski eru Bandaríkjamenn ekki einir um að vera verr klæddir en forðum tíð. Newsweek kemst að þeirri niðurstöðu að svo sé líka um um Frakka og Breta. Frakkar hafi haldið einna lengst út í virðulegum jakkafötum, en nú séu líka þeir farnir að klæða sig afar óformlega. Það sé helst í Rússlandi að merkja megi framför í klæðaburði. Þar séu hin óásjálegu föt sem framleidd voru í stórum ríkisverksmiðjum mjög á undanhaldi en í staðinn sjá- ist nú æ oftar fólk í dýrum ítölskum fötum á götum Moskvu og Sankti Pétursborgar. Þó sé það vissulega ekki nema lítið brot þjóðarinnar sem geti veitt sér slíkan munað. ■ ítalir eru fallegastir Ungt fólk telur ítali sæta og vill samein- aða Evrópu. Músíksjónvarpsstöðin MTVgerði nýlega mikla skoðanakönnun á við- horfum ungs fólks í Evrópu og voru ýmsar spurningar lagðar fyrir þrjú þúsund ungmenni frá níu löndum Evrópusambandsins. Voru þátttak- endurnir á aldrinum frá 16 til 34 ára. Italskir karlmenn mega vera hæstánægðir með sinn hlut í skoð- anakönnuninni, því í ljós kom að flestir töldu þá fallegustu karla í Evr- ópu. Voru 34 af hundraði aðspurðra þessarar skoðunar. Þjóðverjar biðu hins vegar miklar ófarir en aðeins 4 prósent töldu að þarlendir karl- menn ættu sér einhverrar viðreisnar von. I skoðanakönnuninni kom líka fram að flestir töldu Belgíu leiðinlegt land en Svíþjóð hreint land. Frakk- land fékk ágætiseinkunn fýrir góðan mat en England fýrir góða tónlist. Viðhorf unga fólksins virðast merkilega lík burtséð frá heima- landi. Flestir hafa áhyggjur af at- vinnuleysi, eyðni, umhverfisspjöll- um og vaxandi ofbeldi og telja að starf sem maður er sáttur við sé mikilvægara en há laun. Flestir kjósa að eyða frítíma sínum með fjölskyldu sinni. Og, að Bretum og Svíum undanskildum, eru langflest- ir hlynntir samrunaferlinu í Evr- ópu. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.