Helgarpósturinn - 27.02.1995, Side 7

Helgarpósturinn - 27.02.1995, Side 7
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1995 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 7 geta lækkað um 30 prósent „Það eru liðnir þrettán mánuðir síðan óskað var eftir álitinu en það gerist ekki nokkur skapaður hlutur hérna. Ég er að fara til útlanda núna en ég sagði við þá í Verslunarráðinu að ef ekkert hefur gerst í þessu máli þegar ég kem heim í apríl ætla ég sjálfur tH Brussel ef ekki dugar ann- að til,“ segir Kristmann Magnús- son, stórnarformaður Pfaff, en hann var einn aðalhvatamaður þess að Verslunarrráð íslands og Félag íslenskra stórkaupmanna óskaði álits eftirlitsstofnunar EFTA á því Dæmi um lækkun á heimilistækjum 100 liust.'nd kronur 90 80 — . Með vörugjaldi - 70- Án vörugjalds hvort ákvörðun íslenskra stjórn- valda um að leggja vörugjald á ýms- an evrópskan iðnvarning, á borð við sjónvörp, þvottavélar, skotvopn og hjólbarða, standist EES-samn- inginn. Umrædd vörugjöld komu í stað innflutningstolla sem féllu niður þegar EES-samningurinn gekk í gildi en ákvörðun sína byggja stjórnvöld á 14. grein EES-samn- ingsins um frjálsa vöruflutninga, þar sem segir: „Einstökum samn- ingsaðiium er óheimilt að leggja 1 hvers kyns bein- an eða óbeinan skatt innanlands á framleiðsluvör- ur annarra um- fram það sem beint eða óbeint er lagt á sams konar innlendar vörur.“ Þetta ákvæði túlka ís- lensk stjórnvöld sem heimild til þess að leggja vörugjöld á allan evrópskan iðn- varning. Kristmann Magnússon er þessu algjörlega ósammála. „Þetta er ekk- ert annað en dul- búinn toliur. Þeir skýla sér á bak við að þetta vörugjald yrði lagt á innlenda framleiðslu líka en það er bara fyrirsláttur því hér er svo til ein- göngu um að ræða vörur sem hafa ekki verið og munu aldrei verða framleiddar hér á landi.“ Jónas Fr. Jónsson lögfræðing- ur Verslunarráðs tekur undir með Kristmanni í þessurn efnum. „Hugsunin að baki vörugjaldinu er sú að það á að leggjast bæði á inn- lenda og erlenda framleiðslu en þeir í fjármálaráðuneytinu segja sem svo: Það vill bara svo til að það er engin innlend framleiðsla til staðar. Það er hægt að sjá fýrir sér ýmisleg dæmi sem gætu verið sambærileg. Islendingar yrðu til dæmis örugg- lega ekki rnjög hrifnir ef Austurrík- ismenn tækju upp á því að leggja vörugjald á fisk sem væri veiddur upp úr sjó og bæru því fýrir sig að það vildi bara svo til að Austurríki hefði ekki aðgang að sjó.“ Stjórnvöld treg að gefa upplýsingar Þrátt fyrir tilraunir blaðamanns MORGUNPÓSTSINS reyndist ekki unnt að fá upplýsingar um stöðu þessa máls í fjármálaráðuneytinu; hvorki hvort athugasemdir hefðu borist frá eftirlitsstofnuninni né hvort einhverjar breytingar á vöru- gjöldunum stæðu fýrir dyrum. Jónas Fr. Jónsson segir aðspurður að Verslunarráðinu hafi reynst erfitt að fylgjast með viðbrögðum eftir- litsstofnunarinnar, því þótt Versl- unarráð hafi óskað eftir álitinu er það ekki málsaðili, heldur tekur eft- irlitsstofnunin málið upp gagnvart viðkomandi ríki og beinir athuga- semdum sínum þangað. Að sögn Jónasar hafa ráðamenn hér á landi ekki verið liðlegir við að gefa upp- lýsingar um gang málsins. „Fjármálaráðuneytið hefur ekki viljað láta okkur fá neinar upplýs- Eftirlitsstofnun EFTA ítrekaði á dögunum að einkaréttur ÁTVR á innflutningi og heildsöludreifingu ááfengi sé brotá EES-samningnum. Eftirlitsstofnunin hefur ýmis önnur mál sem snúa að viðskiptaháttum hér á landi til athugunar. Nú eru 13 mánuðir liðnir frá því óskað var álits stofnunarinnar á því hvort vörugjöld á evrópskan iðnvarning standist EES-samninginn Heimilistæki Kristmann Magnússon stjórnarformaður Pfaff: „Ég ætla sjálfur til Brussel ef ekki dugar annað til.“ ingar um bréfaskipti sem hafa geng- ið milli eftiriitsstofnunarinnar og ráðuneytisins, en það er í sjálfu sér mjög athyglisvert að fjármálaráðu- neytið sé ekki tiibúið að sýna borg- urunum í landinu hvaða athuga- semdir svona stofnanir eru að gera,“ segir Jónas. Samkvæmt heimildum MORGUN- PÓSTSINS hefur eftirlitsstofnunin gert ýmsar athugasemdir við vöru- gjaldið. Einkum hefur stofnunin gert athugasemdir við framkvæmd innheimtu vörugjaldanna. Þannig á til dæmis vörugjald af innfluttum vörum að greiðast á tollafgreiðslu- degi en frestur til að gera upp vöru- gjald af innlendum vörum eru tveir mánuðir. Eins hefur blaðið upplýs- ingar um að starfsmenn fjármáia- ráðuneytisins hafi unnið að laga- frumvarpi til að leiðrétta þau atriði sem eftirlitsstofnunin hefur gert at- hugasemdir við, en það er ekki lagt fyrir þingið sem var að ljúka. Jónas Fr. Jónsson lögfræðingur Verslunarráðs: „íslendingar yrðu örugglega ekki mjög hrifnir ef Austurríkismenn tækju upp á því að leggja vörugjald á fisk og bæru því fyrir sig að það vildi bara svo til að Austurríki hefði ekki að- gang að sjó.“ Cjaldið hækkar verð allt að 30 prósent Verulegir hagsmunir eru í húfi fyrir neytendur ef vörugjaldið yrði aflagt. Til dæmis myndi sjónvarps- tæki sem nú kostar 100.000 krónur kosta tæplega 70.000 krónur án vörugjalds, eða lækka í verði um ríf- lega 30 prósent. Annað dærni er þvottavél sem nú kostar 60.000 krónur en myndi kosta 47.000 krónur ef vörugjaldið yrði aflagt. Þriðja dæmið er loftnet sem nú kostar 10.000 krónur en lækkaði í tæplega 7.000 krónur án vörugjalds. Aðrar vöru sem myndu lækka í verði ef margnefnt vörugjald hyrfi, eru til dæmis: straujárn, samloku- grill, eldavélar, saumavélar og skot- vopn. -jk Reykjavík Stútar undir stýri Lögregla þurfti að hafa afskipti af óvenju mörgum ölvuðum öku- mönnum í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins. Tíu bílstjórar voru teknir grunaðir um ölvun við akst- ur án þess að valda slysum. Yfirleitt eru um 6 til 7 ökumenn teknir ölv- aðir við akstur í Reykjavík á laugar- dagskvöldum. ■ Vesturlandsvegur Ölvuð á staur og fest- ist í bílnum Um kl. 5 í gærmorgun ók kona á ljósastaur við Vesturlandsveg móts við Korpúlfsstaði. Konan var á leið sinni upp í Mosfellsveit og virðist ekki hafa tekið eftir aflíðandi beygju sem er þar á veginum og ek- ið rakleiðis út af. Konan fótbrotn- aði við áreksturinn og festist undir stýri í bílnum sem er mikið skemmdur. Tækjabifreið slökkvi- liðsins í Reykjavík var kvödd á vett- vang og tókst slökkviliðsmönnun- um fljótlega að losa konuna úr bílnum. Hún er grunuð um ölvun við akstur. ■ Garðabær Brotist inn í Garðahéðin Rétt fyrir kl. 7 í gærmorgun fór viðvörunarkerfi í Securitas í gang og benti til innbrots í vélsmiðjuna Garðahéðin í Garðabæ. Eftirlits- menn Securitas fóru á staðinn og komu auga á mann í nágrenni við innbrotsstaðinn og þegar hann varð þeirra var reyndi hann að hlaupa í burtu og fela sig. Eftirlits- mennirnir kölluðu þá á iögregluna í Hafnarfirði sem handtók mann- inn en hann er einnig grunaður um ölvun við akstur. Maðurinn var settur í fangageymslur en málið er í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. ■ Höfðatún Fjórir staðnir að verki við innbrot Fjórir piltar voru gripnir glóð- volgir við innbrot í söluturn við Höfðatún í fyrrinótt. Piltarnir höfðu náð að stinga á sig einhverju sælgæti þegar lögreglan hafði hend- ur í hári þeirra. Þeir eru allir í kringum 16 ára gamlir og hafa áður komið við sögu lögreglunnar. Pilt- unum var sleppt að loknum yfir- heyrslum. ■ Arnar Jensson í efnahagsbrotin Nú er það frágengið að Arnar Jensson, fýrrum yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar með meiru, fær áður augiýsta stöðu við rannsóknardeiid efna- hagsbrota hjá RLR. Það vakti nokkra athygli hvað fýrrum yfir- menn fíkniefnalögreglunnar voru áhugasamir um stöðuna því Björn Halldórsson sótti einnig um. Um cr að ræða stöðu aðstoð- ar)'firlögregluþjóns hjá RLR en það er staða sem Egill Bjarna- son sinnti áður en hann er nú yf- irlögregluþjónn í Hafnarfirði. Aðrir umsækjendur að stöðunni voru rannsóknarlögreglumenn- irnir Björgvin Björgvinsson, Guðmundur Gígja Lúðvik Eiðsson, Kristján H. Kristjáns- son og Högni Eiðsson. Helgi Áss Grétarsson nýjasti stórmeistari okkar Sestur á skólabekk „Ég hef einsett mér að reyna að klára 4. bekk í Versló í vor þannig að það verður lítið um skákiðkun hjá mér á næstunni," sagði Helgi Áss Grétarsson, nýjasti stór- meistari okkar Islendinga. Eftir að Helgi Áss varð stórmeistari eftir óvæntan en glæsilegan sigur á heimsmeistaramóti unglinga undir 20 ára síðasta haust hefur hann ein- beitt sér að skákiðkun. Hann gaf enda út að hann hefði áhuga á að verða atvinnumaður í skák. Helgi segist hafa séð að leiðin í atvinnumennskuna sé heldur erfið- ari en hann hafi gert sér grein fyrir. „Samkeppnin er gífurleg og það blasir við að ég á enn nokkuð langt í land til að hafa eitthvað út úr at- vinnumennskunni. Til að ná ár- angri í skákinni þarf maður að leggja gífurlega mikið á sig, enda styrkleiki atvinnumanna mikill.“ Helgi Áss sagði að þó að titillinn hefði verið kærkominn þá væri ástandið þannig í skákheiminum að honum fylgdu ekki mikið af boðum á skákmót. Næsta skákmót hans verður því millisvæðamótið í skák en einn af kostum þess að verða heimsmeistari er að hann sleppur við svæðamót í skák. Eitt slíkt verður haldið hér í næsta mán- uði og tefla flestir hinna íslensku stórmeistara á því. „Jú, það er erfiðara en ég bjóst við að vera atvinnumaður í skák en ég er síður en svo búinn að missa áhuga á því,“ sagði þessi yngsti stórmeistari Islendinga. ■ Helgi Áss Grétarsson stór- meistari í skák situr þessa dag- ana heima hjá sér og hefur tekið námsbækurnar fram yfir skák- bækurnar á ný.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.