Helgarpósturinn - 27.02.1995, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
11
Formaður KÍ til Kaupmannahafnar í gærdag
Sækir peninga í
verkfallssjóoinn
tiB Norðurlanda
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Islands, fór utan
til Kaupmannahafnar í gærdag til að
fá vilyrði fyrir fjármagni hjá norræn-
um samstarfsfélögum sínum ef til
þess kemur að verkfall HÍK og Kl
dregst á langinn. En eins og komið
hefur fram geta verkfallssjóðir kenn-
arafélaganna framfleytt félagsmönn-
um sínum í tvo mánuði. Er Eiríkur
væntanlegur aftur ífá Kaupmanna-
höfn í kvöld.
Annars er það af kennaradeilunni
að ífétta að ekkert þokaðist í sam-
komulagsátt á fundi kennara og rík-
isins í gær. En fundur stóð yfir í fá-
eina tíma eftir hádegi í gærdag. „Eft-
ir að grunnskólafrumvarpið var
samþykkt á Alþingi má kannski
segja að við höfum vinnuffið til þess
að sinna okkar kjaramálum,“ sagði
Elna Katrín Jónsdóttir, formaður
Hins íslenska kennarafélags, þegar
MORGUNPÓSTURINN ræddi við hana
í gærkvöld. „Á meðan þurfum við
að minnsta kosti ekki að berjast á
öðrum vígstöðvum,“ bætti hún við.
Elna Katrín sagði kennarana
heldur ekki hafa átt von á því að eitt-
Elna Katrín Jónsdóttir formaður
HÍK segir að eftir að grunnskóla-
frumvarpið var samþykkt fái
kennarar kannski vinnufrið til
þess að sinna kjaramálum sínum.
hvað myndi draga til tíðinda fyrr en
effir helgi enda hafi þeir gert ráð fyr-
ir því að þingmenn og ráðherrar
lægju í dái eftir erfið þinglok.
Ber enn milljarða á milli?
„Það ber enn mikið á milli. En
ástæðan fyrir deyfðinni nú er fyrst
og fremst sú að ekkert nýtt tilboð ffá
ríkinu hefur litið dagsins ljós. Við
kennararnir höfúm hins vegar haft í
nógu að snúast við að skoða alls
konar mál enda er verið að huga að
svo flóknum samningum."
Fundur með kennurum og við-
semjendum þeirra verður áfram
haldið í Karphúsinu í dag. -GK
Pabbinn tók á
móti syninum
Þau tíðindi gerðust í sumarbústað En hvemiggekk þetta fyrir sig?
að sextán ára stúlka ól bam sex vik-
um fyrir tímann með aðstoð kærasta
síns, Odds Valdemarssonar, án
þess að nokkur annar kæmi þar
nærri. Móðurinni, Benediktu Hall-
dórsdóttur, og bami heilsast vel en
móðirin liggur á sængurkvenna-
deildinni en barnið er á vökudeild
Landspítalans. Hinn nýbakaði faðir
dvelur stoltur þeim til samlætis á
spítalanum. Aðspurður um hvort
hann hefði verið hræddur við að
þreyta þessa ffumraun sem ljósmóð-
ir, svaraði pabbinn: „Það var lítill
tími til þess. Þetta gerðist svo snöggt.
Ég sótti auk þess námskeið í skyndi-
hjálp hjá Hjálparsveit skáta þannig
að ég kunni handtökin.“
„Samdráttarverkirnir byrjuðu um
fimmleytið en klukkan 6 var legvatn-
ið farið og þá sendi ég strák sem var
þama með okkur í símaklefa til að
hringja á sjúkrabíl. Meðan við bið-
um kom kollurinn í ljós og loks
skaust strákurinn út. Ég reif bendl-
ana af koddaveri og hnýtti fýrir
naflastrenginn og breiddi síðan sæng
yfir móðurina og barnið. Síðan leið
skammur tími, barnið kom ldukkan
19.15 en sjúkrabíllinn var kominn
klukkan 19.40.“
Ætlarðu að taka á mótifleiri börn-
um?
„Það er aldrei að vita, systir mín er
ólétt heima,“svaraði Oddur hressi-
lega. -þká
Jón Pétursson „Lögreglumenn og stöðumælaverðir þurfa að hafa afskipti af fólki í sínu starfi og verða frekar fyrir áreitni í orðum en aðrir.“
Langþráður sigur tjáningarfrelsismanna: 108. grein
hegningarlaganna felld niður
Eftirsjá í greininni
segirJón Pétursson lögreglumaður og fyrrvenandi formaður Lögreglufélags Reykjavikur.
„Það er einkennilegt hve einföld
mál geta tekið langan tíma,“segir
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Alþýðubandalags, en hann
flutti í tvígang frumvarp á Alþingi
þess efhis að hin alræmda 108. grein
almennra hegningarlaga yrði felld
niður, fyrst árið 1992 á 115. þingi og
affur á næsta þingi á eftir. Frum-
varpið fékkst í hvorugt skiptið sam-
þykkt en málið var sett í nefnd. Nú
hefur 108. grein hegningarlaganna
hins vegar verið felld á brott úr lög-
unum en skömmu fyrir þingslok
samþykkti Alþingi frumvarp Þor-
steins Pálssonar dómsmálaráð-
herra sem byggt var á einni af
þremur tillögum fyrrnefndrar
nefndar. Kristinn fagnar þessum
málalokum en honum finnst það
hafa dregist óþarflega á langinn að
koma þessu í gegn og bendir á að ef
til vill sé það ekki sama hver flytji
frumvörpin.
Kristinn H. Gunnarsson flutti í
tvígang frumvarp á Alþingi um að
fella 108. grein hegningarlaganna
niður, en án árangurs.
108. grein hegningarlaga hefur
lengi verið tjáningarfrelsismönnum
á Islandi þyrnir í augum en hún fel-
ur í sér sérstaka vernd opinberra
starfsmanna gagnvart móðgunum,
skammaryrðum og ærumeiðandi
aðdróttunum. Það var einkanlega
niðurlag umræddrar lagagreinar
sem braut í bága við réttlætiskennd
manna, þar sem segir: „aðdróttun,
þó sönnuð sé, varðar sektum ef hún
er borin fram á ótilhlýðilegan hátt.“
Þess má geta að hámarks refsing
brots við 108. grein var allt að
þriggja ára fangelsi.
Þegar skoðaðir eru dómar sést að
108. greinin hefur langoftast verið
notuð þegar um atyrði í garð lög-
reglumanna er að ræða, bæði
munnleg og skrifleg. Jón Péturs-
son lögeglumaður og fyrrverandi
formaður Lögreglufélags Reykja-
víkur var spurður að því hvort
hann teldi að niðurfelling greinar-
innar ætti eftir að breyta starfsum-
hverfi lögreglumanna.
„Já, opinberir starfsmenn eru að
vinna fyrir þjóðfélagið og þurfa að
hafa frið og vernd bæði í athöfnum
og orðum. Þetta fólk, eins og til
dæmis lögreglumenn og stöðu-
mælaverðir, þurfa að hafa afskipti
af fólki í sínu starfi, þetta er fýrst og
fremst að fást við sálir, verður frek-
ar fyrir áreitni í orðum en aðrir.
Auðvitað leiðist fólki að vera kallað
alls kyns ónöfnum og vera hótað og
ég veit ekki hvað og hvað það er
sem dynur yfir mann í þessu starfi.
Þannig að almennt finnst mér að
það þurfi að hafa einhverja vernd
fyrir opinbera starfsmenn.“
Jón játar því að honum sé eftirsjá
í 108. greininni en segir þó að hann
búist ekkert frekar við því að sví-
virðingar í garð lögreglumanna
aukist.
„Þær eru nógar fýrir og verða
alltaf nógar, held ég.“
-jk
Ragnar H. Hall, settur ríkissaksóknari, telur aö Sævar M. Ciesielski hafi ekki lagt fram nauðsynleg gögn til aö uppfylla skilyröi
laganna um endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálanna. Sævar segir aö hann hafi ekki enn fengið aðgang að nauðsynlegum
gögnum til að bæta þar úr
Hann getur ekki snúið sér til mín
segir Ragnar H. Hall, settur ríkissaksóknari.
Ftagnar H. Hall, settur ríkissak-
' sóknari vegna kröfu Sævars M. Ci-
esielskis um endurupptöku Guð-
mundar- og Geirfinnsmálanna, tel-
ur beiðni Sævars ekki uppfylla skil-
yrði laganna. Sævar telur hins vegar
að yfirvöld hafi ekki látið honum í té
nauðsynleg gögn til þess að hann
geti bætt þar úr. Það er því óvíst hve-
nær Ragnar getur lokið störfum og
sent Hæstarétti gögn málsins ásamt
tillögum um hvernig bregðast eigi
við kröfúnni.
Saksóknarí neitar
að aðstoða
I bréfi, sem Ragnar sendi Sævari í
síðasta mánuði, er Sævari gefinn
kostur á að senda ffekari gögn til að
styrkja kröfú sína áður en beiðnin
og gögn málsins verða send Hæsta-
rétti til ákvörðunar. I greinargerð,
sem fylgdi beiðninni, fjallaði Sævar
nær eingöngu um hvarf Guðmund-
ar Einarssonar og reyndi að sýna
fram á að hann væri saklaus af að
hafa átt aðild að því. Hann telur sig
hins vegar vanta talsvert af gögnum
til að skila Ragnari endurbættri
greinargerð þar sem hann fjallar
einnig um hvarf Geirfinns Einars-
sonar. Þetta kemur fram í bréfi
Sævars til Ragnars í lok janúar. Síð-
an segir hann orðrétt:
„Eins og þér er kunnugt þá hef ég
leitað til dómstjóra við héraðsdóm
vegna þessara gagna. Ég tel rétt að
þú aflir þeirra, þar sem ég hef sjálfur
aðeins fengið örfá ljósrit... Ég óska
eftir því að fá að skila ýtarlegri grein-
argerð um endurupptöku kröfunn-
ar þegar ég hef fengið áðurnefnd
gögn, enda eru þau mikilvæg for-
senda þess að beiðni mín fái réttláta
og eðlilega meðferð.“
Ragnar þvertekur fýrir að það sé í
hans verkahring, sem saksóknara í
málinu, að aðstoða Sævar við að afla
gagna. „Hann getur ekki snúið sér til
mín og sagt mér að fara og finna
gögnin fýrir sig,“ sagði hann í sam-
tali við MORGUNPOSTINN. „Ég lít
svo á að Sævar eigi að leggja fyrir
mig þau gögn, sem hann byggir
Sævar M. Ciesielski er ósáttur við að fá ekki aðgang að skjölum sem
hann telur nauðsynleg, meðal annars að rannsóknarniðurstöðum
þýskrar rannsóknarstofnunar sem íslensk lögregluyfirvöld leituðu til.
„Hjá Wiesbaden-stofnuninni voru framburðir sakborninga tölvukeyrðir
til að kanna hvort við höfðum verið að ijúga upp á okkur sakir. Niður-
stöðurnar voru aldrei birtar af því að þær komu ákæruvaldinu ekki að
gagni.“
kröfúna um endurupptöku á. Ég er
‘búinn að skýra það út fýrir honum
og ég held að honum sé alveg ljóst
hvernig hann þurfi að gera þetta.
Hann bað um ffest til þess ffam til
mánaðamóta. En það er engin
pressa á því af minni hálfú, ég bara
bíð eftir þessu.“
Sævar hefúr ítrekað snúið sér til
Héraðsdóms Reykjavíkur í því skyni
að fá gögn, sem hann telur sér nauð-
synlegt að afla. „Ég á að tilgreina ná-
kvæmlega hvaða gögn það eru sem
ég vil fá,“ segir Sævar. „En ég sagði
dómstjóranum að ég vildi fá að sjá
öll gögn um mig. Ástæðan er sú að
ég vil ganga úr skugga um hvort að
hjá Héraðsdómi kunni að vera gögn,
sem ekki voru lögð fram fýrir dómi
á sínum tíma. Ef ég get sýnt ffam á
það er málið ónýtt.“
Sævar segir að dæmi um þetta sé
að við rannsókn Guðmundar- og
Geirfinnsmálanna hafi íslensk lög-
regluyfirvöld leitað eftir aðstoð Wi-
esbaden-stofnunarinnar, en niður-
stöðurnar hafi ekki verið lagðar
ffam fýrir dómi. „Hjá Wiesbaden-
stofnuninni voru ffamburðir sak-
borninga tölvukeyrðir til að kanna
hvort við höfðum verið að ljúga upp
á okkur sakir. Niðurstöðumar vom
aldrei birtar af því að þær komu
ákæruvaldinu ekki að gagni.“
Þótt Sævar hafi ekki fengið þá af-
greiðslu sem hann hefur óskað effir
hjá Héraðsdómi hefúr hann þó enn
ekki fengið afdráttarlauasa neitun
um aðgang að gögnum.
Sævar segist vera að ljúka við að
endurbæta greinargerð sína eftir því
sem hann geti með þeim gögnum
sem hann hefur þó tiltæk. Hann
muni væntanlega senda Ragnari
hana einhvern næstu daga með
þeim fýrirvara þó að hann komi til
með að óska eftir að leggja ffam
fleiri gögn síðar. 1 greinargerðinni
fer Sævar rækilega yfir dóm Hæsta-
réttar og reynir að hrekja hann lið
fýrir lið. -SG