Helgarpósturinn - 27.03.1995, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 27.03.1995, Blaðsíða 4
FRETTIR TOÍMN m ÐWGIU R»-27-"M WRW995I I- y Rannsoknir á rottum sýna aö gasið getur valdið dauöa. •Samkvæmt heimildum póstsins hafa nokkur brögö verið aö því aö fólk hafi andað aö sér gasi, sem notaö er til þess að þeyta rjóma í þartil geröum rjómasprautum, til þess að kom- ast í vímu. Heimildir blaðsins herma að þetta geti verið stór varasamt. Rjómasprautur af um- ræddri gerð eru til á mörgiím heimilum og veitingastöðum. Gasið sem er notað í þær heit- ir N20, og er úr flokki köfnun- arefnisins oxíða, og gengur dags daglega undir nafninu hláturgas. Hláturgas hefur löngum verið misnotað og má til dæmis benda á að persóna sú sem Dennis Hopper lék í Blue Velvet brúkaði það ótæpilega sem og tannlæknir- inn í Litlu hryllingsbúðinni. N20 Sviðsett mynd sem sýnir hvernig gasið er innbyrgt, en fólk spreyjar því í vit sér í gegnum rjóma- sprautur. er ekki á lista yfir hættuleg efni hjá Hollustuvernd ríkis- ins og er skaðlaust ef það er eingöngu notað til síns brúks og rétt er með það farið. Mis- notkun gassins getur hins vegar reynst stórvarasöm og hafa tilraunir á rottum leitt í ljós að það getur valdið dauða. Samkvæmt heimildum PÓSTSINS er gasið innbyrgt með þeim hætti að fólk spreyjar því í vit sér í gegnum rjómasprauturnar. Þetta er gert þannig að gasinu er hleypt í sprautuna í gegnum þar til ætlað inntak en spraut- að um leið út úr stútnum sem rjóm'mn ætti að koma í munn þess sem sækist eftir vím- unni. Þessu fylgir snögg og nokkuð öflug víma en dæmi eru fyrir því að fólk hafi inn- byrgt mörg gashylki á þennan hátt á stuttum tíma. Forráðamenn Vímulausrar æsku höfðu ekki heyrt af þessari aðferð til þess að komast í vímu fremur en Holl- ustuvernd ríkisins. Þetta bendir til þess að þessi vímu- aðferð sé ekki útbreidd held- ur bundin við þrönga hópa. Þess má geta að engar hömlur eru á sölu gashylkjanna en á umbúðum þeirra er tekið skýrt fram að varast skuli að anda efninu beint að sér. ■ Jón Baldvin Hver lak skýrslum? Jón Baidvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra hefur krafist þess að Þor- geir Þorsteinsson, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli, rannsaki hvað- an PÓSTURINN fékk gögn um fíkni- efnamál Jóns Ólafssonar í Skífunni. Þetta hefur blaðið eftir öruggum heimildum. Hvorki náðist í Jón Baldvin eða Þorgeir Þorsteinsson vegna þessa máls. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli hefur þá sérstöðu að vera eina Iögregluembættið sem ekki heyrir undir dómsmálaráðuneytið, en það er utanríkisráðuneytið sem fer með mál embættisins. ■ Allir berir á Kaffibarnum Á laugardagskvöldið héldu Folamir, sem er íþróttaklúbbur Katfibars- ins, árshátíð sína. Ójafn- vœgi á milli kynjanna var töluvert sem kom til af því að aðeins Folamir vom einu karimennimir sem leyfðist að vera þama en allar makalaus- ar stúlkur höfðu aðgang. Klukkan var ekki svo mikið sem farin að nálg- ast miðnœtti þegar einn úrhópi Folanna hrópaði yfir hópinn að allir skyldu úr að ofan. Það var ekki að sökum að spyrja; flíkumar flugu út um allt ogþað sem eftir lifði kvölds vom karlam- irá bringuhámnum og brókunum einum saman og stúlkumar með bijóst- in búin Wonderbra. Baltasar Kormákur Hárið til Barcelona? Orðrómur er uppi þess efnis að Flugfélagið Loft- ur sé ekki bara búið að taka þann vinkil að œtla sér að standa í rekstri vínveitingahúsa í fram- tíðinni, annars vegar þeir Ingvar Þórðarson og Baltasar Kormákur á Kaffibarnum og hins vegar Hallur Helgason og í félagi við Helgi Björns á Písa og Berlín, heldur séu þremenningarnir ennþá með hugann við Hárið sem eins og flestir vita gekk vonum framar á fjölum Gamla bíós fram að síðustu jólum. Eflir að partinu mikla lauk á laugardagskvöld- ið á Kaffíbarnum skellti annar af nýju eigand- endum Kaffíbarsins sér upp í flugvél sem flaug beint til Barcelona. Það var eðlilega Ingvar, enda Baltasar upptekinn í ís- lensku leikhúsi um þess- armundir. Eftirþví sem nœst verður komist er verkefni Ingvars þarytra að greiða veginn fyrir því að söngleikurinn Hárið verði sett upp á Spáni í sumar með þar- lendum leikurum, en í leikstjóm Baltasars. En Baltasar á, eins og allar vita, œttir sínar að rekja þangað. ■ Davíð ætlar ekki að missa niðrum sig ' . \ Davíð Oddsson forsætisráðherra. „Ég hef mætt þessu með því að gera ný göt á beltið með skærum, þannig að þetta er allt undir kontról. “ „Megrunarkúrinn gengur mjög vel og ég er búinn að missa 12,6 kíló,“ sagði Davíð Oddsson for- sætisráðherra í samtali við PÓST- INN um hádegisbilið í gær. Hann var þá spurður hvort sunnu- dagssteikin yrði látin eiga sig. „Ég verð að viðurkenna að ég fæ vatn í munninn þegar þú minnir mig á hana. Ég er búinn að vera að puða í pappírum frá því í morgun og hef ekki haft tíma til að hugsa um mat. Ég var 97 kíló þegar ég byrjaði að grenna mig og er því kominn niður í 84,4 kíló núna. Takmark- ið var 83 kíló því ég ætla ekki að verða mjór heldur örlítið yfir kjörþyngdinni og ég er mjög ánægður með árangurinn hing- að til. Það gæti þó verið að ég fari niður í 82 kíló svo ég hafi svigrúm til að leyfa mér að borða vel á stundum því mér finnst það gott eins og fleirum.“ Tengist megrunarkúrinn aö ein- hverju leyti kosningabaráttunni? „Nei, ég byrjaði á þessu í ágú- stmánuði og ætlaði að vera bú- inn áður en kosningabaráttan hæfist því þetta er dálítið hættu- legt upp á þrek að vera í slíku í einu. Aður fyrr var ég búinn að gera tilraunir til að megra mig án þess að standast þær og var orðinn 97 kíló og sá fram á að stefna í 100 kíló ef ég tæki ekki á þessu. Þetta var ekki flóknara en það.“ Hvemig líst þér á samkeppnina frá Ossuri Skarphéðinssyni um- hverfisráðherra? „Ég held að hann sé verulega á eftir mér í þessu. Hann hefur svo oft guggnað og er alltaf að flytja ræður á kútmagakvöldum og öðru slíku og ræður ekki við sig.“ Hvernig er statusinn i fata- skápnum hjá þér? „Þau eru dálítið pokaleg hjá mér fötin og ég hef ekki látið breyta þeim ennþá. Ég ætlaði að gera það þegar ég væri kominn vel niður. Hins vegar hef ég mætt þessu með því að gera ný göt á beltið með skærum, þann- ig að þetta er allt undir kontró!.“ . Þannig að þú ert ekkert hrœdd-1 ur um að missa niður um þig bux- umar í kosningabaráttunni? I „Nei, nei, nei, nei. Ég er með " mjög góð belti og axlabönd." I^J Bolvíkingar hræddir EG-ættin attun til valda Mikil átök eru í Boiungcu-vík vegna kaupa Bakka í Hnífsdal á tæpum helmingi hlutafjár í Ósvör og sameiningunni við Þuríði hf. í Bolungarvík. Óánægjan er ekki síst vegna afskipta EG-ættarinnar að málinu, en þar eru aðallega nefndir til sögunnar nafnarnir og frændurnir Einar Jónatansson og Einar K. Guðfinnsson alþingismað- ur. Skuldir Ósvarar voru yfir 700 milljónir króna áður en til sölunn- ar til Bakka kom og við blasir að eftir kaupin verði skuldirnar að lágmarki 1.100 milljónir króna. Bakki hf. hefur fengið vilyrði fyrir 91 milljón króna víkjandi láni út úr Vestfjarðaaðstoðinni. Bakki keypti 44 prósent eignarhlut Bol- ungarvíkurkaupstaðar í Ósvör og greiðir 75 milljónir fyrir, með framlagi úr Vestfjarðaaðstoðinni. 30 milljónir munu fara til að greiða til annarra hluthafa til þess að þeir geti sæst á eigenda- skiptin. Aðaleigandi Bakka er Að- albjörn Jóakimsson. Kristinn H. Gunnarsson, alþingis- maður, bæjarfulltrúi í Bolungar- vík og stjórnarmaður í Ósvör, tel- ur að þarna sé verið að nota op- inbert fé til að koma þessum mönnum að. „Þetta er fullkomin einkavinavæðing." Þá eru margir ósáttir við að verið sé að bjarga þeim sem eiga Þuríði, bent er á að á sínum tíma hafi þeir sprengt þá samstöðu sem myndaðist á Bolungarvík eft- ir gjaldþrot EG. „Ég hef ekki verið að skipta mér af því hver á þessi fyrirtæki eða hver eignast þau. Eg þekki Aðalbjörn Jóakimsson, hann er Kristinn H. Gunnarsson. „Þaö hef- ur verið sagt að Ósvör, sem skuld- ar 770 milljónir, skuldi of mikið, þá vil ég sjá rekstraráætlun fyrir fyrirtæki sem skuldar 1.100 millj- ónirkróna." Sighvatur Björgvinsson segir óæskilegt að þingmenn blandi sér í mál með þeim hætti sem hann segir Kristin hafa gert. prýðismaður og ég treysti hon- um ekki síður en öðrum til að byggja upp atvinnurekstur. Krist- inn H. Gunnarsson á sæti í stjórn Ósvarar og í bæjarstjórn Bolung- arvíkur. Hann vék varamanni sín- um frá til að geta komið að mál- inu með beinum hætti. Ég hef ekki gert neitt slíkt. Ég tel mjög varasamt að þingmenn skipti sér af málum með slíkum hætti. Við fengum samþykkta þessa Vest- fjarðaraðstoð og það var gert með ákveðnum skilyrðum og önnur afskipti hef ég ekki haft að þessu máli,“ sagði Sighvatur Björgvinsson. ■ Vestfjarðaaöstoöin II ValielMarimar? Petur Þorsteinsson, sem atti hæsta tilboðið í hlut Valfellsættar- innar í Hraðfrystihús Tálknafjarð- ar, verður að treysta á Vestfjarða- aðstoðina til að geta staðið við til- boðið. Mikið kapphlaup hefur verið á Vestfjörðum um þá milljónatugi sem Vestfjarðanefndin hefur yfir að ráða. Mestur hefur kappurinn verið á sunnanverðum Vestfjörð- um. Staða stærri fyrirtækja á sunn- anverðum Vestfjörðum er slæm, helsta undantekningin þar á er Oddi á Patreksfirði, en fram- kvæmdcistjóri þess fyrirtækis, Sig- urður Viggósson, gerði tilboð í hlut Valfellsættarinnar í Hraðfrystihús Tálknafjarðar. Sigurður, sem og Pétur Þorsteinsson, treysti á Vest- fjarðaaðstoðina ef hann fengi HT. Það liggur nánast fyrír, sama hver hefði keypt HT, að hluta- bréfin yrðu greidd með opinberu fé, en ekki af kaupendunum sjálf- um. Heimamenn segja þátt Matthías- ar Bjarnasonar og Sighvats Björg- vinssonar vera talsverðan í þessu máli, en þeir eru báðir sagðir hafa lagt kapp á að Guðfinnur Pálsson, aðaleigandi Straumness og Háa- ness á Patreksfirði, yrði með í kaupunum, það er að Háanes verði sameinað HT. „Það er ekkert eðlilegt hvað pól- itíkusarnir hafa beitt sér í þessu máli og það má alveg rifja það upp að Guðfinnur Pálsson og Sighvat- ur eru frændur. Það er ekki verið að hugsa um hag almennings eða nokkuð í þá veru, það er verið tryggja það að Vestfjarðaraðstoð- in gagnist þessum mönnum svo þeir geti keypt fyrirtæki sem þeir eiga ekki fyrir, það er það ljóta,“ sagði viðmælandi PÓSTSINS. Að- spurur neitaði hins vegar Sighvat- ur öllum afskiptum af málinu. „Ég hef að sjálfsögðu fylgst með málinu því fólkið á þessu svæði er að berjast fyrir Iífi sínu með því að 1L halda í aflaheimildir," sagði Sig- ® hvatur Björgvinsson, ráðherra og þingmaður Vestfjarða. ■ 4 FRÉTTIR 'MMRS1 Stefán Valgeirsson er allt- AF JAFN ERIRSÓTTUR. VERN STYÐUR Stebbi? Stefán Valgeirsson, fyrr- verandi alþingismaður, er nú búsettur á Akur- eyri. Afstaða hans í kosningunum nú liggur ekki fyrir en fulltrúar að minnsta kosti þriggja framboða hafa óskað eftir stuðningsyfírlýs- ingu frá honum. Stefán lýsti því yfír á stjórn- málafundi á Stöð 2 að hann vœri ekki búinn að gera upp hug sinn, en enginn kostur fannst honum vœnlegur. Nú mun Stefán hins vegar hafa haft samband við sína menn og er að vœnta opinberrar yfír- lýsingar frá honum á nœstunni. Bíða menn spenntir fyrir norðan eftir þessari yfírlýsingu þar sem hún kann að hafa nokkur áhrif enda Stefán maður vinsœll.M Heitt undir SVERRI Einn þeirra sem sóttu um stöðu forstjóra SVR var Sverrir Arngrímsson sem íhaldið hafði dubb- að upp í stöðu aðstoðar- forstjóra. Sverrir hefði sjálfsagt haft ágœta möguleika á starfínu ef R-listinn hefði ekki verið kominn til valda. Nú er því haldið fram að Sverri sé varla lengur vœrt í fyrirtœkinu en nokkuð hefur verið um hreinsanir undanfarið. Hefur mönnum meðal annars verið gert að hœtta efþeir hafa verið i aukastörfum eins og leigubílaakstriM FAXAFENI 8 • SlMI 91- 685870 Ellert B. Schram. Ætlaði AÐ YFIRHEYRA GABBARANN. Fyrir ekki löngu síðan voru fréttaskrifí DV um það að börn hefðu horft eftirlitslaus á svœsna klámmynd í sjónvarps- kerfi Flughótelsins í Keflavík. Nú hefur kom- ið í Ijós að um gabb var að rœða og er talið að viðkomandi gabbari hafi verið að ná sér niður á hótelinu. í viðtali um málið í Víkurfréttum kveðst Ellert B. Schram ritstjóri œtla að yfítr- heyra gabbarann. Menn kannast hins vegar ekki við að hafa séð neitt um málið í því ágœta blaðiM Deilt um hundrað ára afmæli Það er almenn óánægja á Seyð- isfirði með þá ráðstöfun bæjar- stjórnar að afhenda hlutafélag- inu Hjarta hf. félagsheimilið til rekstrar endurgjaldslaust án þess að öðrum hefði verið gefinn kostur á að bjóða í verkið. Her- mann Guðmundsson, bæjarfulltrúi Tinda, er einn þriggja aðila að fé- laginu en Hjarta hf. hefur einnig leigt rekstur hótelsins í bænum. Framundan er hundrað ára af- mæli kaupstaðarins og margir gestir því væntanlegir sem munu þurfa mat og gistingu. „Ég hef orðið var við þessa óánægju en það hefur enginn haft manndóm í sér til að koma til mín persónulega og bera hana upp við mig,“ sagði Hermann Guðmundsson í samtali við Póstinn. „Við buðumst til að leysa fyrirsjáanleg vandamál í sumar með þessum hætti og gengumst undir alls kyns skuld- bindingar á móti, meðal annars fela þær í sér rekstur félagsmið- stöðvar. Það má líka benda á að á afmælishelginni er húsið ekki í notkun. í félagsheimilinu er einn- ig íþróttahús sem við komum ekki nálægt og bærinn leggur út fyrir hita, rafmagni og fasteigna- gjöldum á húsinu en það er óskipt." Aðspurður um þannn kostnað sem bærinn tekur á sig til að standsetja eldhús, sagði Her- mann: „Bærinn kemur til með að eiga þetta eldhús og það var hreinlega nauðsynlegt að það væri aðstaða fyrir hendi til að taka á móti stórum hópum í mat en sú aðstaða er ekki til á Seyðis- firði í dag.“ Mörgum finnst sem eðlilegra hefði verið að fleirum hefði verið gefinn kostur á að bjóða í verkið og slíkt hefði getað komið betur út fyrir bæinn. ■ 1, da9\lós®D. ak je\\an\e^ °9 ^ atturs*'1^ lyftarie9 5®* í aftursestra. ' tótaterar, Þ tta trrerKia aiturrúðu, \ sKottb A6 vaBð\ \ ^ar0' 3 ára abV 9 arneyLn\ eða <****£ 9lr senr á raa^ogmvetrars««u, 4 yeyðtnu 7 ^ ^ricaönum ti srtiáb®*"" faoocc véU aS^,vastíto09 - Verðfrá- Ár9erð 1995 stað9reVtt OdV h0Stæ6araa6s^rUPP' NOV ^áfSvantar -cfskuvero- wraftm'K'nn OKKur braov^ upP'loKO r á ný\an, 11* ...... . ' ' ' C * ' "cN 5 BRIMBORG DV GABBAÐ

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.