Helgarpósturinn - 26.06.1995, Page 2
FRETTIR
MWN U 0WG0 Rr26
Femínisminn arefurjiqdan stöðu karlmannsins
Hvað segir séra Guðmundur Orn Ragnarsson um
stöðu heimilisfeðra í nútímasamfélagi?
„Samkvæmt heilagri ritn-
ingu er staða karlmannsins
að vera höfuð fjölskyldunnar
og svo vitnað sé til fyrstu
Mósebókar tók Guð almáttug-
ur rif úr líkama karlsins og
skóp úr því karlynju, en svo
nefndist fyrsta konan, eins og
við nefnum hana í dag.
Þetta hafa femínistar harð-
lega gagnrýnt og látið svo
sem konur hafi hlotið niður-
lægjandi sess í þjóðfélaginu,
sem er helber misskilningur.
Þrátt fyrir að hvert fyrirtæki
verði að hafa forstjóra táknar
sú sannlega staða karlmanns-
ins ekki að konan, sem mætti
líkja við aðstoðarforstjóra
sama fyrirtækis í þessu sam-
hengi, sé minna virði. Öll er-
um við jafnrétthá fyrir Guði
og samfélaginu og gegnum
mikilvægu hlutverki. Konan
er jafnmikilvæg heimilinu og
karlmaðurinn, þrátt fyrir að
eitt höfuð verði að ráða í
ákvarðanatökum að lokum.
Þessu hafa femínistar gert
lítið úr og ráðist harkalega að
karlmönnum. Þrátt fyrir að
vera hlynntur hinni gömlu
jafnréttisbaráttu, sem ég tel
af hinu góða, er ég fyllilega
andvígur femínismanum, sem
í mínum augum getur ekki
verið af hinu góða. Karlmenn
þurfa að læra að þekkja stöðu
sína og finna sæti sitt inni á
heimilunum, svo raunveru-
legt jafnvægi megi myndast í
þjóðfélaginu á ný.“ ■
Scanner.
Ætlar að
stefna
Björk
vegna
ólöglegrar
notkunar
hennar á
hljóðum
hans.
Scannertn
Stefnir í fleiri málaferli
Tónlistarmaðurinn Scanner,
öðru nafni Robin Rimbaud, hyggst
stefna Björk Guðmundsdóttur fyrir
breskum rétti vegna ólöglegrar
notkunar hennar á hljóðum sem
hann átti, svokölluðum „sömpl-
um“. Scanner var ósáttur við að
hún skyldi nota hljóð í heimild-
arleysi á nýju plötunni, Post, í
laginu „Possibly Maybe“. Sam-
kvæmt heimildum Póstsins leit út
fyrir að Seanner myndi taka til-
boði útgáfufyrirtækis Bjarkar,
One Little Indian, um að fá borg-
að fyrir hljóðin á þeim diskum
sem þegar hefðu selst, en þau
verði ekki að finna í fleiri upplög-
um. Hann hefur hins vegar hafn-
að boðinu og hyggst leita tii
dómstóla. Scanner gerir kröfu
um að fá á bilinu 6-7 milljónir í
skaðabætur sem Björk þyrfti að
greiða úr eigin vasa. Björk hefur
viðurkennt að um mistök hafi
verið að ræða, hún hafi notað
um 50 „sömpl“ á plötunni og
fengið leyfi fyrir þeim öllum en
láðst að fá leyfi hjá Scanner.
Hann segir að sér þyki það heið-
ur að svo mikilsverður listamað-
ur sem Björk skuli stela frá sér
hljóðum en hann geti ekki annað
en farið í mál, svo mikið sé í
húfi.B
Verkfall á kaup-
skipaflotanum hefst
á hádegi og getur
haft áhrifá hráefn-
isflutning til ísal.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir segir að
menntamálaráð-
herra hafi lýst van-
trausti á meirihlut-
ann með skipun nýs
skólastjóra íAustur-
bœjarskóla.
Húsnœðisnefnd
Reykjavíkur brást
upplýsingaskyldu
sem seljandi gagn-
vart kaupendum.
Séra Pétur fékk
dráttarvél sem hann
getur keyrt.
76 milljóna króna
halli var á rekstri
Mosfellsbœjar árið
1994.
Alþýðuflokksmenn
ákveða í dag hvern
þeir rœða við til að
mynda nýjan meiri-
hluta.
Stóraukinn stuldur
er á reiðhjólum á
höfuðborgarsvœð-
inu.
Hafbeitarlax er byrj-
aður að ganga.
Bridslandsliðið tók
frábœran sprett á
Evrópumeistaramót-
inu um helgina og
skreið afbotni upp á
topp.
Meee
meee?
Orn Ottesen Hauksson, skrifstofu-
stjóri Nóa-Síríusar: „Kaffi hefur
sterkari áhrif en kakó.“
Kakó
og sykur
fíkniefni?
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV,
gerði nikótín, kakó og sykur að
umfjöllunarefni í leiðara blaðs-
ins 22. júní sl. sem bar yfirskrift-
ina Fíkniefnafæða. Beinir hann
spjótum sínum að bensínstöðv-
um og segir þar fátt annað fást
en „ruslfæði“ og kveður það
„lýsa spilltri umgengni okkar við
eigin sál og líkama".
Órn Ottesen Hauksson, skrif-
stofustjóri Nóa-Síríusar, segir
Jónas mála skrattann á vegginn
og er hjartanlega ósammála hon-
um. Hann bendir á að kaffi hafi
sterkari áhrif en kakó og yrði ef-
laust bannað ef það yrði fundið
upp í dag.
„Ég ias einhverju sinni að gerð
hefði verið tilraun með að^efa
kónguló ýmis örvandi lyf. Ahrif
lyfjanna komu í ljós á vefnum
sem hún spann. Kóngulóin rugl-
aðist ekki fyrr en henni var gefið
kaffein."
Tryggvi Hallvarösson, verk-
smiðjustjóri hjá Nóa-Síríusi,
kippir sér ekki upp við skrif Jón-
asar:
„Ég hef alltaf gaman af því sem
hann skrifar. Hann þarf að finna
efni til að skrifa um á hverjum
degi og því ekki að undra að syk-
ur og kakó skuli verða fyrir val-
inu eins og hvað annað.“B
Þetta var líka
í FRÉTTUM
Grimsnesil
Gunnar Jóhannesson bóndi og
kona hans Kristín C. Chadwick á
Hömrum á Grímsnesi urðu fyrir
miklu tjóni þegar schaferhund-
ur af bæ í nágrenninu réðst á fé
þeirra á fimmtudaginn síðasta.
Fjórtán ær og þrír gemlingar
hafa fundist bitin og eru fimm
ánna þegar dauðar.
Tilviljun ein réð því að Gunn-
ar stóð hundinn að verki.
„Ég hafði verið að þrífa veiði-
hús mitt við Hvítá þegar ég sá
hundinn tilsýndar bíta eina óna.
Ég kallaði á hann og stökk hann
samstundis upp í jeppann minn,
enda er hann vanur að ferðast
með bíl. Þar beið hann þar til
lögreglan kom. Ég neitaði að
sleppa honum úr augsýn þang-
að til hann væri dauður. Lög-
reglan sá um að hann væri skot-
inn eftir að eigandinn hafði sam-
þykkt það. Ég veit ekki hvernig
hefði getað farið hefði ég ekki
fundið hundinn svona fljótt."
Hundurinn réðst aðallega á
lærí og afturenda ánna og beit
júgrið af einni þeirra. Svo virðist
sem hann hafi étið það og er
Ijóst að drepa verður ána. 27
Jjömb ganga undir ánum sem
Gunnar ásamt dóttur sinni Auði og
Andrési Larsen, dönskum heimil-
isvini, sem eru meðal þeirra sem
hafa hjálpað honum við leitina að
ánum.
urðu fyrir árásinni og eru þau
annaðhvort móðurlaus eða
mjólkurlaus, því mæðurnar sem
lifðu árásina af þola illa að þau
sjúgi sig. Lömbin eru aðeins
mánaðargömul og á Kristín von
á að kjötið af þeim verði lélegt.
Fyrir þremur árum voru ellefu
rollur og átta lömb drepin af
hundi á Hömrum og hafði Gunn-
ar |}á scháferhundinn grunaðan.
„Ég stóð hann því miður ekki
Kindurnar eru illa útleiknar eftir árás scháferhundsins og reif hann
júgrið undan ánni sem Gunnar heldur hér.
að verki í það skipti en ég fann borð við þennan og er þvf ekki
spor eftír hann. Eigendur hans
viðurkenndu að hann hefði ekki
verið heimavið þegar ærnar
voru bitnar en neituðu samt að
trúa því að hann hefði verið að
verki. Þá drápust allar ærnar
því ég fann þær ekki nógu
fljótt.“
Gunnar telur að árás hunds-
ins á fimmtudaginn hafi valdið
honum tjóni sem nemur 200-300
þúsund krónum. Hann veit ekki
tíl þess að eigandi hundsins hafi
verið tryggður fyrir atburðum á
viss um að fá bætur.
„Það er ekki aðeins tjón að
missa ærnar. Lyfjakostnaður er
einnig mikill og svo hefur leitin
að ánum útheimt ómældar
vinnustundir. Ýmsir hafa að-
stoðað mig við hana.“
Gunnar er ekki viss um að
hann hafi fundið allar kindurnar
sem urðu fyrir árás hundsins.
Tvær af ánum sem hann drap
fundust úti í Hvítá og ekki ólík-
legt að fleiri gætu hafa dottið í
ána og borist burt.B