Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 6
FRETTIR
Dm'N UJ ÐyvGUJ R^26
Útgefandi
Ritstjóri
Aöstoðarritstjóri
Framkvæmdastjóri
Auglýsingastjóri
Miöill hf.
Gunnar Smári Egilsson
Sigurður Már Jónsson
Kristinn Albertsson
Kristinn Karlsson
Setning og umbrot: Morgunpósturinn Filmuvinnsla og prentun: Oddi hf.
Verð í lausasölu kr. 99.-
SKOÐANIR BLAÐSINS
Hagsmunir
tryggingafélaga ráða
MIGetur verið að Hæstiréttur þori ekki að
gegn valdhöfunum í þjóðfélaginu, eins og CjísIi
Konráðsson heldur fram í blaðinu í dag? Þessi orð
Gísla eru studd þeim rökum að aftur og aftur hafi
komið fram tilfelli sem benda til þess að völd og
áhrif tryggingafélaga séu á kostnað réttinda borgar-
---T.----1-------------s L.1J_ .'.t: (Jýrum
miður
llur gagn-
vart sjónarmiðum litla mannsins. Menn hafa bent
á að áhrifamiklir dómarar og lagaprófessorar hafi
unnið fyrir trvggingafélögin og þar með glatað trú-
verðugleika sinum. Það er oroið tímabært að allur
þessi málarekstur g«
meðferð Mannréttin*
verður framtak Gísla.
. ii RÚV
IRÚV býr við einstæðar aðstæður á markaðin-
um. Það fær að keppa undir fána markaðshyggj-
unnar en tekur penmgana inn með skattheimtu.
Auðvitað er hrikalegt óréttlæti fólgið í því gagnvart
samkeppnisaðilum. Það sem er þó verra er að
stofnumn er stjórnlaus. Útvarpsrað er pólitískur
kvörtunarhópur þar sem meðlimir hafapað hlut-
verk að fylgjast hver með öðrum, vernda ímyndaða
pólitíska hagsmuni og semja vitlausustu fundar-
gerðir í heimi, sem eru lesnar.sem skemmtiefni
ínnan stofnunarinnar sjálfrar. Útvarpsstjóri hefur
dregið sig inn í fílabeinsturn og passar sig á því einu
að gera ekki áberandi mistök. Hann hefur enn sem
komið er ekki verið staðinn að því að hafa skoðun á
fjölmiðlun. Hann lifir í heimi þar sem útvarpið
leysti baðstofulesturinn af hólmi. Þess vegna gera
starfsmenn það sem þeim best þykir og brjóta lög
og reglur stofnunarinnar eins og þeim hentar.
■■Aftur og aftur sjást dæmi um svívirðilegan
kostnað við mnheimtu lögfræðinga. Kostnaour
virðist vera sjálftekið fé hjá lögmönnum og gerir
þeim kleift ao halda uppi óskiljanlegu ríkidæmi hér
á landi. Það er aumur Iögmaður sem ekki er kom-
inn á fimm milljóna krona jeppa eftir tveggja ára
starf við innheimtu. Það er þá nelst þeir sem starfa
íjá hinu opinbera. Varnarleysi fólks sem lendir í
jví að skulda er skelfilegt; engu virðist vera hægt að
mika þegar lögmennirnir byrja að útbúa kostnað-
arreikningana sem eru ekki í neinu samræmi við
vinnu þeirra.
Björk fórnarlamb
frægðarinnar?
■■Hinn enski dómari í málaferlum Bjarkar
komst snilldarlega að orði þegar hann benti á að
mál hins ómerkilega Lovejoy væri fylgifiskur
frægðar Bjarkar. Er hörmulegt til þess að vita að
lögin skuli ekki vernda fólk fyrirjafntilhæfulausum
malshöfðunum. Á meðan hafa hælbítarnir hér
heima tekið faxið í sína þjónustu og senda svívirð-
ingar í allar áttir.
mmMánudagsA \
Pöstunnn
Vesturgötu 2, 101 Reykjavík,
sími 552-2211 fax 552-2311
Bein númer: Ritstjóm: 552-4666, símbréf: 552-2243 Tæknideild:
552-4777 Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241 Dreifing:
552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577
Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00
til 17:00 Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og
fimmtudaga
frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00,
aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 21:00 virka daga, nema
miðvikudaga, til 18:00,12:00 til 16 á laugardögum og milli 12:00 og
18:00 á sunnudögum.
einn skipuleggjenda Kvennaráöstefnu Sameinuöu þjóöanna:
Tedrykkja og triáhögg á kvennaráðstehiu
Dóra Stefánsdóttir starfar í New
York við að skipuleggja Kvenna-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
sem haldin verður í Beijing í ág-
úst. Jafnhliða henni er haldin
óháð kvennaráðstefna í borginni
Houariou sem er í 50 km fjarlægð
frá Beijing og vinnur Dóra nú að
því koma dagskrá hennar saman.
„Ráðstefna Sameinuðu þjóð-
anna er fyrst og fremst haldin til
að samþykkja ályktun um bættan
hag kvenna,“ segir Dóra. „Hins
vegar var efnt til Óformlegu
kvennaráðstefnunnar til að hafa
áhrif á ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna en auk þess gefur hún kon-
um tækifæri tii að ræða sín á miili
um það hvernig þær geta breytt
heiminum."
Kvennaráðstefnan sem haldin
er í sumar er síðasta ráðstefnan á
þesari öld og því verður staða
kvenna á næstu öld tekin sérstak-
legafyrir.
„Ýmislegt hefur breyst síðan
fyrsta kvennaráðstefna Samein-
uðu þjóðanna var haldin árið
1975. Til dæmis hafa komið upp
kvennahreyfingar, eins og til
dæmis múhameðstrúarkvenna,
sem ekki eru sáttar við vestrænan
femínisma. í Bandaríkjunum berj-
ast kvenréttindahópar líka gegn
fóstureyðingum. Við höfum rekið
okkur á að reynsluheimur kvenna
er alls ekki reynsluheimur allra
kvenna.“
Dóra segist hafa verið „lánuð“
af Þróunarsamvinnustofnun til að
starfa við undirbúning kvenna-
ráðstefnunnar, en undanfarin
fimm ár hefur hún starfað á Græn-
höfðaeyjum á vegum stofnunar-
innar. „Mér finnst gamán að tak-
ast á við eitthvað nýtt. Þegar ég
held til vinnu á morgnana hef ég
ekki hugmynd um hvað dagurinn
á eftir að bera í skauti sér. Kon-
urnar á óháðu ráðstefnunni ætla
að bjóða upp á ýmsar listsýningar
og skemmtiat-
riði. Japanskar
konur ætla til
dæmis að
flytja te-
drykkjuathöfn
og svo barst
mér bréf frá sex norskum stúlkum
sem viija fá að setja upp trjá-
höggssýningu í Houariou eða
„logging show“ eins og þær kalla
hana. Þær óska eftir 100 fermetra
svæði þar sem þær ætla að
höggva niður tré með öxum og
vélsögum. Ég veit ekki enn hvern-
ig þær ætla að koma vélsögunum
og trjánum í gegnum toliinn/W
Á 204 km
hraða á
bremsu-
lausum bíl
Átján ára piltur var sviptur
ökuleyfi fyrir að aka á 204 km
hraða aðfaranótt sunnudags.
Pilturinn var að koma austan úr
sveitum og var kominn í Lækjar-
botna á Suðuriandsvegi þegar
hann var tekinn.
Pilturinn var ekki við skál og
segir lögregia hann hafa borið
það fyrir sig að kunningi hans,
sem í bílnum var, hefði verið
sleginn og þeir þyrftu að flýta
sér í bæinn til að fá plástur.
Fjórir farþegar voru í bíinum
og þar af eigandi hans. Bíllinn,
sem var að gerðinni Honda Civ-
ic, var ekki ökufær, því annað
framhjólanna var slétt og brems-
urnar að aftan virkuðu ekki. Lög-
reglan klippti númerið af bílnum.
90 km hámarkshraði er í Lækj-
arbotnum og menn sektaðir ef
þeir eru teknir á 142 km hraða.
Getur ökumaðurinn því átt von á
að fá háa sekt fyrir glannaskap-
inn.B
Fundi frest-
að í Lang-
holtskirkju
Til stóð að sáttafundur séra
Ragnars Fjalars Lárussonar, pró-
fasts í Reykjavík, með þeim séra
Flóka Kristinssyni, sóknarpresti í
Langholtskirkju, og Jóni Stefáns-
syni, organista kirkjunnar, yrði
síðastliðinn föstudag. Vegna
anna málsaðila var fundinum
hins vegar frestað fram á næst-
komandi miðvikudag. Nú virðist
mönnum ekki liggja eins mikið á
að ná sáttum og áður og virðast
ætla að gefa sér betri tíma til
verksins. Málsaðilar munu leggja
fram tillögur sínar varðandi það
sem betur má fara þannig að
„menn séu ekki að slysast hver
inn á annars verksvið“, eins og
einn viðmælenda Póstsins orðar
það.
Messuhald var með hefð-
bundnum hætti í Langholts-
kirkju í gær og mun messusókn
hafa verið góð.H
Qddtir Albertssan, skólastjóri í Reykholti, leigði
gistingu og seldi fæði í skólanum en peningarnir
koma hvergi fram á reikningum
• Talsveröir fjármunir runnu framhjá öllu bókhaldi framhalds-
skólans í Reykholti og koma ekki fram í nýlegri hagsýsluúttekt á
rekstri skólans, sem gaf þó til kynna að um mikla fjármálaóreiðu
hefði verið að ræða. Þessir fjármunir komu til vegna leigu á að-
stöðu í skólanum um helgar og í skólafríum, þ.e. á þeim tímum
sem Hótel Edda var ekki starfrækt á staðnum. Flestir viðmælend-
ur stóðu í þeirri meiningu að þessir peningar hefðu farið inn á
bókhald mötuneytisins en svo var þó ekki nema að hluta til.
Hjá Ríkisendurskoðun feng-
ust þær upplýsingar að ef hús-
næði skólans væri leigt út ætti
það skilyrðislaust að koma fram
á ríkisreikningi, en þessar tekj-
ur koma þar hvergi fram. Um
mötuneyti nemenda gilda hins
vegar þær reglur að umsýsla
þess fellur ekki undir almennan
ríkisrekstur skólanna. Þrátt fyr-
ir að margir viðmælendur Pósts-
ins stæðu í þeirri trú fór sala
gistingar og fæðis til félagasam-
taka ekki nema að litlu leyti inn
á mötuneytisbókhaldið. „Pen-
ingarnir runnu stundum til
mötuneytisins en oftast sá Odd-
ur Albertsson alfarið um þetta,“
segir Sigríður Bjarnadóttir, yfir-
maður mötuneytisins og sú sem
færir bókhaldið þar.
„Þetta er hvorki í ríkisreikn-
ingnum né mötuneytisreikn-
ingnum,“ sagði Ólafur Þ. Þórðar-
son, fyrrverandi skólastjóri.
„Þetta er algerlega ólöglegt en
það má þó vera að til sé þriðja
bókhaldið. Það er hins vegar
önnur Ella að mikið af fjármun-
um mötuneytisins fór til kaupa
á búnaði fyrir skólann, sem
hefði í sjálfu sér ekki átt að við-
gangast. Geir Waage ber sem
skólanefndarformaður ábyrgð á
botnlausri óreiðu þar í tvö og
hálft ár. Hann hefur reynt að
bera fyrir sig að fjármagn hafi
vantað til að færa bókhaldið en
þekkingin var til staðar í skólan-
um, því Sigríður Bjarnadóttir sá
áður um bókhaldið og hefði
sjálfsagt getað það áfram.“
800 .000 KRÓNUR
HVERGI B0KFÆRÐAR
Ef skóli hefur sértekjur á að
skila þeim til ríkisféhirðis og all-
ar upplýsingar því að liggja fyr-
ir. Aður fyrr sá skólastjórinn í
Reykholti um að taka á móti öll-
um sértekjum vegna hótelsins
og ráðstafa þeim í samráði við
Hótel Eddu, en nú er fyrirkomu-
lagið þannig að tekjur skólans af
hótelinu renna í sérstakan sjóð
sem menntamálaráðuneytið
hefur umsjón með. Þegar Oddur
Albertsson tók við starfi sínu í
C í ríkisreikningi
kemur hvergi fram að
skólinn hafi haft sér-
tekjur af söiu gist-
ingar og fæðis utan
rekstrartíma Eddu-
hótelsins á staðnum,
sem er frá júní og
fram í ágúst, en slíkt
er brot á lögum.
Reykholti voru fyrir í svokölluð-
úm Eddusjóði frá gamla fyrir-
komulaginu 800.000 krónur en
að sögn Ólafs Þ. Þórðarsonar
sér þeirra nú hvergi stað í reikn-
ingum. Oddur Albertsson sagði
í samtali við Póstinn að þeir pen-
ingar hefðu verið „notaðir í
kaup á myndbandskliiipitækj-
um“. í þeim tilfellum þar sem
aðstaða var leigð út utan skóla-
tíma og rekstrar Edduhótelsins
var starfsfólk mötuneytisins í
vinnu vegna þessa og vistir það-
an nýttar. „Já, það hefur verið
eitthvað um þetta og þá til fé-
lagasamtaka,11 sagði Sigríður
Bjarnadóttir, starfsmaður
mötuneytisins. „Það hafa komið