Helgarpósturinn - 23.11.1995, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 23.11.1995, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 19£ arar eru annars vegar. Og her kernur ský fa til stjarnanna líkt og geimfarar. Bubbi A ör stjarna og svoldið speisaður líkt og in Glenn geimfari. Árið 1961 háðu stórv iphlaup um hvort yrði á undan að koma ninn. Sovétmenn urðu fyrri tíl 12. aprfl J: d Alexeyevich Gagarin fór á flug. En A nn varð hins vegar fyrstur til að fara á spoi i ársins 1962. Forsetaefni vikunnar Sigurð L. Hall, mat- r e i ð s 1 u - meistar- ann, þarf ekki að kynna fyrir íslending- um. Sigurð- ur er löngu þjóðþekkt- ur fyrir Sigurður L. hina góm- .. sætu rétti l*0** sem hann framreiðir með þokka og snyrtimennsku í sjónvarpi, en ekki síður fyrir glaðvært og geðþekkt viðmót sem oft líkt og lýsir upp skjáinn á ís- lenskum heimilum. Yfir Sig- urði er slíkur bragur gestrisni að það er engu líkara en að í þáttum sínum sé hann að bjóða sjónvarpsáhorfendur velkomna í einkaboð á heim- ili sínu. Maður sem er slíkur höfðingi heim að sækja hlýtur að eiga erindi á Bessastaði. Þar myndi hann geta glatt er- lenda þjóðhöfðingja með alls kyns krásum sem hann hefur eldað sjálfur, milli þess sem hann sest til borðs með hinu erlenda tignarfólki. Forseti sem ekki er yfir það hafinn að standa fyrir sínu eigin veislu- eldhúsi myndi vekja heimsat- hygli og aðdáun, og ekki myndi þjóðin heldur van- þakka það þegar áramóta- ávarp forseta Islands yrði í aðra röndina matreiðslu- þáttur. Eg er að verða andskoti lang- þreyttur á því kjaftæði pól- itískt-rétthugsandi-liðsins, að stjórnleysi Internetsins sé eitthvað skelfilegt; eitthvað ljótt sem lýðræðinu og æru heiðvirðra manna stafi jafnvel ógn af. Rifjum upp nýlegt dæmi. f Mogganum síðastliðinn fimmtudag birtist ákaflega dæmigerð og siðavönd umfjöll- un um netið sem var matreidd þannig, að það sé yfirhöfuð nei- kvætt að netið sé stjórnlaus fjölmiðill. Og þetta ej náttúr- lega afleit niðurstaða: Án stjórn- leysis væri netið bókstaflega ekki til í þeirri mynd sem við þekkjum það. Netið var upphaf- lega skapað af fólkinu og án stjórnleysis væri það annað- hvort ekki til eða þá stýrt af forræðissinnuð- um yfirvöldum er hafa það sem vinnureglu að fullorðnir og sjálfstæðir ein- staklingar kunni ekki fótum sínum forráð. (Það þarf víst að fylgjast með okkur vitleysingunum um hvert fót- mál svo við misstígum okkur ekki á þröngum vegi dyggð- anna.) Og án stjórnleysis á net- inu hefði fólkið þarafleiðandi einfaidlega engan áhuga á því. Kjarni tilveru netsins er að það er vettvangur til að hafa sam- skipti á frjálslegan og fjölbreytt- an hátt ánþess að stjórnvöld troði besserwisserbullinu að. Allt í lagi, byrjum á upphafinu: Er líklegt að yfirvöld hefðu haft áhuga á því í byrjun að hrein- lega „búa til“ eitthvað í líkingu við netið ef til þeirra hefði verið leitað? Nei! Áfhverju? Vegna þess að yfirvöld hafa aldrei nokkursstaðar nokkurntíma hvatt til óhindraðs streymis upplýsinga. Stjórnvöld hatast raunar útí óhindrað upplýs- ingastreymi einsog allir þeir sem hafa reynt að afla sér upp- lýsinga frá hinu opinbera hafa fyrir löngu komist að raun um. Ef stjórnleysi netsins verður skert hefur þarmeð verið felld- ur dauðadómur yfir því og því er hóflegt og umburðarlynt eft- irlit eina leiðin. Slíkt eftirlit eiga netmiðlunarfyrirtækin að sjá um; einkaaðilar ekki stjórnvöld. Ergó: „Frelsi með skýrum leik- reglum,“ einsog Jón Sigurðs- son, fyrrverandi viðskiptaráð- herra og núverandi NIB-stjóri, predikaði í sífellu á sínum skammæja stjórnmálaferli. í þessu samhengi má benda á þróun í þá átt að foreldrar barna og skólastjórnendur verði sér sjálfir úti um forrit sem útiloka að- gang grisling- anna að klámi og öðrum óhroða á net- inu. Sama veg geta stofnana- púkar og fyrir- tækjastjórnend- ur farið ef þeir eru smeykir við ánetjun undir- manna sinna. Ennfremur er það spor í rétta átt að netmiðlarar á borð við Kjarnorku/Síberíu og Miðheima hér á landi eru farnir að selja takmarkaðan aðgang með vissa hluta netsins lokaða viðkom- andi notendum. Valið er þó nær algjörlega notenda og fólki und- ir lögaldri er ekki seldur að- gangur að netinu nema undir eftirliti forráðamanna. Aldrei verður þó að fullnustu tekið fyr- ir — með leikreglulöggjöf eða aðgangsstýringu — að óvand- aðir klámhundar, mannorðs- morðingjar og aðrir slíkir net- dónar misnoti þennan fjölmiðil frekar en aðra. Hversu margir fjölmiðlar hér á landi hafa til dæmis birt svívirðingar eins að- ila um annan; svívirðingar sem stundum er enginn fótur fyrir? Flestir. Það gerist því sem næst á hverjum degi og þykir gjarnan býsna fínt fréttaefni... - Stefán Hrafn Hagalín Hatturinn verður að ríma við andlitsfallið E inn bætist i hatta- mannaseríu HP. iHattamaður vik- unnar er enginn annar en blúshundurinn Dóri Braga, en hann var einmitt að eignast nýjan hatt. „Já, ég fékk hann í afmælisgjöf úti í Kanada frá kærust- unni fyrir skemmstu. Þetta er Smokey River by Biltmore, made in Canada. Biltmore er 150 ára gamalt hatta- fyrirtæki stofnað af Hudson Bay Comp- any, sem er eina ný- lenduvöruverslunin sem hefur stofnað sjálfstætt ríki, þ.e. Kanada. Þetta er beisikk hattur. Ég er ekkert fyrir skrautlega hatta,“ segir Dóri, mjög ánægður með hattinn sinn. Dóri hefur notað hatta í tuttugu ár. „- Fyrsti hatturinn sem ég eignaðist var leður- hattur sem ég keypti i Grikklandi sextán ára gamall.“ Allar götur síðai hefur Dór verið forfall inn hatta- maður hann segist ekki greina neina for- dóma í garð h a t t a - m a n n a . Hann á þrjá hatta núna. Einn gaml- an leðurhatt, „það er safaríhattur sem ég nota eingöngu í Afríku og á suðrænum slóð- um og þá er hægra barðinu flett upp“. Síðan á Dóri Stetson- hatt sem hann eignað- ist úti í Chic- ago ‘91 og er þegar búinn að slíta út. „Hann er eins og sprungið dekk nú- Dóri Braga: „Það er betra að láta hann o r ð - ið,“ segir Dóri. D ó r i s e g i s t e k k e r t botna í því hvern- ig stendur á því að í s 1 e n d - i n g a r Sigmundur Ernir. Guðfinnur bílasali. Guðlaugur Tryggvi. hatta eins og siðaðir menn. „Ætli þetta sé einhver hefð? íslend- ingar hímdu undir gafli hjá danska kaup- manninum, húfulaus- ir, drukku brennivín og tóku í nefið, ber- höfðaðir með sultar- dropann á nefbrodd- inum. En þetta er að breytast eitthvað að- eins núna.“ Dóri bendir á að hver maður þurfi að finna hatt við hæfi. Siggi Hall. Mismunandi hattar henti mismunandi andlitsfalli. Það tók hann langan tíma í upphafi að finna þá gerð sem hentaði hon- um. Dóri kvartar ekki yfir þeim vindrassi Kommi eða ekki kommi Um það hvort hann sé kommúnisti segir Svavar, að Jósep gamli Stalín og vinnubrögð hans séu ekki sér að skapi. „En ef lýðræð- ið er bylting er ég bylting- arsinni,“ segir hann. Lík- lega segir það sína sögu að þegar ég bar það undir Ól- af Þ. Jónsson, sem viður- kennir fúslega að vera kommúnisti og Stalínisti, sagði hann það fráleitt að kalla Svavar kommúnista, en hins vegar var Þorvarð- ur Elíasson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Versl- unarráðs, ekki í vafa um að hann sé sanntrúaður kommúnisti. Úr nærmynd af Svavari Gests- syni, 28. nóv. 1980. sem ísland er frekar en Gu< finnur bílasali. „Þetta fer al eftir því hvernig maður bí hattinn. Það er betra að lát hann fjúka á höfuðið en af þv Sem er tækni sem tekur ár; langa þjálfun að fullkomna hí á íslandi.11 Unnendur fágaðrar dægradvalar geta varpað öndinnni léttar... Loksins kemur nýtt Trivial Pursuit í búðimar - og bætir 4.800 nýjum spurningum og svörum við þær 18 þúsund sem fyrir voru (og ailir voru sannast sagna búnir að fá hundleið á). Á næstu dögum verður kynnt til sögunnar nýtt spii í Trivial f’ur.S'u/7-flokknum og eru í pakkanum fjórir kassar með alls 4.800 spurningum og nýtt leikjaspjald fylgir með. Þó verður áfram hægt að nota gamla, snjáða spjaldið — ef einhverjum þykir sem „ákveðin sál“ sé komin í það — og er spilið í öllum megin- atriðum byggt upp líktog það gamla (dökkblái kassinn) sem gefið var út í sinni uppruna- legu mynd árið 1985; spurn- ingaflokkarnir eru sambæri- legir, reglurnar eins og þess- háttar. Árið eftir var síðan gefinn út nýr kassi (ljósblár) með spurningum fyr- ir börn og unglinga og 1987 kom þriðji kassinn (þessi guli). Báðir síðari kassarnir komu án spjalds. Það er kraftmikið fjölskyldufyrirtæki í eigu Guðmundar Guðveigssonar, Kol- brúnar Dóru Indr- iðadóttur, Ólafar Guðmundsdóttur, Peters Salmon og Eggerts Snorra Guð- mundssonar sem hefur stað- ið að útgáfu Trivial Pursuit hér á landi frá upphafi, en saman eiga þau stærstu spila- búð landsins, Spilabúðina Genus í Kringlunni, og um- boðs- og heildverslunina Eskifell. Að sögn Ólafar Guðmunds- dóttur er ástæða þess að ekki hefur komið út nýr spurn- ingakassi í öll þessi ár sú, að fyrirtækið hefur verið að sinna öðrum hlutum; svosem einsog útgáfu teiknispilsins Pictionary, hins víðfræga Monopoly og hreinlega ekki gefið sér tíma í málið. Nú þótti þeim sem löngu væri tímabært að gefa út nýjan kassa og verður hann kynnt- ur með pomp og prakt ui næstu helgi. í heildina eru þ komnar út 22.800 spurningz og svör. Hugmyndina að því að gef út íslenska útgáfu af Trivi; Pursuit fengu Ólöf og eigii maður hennar, Bretinn Pete Salmon, þegar þau voru stöd útí Englandi í jólafr árið 1984 og feng slíkt spil uppá engi saxnesku í jólagjö Streix árið eftir höfð þau komið spilin hér út í samstarfi vi fjölskyldu sína o voru vinsældir þes með miklum fádæn um. Kunnugir líkj fárinu við fótanudc tæki og farsíma. Það voru þa Magnús Helgason o Halldóra Katla Guðmundi dóttir sem sáu um að þýð þessa nýju útgáfu og semj inní kassana íslenskar spurr ingar með aðstoð fjölda ti þess bærra aðila.-shh

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.