Helgarpósturinn - 23.11.1995, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 23.11.1995, Blaðsíða 26
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995 leikhús Þrek og tár — Þjóöleikhús, fim., lau. (uppselt), sun. (uppselt). Enn eitt samstarfsverkefni Óla Hauks og Þórhalls Sigurðssonar. Glerbrot — Þjóöleikhús, fös. „Æ, það er líkt og svalt steypibað í svækju að fá fær orð Millers yfir sig á nýjan leik eftir langa bið. Að vísu er það í þessari sýningu ekki alveg frítt við mengun." (EE) Taktu lagið, Lóa — Þjóöleikhús, Smíöaverkstæði, fim. lau. og sun. Uppselt á allar sýningar. Kardemommubærinn — Þjóöleikhús, lau. (upps.) sun. (upps.). „Eg er þess fullviss að þessi drengur [Bergur Þór Ingólfsson] verður einn af þeim stóru, nóta bene; ef ekki hendir slys „þarna uppi“, hverju guð forði.“ (EE) Sannur karlmaður — Þjóðleikhús, fös. (upps.) „Kúgun konunnar hafa troðið sér inn í þessa sýningu ófyrirsynju ásamt með tilhneigingu til að deila á yfirgang karlrembusvínsins Fernandos Krapp.“ (EE) Súperstar — Borgarleikhús, fim. og fös. Lína langsokkur — Borgarleikhús, lau. og sun. Tvískinnungsóperan — Borgarleikhús, lau. „Fjörið verður minna en skyldi. Hin háttvísu, bundnu fagmanns- tök handanna í sviðsetningunni fella nokkurn fjötur á hið glettna óstýrilæti andans í höfundarverk- inu. Leikstjórinn hefur sem sagt ekki skilið höfundinn rétt!“ (EE) Við borgum ekki, við borgum ekki — Borgarleikhús, fös. Farsi eftir Dario Fo. Að hætti pizzuviðskipahátta hefur Borgar- leikhúsið tekið upp: Kaupir einn og færð tvo?! Hvaö dreymdi þig, Valentína? — Borgarleikhúsið, lau. „Leikritið er rangtúlkað. Persón- urnar á sviðinu eru ekki þær sem höfundur reynir að lýsa í leikrit- inu. Þar eru þær — í sem stystu máli — miklu vitlausari og alit sem þær iðka falskara." (EE) Bar-par — Borgarleikhús, fös. (upps.), lau. (upps.) og sun. „Þetta er sýningin." (EE) Sex ballettverk — Borgarleikhús, sun. Madama Butterfly — íslenska óperan fös. og lau. Rocky Horror — Loftkastalinn, fös. og lau. Himnaríki — Gamla bæjarútgeröin /' Hafn- arfiröi, fös. (upps.), og lau. Carmlna Burana — íslenska óperan, sun. „Það er einfaldlega svo mikið fjör og lífsþróttur í sýningunni að taugaveikluðustu menn gleyma hvað þeir eiga oft erf- itt.“ (EH) Ævintýrabókin — Möguleikhúsiö viö Hlemm, lau. (upps.) „Alveg frá upphafi skapaðist eitthvert það trúnaðartraust milli leikaranna allra — og áhorfenda — sem gerir það að verkum að ekkert annað skiptir verulegu máli.“ (EE) Sápa þrjú og hálft — Hlaövarpinn, fim. og fös. (upps.). „Helga Braga er eins og heilt gargandi fuglager með kostuleg nef, rauðar lappir og leiruga rassa, gjallandi, vellandi, hneggjandi og skríkjandi." (EE) Kennslustundln — Hlaövarpinn, lau. „Þetta er í einu orði sagt: Leik- listin sjálf og sýning í sér- flokki." (EE) Maltviskí er eðaldrykkur sem á sér langa sögu. Á Hótel Holti má finna frábæran viskískáp sem í eru yfir 120 tegundir. Og nýlega var stofnaður vískíklúbbur á (slandi. Sannarlega tímabært það. Jakob Bjarnar Grétarsson er þegar orðinn meðlimur. Lífíð býður upp á meira en viskí — en ekki margt Það er sagt að orðið viskí sé þannig til komið að Hinrik II, sem ríkti á Eng- landi seinnihluta 12. aldar og var mikill viskívinur, hafi átt í erfiðleikum með að bera fram orðin „Uisge Beatha", en svo nefna Keltar drykkinn. Uisge þýðir vatn og Beatha líf — „vatn lífsins". Þetta var tungu- brjótur fyrir Hinrik og hans menn og í meðförum þeirra þróuðust þessi keltnesku orð í whisky. Viskí hefur orðið mörgum lífsnautnamanninum hugleikið. Titli þessa greinar- korns er til dæmis bísað úr grein eftir breska rithöfundinn Anthony Burgess, („There are other things in life than whisky, but not many.“), sem birtist í tímaritinu Scanor- ama í febrúar 1992. Þar á hann ekki orð til að lýsa aðdáun sinni á þessari guðaveig. En íslendingar sitja svo sem ekki aftar- lega á merinni þ e g a r kemur a ð viskí- i n u . Menn eru almennt sammála um að þegar Hótel Holt er annars vegar sitji gæðin í fyrirrúmi. Nýverið var stofn- aður viskíklúbbur á vegum hótelsins. Hvatinn er forláta viskískápur sem hefur vakið mikla athygli, meðal ann- ars í sjálfu landi viskísins: Skotlandi. „Hingað hafa komið háttsettir breskir viðskipta- jöfrar og þingmenn sem hafa gist á hót- elinu. Þeir hafa rekið upp stór augu þegar þeir sjá skápinn og spurt: Hver er það sem hefur getað Eiríkur Ingi við viskískápinn góða, sem vakið hefur athygli hérlendis sem eriendis. Einn dýrgripurinn úr skápnum. Longmom — Framleiðandi: Seagrams/Chivas — Hérað: Highlands — Svæði: Speyside (- Lossie) — Litur: Bjartur, gullinn — Angan: Margbrotin, stöðug. — Fylling: Stöðug, mjúk. — Bragð: Ferskleiki í fýrírrúmi, blóma, ávaxta. — Eftirbragð: Ferskt, mjúkt. Einkunn: 85. safnað þessu saman? Margar tegundir sem eru illfáanlegar á Bretlandseyjum á almennum markaði?“ segir Eiríkur Ingi Friðgeirsson aðstoðarhótel- stjóri. Hann, ásamt Þorfinni Guttormssyni yfirþjóni, er í forsvari fyrir viskíklúbbnum, en þegar hafa um 60 manns lát- ið skrá sig í hann. Eiríkur Ingi gerir fastlega ráð fyrir að meðlimirnir verði um 100 fyr- ir áramót. Það er athygli vert að enn eru ekki nema fjórar eða fimm konur skráðar. 75% — vel þess virði að smakka Það er að mörgu að hyggja þegar maltviskí er annars veg- ar. Hugtökin „malt“ og „single" eru mikilvæg. Single segir að tiltekin flaska sé framleidd í einu brugghúsi og aðeins einu. Það brugghús framleiðir ein- ungis single maltviskí og inni- haldið hefur ekki verið bland- að með framleiðslu annarra aðila. Þetta atriði er ákveðin trygging fyrir gæðum. Standi orðið malt á flöskunni merkir það að viskíið sé einvörðungu gert úr möltuðu korni. Engum öðrum efnum hefur verið bætt við til að koma gerjun af stað, svo sem sykri eða öðru korni. En þetta er eitt af fjöl- mörgu sem vert er að hafa í huga þegar menn þræða sig um refilstigu viskísins. „Þeir sem gerast meðlim- ir fá bók um sögu viskísins. Síðan létum við útbúa litla fræðibók þar sem sérstök viskí eru tekin fyrir og þeim gefin einkunn alveg upp í hundrað punkta,“ segir Eiríkur Ingi. Fræðiritið sem Eirík- ur talar um byggist á frægri bók eftir Michael Jackson, helsta viskísér- fræðing verald- ar. Nei, ekki þann arma Mi- chael Jackson heldur Michael Jackson frá Mi- chael Jackson’s Malt Whisky Cor- poration, Dorling Kindersley, London. Hann er manna snjallastur að lýsa eiginleikum viskís. Það er hæg- ar sagt en gert að lýsa lyktar- og bragðeiginleikum. Til þess þarf ákveðna ljóðræna hæfi- leika. En að þeim viðbættum þróaði Jackson svokallað 100 punkta kerfi þar sem 60» þýðir gott en ekki eftirminnilegt, 75» — vel þess virði að smakka, 80» — framúrskarandi og sér- stakt, 90« — frábært! Þetta er margbrotinn heim- ur. Engar tvær tegundir eru eins. Svo vitnað sé í rithöfund- inn Maurice Walsh: „Ég veit um lítinn bæ þar sem eru sjö brugghús og ég þekki snilling sem þekkir teg- undirnar, sem þau fram- leiða, í sundur á lyktinni einni saman. Þessi sjö brugghús eru við sömu á í Highland, þau nota sama vatn, sama mó og sama korn. Aðferðirnar við eim- inguna eru nákvæmlega eins en þó eru þau frá- brugðin hvert öðru og hafa hvert sinn persónu- lega ilm.“ Tilurð skápsins góða Eiríkur Ingi segir að Þor- finni beri heiðurinn af skápnum. En upphafið má rekja til Johns Bendix taugalæknis. „John býr hér skáhallt á móti og er góður vinur okkar. Hann er mikill áhugamaður um skoskt maltviskí og kom hér einhverju sinni með flösku í farteskinu og sagði: Jæja, hér er fyrsti vísirinn að góðu viskísafni, og lagði sem sagt til fyrsta innleggið.” Eiríkur segir að þeir hafi hlegið við og þakkað honum góða hugmynd. „Svo settumst við niður og spáðum í hlutina. Þetta er kannski ekki svo galið. Síðan skrifuðum við þó nokkuð mörgum framleiðendum úti í Skotlandi og náðum að smala þessu saman í gegnum þá. Það tók hátt í tvö ár að fá alla þessa titla, sem eru komnir nokkuð yfir hundrað.” Framtakið var fljótt að spyrj- ast meðal þeirra sem höndla með viskí og framleiðendur er- lendis höfðu samband við um- boðsaðila sína hérlendis og spurðust fyrir um Hótel Holt og þennan skáp. Og umboðs- aðilarnir voru fljótir að taka við sér og hafa haft vakandi auga með skápnum síðan. Það á einnig við um breska sendi- ráðið og í samráði við það var ákveðið að halda skoska daga 7.-12. nóvember í tilefni þess að skápurinn var fullmótaður. „Allt hráefni kom frá Skot- landi,“ segir Eiríkur Ingi. „Við vorum með fjögurra rétta mat- seðill: Byrjað var á birkireykt- um sjóbirtingi, síðan kom hinn frægi þjóðarréttur Skota: Hagg- is. Honum hefur verið líkt við Það er ekki sama hvernig menn bera sig að þegar þeir smakka viskí: Samspil sjón- ar, lyktarskyns og bragðskyns. slátrið okkar, blóðmörinn. En í raun og veru er það eina sem er sameiginlegt að þessu er troðið í vambirnar. Við notum mestmegnis blóð í okkar slátur en þessi útfærsla Stephens Johnson frá veitingahúsinu Butterfly í Glasgow er þannig að hann notar innmatinn: hjörtu, lifur og nýru, og síðan mikið af höfrum sem hann treður inn í. í aðalrétt var þá hægt að velja á milli dádýrs, skógardúfu og fasana. Og í eft- irrétt var borinn fram Drambuie- og haframjölsís með berjasósu og hunangsfrjó- korni. Þetta mæltist vel fyrir.“ Ekki dettur mér í hug að ef- ast um það.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.