Helgarpósturinn - 23.11.1995, Blaðsíða 32

Helgarpósturinn - 23.11.1995, Blaðsíða 32
HELGARPOSTURINN að vakti athygli í afmælis- veislu Granda hf., sem haldin var á dögunum, að Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra sá sér ekki fært að heiðra þetta stór- fyrirtæki í sjávarútvegi á afmæli þess. Þorsteinn mun hafa verið með einhvers konar móttöku sjálf- ur á svipuðum tíma, en í afmælinu var haft á orði að hann hefði líklega átt auðvelt með að kíkja inn, en fjar- veran rakin til þess að honum hefði lent harkalega saman við varaformann Granda, Ágúst Einarsson, í þinginu skömmu áður... Viðtal Helgarpóstsins við Heiðar Jónsson fyrir tveimur vikum vakti eðlilega mikla athygli og í sumum tilvikum ef til vill of mikla. Þannig fregnaði blaðið af konu í Þing- holtunum sem hugðist kaupa HP i hverfisbúðinni sinni, en var þá tjáð að blaðið væri uppselt. „Áttu ekki við blaðið með Heiðari?" spurði kaup- maðurinn. „Jú, einmitt," svaraði kon- an. „Já, því miður, það er búið,“ sagði maðurinn, en teygði sig jafnframt undir afgreiðsluborðið og bætti við: „Viltu ekki bara myndina í staðinn?“... Og þá eitt „sprenghlægilegt". Mikill viðbúnaður var í sjón- varpinu fyrir nokkru þegar spurningaþátturinn Píla var tekinn upp. Þátturinn er stílaður á börn og unglinga og í umsjá Eiríks Guð- mundssonar og Þóreyjar Sigþórs- dóttur, sem bæði eru leikarar að mennt. Einhver hafði tekið sig til og hótað því að „sprengja þennan hrút- leiðinlega þátt í loft uppíl. Eftir því sem HP kemst næst var hótunin lesin upp á símsvara Þór- eyjar. Hótunin var tekin hæfilega alvarlega en sprengju- hótun er jú alltaf sprengjuhótun og því voru allir neyðar- útgangar galopnir auk þess sem aðrar varúðarráðstafanir voru gerðar meðan upptaka fór fram... Greiddu atkvæði! 39,90 kr. minútan Síðast var spurt: .g$}V . Trúir þú vitnum sem segjast hafa seo 31% geimverur nnrnn &11- ábrottá Mikklubrau^, I hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 904 1516. Nú er spurt: Á að breyta stjórnarskránni þannig að hreinan meirihluta þurfi til að ná kjöri sem forseti? 1. Já 2. Nei avmnat f Nýárskvöld ^ 5 rétta kvöldverður með skemmtiatriðum, Skárren ekkert, Aggi Slæ og tamlasveitin og stuðband Egils Ólafssonar. J Danska smurbrauðs-drottningin Ida Davidsen kemur og setur upp okkar vinsæla jólahiaðborð fimmtudaginn 23. nóvember kl. 18.00.Ida mun verða með okkur dagana 23.-26. nóvember. Opið öll kvöld frá kl. 18.00 og í hádeginu alla daga nema sunnudaga frá kl. 12.00 til 14.00. Verð í hádeginu kr. 1.990. Verð á kvöldin kr. 2.790. Borðapantanir í símum 551 1247 og 551 1440 HELGARPÓSTURINN Fréttaskotið 552-1900

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.