Helgarpósturinn - 23.11.1995, Page 21
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
21
mm
Eftir Hrafn Gunnlaugsson
1 síðustu viku las
höfundurinn, Hrafn
Gunnlaugsson,
þessa smásögu í
Ríkisútvarpið. Lest-
urínn vakti mikil
viðbrögð, ekki síst
vegna þess hvernig
Hrafn las söguna,
m.a. með ágætri
eftirlíkingu á fræg-
um málrömi Hall-
dórs Laxness.
Telja má líklegt að
persónurnar i sög-
unni eigi uppruna
sinn í persónum
Halldórs Laxness
(Skáldið), Auðar
Laxness
(Eigiinkona
Skáldsins), forseta
íslands ogJacque-
line (Madame),
ekkju listmálarans
Picassos, en hún
kom til íslands áríð
1986. Hrafn sjálfur
kemur líklega fyrir í
persónu
móttökustjórans.
Hrafn hefúr ekki
borið á móti því að
þetta folk hafi ver-
ið honum „inspíra-
sjónu við sögugerð-
ina, en hann hefur
jafnframt kallað
söguna skemmti-
sögu og líkt henni
við áramótaskaup.
Sagan birtist fyrst í
smásagnasafninu
Þegar það gerist,
sem kom út árið
1989 en er nú ófá-
anlegt hjá útgef-
anda. Hún birtist
hér með góðfús-
legu leyfi höfundar.
Madame var ekkja að at-
vinnu. Eftir lát eiginmanns síns
hafði hún ferðast vítt og breitt
um heiminn og haldið sýningar
á verkum hans. Á þessum sýn-
ingum lék hún lykilhlutverkið,
því öll voru verkin úr dánarbú-
inu sem hún hafði erft. Og nú
var hún mætt til íslands, til að
skoða aðstæður og athuga
hvaða áhuga innfæddir hefðu
á verkum „eins áhrifamesta
listmálara aldarinnar", svo
vitnað sé orðrétt í merkan list-
gagnrýnanda. Og Madame
hafði ekki yfir neinu að kvarta,
því helstu stórmenni landsins
buðu heim og héldu veislur.
Ráðherrann bauð til morg-
unverðar í ráðherrabústaðn-
um. Boðsgestir voru í rauninni
aðeins fjórir, en Madame
mætti þreföld. í fylgd með
henni voru einkalæknirinn,
þunnhærður og teygður mað-
ur sem minnti á safngrip, hár-
greiðslukonan sem var lítil og
hnellin og svört á hörund, af
afrísku bergi brotin. Þá mætti
móttökustjóri listahátíðar
ásamt Madame. Móttökustjór-
inn var í hlutverki eins konar
leiðsögumanns og túlks fyrir
hina frægu ekkju. Hinir gestirn-
ir tveir voru Þjóðskáldið sem
hlotið hafði fræg útlend verð-
laun og frú.
í hraðbréfi til hátíðarinnar
hafði Madame sett fram þá
frómu ósk, að fá að hitta Skáld-
ið sérstaklega. Madame sagð-
ist eiga við hann mikilvægt er-
indi. Móttökustjórinn hafði
komið óskinni á framfæri við
Skáldið. Að vísu hafði hann
ekki rætt við Skáldið sjálft,
heldur eiginkonuna sem hafði
sagt, að Skáldið myndi mæta.
Og nú var sú stund runnin
upp, að þetta fræga fólk hittist
í ráðherrabústaðnum. Ma-
dame mætti fyrst á staðinn.
Hún var um fimmtugt og frem-
ur lágvaxin, með stílhreina
andlitsdrætti sem voru svo
sterkir, að þeir sem horfðu í
andlit hennar, þó ekki væri
nema einu sinni, gleymdu því
seint: Þunglyndisleg augu, eins
og nývöknuð og ennþá að
dreyma. Tinnusvart hárið lif-
andi og skreytt einstöku gráu
hári. Með árunum höfðu ein-
kenni andlitsins skerpst. Há
kinnbein og munúðarfullar
varir með óræðu brosi. Fas
hennar og vöxtur bar vott um
eðalborna reisn, og samt katt-
mjúkar hreyfingar, og stund-
um stútur á munninum. Yfir
henni hvíldi ævintýrabjarmi.
Hún geislaði.
Ráðherrann tók á móti Ma-
dame á tröppunum með hlýju
brosi. Madame sýndi ráðherr-
anum meira en tilhlýðilega
virðingu og laut í hönd ráð-
herrans og sagði:
— Þér eruð kona eins og ég,
og mér er tjáð að þér séuð
fyrsta konan á íslandi til að
gegna embætti menningar-
málaráðherra, og að þér hafið
sigrað þrjá karlmenn samtímis
í lýðræðislegum kosningum,
þess vegna votta ég þér sér-
stakt þakklæti mitt fyrir að
vera boðin í þetta sögulega
hús í dag og er það mikill heið-
ur.
Ráðherrann hengdi sjálf upp
kápu Madame. Þegar Madame
hafði skráð nafn sitt í gesta-
bókina og gengið í stofu, færði
hún ráðherranum bókargjöf
með eftirprentunum af þekkt-
ustu verkum eiginmanns síns
heitins.
Ráðherrann fletti bókinni og
staðnæmdist við stóra mynd á
miðopnu.
— Þessi mynd hangir uppi í
vinnustofu þjóðskáldsins,
sagði ráðherrann og lyfti bók-
inni til að sýna viðstöddum,
hvaða mynd hún ætti við.
Madame brosti og kinkaði
kolli eins og það kæmi henni
síður en svo á óvart og svar-
aði:
— Leónardó málaði þessa
mynd af mér, daginn eftir
brúðkaupsnóttina. Þegar hún
er ekki á sýningum, hangir hún
uppi í svefnherberginu mínu
yfir hjónarúminu.
Lengra varð samtalið ekki,
því nú heyrðist í Skáldinu og
frú frammi í fatahenginu. I
gegnum opnar dyrnar mátti
sjá, að ritari ráðherrans
hengdi upp hatt Skáldsins og
frakka. Skáldið var vel við ald-
ur en klæddur eftir splunku-
„Hún losaði hönd sína
og Skdldsins og strauk
honum blíðlega um
uangann með löngum
grönnum fingrum. “
nýjustu tísku og svo vel til
hafður að árum saman hafði
hann ekkert elst, enda löngu
búinn að semja frið við þjóð
sína og harðsnúinn heim.
Skáldið leit inní stofuna. Ma-
dame hafði stillt sér upp á
miðju gólfi og horfði á hann
eins og stjörnuleikari sem bíð-
ur eftir að tjaidið sé dregið frá í
leikhúsi. Andlit Skáldsins ljóm-
aði upp og hann gekk rakleiðis
inn í stofuna til Madame. Hún
rétti honum höndina eins og
konur gera í bíómyndum um
riddara og fljóð sem sitja í fest-
um. Skáldið tók hönd hennar,
kyssti hana margsinnis og hélt
henni upp að vörum sér og
sagði lágum rómi á útlensku:
— Þetta er stór stund fyrir
mig og gleður mig innilega að
fá að hitta yður. Eg hef svo oft
horft á yður í stórbrotnu mál-
verki. Eg á að vísu aðeins
ósköp ómerkilega eftirprentun
af þessu snilldarverki sem
hangir uppi á vinnustofunni
minni, en þótt eftirprentunin
sé ómerkileg, er myndin svo
stórkostleg og hefur verið slík-
ur hluti af mínum hvunndegi í
mörg ár, að ég veit að þér fyrir-
gefið mér, þótt ég tali við yður
eins og gamlan vin.
Madame kinkaði kolli og í
þunglyndislegum augunum
fæddist bros sem virtist breið-
ast út um allan líkamann og
sendi frá sér rafmagnaða
strauma og svo rafmagnaða að
Skáldið festist við hönd henn-
ar og kyssti hana aftur og lækk-
aði róminn svo engu var líkara
en skrjáfaði í orðunum:
— Fegurð yðar sem er varð-
veitt í málverki er mikil og
stórbrotin, en miklu meiri er
sú fegurð sem mætir mér
núna, þegar ég lít yður augliti
til auglitis.
Þetta var hátíðleg stund í
febrúar, þegar sólin kemur
næstum því ekki upp og rauðir
og hálfkulnaðir geislarnir
seytluðu í gegnum gluggatjöld-
in og brotnuðu í kristalglösum
eða björmuðu á veggjunum og
þögnin og hátíðleikinn í stof-
unni voru slík, ef frá er skilið
hjal Skáldsins, að engu var lík-
ara en vetrarkyrrðin handan
gluggans gerði einmana álft,
sem gargaði á ísa grárri spöng,
að stórsöngvara.
Loks opnaði Madame munn-
inn og setti stút á varirnar um
leið og hún sagði lágt: Mér
finnst ég líka vera að hitta
gamlan vin. Vin sem ég þekki
gegnum ótal bækur, og góðir
vinir þurfa ekki að þérast. Þú
ert vinur og þetta er endur-
fundur.
Skáldið tók undir þessi orð
með nokkrum lágværum jáum
sem hljómuðu eins og sönglag
sem hækkar sig frá einni átt-
und upp í aðra án þess að
breyta um tón.
Aðrir í stofunni steinþögðu
og horfðu lotningarfullir á
þessar tvær manneskjur sem
virtust svo hugfangnar hvor af
annarri.
Allt í einu kallaði hvell rödd
frammi úr fatahengi:
— Snorri, þú ert ekki búinn
að skrifa í gestabókina.
Skáldið virtist ekki heyra, en
Madame leit rannsakandi í
gættina, þar sem kona Skálds-
ins stóð og hélt báðum hönd-
um um töskuna sína.
Skáldið missti augnsamband
við Madame og leit í sömu átt
og hún. Skáldið virti fyrir sér
konuna í gættinni, eins og
hann hefði aldrei séð hana áð-
ur og tók um hökuna og hugs-
aði eitt andartak alvarlegur á
svip, en svo leit hann aftur á
Madame og brosti sínu blíð-
asta. Eiginkonan endurtók ögn
hærra:
— Snorri, þú ert ekki búinn
að skrifa í gestabókina.
— Gestabókina, át Skáldið
upp og kallaði yfir öxl sér:
— Geturðu ekki bara skrifað
fyrir mig?
Konan í gættinni hristi tösk-
una sína eins og aktygi og gaf
skipun:
— Komdu og skrifaðu í
gestabókina og vertu ekki með
þennan leikaraskap.
— Ég skrifa í bókina, þegar
ég fer, sagði Skáldið og sneri
sér heilshugar að Madame um
leið og hann bætti við:
— Etiquettur, etiquettur,
hvers vegna alltaf að eitast við
etiquettur ... við sem elskum
listina, eigum aðeins eina
etiquettu, og það er iistin sjálf.
En Skáldið komst ekki
lengra, því eiginkonan struns-
aði yfir gólfið, greip í öxl hans
og dró hann af stað í áttina að
fatahenginu.
Skáldið ætlaði ekki að sleppa
hönd Madame, og nú togaði
Einbjörn í Tvíbjörn og Tví-
björn í Þríbjörn og Madame
fylgdi með fram í fatahengið,
dregin á útréttri hendi af
Skáldinu sem Einbjörn ætlaði
að pína til að skrifa í gestabók-
ina.
Skáldinu hitnaði í hamsi við
þessa uppákomu. Þegar eigin-
konan sleppti af honum takinu,
snerist hann um sjálfan sig í
fatahenginu, og fann engan
penna og spurði ásakandi:
— Hef ég ekki sagt þér að
vera með penna? Þú átt alltaf
að vera með penna.
— Það er penni þarna á
borðinu, hjá bókinni, svaraði
konan hans kalt.
Madame losaði sig út úr þrí-
einingunni og hvarf aftur til
stofu, án þess svo mikið sem
taka eftir eiginkonunni. Skáldið
greip pennann og skrifaði
fljótaskrift í gestabókina og var
þotinn aftur inn í stofuna eins
og fluga sem flýgur blindandi á
ljósker. Hann tók aftur í hönd-
ina á Madame.
— Ég hitti manninn þinn
heitinn eitt sinn í heimsborg-
inni fyrir fimmtíu árum síðan.
Stórbrotinn maður, stórbrot-
inn maður. Hann var þá að
sýna og selja verk í litlu galler-
íi. í þá daga kostaði mynd eftir
hann sömu upphæð og kostar í
Persónur og leikendur: Forseti íslands, einkalæknir ekkjunnar, hárgreiðslukonan þeldökka og Jacqueline Picasso sjálf.