Helgarpósturinn - 23.11.1995, Page 27
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995"
27
Kínó-Ieikurinn bættist ný-
lega í getrauna- og gam-
blflóruna íslensku. Stefið,
sem er leikið undir þegar töl-
urnar flögra á skjáinn og þulan
les tölur dagsins, hefur vakið
verðskuldaða athygli. Menn
komast ósjálfrátt í stuð, enda
stefið grípandi auk þess sem
það býr yfir ákveðnum gáska.
Það er leikur í því. Eftir nokkra
eftirgrennslan komst HP að því
að maðurinn á bak við stefið er
enginn annar en Grétar Örv-
arsson, einn fremsti tónlistar-
maður þjóðarinnar til langs
tíma.
Grétar datt niður á þetta stef
fyrir þó nokkru og segir að
þegar þeir hjá íslenskri getspá
báðu hann að gera fyrir sig stef
og lýstu því fyrir honum út á
hvað leikurinn gengi þá hafi
stefið komið upp í hugann.
„Svo leitaði ég í diskasafni að
grúvi, einhverju fönki til að
setja við þetta.“ Grétar vissi
ekki hvað hann gat sagt HP
fleira merkilegt um þessa tón-
smíð en það er ekki laust við
að stefið minni á tónsmíðar
Mezzoforte. Höfundurinn segir
það enga tilviljun.
„Hún hefur verið uppáhalds-
hljómsveit mín til margra ára
þannig að ég er undir miklum
áhrifum frá þeim. Ég spila nú
með tveimur þeirra og hef unn-
ið mikið með þeim.“ Og talandi
um stef og Mezzoforte þá benti
Grétar á að tónlist þeirra hefði
mikið verið notuð í ýmis stef,
til dæmis í franska sjónvarp-
inu. „Þar hafa þeir fengið
drjúgan skilding í stefgjöld. Og
þá fyrir smávægilega notkun á
músíkinni. Þarna úti getur slíkt
skipt umtalsverðum fjárhæð-
um.“
Grétar segist ekki hafa gert
mikið af að semja auglýsinga-
stef, það komi í raun sárasjald-
an upp á. „Ég samdi stef fyrir
SAS sem lengi vel var notað við
sjónvarpsauglýsingu hjá
þeim,“ segir hann aðspurður.
„Annað gerði ég fyrir Egil Árna-
son í sjónvarpsauglýsingu sem
var keyrð í stuttan tíma.“
Stefgerð getur verið ágæt
aukabúgrein fyrir tónlistar-
menn og Grétar nefnir Vil-
hjálm Guðjónsson sem af-
kastamikinn á þessu sviði. Síð-
an séu einnig drjúgir þeir Val-
geir Guðjónsson, Magnús
Kjartansson og Gunnar Þórð-
arson, svo fáeinir séu nefndir.
Grétar tekur undir það að fáir
velti stefum fyrir sér eða gildi
þeirra.
„Það færist í aukana að búin
sé til allskonar tónlist sem
skapar ímynd fyrirtækja. Til
dæmis íslandsbankaauglýsing-
arnar sem Villi hefur gert og
tekist alveg rosalega vel til hjá
honum.“
Meðal þeirra sem sett hafa
mark sitt á umhverfi sitt með
þessum hætti eru Eyþór Arn-
alds sem samdi stefið fyrir
sjónvarpsfréttir. Stef sem allir
þekkja.
„Stefin eru alls staðar en fólk
tekur ekki eftir þeim. Okkur
finnst sjálfsagt að láta mata
okkur á einhverju huggulegu
og vænu útvarpsspileríi. Þá
náttúrlega spyr maður sig:
Hvernig væri nú ef það væri
ekki til staðar? Það yrði hálflit-
laust.“
En hvað skyldi það vera sem
Grétar leggur upp með þegar
hann semur stef fyrir fyrir-
tæki?
„Eðlilega er útgangspunktur-
inn fyrir hvað ég er að fara að
semja. Hvað á að auglýsa. Síð-
an er það mín tilfinning sem
stjórnar því hvað kemur. Til-
finning mín fyrir því hvað á að
fara að auglýsa. Eins og Kínóið.
Leikurinn á uppruna sinn í
Kína en mér datt ekki í hug, í
allri neikvæðninni sem var
gagnvart Kína á þeim tíma, að
fara að búa til eitthvert kín-
verskt lag eða höfða í þá átt. Ef
þú spilar í Kínó þá veit það á
eitthvað gott. Við vitum að ís-
lendingar þrá það mjög að
komast út fyrir landsteinana
og mér fannst þetta toga í suð-
rænar slóðir.“
Grétar segir það minnsta
málið að böggla stefunum inn í
tiltekinn tímaramma. „Það er
ekki málið. Maður klippir þetta
bara einhvern veginn til.“
JBG
Fyrsti almenni stórdansleikurinn í Bláa lóninu verður nú á laugardag.
Diskóboltarnir í Hunangi ætla að kitla Travolta-taugar ballgesta.
Engin
hreppapólitík
Saga íslenskrar dægurtónlistar rakin af fimm eldhressum Söngsystrum á
Hótel íslandi í kvöld.
Sígildar
Einhver vinsælasti gleði-
gjafinn í einkasam-
kvæmum og á árshá-
tíðum undanfarin misseri
er sönghópur sem kallar
sig Söngsystur. Hann skipa
fimm stúlkur sem fyrir
tveimur árum hittust á
söngleikjanámskeiði. „Við
vorum upphaflega tíu. Svo
fóru einhverjar að heltast
úr lestinni en þær sem
virkilega nenna að leggja
eitthvað á sig sitja nú eft-
ir,“ segir Jóna Sigríður
Grétíu-sdóttir, en hún og
stöllur hennar Bryndís
Sunna Valdimarsdóttir,
Katrin Hildur Jónsdóttir,
Lóa Björk Jóelsdóttir og
Regína Ósk Óskarsdóttir
skipa Söngsystur.
Stúlkurnar eiga það sam-
eiginlegt að vera um og yfir
tvftugt og hafa brennandi
áhuga á söng, sem sést
best á því að í hverri viku
æfa þær allt að þrisvar.
Mikil leikræn tilþrif fylgja
söngskemmtun þeirra og
svo verður einnig á Hótel
íslandi í kvöld. Á tónleikun-
um ætla Söngsystur að ein-
beita sér að þekktum banda-
rískum dægurlögum, flestum
frá árinum 1940 til 1960. Eftir
Mikil leikræn tilþrif fylgja Söngsystrunum Jónu Sigríði, Bryndísi Sunnu,
Katrínu Hildi, Lóu Björk og Regínu Ósk, sem hafa æft þrísvar á viku að
undanförnu.
hlé verður dagskráin svo alís-
lensk, en þá syngja dömurnar
brot úr eftirminnilegustu lög-
um íslenskrar dægurtónlistar
við undirleik fjórmenninganna
úr hljómsveitinni Langbrók.
Kynnir verður Hinrik Ólafs-
son.
Það er nýtt æði í gangi.
Kvenfólk er farið að hrúg-
ast upp að sviðinu —
nokkuð sem ekki hefur gerst í
átta ár,“ segir Jakob Jónsson,
gítarleikari Hunangs. Hann
ætti að vita hvað hann er að
tala um, því hann var lengi vel í
einni frægustu dansiballa-
hljómsveit landsins, nefnilega
Skriðjöklum. Hunang ætlar að
spila á stórdansleik í Bláa lón-
inu nú á Iaugardagskvöld.
Diskur með Hunangi kom út
fyrir rúmum mánuði og heitir
„Travolta". Þar eru helstu disk-
óslagarar sögunnar teknir með
íslenska laginu.
„Hljómsveitin er tveggja ára
og búin að þræða alla helstu
vinsældalista landsins sem og
öldurhús," segir Jakob, en auk
Hunang. „Það er útgeislunin — ekki endilega útlitið — sem veldur kvenhylli
arínnar."
hans eru í hljómsveitinni Hafn-
firðingurinn Hafsteinn Val-
garðsson, Reykvíkingurinn Ing-
ólfur Sigurðsson og norðan-
sveinarnir Karl Örvarsson og
Jóhann Ó. Ingvarsson. Þetta
er sérkennilegur samsetning-
ur.
„Það er engin hreppapólitík í
gangi í okkar hljómsveit. Þeir
bestu skipa hvert rúm,“ segir
Jakob hinn bratt-
asti. En aftur að
þessari yfirgengi-1-
egu kvenhylli.
Óneitanlega er
norðanbragur á
Hunangi, þrír af
fimm, og einhvern
veginn fer maður
að sakna Ragga
„sót“. En getur ver-
ið að fjarvera hans
sé þess valdandi
að kvenfólk hrífst
svo af hljómsveit-
armeðlimum?
„Ég hef ekki trú á
því,“ segir Jakob.
„Ragnar hefur ætíð
kvenhollur verið.
Það er útgeislunin
— ekki endilega út-
litið — sem veldur
kvenhylli hljóm-
sveitarinnar. Og
svo er eins og
þessi tiltekna teg-
und tónlistar höfði
til kveneðlis mann-
skepnunnar. Öll er-
. um við konur öðr-
hljomsveit- um þræði.“
Það eru kannski ekki margir sem hafa velt því fyrir sér né tekið eftir en hin og þessi tónlistarstef eru veigamikill þáttur í lífi hvers og eins. Veit til dæmis
nokkur hver er höfundur Kínó-stefsins góða?
Stef til sölu
Gretar Orvarsson.
„Svo leitaði ég í
diskasafni að grúvi,
einhverju fönki til að
setja við þetta."