Helgarpósturinn - 23.11.1995, Page 31
.itVlft
FIMMTUDAGUR 23. NOVEMBER 1995
1. Um hvaða vin sinn orti Jón-
as Hallgrímsson kvæði sem
hefst með þessum orðum: „Dá-
inn, horfinn! Harmafregn!"
2. Hvað hét Þjóðverjinn ungi
sem gat sér heimsfrægð þegar
hann lenti í lítilli flugvél á
Rauða torginu í Moskvu?
7. Árið 1922 voru sett lög sem
kváðu á um að hásetar á togur-
um fengju að minnsta kosti sex
stunda óslitna hvíld á sólar-
hring. Hvað nefnast lögin í al-
mennu tali?
8. Frægt tónskáld samdi í síð-
ari heimsstyrjöldini sinfóníu
sem kennd er við Leníngrad og
var mikill innblástur fyrir
bandamenn. Tónskáldið hét?
9. Árið 1975 léku íslendingar
sögufrægan knattspyrnulands-
leik við Austur-Þjóðverja og
unnu 2-1. Hverjir skoruðu
mörkin í leiknum?
10. Hvaða stétt manna varð
fyrst til að stofna verkalýðsfé-
lag á íslandi?
3. Þetta brosmilda fólk er eitt-
hvert frægasta par kvikmynda-
sögunnar. Hvað hétu þau?
4. Danir og Þjóðverjar tókust
| lengi á um landsvæði sem nú
er nyrst í Þýskalandi. Það nefn-
ist?
5. Þessi unga kona var mjög í
fréttum 1963 vegna sambands
síns við breska stjórnmála-
manninn John Profumo. Kon-
an heitir?
6. Hvað nefndist páfinn sem
sat í aðeins þrjátíu og þrjá
daga 1978?
______________
11 . Hvar stendur þetta hús?
12. Hvaða eyjar eru það sem
heita á spænsku Malvinas, en
eru betur þekktar undir öðru
nafni?
■jB[Xaspuep(|ej n
■AaupAs j (»sni|iU3do ja enad -n
Z88I ‘JEJepiay -ox
'uossuujnSfs
jjaSsv So uosspjeAgs sauuegof '6
■spAo>|e)soi|s PP.uijO *8
'u!SpinMÍ?A ‘L
■| ||Bd sauueqof -9
-ja|3a>( ouqsuiio -g
■uja^jOH-MiAsats 'fr
'iunqdoH
3uu3ipe>| So Aoejj. joouods '£
isny seiquew z
-uosspunuiæs seuiox -f
Hi®3||0>| QIA ÍOAS
Vín vikunnar
1'
l
1
I
f
I
|i*
Gáfumanna-
drykkurinn
Eplabrandíið Calvados er í miklum
metum í fáguðum heimsborgum
og meðal gáfumanna víða um
heim. Vín þetta er ættað frá Norm-
andí í Frakklandi og er í raun ekkert
annað — þegar upp er staðið — en
koníak, nema hvað Calvadosinn er
gerður úr eplum á meðan koníak
vellur úr vínberjum við rétta
meðferð. Koníak heitir nefni-
lega bara koníak eftir hérað-
inu þar sem það er upp-
runnið, líkt og Calvados.
Eini Calvadosinn sem
vitað er til að fáist í
flestum útibúum ÁTVR
nefnist fullu nafni Cal-
vados Boulard ‘Pays
D’Auge. Komist maður
á bragðið (sem reynir
á) er fátt betra en sopi
af Calvados með
sterku kaffi, í morg-
unsárið (en bara um
helgar) eða síðla
dags í skammdeginu.
Sjáir þú konu eða
mann tilsýndar
dreypa á Calvados
máttu bóka að
greind hans/hennar
er yfir meðallagi.
Áhugi fyrir Islandi sem „tour start“-landi fer stöðugt vaxandi. Gangi tónleik-
ar norður-írsku sveitarinnar Ash í Laugardalshöllinni vel má búast við
streymi stórra — og er þá átt við STÓRRA — banda til landsins.
Norður-írska
sveitin Ash sem
harðneitaði að
hita upp á tón-
leikaferðalagi fyr-
ir Pearl Jam og
hafnaði forsíðu-
viðtali við tónlist-
artímaritið
Smash því hún
vildi heldur spila
fyrir unglinga á
íslandi. Félagarn-
ir Tim, Mark og
Rick þykja afar
kynþokkafullir á
sviði.
Risarokktónleikar
Breska hljómsveitin Ash, Jet
Black Joe, Maus, Botnleðja og
Heiðar Jónsson snyrtir verða
öll í sviðsljósi bresku press-
unnar — þar á meðal NME og
Melody Maker— á risarokktón-
leikum sem haldnir verða í
Laugardalshöll á föstudags-
kvöld. Ash kemur hingað til
lands eftir sjö vikna tónleika-
ferðalag um gervöll Bandaríkin
og heldur svo áfram héðan í
ferðalag um Evrópu.
Bítlapönksveitin Ash er eitt
heitasta bandið á Bretlands-
eyjum í dag, sem meðal annars
má merkja af því að nýverið
harðneituðu meðlimir hennar
að hita upp fyrir stórsveitina
Pearl Jam á væntanlegu tón-
leikaferðalagi. Þeir eru ekki
bara heitir í tónlistarlegum
skilningi heldur er að finna í
þeim svokallað sexbít (bítla-
kynþokka) sem gerir ungar
stúlkur vitstola, líkt og Bítlarn-
ir höfðu til að bera.
Að sögn Kára í Hljómalind,
sem er kynningarfulltrúi sveit-
arinnar hér á landi, eru taldar
miklar líkur á því að í kjölfar
tónleikanna í Höllinni fylgi
önnur stærri bönd, enda ku út-
gefendur í Bretlandi hafa mik-
inn hug á að ísland taki við
sem „tour start“-land af grískri
smáeyju, sem gegnt hefur því
hlutverki hingað til. „Nú verða
allir að leggjast á eitt og láta
tónleikana ganga upp, því í
kjölfarið er hugsanlegt að hing-
að komi hljómsveitir á borð
við Blur, Supergrass og Pulp
og það strax á næsta ári, sem
væri næsta óhugsandi fjár-
hagslega nema þessi hugmynd
verði að veruleika,“ segir Kári.
Engin svör fengust hins vegar
við spurningunni hvort Rolling
Stones og David Bowie væru
einnig inni í myndinni.
Tónleikarnir á föstudag eru
fyrstu risarokktónleikarnir á
íslandi síðan Rage Against the
Machine spilaði fyrir fullu húsi
í Kaplakrika ‘93. Þorstinn er
þegar farinn að gera vart við
sig, því um miðja vikuna höfðu
selst yfir eitt þúsund miðar, en
Höllin rúmar tæplega fimm
þúsund gesti.
Þess má geta að smáskífa
þeirra Girl from Mars — sú
sjötta í röðinni á einu ári — fór
beint í 13. sæti íslenska listans,
sem birtur verður á laugardag.
sjonvarp
HP mælir með:
Saga bítlanna I
(Stöð 2 fös., 21.25)
Ný heimildamynd. Fyrsti hluti
af þremur. Annar og þriðji
hluti á dagskrá sunnudags- og
mánudagskvöld. Stöð 2 og Páll
Baldvin fá rósavönd í hnappa-
gatið.
Rancho Notorious ***
(RÚVfös., 21.50)
Hún er umdeild sú ákvörðun
dagskrárstjórnar að sýna
gamiar s/h myndir á þessu
præmtæm. En hér er ein sem
skipar sinn sess í kvikmynda-
sögunni. Vestri eftir Fritz Lang
með Marlene Dietrich í aðal-
hlutverki. Plottið rýrt en það
er bragð að þessu.
Shadows and Fog ***
(Stöð 2 fös., 23.05)
Stendur kannski ekki upp úr
með meistaraverkum Woodys
Allen en stendur þó vel fyrir
sínu. Malkovich Ieikur I henni.
Hiniinn og
jörð — og allt
þar á niilli
(Stöð 2 fös.,
10.10)
Nýtt íslenskt
bamapró-
gramm. Fróð-
legt verður að
fylgjast með því hvernig
Margréti Örnólfs, fyrrverandi
Sykurmola, og Kristjáni Frið-
riks auglýsingakvikmynda-
gerðarmógúl ferst að vinna
saman.
John Lee Hooker (RÚV sun.
14.55)
Blúsmaðurinn í South Bank
Show og það er enginn annar
en sjálfur Guðbrandur Gísla-
son sem þýðir. Júúúúúhú!
Brugg á fslandi
(RUVsun. 20.35)
Ný íslensk heimildamynd.
Klikkar ekki ef þar er að finna
djókinn um bruggarann sem
var tekinn fastur en áður hafði
honum tekist að koma fram-
leiðslunni undan. Tækin voru
tii staðar og þegar hann var
dæmdur spurði hann dómar-
ann: — Viltu ekki kæra mig fyr-
ir nauðgun líka? — Hefurðu nú
gert það líka? spyr dómarinn.
— Nei, en ég hef tólin til þess.
Rhapsody in August
(RÚVsun. 22.25)
Er ekki skylt að mæla með öllu
sem Kurosawa hefur komið ná-
lægt?
HP varar við
Evrópsku tónlistarverðlaunin
(Stöð 2 fim., 19.00)
Það er eitthvað verulega óvið-
felldið við það þegar fræga og
fína fólkið kemur saman og
klappar hvað öðru lof í lófa. Og
ekki bætir úr skák að viðrinið
Jean Paul Gaultier er kynnir.
Roseanne (RÚV fim., 22.25)
HP tekur undir með Önundi
Ásgeirssyni; það lýsir ákveð-
inni hugmyndafæð hjá inn-
kaupadeildinni að vera að
bjóða okkur upp á þetta síl-
spikaða hvíta hyski dónast á
skjánum. Þetta er orðið þreytt.
Sjónvarpsmaður
vikunnar
Heiðar Jónsson
Þeim mun frægari sem sjón-
varpsmaðurinn er, þeim mun
betri er hann — bæði í augum
stjórnenda og áhorfenda. Það
er því ekki lítils vert að kunna
að auglýsa sig ætli menn sér
frama á skjánum. Engin stétt
manna er eins algengt viðtals-
efni og sjónvarpsmenn í glans-
tímaritum og reyndar öðrum
prentmiðlum. Eins eru þeir
orðnir ansi tíðir gestir á heima-
velli, þ.e. í sjónvarpi, og þá
sem umfjöllunarefni sjálfir sem
slíkir. Enda verður ekki betur
séð en þessi heimur miði að
eins konar sjálfsþurftarbú-
skap: Að sjónvarp þurfi ekki á
neinu öðru að halda en sjón-
varpi og sjónvarpsmönnum.
Ætli það fari nokkuð á milli
mála að á þessu sviði er Heiðar
kóngurinn. Fiskur án reiðhjóls
rýkur án efa upp töfluna í
næstu áhorfskönnun.
31
popp
Lipstikk
með fyrsta risagiggið um
langa hríð í Rósenberg-
kjallaranum. Hip-hop-
syrpa, með lögum af plöt-
unni frá því í sumar,
væntanleg á markaðinn.
Ríósaga,
síðasta upprifjun Helga
Pé á farsælum ferli Ríó-
tríósins. Geirmundur
Valtýsson, aldrei þessu
vant, með stórdansleik á
Hótel Sögu á eftir.
Tommy Dorsey
og síðari tónleikarnir á
Hótel íslandi og Björgin
Halldórs að sjálfsögðu.
Þess má geta að hljóm-
sveitin nýtur mikilla vin-
sælda hjá Bill Clinton og
fjölskyldu og er því tíður
gestur í Hvíta húsinu.
Reggae on lce
seiðandi í íslenskum kuld-
um, á Gauki á Stöng.
Jón Ingólfsson
aftur á Fógetanum.
Kos
ásamt fyrrverandi Bruna-
liðskonunni Evu Ásrúnu
Albertsdóttur á Kaffi
Reykjavík.
Hjörtur Howser og
Jens Hansson
eru fastir punktar tilver-
unnar og fínir fyrir þenn-
an pening á Kaffilistahús-
inu Sóloni íslandus.
Fánar
rifja sjálfagt upp gamla
góða bítladaga eins og all-
ir hinir á Næturgalanum í
Kópavogi. Middlesbro og
Liverpool um miðjan dag
á stórum skjá.
In Bloom
á Tveimur vinum í kvöld
þar sem þeir kynna frum-
samið efni sem væntcinlegt
er á skífu á næsta ári.
SUNNUDAGUR
Dúndurfréttir
hafa vonandi eitthvað
gott fram að færa á
Gauknum.
Sigga Beinteins og
Grétar Örvars
saman á ný, þó ekki undir
merki Stjórnarinnar.
Með rólegu ívafi á Kaffi
Reykjavík.
Kántrý-kvöld
og opinn dansleikur til
klukkan eittnúllnúll á
Hótel íslandi.
Tríó Reykjavíkur
með sunnudagstónlist
klukkan átta í Hafnarborg,
Hafnarfirði. Gestur
kvöldsins er píanistinn
Philip Jenkins.
Guðmundur Rúnar
endar þar sem hann
byrjar, á Fógetanum.
SVEITABÖLL
Bláa lónið
Risadiskótónleikar með
Travoltabandinu Hunangi
á laugardagskvöld. Bað
og diskó... hljómar vel.
Hótel Hveragerði
Djasskvintett Pauls Wee-
den í notalegu umhverfi á
Hótel Hveragerði með ein-
hvers konar Skjaldhamra-
djass á laugardagskvöld.
HB-pöbb og Höfðinn,
Vestmannaeyjum
Langbrókin gerir víðreist
um helgina og bregður
sér á tvo skemmtistaði.
Brókarböll eins og þau
gerast best.