Helgarpósturinn - 29.08.1996, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST1996
Ein af þeim sjö
sjáifsmyndum af
Jóni Óskari sem
munu hanga uppi
hjá Sævari Karli á
næstunni.
Jón Óskar sýnir hjá Sævari Karli:
Sjö sjálfsmyndir
Hinn bráðskemmtilegi mynd-
listar- og umbrotsmaður
Jón Óskar opnar síðdegis á
föstudag sýningu á sjö sjálfs-
myndum í Galleríi Sævars Karls
við Ingólfsstræti.
Að sögn Jóns eru allar þessar
myndir unnar með blandaðri
tækni, þar á meðal tölvum að
hluta, á þessu ári. Þeir sem eitt-
hvað hafa fylgst með Alþýðu-
blaðinu að undanförnu hafá
væntanlega tekið eftir því að
síðustu daga hafa birst á síðu
þrjú litlar myndir af myndlistar-
manninum. Aðspurður hvort
um slíkar myndir væri að ræða
svaraði Jón því til að það væri
einmitt um svoleiðis myndir að
ræða, nema hvað þær væru í lit
og að öllu leyti miklu meiri
glæsibragur yfir þeim. Jón Ósk-
ar opnar sýninguna nánar til-
tekið klukkan fjögur á föstudag.
...Daníel Ágústi Haralds-
syni sem ásamt þremur gru-
va jembe trommuleikurum
ætlar að skemmta á Tetriz á
föstudagkvöld. Efni í helvíti
gott grúv.
...Hljóð- og ljósmyndasýn-
ingu Þorsteins Joð, Raddir í
Reykjavík, í Ráðhúskaffinu
sem lýkur um helgina, þ.e.a.s
framlengingunni.
...Sixties sem verður meö
stórdansleik á Eskifirði
(heimabæ Alla ríka) á laugar-
dagskvöld. Síöasti sjens á aö
verða ástfangin enda sumar-
ið senn á enda.
...SSSól í Njálsbúð í Vestur-
Landeyjum á laugardags-
kvöld. Víst er að þar mun
Helgi Björns leggja sig allan
fram því að viku liðinni mun
hann þurfa að hita upp fyrir
vin sinn Damon Aibarn I Blur.
Þarna er því tækifærið til
þess aö æfa sig.
...Hljómsveit Birgis Gunn-
Iaugssonar í Danshúsinu
Glæsibæ. Einhvers staðar
verða vondir að vera um helg-
ina.
ósið fær...
...Hrafn Jökuls-
son, ritstjóri Al
þýðublaðsins,
fyrir að hafa
loks fengið
almennileg
viðbrögö viö
einu minnsta
blaðinu á dag-
blaðsmarkaðn-
um með birtingu
svokallaðra Bessa-
staðabóka. í Bessastaðabók-
unum er lýst í léttum dúr og
mjög nákvæmlega daglegum
þankagangi forseta íslands,
herra Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, og tilfinningum hans til
embættisverka sinna frá degi
til dags.
Þaö er fyrir löngu kominn tími
á aö helgislepjan, sem eink-
um fylgdi frú Vigdísi Finnboga-
dóttur í starfi, verði máö af
embætti forseta íslands. Rit-
stjóri Alþýöublaösins hefur
reyndar löngum verið T farar-
broddi þeirra sem þorað hafa
að segja skoðun slna á emb-
ættinu opinberlega en toppar
þaö nú meö löngu tímabær-
um gamanskrifum...
Tónleikar í Norræna húsinu
Caput
á disk
Hinn víðfrægi Caput-hópur
vinnur nú að nýjum
geisladiski með verkum eftir
danska tónskáidið Lars
Graugaard undir stjórn
norska hljómsveitarstjórans
Cristians Eggens. Lars
Graugaard er af yngri kyn-
slóð danskra tónskálda en
hefur á síðustu árum verið
mjög afkastamikill, sérstak-
lega við smíði kammerverka.
Christian Eggen er hins veg-
ar einn virtasti hljómsveitar-
stjóri Norðmanna um þessar
mundir. Hann hefur stjórnað
öllum helstu hljómsveitum
Noregs og víða í Evrópu.
Það vill nú svo skemmti-
lega til að næstkomandi laug-
ardag mun Caput-hópurinn
halda svokallaða verkstæðis-
tónleika í Norræna húsinu og
fiytja verk sem Lars Grauga-
ard samdi sérstaklega fyrir
hópinn. Þá má geta þess að
geisladiskurinn er væntan-
legur á heimsmarkað í byrj-
un næsta árs og ættu unn-
endur klassískar tónlistar
ekki að láta hann fram hjá
sér fara.
Hinar kýrnar
í Hlaðvarpanum
Næstkomandi föstudag
verður frumsýnt nýtt ís-
lenskt gamanleikrit á vegum
Kaffileikhússins eftir Ingi-
björgu Hjartardóttur undir
leikstjórn Þórhalls Sigurðs-
sonar. Leikendur eru Árni
Pétur Guðjónsson, Edda Am-
ljótsdóttir og Sóley Elíasdótt-
ir. Laga- og textahöfundur er
Ámi Hjartarson.
Leikritið segir frá bónda-
syni nokkrum sem við skyndi-
legt fráfall móður sinnar aug-
lýsir eftir ráðskonu. Eftir
nokkra leit finnur hann eina
slíka og þá fara óvæntir at-
burðir að gerast.
Ingibjörg vann leikritið Hin-
ar kýrnar í Höfundasmiðju
Leikfélags Reykjavfkur og var
það sýnt snemma á vinnuferl-
inum á einni sýningu í Borgar-
leikhúsinu síðastliðinn vetur.
Síðan hefur Ingibjörg haldið
áfram að þróa verkið í sam-
vinnu við leikhópinn og Kaffi-
leikhúsið og hefur að sögn
tekið miklum breytingum. Það
verður því spennandi að sjá
hvernig til tekst.
Leikarar leikritsins
Hinar kýmar sem frumsýnt
verður í Hlaðvarpanum, fr.v.:
Edda Arnljótsdóttir,
Ámi Pétur Guðjónsson
og Sóley Elíasdóttir.
Bp