Helgarpósturinn - 29.08.1996, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST1996
EyfjrheyrsIaT"
Á dögunum sendu ungir sjálf-
stæöismenn frá sér yfirlýsingu
þar sem þaö þeir harma þá
þriggja milljaröa króna aukningu
sem fyrirsjáanleg er í ríkisút- '
gjöldum á þessu fjárlagaári. HP
sló á þráöinn til Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar, formanns Sam-
bands ungra sjálfstæöismanna,
og spuröi hvort ríkisfjármálin
væru á rangri leiö...
Hraða ber
einkavæðingu
„Ég tel að mikill árangur hafi
náðst á undanförnum árum í rfkis-
fjármálum en þaö er óþolandi að
þessum þremur milljörðum, sern
ríkissjóði áskotnast aukalega,
skuli ekki vera varið í að mlnnka
fjárlagahallann í stað þess að
eyða honum f ríkisreksturinn.
Stjórn SUS telur enn fremur að
stefna beri að afgangi á ríkissjóði
á næsta fjárlagaári en það er ekki
nóg. Það verður að minnka um-
svif ríkisins og ríkisútgjöld. Því
eru það okkar mikil vonbrigði að
auka eigi ríkisútgjöldin á næsta
ári. Þá má einnig geta þess að all-
ur tekjuskattur einstaklinga hér á
landi fer f vaxtagreiðslur ríkis-
sjóðs sem eru um 30 til 40 milljón-
ir á hverjum degi. Það er |)ví
nauðsyn að nýta nú tækifærið og
ná enduin saman I ríkisfjármál-
um.“
/ hvaða málaflokkum teljið
þið að mætti draga úr útgjöld-
um?
,,Það er af mörgu af taka en það
liggur beint við að einkavæða rík-
isfyrirtæki og stoínanir. Okkur
innan SUS finnst einkavæðingar-
áform ríkisstjórnarinnar ganga
fremur hægt fyrir sig en það er
sjáifsagt einsdæmi hér á Vestur-
löndum að um 70% af fjármagns-
markaðinum á fslandi sé í eigu
hins opinbera. þar eru mikil verð-
mæti sem hægt er að ná f og sfð-
an verða menn að ákveða það og
skilgreina upp á nýtt hverju ríkið
ætlar að halda eða sleppa."
Hvers vegna hefur sala á rík-
isfyrirtœkjum ekki gengið eins
hratt fyrir sig og þið cetlist til?
„Ég held að flestir innan stjórn-
arflokkanna séu hlynntir sölu rfk-
isfyrirtækja en það eru einhver
tregðulöginál sem valda því að
ríklsstjórnin fer sér hægt í þess-
um efnum. Það er hins vegar ekki
eftir neínu að bfða f þeim efnum."
Nú var fjármálaráðherra
einn þeirra sem á sínum tíma
vildu, ásamt ungum sálfstæöis-
mönnum, „báknið hurt". Hefur
hann breytt eitthvað um af-
stöðu með árunum?
„Sjálfstæðisfiokkurinn er nú
byggður þannig upp að ungt sjálf-
stæðisfólk á auðvelt með að fylgj-
ast með því sem fram fer innan
þlngflokksins. Það væri þvf ákaf-
lega ósanngjarnt að saka Friðrik
Souphusson um að sala á ríkisfyr-
irtækjum gangi hægt fyrir sig.
Hann, ásamt mörgum öðrum, hef-
ur gengið hart fram í að skera nið-
ur ríkisútgjöldln og minnka um-
íangið. Friðrik hefur jiar af leið-
andi ekki gleymt sfnum hugsjón-
um.“
Þú heldur sem sagt að það
megi búast við kollsteypu í ís-
lenshum efnahagsmálum ef
fram fer sem horfir?
„Við skuium vona ekki. En það
þarf að berjast gegn þeim viðhorf-
um að nú sé tfml til kominn að
eyða," sagði Guðlaugur Þór Þórð-
arson, formaður SUS.
Stjóm Sambands ungra sjálfstæðismanna
harmar mjög |)á þriggja milljarða króna
aukningu í rikisútgjöldum sem ríkisstjóm-
in ráðgerir nú í kjölfar óvsntrar tekju-
aukningar ríkissjóðs. Sambandið skorar á
ríkisstjórnina að minnka fjárlagahallann á
þessu ári um fyrrgreinda upphsð og
stefna að afgangi á ríkissjóðl á næsta fjár-
lagaári.
-8h
Undanfariö hafa helstu samverkamenn
Jóns Baldvins Hannibalssonar í Alþýðu-
flokknum reynt aö fá frá honum skýr svör
um það hvort hann muni sækjast eftir
endurkjöri eöa ekki. Formaðurinn neitar
alfariö aö segja af eöa á um málið.
Sæmundur Guðvinsson kannaði
stöðuna í Alþýöuflokknum í Ijósi þessa.
Jón Baldvin
íhugar að
draga sig í hlé
Titrings er farið að gæta í forystusveit
Alþýðuflokksins þar sem formaður-
inn, Jón Baldvin Hannibalsson, neitar
nú að standa við fyrri yfirlýsingar sínar
um að hann muni gefa kost á sér til
áframhaldandi formennsku í flokknum.
í samtali við Helgarpóstinn var Jón Bald-
vin ófáanlegur til að segja af eða á um
málið. Hann vildi hvorki staðfesta að
hann ætlaði að draga sig í hlé né heldur
að hann myndi gefa kost á sér til for-
manns áfram á flokksþinginu sem hald-
ið verður í nóvember. Menn innan Al-
þýðuflokksins sem blaðið hefur rætt
við að undanförnu staðfestu hins vegar
að Jón Baldvin væri um þessar mundir
að íhuga það vandlega að hverfa úr
sæti formanns og jafnvel að hætta af-
skiptum af stjórnmálum í framhaldi af
því. Vangaveltur um hugsanlega arftaka
Jóns Baldvins á formannsstól eru þegar
byrjaðar og þar eru einkum nefnd til
sögunnar Sighvatur Björgvinsson, Öss-
ur Skarphéðinsson og Rannveig Guð-
mundsdóttir.
Dró yfirlýsingu til baka
Fyrr á þessu ári gaf Jón Baldvin þá yf-
irlýsingu í Alþýðublaðinu að hann
myndi sækjast eftir endurkjöri sem for-
maður Alþýðuflokksins á flokksþinginu
í nóvember. Sú yfirlýsing féll í góðan
jarðveg í flokknum og enginn átti von á
öðru en þetta gengi eftir. Þegar undir-
búningur fyrir flokksþingið hófst fyrir
skömmu brá svo við að Jón Baldvin fór
að hafa á orði við fólk úr innsta hring
flokksins að hann væri ekki búinn að
taka ákvörðun um hvort hann sæktist
eftir áframhaldandi formennsku eða
ekki. Eftir því sem næst verður komist
mun Jón Baldvin hafa gefið í skyn að
hann ætlaði ekki að halda áfram sem
formaður fyrr en þá eftir vandlega íhug-
un. Það mætti allt eins búast við að nið-
urstaðan yrði sú að hann drægi sig í
hlé.
Markmið sem ekki nást
Að vonum hafa flokksbræður for-
mannsins velt mjög vöngum yfir þess-
um sinnaskiptum. Jón Baldvin hefur
lýst því yfir að hlutverki hans í íslenskri
pólitík sé ekki lokið. Hann eigi eftir að
koma íslandi inn í Evrópusambandið og
sameina jafnaðarmenn. Nú er ljóst að
ekkert verður af inngöngunni í Evrópu-
sambandið fyrr en í fyrsta lagi eftir
aldamót og óvíst hvort Jón Baldvin hef-
ur biðlund svo lengi. Hvað varðar sam-
einingu jafnaðarmanna í einn flokk þá
er það deginum ljósara að sameining
vinstri flokkanna á langt í land. Það eina
sem mun gerast í þeim efnum á næst-
unni er samstarf þingflokka Alþýðu-
flokksins og Þjóðvaka á Alþingi í vetur.
Því má segja að Jón Baldvin sjái ekki
fram á að hann nái þeim markmiðum
sem hann setti sér áður en hann hætti
afskiptum af stjórnmálum.
Þá má ekki gleyma því að Jón Baldvin
Hannibalsson er þeirrar gerðar að hon-
um fellur mjög illa að sitja sem áhrifalít-
ill þingmaður í stjómarandstöðu með
litla möguleika á að láta til sín taka.
Sighvatur: Ef svo fer að Jón Baldvin lætur
af formennsku er Sighvatur talinn eiga
góða möguleika á stöðunni.
Sagt er að honum hafi dauðleiðst á
þingi síðastliðinn vetur og hugsi með
hryllingi til þess að nú styttist í að Al-
þingi hefji störf að nýju. Hann var at-
kvæðamikill ráðherra í átta ár samfleytt
og kom Alþýðufiokknum til mun meiri
áhrifa og valda en fylgi flokksins í kosn-
ingum sagði til um.
Hver tekur við?
Þær vomur sem komnar eru á Jón
Baldvin um að halda áfram formennsku
hafa kallað á vangaveltur innan flokks-
ins um hver verði arftaki hans ef svo fer
að hann hættir. Af samtölum við ýmsa
alþýðuflokksmenn má draga þá ályktun
að þrír þingmenn sækist einkum eftir
formennskunni. Það eru Sighvatur
Björgvinsson, Össur Skarphéðinsson
og Rannveig Guðmundsdóttir. Sighvat-
ur er sá þingmaður flokksins sem hefur
mesta reynslu og er mikill þungaviktar-
maður í flokknum. Hann nýtur stuðn-
ings ýmissa úr þeim armi flokksins sem
staðið hefur hvað fastast að baki Jóni
Baldvin. Össur nýtur einnig stuðnings
margra úr Jónsarminum en eins og einn
viðmælandi blaðsins orðaði það, þá
„þykir sumum sem tími Össurar sé ekki
kominn.“ Rannveig er talin eiga minni
möguleika en Sighvatur og Össur þótt
hún eigi öfluga stuðningsmenn. Það er
athyglisvert að enginn krati sem blaðið
ræddi við taldi nokkrar líkur á að Guð-
mundur Ámi Stefánsson varaformað-
ur sæktist eftir formennsku í flokknum.
Formaður frá 1984
Jón Baldvin Hannibalsson var kjörinn
formaður Alþýðuflokksins árið 1984 og
er því búinn að vera formaður í 12 ár.
Það þykir langur tími á þeim bæ. Lík-
lega hafa aðeins Jón Baldvinsson og
Stefán Jóhann Stefánsson gegnt emb-
ætti formanns flokksins lengur en Jón
Baldvin hefur gert.
„Það er auðvitað ljóst að Jón Baldvin
cO
s
E
L'
'S
Rannveig: Heimildir herma að hún sé þegar
komin á stjá til að afla sér fylgis sem næsti
formaður flokksins.
er kominn á þann aldur að hann verður
að gera það upp við sig hvort hann ætl-
ar að eyða því sem eftir er af starfsæ-
vinni í pólitík eða ekki. Hann er orðinn
57 ára en er í fullu fjöri og á eflaust
möguleika á ýmsum áhugaverðum
störfum, til dæmis á alþjóðavettvangi.
Hins vegar sé ég hann ekki fyrir mér
sem sendiherra, hann er alltof atorku-
samur til að nenna að standa í slíku
dútli. Það er skiljanlegt að Jón sé á báð-
um áttum um það hvort hann eigi að
hrökkva eða stökkva. Hins vegar er
staðreyndin sú að flokkurinn á nú undir
högg að sækja og það myndi veikja
hann stórlega ef Jón hætti núna sem
formaður. Því mun verða Iagt fast að
honum að að hætta við að hætta. Ég
Össur: Er sagður tilbúinn að berjast við
hvern sem er um formannsstólinn.
trúi því að þegar á reynir muni Jón
Baldvin láta undan þeim þrýstingi og
halda formennskunni áfram. En ef hon-
um verður ekki haggað þá tel ég næsta
víst að hann muni ekki sitja nema einn
vetur á Alþingi og hætta síðan alfarið
afskiptum af stjórnmálum,“ sagði náinn
samverkamaður Jóns Baldvins í samtali
við blaðið.