Helgarpósturinn - 29.08.1996, Síða 6
6
FlMIVmjDAGUR 29. ÁGÚST1996
J.
Nauöungarsölum íbúöa á almennum markaöi fjölgaöi
um tæp 70% á síðasti ári og hefur Húsnæöisstofnun
ríkisins nú gert kröfur í hundruð íbúða á öllu landinu...
Aukningin
mestí
Reykj avík
— segir Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Húsnæðisstofnunar ríkisins
að hefur ekki árað vel í ís-
lensku efnahagslífi síðustu
ár. Gjaldþrotum hefur snar-
fjölgað á síðustu árum og þá
fjúka íbúðirnar um leið. Það
helst óneitanlega í hendur,“
sagði Sigurður E. Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Hús-
næðisstofnunar ríkisins í sam-
tali við Helgarpóstinn.
í nýlegri ársskýrslu Húsnæð-
isstofnunar ríkisins fyrir árið
1995 kemur fram að íbúðum
sem stofnunin gerði kröfur í
fjölgaði úr 528 talsins í 628
milli áranna 1994 og 1995. Hér
er um 16% aukningu að ræða
og taka kröfulýsingarnar til
allra sjóða Húsnæðisstofnun-
ar, þar af 40% hjá Byggingar-
sjóði ríkisins, 23% hjá Bygging-
arsjóði verkamanna og 37%
hjá húsbréfadeild.
Af þessum 628 íbúðum
neyddist stofnunin til að leysa
til sín 140 íbúðir á árinu og er
það jafnmikill fjöldi og á árinu
á undan en þá var aukningin
um 54% á milli ára — langmest
í Reykjavík. í árslok átti stofn-
unin samtals 198 íbúðir, víðs
vegar um landið. Frá því 1991
hefur fjöldi íbúða sem stofnun-
in hefur gert kröfur í aukist um
ríflega 114%. íbúðakaupa á
nauðungarsölum hafa aukist
um tæplega 367% og fjöldi
íbúða í eigu stofnunarinnar,
um áramót 1995/1996, um ríf-
lega 312% frá 1991.
Athygli vekur að bæði
Reykjavík og Reykjanes skera
sig úr hvað fjölda íbúða varðar
á síðasta ári. Samtals voru
kröfulýsingar í þessum um-
dæmum 446 talsins eða um
68% af heildarfjölda. Sigurður
sagði að Húsnæðisstofnun
hefði lengi átt nokkurn fjölda
íbúða á Reykjanesi en aukning-
in í Reykjavík heyrði til tíð-
inda. Hann taldi að hátt hlutfall
lána frá Húsnæðisstofnun, af
markaðsverði íbúða, skýrði að
nokkru leyti þessa fjölgun í
kröfulýsingum. „Þetta mál hef-
ur að öðru leyti ekki verið
skoðað í tengslum við um-
hverfið en ég held að það sé al-
veg óumdeilanlegt að kaup-
máttur hefur farið minnkandi á
umliðnum árum og það hefur
átt stóran þátt í því að margir
einstaklingar hafa misst íbúð-
irnar sínar. Þá hefur vaxandi
vantrúar gætt meðal fólks úti á
landi á eignarhaldi íbúða á al-
mennum markaði á meðan fólk
búsett á stórum þéttbýlis-
svæðum hefur haft meiri trú á
að verðmæti íbúða héldi sér.“
Sigurður sagði að þrátt fyrir
stórfjölgun í nauðungarsölum
undangenginna ára horfði
hann björtum augum fram á
við. „Ég geri mér vonir um að
með bættu árferði dragi úr
uppboðum og íbúðum fækki
sem stofnunin fær í sínar
hendur," sagði Sigurður E.
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Húsnæðisstofnunar rík-
isins.
-GÞ
Breytingar Alþingis á lögum um endurgreiöslu viröis-
aukaskatts vegna vinnu viö nýbyggingar hafa mælst
illa fyrir hjá Samtökum iönaöarins sem vara viö afleiö-
ingunum...
Ýtir undir svarta
atvinnustarfsemi
Sú ráðstöfun Alþingis að
breyta endurgreiðslu virð-
isaukaskatts af vinnu við ný-
byggingar getur ýtt verulega
undir svarta atvinnustarfsemi í
greininni. Samtök iðnaðarins
hafa harðlega mótmælt þess-
ari lagasetningu og reyndu að
hafa áhrif á hana á sínum tíma
með viðræðum við bæði al-
þingismenn og ráðherra en án
árangurs,“ sagði Eyjólfur
Bjarnason hjá Samtökum iðn-
aðarins í samtali við HP
Síðastliðið vor samþykkti Al-
þingi breytingar á lögum um
virðisaukaskatt vegna vinnu
við nýbyggingar á þann veg að
heimilt er að endurgreiða 60%
virðisaukaskatts af vinnu sem
unnin er á byggingarstað í stað
100% áður. Með lögunum, sem
tóku gildi 1. júlí, ætlaði ríkis-
stjórnin að fjármagna breyt-
ingar sem urðu á lögum um
vörugjald. Athygli vekur hins
vegar að viðhalds- og viðgerð-
arvinna varð útundan á síð-
ustu dögum þingsins. Það þýð-
ir að endurgreiðsluhlutfall
virðisaukaskatts til eigenda
íbúðarhúsnæðis vegna vinnu
við endurbætur og viðhald
verður áfram óbreytt.
Eyjólfur sagði að lægra vöru-
gjald á byggingarvörum hefði
að einhverju leyti komið til
lækkunar á móti ákvörðun
þingsins en dygði skammt því í
heild ylli hún hækkun á bygg-
ingarvísitölu um tæplega þrjá
af hundraði. Hann sagði að
hækkun þessi væri allveruleg,
ekki síst í ljósi þess að Iitlar
breytingar hefðu orðið á bygg-
ingarvísitölunni síðustu tvö ár.
Hann sagði enn fremur að gera
mætti ráð fyrir meiri hækkun
þegar breytingar á virðisauka-
skattslögum vegna viðhalds
húsa yrðu að veruleika.
Ljóst er að lagasetning Al-
þingis kann að stuðla að
svartri atvinnustarfsemi. Iðn-
aðarmenn og aðrir sem vinna
við húsbyggingar hafa ekki
lengur neinn ávinning af því að
krefjast kvittana, sem er for-
senda fyrir því að endur-
greiðsla geti átt sér stað af
hálfu skattayfirvalda. Jón
Steingrímsson hjá ríkisskatt-
stjóra sagði í samtali við blað-
ið að of snemmt væri að spá
um hvort breytingin kynni að
ýta undir nótulaus viðskipti en
skattayfirvöld myndu hins veg-
ar fylgjast grannt með fram-
vindu mála næstu vikur og
mánuði.
-gb
Samtök iðnaðarins
telja að breytingar á
lögum um endurgreiðslu á
virðisaukaskatti vegna vinnu
við nýbyggingar stuðli að
svartri atvinnustarfsemi.
Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins: Aukning í nauðungarsölu íbúða í
Reykjavík heyrír til tíðinda.
4