Helgarpósturinn - 29.08.1996, Page 11
FIMMTUDAGUR 29. ÁQÚST1996
Gítarleikarinn Friðrik Karlsson er búinn að
koma ár sinni vel fyrir borð í London. Hann
spilar nú lög eftir Andrew Lloyd Webber í
einum vinsælasta söngleik borgarinnar og
verður fyrsti gítarleikari í nýrri uppfærslu á
Jesus Christ Superstar. Fréttaritari Helgar-
póstsins í stórborginni, Svana Gísladóttir,
ræddi við Friðrik um þetta og ýmislegt fleira
sem hann hefurí pokahorninu...
útgáfufyrirtækjunum hér í London.
Það er um að gera að reyna að nýta
öll möguleg tækifæri. Við Sigríður
Beinteinsdóttir höfum verið að vinna
saman að nýju lagi, köllum okkur
Gigabite. Við höfum fengið jákvæð
viðbrögð frá Sony í Ástralíu og fleir-
um. Þetta er danstónlist sem við mið-
um við að gera út á markað í Evrópu
og það verður spennandi að sjá hvað
kemur út úr þessu.“
Þá er enn ótalin hljómsveitin sem
lengi vel var flaggskip íslands á er-
lendum tónlistarmarkaði, Mezzo-
forte. Um jólin kemur út ný plata með
þeim félögum, Monkey Fields.
„Við tókum hana reyndar upp fyrir
nokkru. Að vissu leyti erum við eins
og saumaklúbbur; við hættum ekki
að koma saman þótt við séum allir
uppteknir í einhverju öðru. Enda eng-
in ástæða til svo lengi sem við höfum
gaman af þessu. Þetta er sennilega sú
tónlist sem ég nýt mín einna best í
þótt tónlistarsmekkur minn sé afar
fjölbreyttur.“
Það er víst ekki ofsögum sagt að
Friðrik Karlsson komi víða við sem
tónlistarmaður, og það jafnvel á sama
tíma. En það er víst einkenni fag-
mannsins og líklega hefur Madonna
aldrei áður sungið með gítarleikara
óperusöngvara áður — en þá þekkti
hún heldur ekki Friðrik Karlsson.
Spilar inn
á plötu með
José Carreras
Egstend fyrir utan dyrnar á Duke
of York leikhúsinu í London.
Fyrir innan eru síðustu tónar söng-
leiksins By Jeeves að deyja út og
áður en ég veit af taka ánœgðir
leikhúsgestir að streyma sönglandi
fram hjá mér. Það útheimtir þó
nokkra leikni og talsverðan tíma
að troðast á móti straumnum inn í
leikhúsið þar sem ég á stefnumót
við Friðrik Karlsson gítarleikara.
Hann er auðþekkjanlegur í fjöldan-
um; svartkæddur að vanda, brosandi
og heldur á gítartöskunni. Friðrik er í
sex manna hljómsveit sem sér um
flutning tónlistar Andrews Lloyd
Webber í þessum fjöruga söngleik
sem nú dregur að sér fjölda áhorf-
enda í Lundúnum. Hér má finna hann
sex daga vikunnar og stundum eru
tvær sýningar á dag. Fyrir tónlistar-
mann er þetta þægilegt starf og ákaf-
lega vinsælt enda miklir peningar og
metnaður lagður í söngleiki á West
End. En hvernig kom það til að einn
vinsælasti gítarleikari íslendinga er
mættur í þennan slag?
Fastráðinn hjá Webb
,,Ég hef verið að vinna svolítið með
Nigel Wright, sem „pródúseraði“
Mezzoforte á sínum tíma, og hef kom-
ið út nokkrum sinnum á hans vegum
til ýmissa verkefna. Hann sér um alla
tónlist sem við kemur Andrew Lloyd
Webber og bauð mér að koma út og
spila í þessu stykki. Ég ákvað að slá
tii, prófa þetta og flytja hingað í ein-
hvern tíma. Svo hefur þetta hlaðið ut-
an á sig og nú spila ég í öllu sem Web-
ber semur!“
Friðrik kann afar vel við sig í stór-
borginni og hefur nú ákveðið að setj-
ast þar að um nokkurra ára skeið
enda streyma tækifærin til hans. Ný-
lega lauk hann við að taka upp tónlist,
ásamt hljómsveit, við
eina stærstu kvikmynd
ársins, Evítu. Þar fer
-Madonna með aðalhlut-
verkið ásamt Antonio
Banderas en öll tónlist í
myndinni er eftir Web-
ber. Upptökur fóru fram
í London og það er að
sjálfsögðu Madonna
sem syngur þar hlut-
verk Evítu. Friðrik vann
því með stjörnunni og
öðrum listamönnum á
heimsmælikvarða enda
lítið sparað við gerð
myndarinnar. Ég komst
þó fljótt að því að Frið-
rik er mjög hógvær og
gefur lítið út á glamor-
inn f kringum kvikmynd-
ina.
Top of the Pops
„Jú, vissulega var
þetta allt mjög spenn-
andi og myndin hefur
fengið gífurlega umfjöll-
un þrátt fyrir að hún verður ekki
frumsýnd fyrr en í desember. Ég er
búinn að sjá búta úr henni og tónlist-
in kemur virkilega vel út og söngur
Madonnu er mjög góður, betri en ég
hef áður heyrt frá henni. Það kæmi
ndin fengi
skarsverð-
mér ekki á óvart þótt my
einhverjar tilnefningar til 0
launa og þá sérstaklega tónlistin."
En Friðrik gerði meira en að leika
undir með Madonnu í Evítu. Hann
spilaði undir hjá henni í frægasta
sjónvarpstónlistarþætti Breta, Top of
the Pops í beinni útsendingu en glottir
bara og hlær þegar ég reyni að veiða
upp úr honum eitthvert slúður um
fræga fólkið. Madonna er þó ekki eina
stórstjarnan sem Friðrik hefur sést
með í beinni útsendingu í breska sjón-
varpinu. Tenórinn José Carreras hef-
ur einnig fengið að njóta hæfileika
hans og þá þótti mörgum mikið til
koma.
„Enn og aftur var það Nigel sem
kom mér í rétt sambönd. Sem stendur
er ég gítarleikari Carreras og leik
bráðlega inn á plötu með honum sem
kemur út um jólin,“ segir Friðrik.
Spilar í Superstar
I október hefjast æfingar á mest
umtalaða söngleik Lundúna í langan
tíma, Jesus Christ Superstar, og þar
verður Friðrik Karlsson aðalgítarleik-
arinn enda tónlistin eftir Webber.
Þótt frumsýning verði ekki fyrr en um
miðjan nóvember er strax farið að
auglýsa og kynna sýninguna og miða-
pantanir streyma inn. Nú þegar er
geislaplata með lögunum tilbúin og
lokaæfingar hefjast í október.
„Þetta verður mjög metnaðarfull
sýning," segir Friðrik og er augljós-
lega spenntur að taka þátt í svo viða-
miklu verkefni.
„Webber hefur fest kaup á Lyceum-
Svartklæddur að vanda með gítartöskuna ómissandi.
leikhúsinu, sem rúmar 2.500 manns,
og er nú að láta gera það upp sérstak-
lega fyrir Superstar. Kostnaðurinn við
það er um 1.400 milljónir króna. Ætl-
unin er að þetta stykki gangi til fjölda
ára eins og oft vill verða. Því er mikið
Friðrík við vinnu sina í Duke of York-leikhúsinu í London þar sem hann spilar við sýningar á By Jeeves.
í húfi og miklir peningar í spilinu.
Hljómsveitin er stór; til dæmis fjórir
hljómborðsleikarar, allt topptónlist-
armenn og ég vann með nokkrum
þeirra í Evítu. Ég hef aldrei áður unn-
ið með jafn miklum fjölda af frábær-
um tónlistarmönnum en Sup-
erstar þykir iíklega vera
besta vinnan í þessum
bransa í dag.
Ég er sem sagt ráðinn
þarna sem fyrsti gítarleikari
og því verður þetta örugg
vinna fyrir mig næstu árin.
Það er gott að hafa svona
fastan punkt og ég get unnið
annað með eins og ég vil.“ Og
það er einmitt þannig sem
Friðrik vill hafa það; alltaf
nóg að gera.
Plata með Mezzoforte
Þegar hér er komið sögu
hef ég talið þrjár geislaplötur
sem eru væntanlegar með
gítarleik Friðriks Karlssonar
og kemst að því að þær
verða fleiri.
„Það hefur lengi blundað í
mér að gera plötu með þekkt-
um dægurlögum í útsetning-
um fyrir gítar. Ég er að láta
verða af því núna og málið er
í athugun hjá einu af stóru