Helgarpósturinn - 29.08.1996, Page 16
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST1996
16
HH
heitt
Útlendir herramenn.
í júnfformum eöa ekki júnfformum.
Skiptir ekki mSli. Bara ef um er að
ræöa útlenda herramenn sem lífga
upp á bæjarlffiö og heilla fslepskar
ungmeyjar upp úr skónum. Máöur
skilur ekki hvaö friöarsamtök
kvenna eru aö fara meö því aö mót-
mæla þv! aö útlendir sjóliöir setji
svip sinn á bæinn. Þaö getur varla
brotist út ófriöur þótt fáeinir svip-
miklir sjóherjar gangi upp og niöur
Laugaveginn. Þvert á móti ætti sú
sýn aö friöa sálir ungra meyja sem
þá fá aö sjá aö fleira er til en feitt
íslenskt kjet. Hvaö er skemmtilegra
fyrir unga konu en aö eiga fagra
æskuminningu f framtiöinni um blá-
klædda dökkeyga sjómanninn sem
hún kvaddi meö tárum viö Reykjavfk-
urhöfn. Aö vfsu er hætt viö aö ungir
íslenskir karlmenn fái minni athygli
um smátíma. Þá er bara um aö gera
fyrir íslenska karlpeninginn aö nýta
tímann vel og upphugsa betra agn
fyrir næstu veiöiferð.
íslenskir karlmenn...
...eru sko alls engar gungur, fs-
lenskum karlmönnum vefst ekki
tunga um tönn....því fer sem fer...-
Þarna er kannski komin lýsingin á
því aö fslenskir karlmenn eru ekki f
fyrsta sæti í sínu heimalandi um
þessar mundir þó aö þeir — ef
grannt er skoöaö — gætu þaö vel.
En á meöan sál þeirra er pínulítil
undir grótharöri töffaraskél, sem
birtist meöal annars í þvf aö þeim
vefst aldrei tunga um tönn, eru þeir
vart samkeppnishæfir viö flauel-
stungumjúka dáta á markaðnum. Aö
vfsu skal tekið undir sjónarmiö
nokkurra þeirra sem I sífellu segja
aö þaö sé ósanngjarnt aö inn í land-
iö skuli einungis flæöa tunguliprir
erlendir karlmenn. Hvaö meö þá
sjálfa? Af hverju er ekki falast eftir
því aö hér á landi veröi haldið
heimsþing flugfreyja? Góö hugmynd
— en hættuleg.
...Hverfisgötunni
sem er aö veröa hreint afbragö-
skemmtileg verslunargata eftir
breytingarnar. Fáein kaffihús myndu
ekki skemma fyrir þar sem maöur
gæti horft sér til undrunar á bifreiö-
arnar aka niöur Hverfisgötuna.
...treflum
f öllum regnbogans litum. Svo
maður sleppi viö hausthóstaköstin
frá náunganum.
...Bókakaffinu í Máli og menn-
ingu
þegar þaö ioks opnar. Hljómar
þegar eins og þar sé aö rísa besta
pikk-upp kaffihúsið f bænum.
...haustinu
og þess yndislegu fylgifiskum.
M.a kemur alltaf upp sú gamla til-
finning aö þá sé leikur aö læra.
____hgllsa
Greindar-
aukandi efni
Ginkgo Biloba heitir eltt af undra-
lyQum nútfmans sem auglýst er
grimmt á grundvelli þess aö þaö
skerpi gáfur fólks. Alltént telja marg-
ir — ekki bara svokallaö náttúru-
lækningafólk heldur einnig sérfræö-
ingar I læknavísindum — aö nokkuö
sé hæft í því. Sannaö þyklr aö kraft-
ur unninn úr laufum Glnkgo Biloba
trésins auki blóöstreymi til hellans
og hraöi um leiö flutningi boöefna tll
taugafrumnanna sem, eins og gefur
aö skilja, eykur athyglisgáfuna.
En þaö er ekki bara Ginkgo
Biloba sem á aö hafa þessi góöu
áhrif á heilastarfsemina heldur hafa
nýlegar rannsóknir sýnt fram á þaö
aö minni og athyglisgáfa þelrra sem
þjást af Alzheimer- sjúkdóminum
eykst töluvert við inntöku Acetyl 1-
Carnitine. Þaö efni er mun útbreidd-
ara en menn myndu halda því þaö
er aö finna f flestum algengustu
fæðutegundum, einkum þó mjólkur-
vörum.
Hydergine er svo enn eitt efniö
sem taliö er örva starfsemi heilans
en þaö er aö finna f sveppagróörl
sem vex á rúgi og er nánar tiltekiö
taliö ýta undlr fjölgun heilafrumna.
Þess vegna eru hafnar rannsóknir á
hormóninu vassopressin sem flestir
þekkja undir skammstöfuninni ADH.
Þaö hefur hingaö til verið þekkt sem
þvagtemprandi hormón en frumrann-
sóknir benda einnig til þess aö þaö
hafi mikil áhrif á hugsun og minni
__©Ott
Leiddist í París
Þaö er ekki hægt aö kom-
ast hjá því að nefna þaö
sem flaug í gegnum höfuö
glöggs Ijósmyndara HP þegar
hann tók myndir af Elmu Lísu
Gunnarsdóttur, „mömmu'
gestanna á kaffibarnum Cafe
au Lait: Michelle Pfeiffer.
Elma Lísa, og ekki hvaö síst
systir hennar Nína, hafa frá þvf
þær voru bráöungar veriö mjög vin-
sælt viðfangsefni Ijósmyndara.
Elma vakti fyrst athygli sem vinn-
ingshafi hvað eftir annaö í svokölluö-
um freestyle-danskeppnum. Upp frá
þvf, eða frá um 13 ára aldri, hafa Ijós-
myndarar myndað hana f bak og fyrir
og hún hefur leikið f töluvert mörgum
sjónvarpsauglýsingum.
Hún segist þó ekki nenna aö standa í
fyrirsætustörfum mikið lengur hér á landi.
Markaöurinn sé svo Iftill aö fólk veröi fljótt
leitt á andlitum, auk þess sem fyrirsætu-
starfiö sé heldur ekki vel launað, sem er
annað en gengur og gerist víöast hvar er-
lendis. En smjörþefinn af fyrirsætustörfum
hefur Elma Lísa þegar fengið í Mílanó og víð-
ar. ,,Ég held aö ég sé um þaö bil aö fá nóg af
því að starfa sem fyrirsæta; ef maður vinnur
hérna heima þá er yfirleitt ekki mikiö upp úr því
að hafa og ef ég starfa erlendis þá sakna ég
kærastans (Stefáns Más Magnússonar). Mig
langar í nám,“ segir hún haröákveöin. ,,Ætli ég sé
ekki bara farin aö eldast og róast,“ bætir hún viö.
Að allt öðru — þú ert með sígarettu á báðum
myndunum, er þetta stílbragð eða bara þú?
,,Ég reyki eins og strompur en áöur en ég byrjaði
sjálf aö reykja var ég svo fanatfsk á reykingar annarra
aö ég átti þaö meira aö segja til aö henda sígarettu-
pökkunum hennar mömmu. Þaö er því mikið búiö aö
gera grfn aö þessum reykingum mfnum."
Elma segist ekki hafa byrjað aö reykja fyrr en hún var
19 ára og þaö hafi gerst f Parfs. ,,Ég held aö mér hafi
bara leiðst svo mikiö f París aö ég keypti mér sígarettukarton og byrjaði aö reykja. Og
þaö undarlega viö þetta allt saman var aö ég byrjaði ekki á neinu fikti heldur varö strax
háö sígarettum. En ég er ákveðin f aö hætta áöur en ég verö þrítug," segir Elma Lísa —
sjálfsagt til þess aö friða samviskuna.
Heimsins besti kjúklingur
N
Iú ætla ég að vera góð með
mig og gefa ykkur uppskrift
að rétti sem mér finnst hvorki
meira né minna en sá albesti
sem ég hef nokkru sinni
smakkað. Þó að ég hafi engan
einkarétt á þessari uppskrift
fremur en öðrum líður mér
samt, við þessar aðstæður,
eins og ég sé að gefa ykkur
hluta af sjálfri mér; að nú geti
ég ekki lengur grátið ein af
gleði yfir pottunum heima hjá
mér þegar ég elda þennan rétt,
heldur komi aðrir hugsanlega
til með að gera það einnig.
Til eru mýmargar góðir ind-
verskar kjúklingaréttir, og ég
hef eldað þá marga, en þessi
slær öllum við. Jafnvel þó að
ég sé mér þess vel meðvitandi
að smekkur manna sé misjafn
hefur engum, að minnsta kosti
enn þá, boðið við þessum rétti.
Ég er þvert á móti enn þann
dag í dag reglulega minnt á hve
maturinn sem ég bauð vina-
fólki mínu upp á þarna um árið
hafi verið góður. Sum þeirra fá
enn þá vatn í munninn, jafnvel
þótt liðin séu mörg ár síðan ég
bauð upp á þennan rétt í mat-
arboði. Það var, að mig minnir,
fyrir átta árum þegar ég bjó í
lítilii kytru á stúdentagörðun-
um. Þá eldaði ég þennan um-
talaða kjúklingarétt fyrst fyrir
fáeina vini mína. Það var vel að
merkja á þeim árum sem við
háskólastúdentar þurftum ekki
að lepja dauðann úr skel.
Ekki er þar með sagt að ég
hafi ekki eldað kjúklingaréttinn
síðan. Það hef ég oft gert en
þar sem ég hef það fyrir reglu
að elda helst bara einu sinni
hvern rétt ofan í þá gesti sem
ég býð í mat hef ég að sjálf-
sögðu bara einu sinni eldað
uppáhaldsréttinn minn fyrir
þá glöðu gesti sem ég nefndi
hér að ofan.
Mér telst til að í allt hafi ég
eldað kjúklingaréttinn fimm
sinnum í jafn mörgum matar-
boðum. En frá Jyví hann var
síðast á borðum mínum eru
liðin að minnsta kosti tvö ár.
Það kemur ekki til af góðu því
bókin með þessari guðdóm-
legu uppskrift hreinlega gufaði
upp einn góðan veðurdag. Ég
get mér þess til að hún hafi
verið í láni í einhverri álfa-
byggð þessi tvö ár (og vona að
álfarnir hafi notið vel). Svo allt
í einu, fyrir tilviljun og eftir
mikinn söknuð, dúkkaði bókin
upp nánast fyrir framan nefið á
mér nú á dögunum. Að vísu get
ég stundum verið svolítið utan
við mig en ég heid að það geti
ekki verið skýringin í þetta
sinn.
Kjúklingur með fersku dilli
2 bollar hrein jógúrt
2 búnt ferskt dill, fínt saxað
(fæst í Hagkaupi)
4 vorlaukar, skornir í fína
hringi
1 msk. ferskur engifer
1 allt upp í 6 græn chili, eftir
því hvað þið viljið hafa
matinn sterkan
3 msk. sítrónusafi
3 kíló kjúklingabitar, helst
bara bringur og Ieggir
salt
nýmalaður ferskur pipar
5 msk. gænmetisolía
2,5 sm kanilstöng
6 negulnaglar
Hellið úr jógúrtdósunum í
skál og þeytið uns hún verður
létt og rjómakennd.
Blandið vel saman dilli, vor-
lauk, engifer, chili (ég kýs að
hafa sex), sítrónusafa, 1/2 tsk.
af salti og svörtum pipar. Setj-
ið til hliðar.
Takið skinnið af kjúklingn-
um, skerið hvern legg í tvennt
og hverja bringu í fernt.
Kryddið með salti og pipar og
nuddið vel inn í kjötið.
Hitið olíuna í wok-pönnu yf-
ir meðalháum hita. Setjið þá
út í kanilstöngina og negulinn.
Hrærið. Setjið nú út í eins
marga kjúklingabita og þið
komið fyrir án þess að þeir
hrúgist hver ofan á annan.
Brúnið þá á báðum hliðum.
Færið þá upp á disk. Steikið
alla kjúklingabitana með þess-
um hætti.
Setjið nú alla kjúklingabit-
ana aftur á pönnuna ásamt
safanum sem af þeim hefur
runnið og jógúrtkryddblönd-
unni. Blandið vel saman og
látið krauma við lágan hita í
um 20 mínútur undir loki —
eða þar til kjúklingabitarnir
eru orðnir vel mjúkir. Hrærið
reglulega í en þó ekki of oft
því betra er að hafa lokið sem
mest á svo bragðið haldi sér.
Hér má reyndar stöðva elda-
mennskuna í bili og hita mat-
inn upp áður en hann er bor-
inn fram en ef hlé er ekki gert
hækkið þá hitann og látið
krauma vel í smátíma. Ekki of
lengi því sósan á að vera
þykk.
PS: Eins og glöggt má sjá af
uppskriftinni er hún ekki bara
best heldur hæfir hún hvaða
mergrunarfíkli sem er. Ég hef
ekki enn þá reiknað út kalor-
íurnar en þær geta ekki verið
margar.
Hrísgijón með gulrót, rúsín-
um og sesamfræjum
2 bollar brún basmati-hrís-
grjón
2 msk. grænmetisolía
2,5 sm kanilstöng
1/2 tsk. sesamfræ
1 msk. góðar rúsínur
1 rifin gulrót
1/4 tsk. turmeric
1 tsk.salt
Til þess að hrísgrjónin lím-
ist ekki saman þarf að þvo þau
vel og helst láta þau liggja í
vatni í 30 mínútur. Þurrkið
þau svo vel eftir það. Hitið nú
olíu í potti yfir meðalhita. Þeg-
ar olían er orðin heit setjið í
þessari röð og hrærið á milli:
sesamfræin, rúsínurnar, hrís-
grjónin, gulrótina, turmericið
og saltið. Þegar allt er komið í
pottinn hrærið þá í honum í
eina til tvær mínútur og lækk-
ið svo hitann. Hellið því næst
yfir rúmlega tveimur bollum
af vatni. Lokið pottinum vel
og hafið hitann mjög lágan.
Látið léttmalla í 25 mínútur.
Takið hann þá af hellunni og
látið hrísgrjónin standa í lok-
uðum pottinum í 5 mínútur.
Þau eiga að vera þétt undir
tönn. Með þessu er eiginlega
nauðsynlegt að bera fram vel
kælda jógúrtsósu, einkum ef
þið farið að mínu ráði og notið
6 cilipiparaldin. Nan-brauð,
helst með smávegis hvítlauks-
smjöri, er svo nauðsynlegt
með öllum indverskum mat en
eins og ég hef margsinnis bent
á áður fæst indverskt Nan-mix
tilbúið í pökkum; blanda sem
slær flestum sams konar
uppskritum við. Það er því
óþarfi að maka allt út í hveiti
heima hjá sér.
Skál!
Guðrún Kristjánsdóttir
vín vikunnar
Mögnuð Blóð-María
Einn besti þynnkudrykkur sem
s
■sögur fara af er blanda sem
kennd er við Blóð-Maríu, drottn-
ingu Englands sem uppi var um
miðja sextándu öld. Hann er ekki
ýkja sterkur I alkóhólprósentum
taliö, að minnsta kosti ekki upp-
skriftin hér að neöan (en úr því
má að sjálfsögðu bæta). Drykkur
þessi rífur hins vegar vel í enda í
honum kryddtegundir á borð við
piparrótarmauk, það sama og er
ómissandi með sushi-réttum. Það
er því ekki bara áfengið sem rétt-
ir mann við heldur ætti tómat-
safablandan að hjálpa líkaman-
um við að svitna út uppsöfnuðum
eiturgufum. Svona burtséð frá því
er Blóð-María frábær fordrykkur
en þó fer ekki saman að bjóöa
upp á Blóð-Maríu og svo einhvern
forrétt því þessi blanda er ansi
saðsöm.
Tómatblandan
1,25 1 tómatsafi
Um 25 skvettur af Worcesters-
hire-sósu
10 skvettur af Tabasco-sósu
4 tsk. piparrótarmauk (fæst í
Heilsuhúsinu)
3 til 4 tsk. lime- eða sftrónusafi
(lime er betra)
1 og 1/2 tsk. ristuð og möluð
kúmínfræ
sellerísalt, eftir smekk
nýmalaður pipar
Einnig er þörf á
3 msk. vodka í hvert glas, má
vera meira en ekki mikið meira
sellerístilkum
Blandið vel saman, helst í mix-
ara, tómatdjús, Worcestershire-
sðsu, Tabasco-sósu, limesafa,
piparrótarmauki, kúmínfræjum,
sellerísalti og pipar. Kælið í ís-
skáp í minnst klukkustund svo að
kryddbragðiö komi vel fram. Þeg-
ar þið berið fram, setjiö þá vodk-
að í glas og blandið saman við
um hálfum bolla af blöndunni.
Fyllið upp með ísmolum. Látið að
lokum sellerístilk út í.