Helgarpósturinn - 29.08.1996, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST1996
sálma erum við að tala um
mjög stór nöfn. Menn eru
ánægðir með hvernig við tök-
um á móti þeim og slíkt spyrst
fljótt út.“
Eru Oasismenn vœntanleg-
ir á nœstunni; hafa einhverj-
ar viðrœður átt sér stað?
„Við höfum rætt við þá, já,
en það er á algjöru frumstigi."
Nú er það ekkert launung-
armál að það er ansi dýrt að
fá svona hljómsveitir til
landsins. Þurfa ekki um 50.
000 manns að mæta á tónleik-
ana til þess að þeir borgi sig?
Hvemig samninga gerið þið
við þessa menn?
„Menn hafa verið skilnings-
„Annar hver maður
þekkir Damon og
partí sem Damon er
ekki væntanlegur í er
alveg út úr kortinu.
Allir sem ég hef talað
við þekkja hann og
eru góðir kunningjar
hans.“
sér. Tíu mínútum eftir að ljós-
in voru kveikt eftir tónleika
Pulp voru allir farnir úr Höll-
inni. Allir sem standa að og
koma að tónleikahaldi á ís-
landi eru sannfærðir um að
þetta sé hið eina rétta.“
„Um 99% þessara
krakka eru komin
til að skemmta sér“
Með þessu fœrð þú vœnt-
anlega foreldra unglinga á
þitt band og þeir munu
flykkjast á svceðið.
„Það fylgir því herjans mikil
ábyrgð að pumpa 5000 ung-
lingum niður í miðbæ klukkan
ellefu um kvöid um helgi og ég
vil ekki vera ábyrgur fyrir því.
Um 99% þessara krakka eru
komin til að skemmta sér,
dansa og syngja en það þarf
ekki nema 10 einstaklinga
með stæla og leiðindi til að
skapa þessa „aggressjón" sem
vill myndast á tónleikum.
Þetta eina prósent viljum við
ekki í húsið.“
Þú ert búinn að tala fjálg-
lega um að ekki verði nein
drykkja á tónleikunum en er
það ekki óvinnandi verk að
breyta íslenskum skemmt-
anasiðum ogdrykkjusiðum?
„Þessi drykkju,,menning“
byrjaði náttúrlega þegar fólk
var að fara á ball í gamla daga
og mátti ekki fara með áfengi
með sér inn. Þá sturtaði það í
sig áður en það fór inn og af-
ganginn vitum við. Þetta er
hins vegar tímaskekkja."
Toppar Blur Pulp?
Verður ekki erfitt fyrir
Blur-menn að fylgja eftir
feikigóðum tónleikum Pulp?
Gera þeir betur?
„Þeir vita vel að tónleikar
Pulp voru mjög vel heppnaðir
en miðað við þann metnað
sem þeir leggja í tónleikana
ina. Jet Black skipa Gunnar
Bjarni (sá eini sem er eftir úr
Jet Black Joe), Móeiður Júní-
usdóttir og eineggja tvíbura-
bræður Móu, þeir Gulli og
Kiddi Júníussynir. Uppselt er
á tónleikana þannig að hinir
fyrirhyggjulausu sitja eftir
með sárt ennið nema þeir nái í
miða hjá svartamarkaðsbrösk-
urum.
„Damon
kynni af honum segja mér að í
honum sé ekki til hroki og hið
sama má segja um Pulparana.
Ég hef unnið með mörgum
böndum en án efa eru þessir
piltar ásamt Pulpurum þeir
rólegustu í tíðinni. Það var til
dæmis með ólíkindum hve
mikla þolinmæði Darnon
sýndi íslenskum aðdáendum
sínum þegar hann var að
árita „The Great Escape“ í
Kringlunni. Gert hafði verið
ráð fyrir því að taka á móti
um 100-200 manns en um 700
manns mættu og það var
ótrúlegt hversu þolinmóður
hann var að skrifa á alla þá
pappírsbleðla sem að honum
voru réttir, auk allra remb-
ingskossanna sem á hann var
smellt. Þessu tók hann með
stóískri ró. Maðurinn gerir
sér fulla grein fyrir því að
hann er mjög frægur, fólk vill
vita alit um hann og ef það
veit ekki þó bara býr það til.“
ríkir. Við eigum náttúrlega ekki
stærra hús til hljómleikahalds
en Laugardalshöllina og hún
rúmar e'kki nema um 5000
manns.“
„The neutral spot“
„Þetta snýst kannski meira
um það að í augum þessara
poppara er ísland ,,cult“ í dag.
Blur-menn komu hér saman og
náðu vel saman að nýju, voru
að upplifa gamla stemningu.
Damon kallar þetta „The
neutral spot“. Þess utan þá lát-
um við þeim líða vel.“
Hvað meinarðu? Ferðu
með þá í Baðhúsið til Lindu
eða hvað?
„Nei, ekki enn þá. Hér fá þeir
meira og minna að vera í friði.
Maturinn er góður, náttúran
falleg, vatnið tært, loftið og allt
það. Allir þessir menn búa í
London og eru óvanir því að
slappa af eins og þeir gera hér.
Þeir ná að slaka á hér.“
Sérðu fyrir þér að ísland
nái álíka vinsœldum og
franska Rívíeran, Aspen og
Mónakó sem sumardvalar-
staður stórstirna?
„Af hverju ekki vetrardvalar-
staður? Ég segi eins og Damon
sagði við mig: „Þess verður
ekki langt að bíða að ísland
verði aðal ,,cult“-staður tón-
listarmanna. Ég sé það alveg
fyrir mér. Ég held að við getum
haldið stórkostlega tónleika
hér og hátíðir án þess að til
komi öll þessi geðveiki,
drykkja, dóp, hnífstungur, höf-
uðkúpubrot og nauðganir.
Oasis hélt 250 þúsund manna
tónleika í Knebworth fyrir
skömmu. Þar voru 10 teknir;
einn fyrir að sparka í hlið og
hinir vegna ryskinga á lestar-
stöðinni. Ég fer ekki ofan af því
að þetta er vel hægt. Markað-
urinn og tækifærin eru fyrir
hendi.“
Þarf ekki marga til að
eyðileggja fína stemningu
Þið sem standið að Blur-
tónleikunum œtlið að leggja
ykkar lóð á vogarskálina,
ekki satt?
„Jú, ég hef leitað ráða hjá
Berki Skúlasyni hjá forvarna-
deild lögreglunnar um þessi
mál og niðurstöðurnar eru
eftirfarandi: Tónleikarnir
verða haldnir á sunnudegi í
stað föstudags eða laugar-
dags. Við byjum snemma, sjö
um kvöldið, og þetta verður
búið klukkan tíu. Það verður
gífurlega gott eftirlit. Reynsl-
an sýnir okkur að það borgar
sig að hafa tónleikana
snemma; það gekk vel á bæði
Bjarkar- og Bowie- tónleikun-
um. Pulp-tónleikarnir stóðu
frá klukkan átta til ellefu og
það tókst líka vel. Við slupp-
um algerlega við fyllirí og eng-
ar skemmdir urðu á húsnæð-
inu. Það var ekki einu sinni
brotinn gluggi og þeir hjá ÍTR
sögðust ekki hafa séð tónleika
fara betur fram hérlendis. Við
ætlum að ganga enn lengra
núna. Tónleikarnir verða frá
sjö til tíu, aldurstakmarkið
verður 13 ár og ölvun ógildir
miðann. Sé fólk undir áhrifum
vímuefna eða ölvað verður
því vísað úr húsi eða meinað-
ur aðgangur. Svo einfalt er
það. Þrátt fyrir mikla gæslu
þá ekki mikið til að gera allt
vitlaust. Það þarf ekki nema 5
eða 10 manns til að eyðileggja
þetta skemmtilega andrúms-
loft. Fólk er komið til að
dansa og syngja og skemmta
held ég að þeir verði ekki
síðri. Þeir koma með fimm
,,session“-leikara með sér og
ekkert verður til sparað. Ég
hef ekki séð Blur á tónleikum,
þannig að ég get ekki borið
sveitirnar saman, en ég get þó
lofað góðum tónleikum í Höll-
inni þann 8. september."
Það verða svo Jet Black og
SSSól sem hita upp fyrir dýrð-
mer...
Þau teiti sem haldin hafa
verið í sumar án þess að
von væri á söngvara Blur hafa
verið heldur ómerkileg. Frá
því að kappinn var uppgötv-
aður á Café au Lait snemm-
sumars hefur hann verið víð-
förull og oftar en ekki verið í
þetta þremur til fjórum part-
íum samtímis. ísienskir ung-
lingar, sem og eilífðarungling-
ar, hafa allir haft tal af goðinu
og rætt ýmis mál við það.
Reyndar virðist sem milli
Damons og alimargra fslend-
inga ríki sérstakt trúnaðar-
samband og hundruð ef ekki
þúsundir íslenskra meyja
hafa símanúmerið hjá hon-
um. Það er engin stelpa með
stelpum nema hafa sængað
hjá kappanum. Greinarhöf-
undur virðist vera einn ör-
fárra íslendinga sem ekki hafa
verið í teiti með Damoni og
það upplýsist hér með að ég
varðveiti heldur ekki síma-
númerið hans. „Allir sem ég
hef talað við þekkja hann og
eru góðir vinir hans, hafa far-
ið í partí meþ honum og svo
framvegis." Ég spurði Denna
hvernig strákarnir í Blur
væru og Denni spurði mig
glottandi hvort ég þekkti
hann ekki vel persónulega. Sá
sem hefur haft af meðlimum
Blur nokkur kynni og ætti að
vera einna dómbærastur á
persónuleika jteirra er auðvit-
að Denni sjálfur. Hann segir
þá vera ósköp þægilega í um-
gengni og iausa við stór-
mennskuæði sem oft vill ein-
kenna stjörnur af þessari
stærðargráðu. „Damon er
mjög ljúfur og skemmtilegur.
Hann er húmoristi og mín
T T •
„UXl,
hvað?“
Þií varst fenginn af for-
ráðamönnum Uxa til að
vera mótsstjóri á Uxa 95,
hátíð sem var tekin aflífi í
fjölmiðlum. Þar fór margt
miður. Ertu ekki bara
reynslunni ríkari og þar af
leiðandi hœfari til að
skipuleggja stórtónleika á
við Blur- tónleikana?
„Ég reyndi að tryggja mig
eins vei og ég gat á Uxa með
því að ráða 6 fíkniefnalög-
reglumenn, 2 rannsóknariög-
reglumenn, 50 lögregluþjóna
og annað eins af Væringjum
auk fjölda björgunarsveitar-
manna. Við vorum með
iækna og hjúkrunarkonur,
þrjár Stígamótakonur,
slökkvilið, slökkvibíl og
sjúkrabíl. Við vorum með 200
manna gæslulið á þessari há-
tfð og í stakk búnir til að taka
við 10-15 þúsund manns. Öfl-
ugri gæslu er vart hægt að
hugsa sér. Að vísu komu upp
7 eða 10 fíkniefnamál sem er
7 eða 10 málum of mikið. Við
sluppum blessunarlega við
nauðganir, alvarleg slagsmál
og meiðsli.“
Eru fíkniefni, slagsmál og
nauðganir nauðsynlegir
fylgifiskar tónleika og ann-
arra viðburða þarsem mik-
ill fjöldi unglinga kemur
saman?
„Það held ég ekki. Uxa-há-
tíðina sem tónlistarhátíð var
búið að dæma áður en hún
hófst. Það sést best ef menn
horfa á rólegheita fjöiskyidu-
hátíð eins og Halló Akureyri
að það er ekki tónlistinni að
kenna að allt fer til fjandans.
Það þurfti ekki teknó-tónlist
til að allt færi úr böndunum
fyrir norðan. Reyndar hef ég
heyrt ávæning af því að
ástandið á Haiió Akureyri hafi
verið bein afleiðing af Uxa.
Það er náttúrlega alger firra
að setja samasemmerki þarna
á milli; að segja Uxa vera und-
anfara Halió Akureyri. Er
þetta ekki bara allt foreldrum
okkar — sem voru í Saltvík '68
og bruddu sýru og reyktu
iiass — að kenna. Og ég spyr:
Gerir fólk sér grein fyrir því
að það er drukkið helmingi
meira af áfengi um jólin held-
ur en um verslunarmanna-
helgi? Þetta er jólunum að
kenna. Er ekki málið að leggja
jólin niður? Ég segi bara líxi,
hvað? Það hefur enginn reynt
að mæla Uxa bót en hátíðin
fór ekki jafn illa fram og ætla
mætti af blaðaskrifum fyrir og
eftir hátíðina."