Helgarpósturinn - 29.08.1996, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST1996
21
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMl 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Spöng — miðsvæði í Borgarholti
Deiliskipulag miðsvæðis í Borgarholti - Spöng - er til kynningar í sýningar-
sal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa á 1. hæð í Borgartúni 3, alla virka
daga kl. 9-16, og stendur til 26. september nk.
Þórjón: Það deyja fleiri af því að fá golfkúlu í hausinn en stökkva í fallhlíf...
Golf hættulegra
en fallhlífarstökk
að er til orðatiltæki sem hljóðar
einhvern veginn svona: Aðeins
fallhlífarstökkvarar vita af hverju fugl-
arsyngja,“ segir Þóijón Pétur Péturs-
son, fallhlífarstökkskennari og annar
eigandi Fallhlífarstökkskólans, en
hann er einn reyndasti fallhlífar-
stökkvari landsins og á að baki rúm-
lega fimmtán hundruð fallhlífarstökk.
„Það er trúlega ekki hægt að komast
nær því að fljúga eins og fugl og í fall-
hlífarstökki. Flestir hafa átt þann
draum að svífa á skýi. Frjálsa fallið er
nákvæmlega það. Tilfinningin er alveg
ótrúleg og ekki hægt að lýsa henni.
Fólk verður bara að upplifa hana. Ég
hef enn þá mjög gaman af að stökkva
þótt ég hafi verið í þessu lengi. Að
vísu eru þetta oft hálfgerð skyldu-
stökk, til að mynda stökk með nem-
endur, farþegastökk, sýningarstökk
og því um líkt. Ég hef stokkið um tvö
hundruð sinnum í ár en aðeins fjögur
stökk fyrir sjálfan mig. Ég dauðöfunda
ykkur af því að vera að fara fyrsta
stökkið. 011 spennan, hræðslan og
adrenalínkikkið í fyrsta stökkinu.
Þetta er eitthvað sem maður upplifir
ekki oft á lífsleiðinni.
Dauðaslys afar fátíð
Fallhlífarstökk hefur átt vaxandi
vinsældum að fagna hér á landi síð-
ustu ár og, að sögn Þórjóns, hafa nem-
endur aldrei verið jafnmargir og í ár.
„Árið 1992 voru um tuttugu virkir fall-
hlífarstökkvarar í Reykjavík. í dag er-
um við um fimmtíu og farið að verða
erfitt að komast að í flugvélinni okkar
því svo margir vilja stökkva.
Fallhlífarstökk hættulegt? Nei, nei,
blessaður vertu. Ég sá einhvern tím-
ann tölfræði um hættur í íþróttum.
Þar var sagt að hættulegra væri að
spila golf heldur en að stökkva í fall-
hlíf. Það deyja víst fleiri af því að fá
golfkúlur í hausinn heldur en að
stökkva út úr flugvél. Talið er að
dauðaslys verði í einu af hverju
hundrað þúsund stökkum. En fallhlíf-
arstökk er hættulegt ef maður er ekki
vakandi, og ef til vill hættulegra fyrir
reynda fallhlífarstökkvara því þeir
eiga frekar á hættu að gleyma varúð-
arráðstöfunum. Eru orðnir of rútín-
eraðir. Slysin í fallhlífarstökki verða
oftast í lendingu og það eru byrjendur
sem lenda oftast í þannig slysum.
Menn lenda ekki rétt, koma til dæmis
inn í miklum bremsum. Venjulega eru
þau slys ekki alvarleg, tognanir og því
um líkt. En þegar vanur stökkvari
klikkar er það venjulega _mjög alvar-
legt slys eða dauðaslys. Ég hef, eins
og ég sagði áðan, stokkið um fimmtán
hundruð sinnum og aðeins einu sinni
lent í vandræðum. Ég var í farþega-
stökki. Það er að segja konan mín,
ófrísk, var farþegi hjá mér. Aðalfall-
hlífin flæktist. Ég losaði hana bara af
okkur og opnaði varafallhlífina.
Veðurskilyrðin hér á landi eru ekki
alltaf upp á sitt besta til fallhlífa-
stökks en við stökkvum venjulega frá
apríl og fram í október-nóvember. Á
veturna fljúga evrópskir fallhlífar-
stökkvarar, eins og farfuglarnir, til
Flórída sem má segja að sé okkar
stökksvæði á veturna. Síðustu fimm
ár höfum við farið með nemendur til
Flórída um páskana og kennt þeim
þar í svokallaðri einkaþjálfun í frjálsu
falli. Páskarnir er góður tími til að
læra fallhlífarstökk því menn koma
beint heim í vorið eftir námið og geta
síðan verið að stökkva allt sumarið.
Fallhlífarstökk er ekki dýrt sport. Ef
maður er eins og kanína allt sumarið,
upp í flugvél og niður í fallhlíf, alltaf
stökkvandi, kostar það um hundrað
þúsund krónurnar. Það er svipað og
tveir góðir dagar í lcixveiðiá. Það kost-
ar um hundrað þúsund krónur að
læra. Fallhlíf kostar frá fimmtíu til
þrjú hundruð þúsund krónur. Eftir
það er kostnaðurinn við fallhlífar-
stökk ekki mikill. Ekki nema maður sé
með annan fótinn stöðugt í Flórída,“
segir Þórjón og hlær.
Fallhlífarstökkskólinn hefur haldið
stutt námskeið fyrir byrjendur í fall-
hlífarstökki í sumar og mun halda því
áfram eitthvað fram á haust. „Við
skorum á þá sem hafa áhuga og þora
að hafa samband við okkur og prófa
fallhlífarstökk. Við ábyrgjumst að það
verði með því ógleymanlegasta sem
viðkomandi á eftir að upplifa í lífi
sínu,“ segir Þórjón fallhlífarstökks-
kennari að lokum.
Brúðarmyndatökur
Litur og svart/hvítt
Myndaalbúm með 12 stk. 13x18 cm
Innifalin ein stækkun í 24x30 cm
Tilboðsverð í ágúst og september kr. 18.000.-
Kristján Sigurðsson ljósmyndari
HUGSKOT h/f
Nethyl 2, 110 Reykjavík
sími 587-8044
NÝ STJÖRNUSPÁ
Á HVERJUM DEGI
hvaö ber dagurinn
í skauti sér?
S P Á S í M I N N
904 1414
39.90 mínútan
Brandara
hvernig hljómar þú á brandaralinunm?
þú getur bæði hlegiö aö gríni annarra
og lesið inn þitt eigið grín!
segið gamansögur
904 1030
39.90 mínútan