Helgarpósturinn - 29.08.1996, Side 22
22
\
RMMTUDAGUR 29. AGUST1996
Yngsti
:"V V.'
kvikmyndaframleiðandinn
í Hollywood
Hver sem er fær ekki að
prýða forsíðu hins virta og
útbreidda tímarits Vanity Fair.
Þeir sem sá heiður hlotnast
þurfa að hafa eitthvað meira
en lítið til brunns að bera;
verða að vera orðnir nokkurs
konar ofurstjörnur á Holly-
wood-mælikvarða eða eiga að
minnsta kosti stutt í land með
það. Forsíðu nýjasta heftis
Vanity Fair prýðir nýstirnið Al-
icia Silverstone. Hún komst
fyrst í stjörnuklúbb Holly-
wood-leikara eftir frábæran
leik sinn í kvikmyndinni „Clue-
less“ sem þýdd var upp á ís-
lensku Glórulaus. Þess má geta
að hugmyndin að þeirri mynd
er að nokkru byggð á sögu
Jane Austin, Emmu.
Að dómi margra kom þessi
græneyga, mjólkurhvíta 19 ára
leikkona þar til skila einhverri
yndislegustu týpu sem lengi
hefur sést á tjaldinu; persónu
sem er svo upptekin af því að
vera góð við aðra að hún
gleymir að vera góð við sjálfa
sig.
Glórulaus er þó fjarri því
fyrsta myndin sem Alicia leik-
ur í því um þessar mundir er
hún stödd í þriðja sinn á sex
árum í Vancouver í Kanada við
upptökur á kvikmyndinni Exc-
ess Baggage. Ekki nóg með að
hún fari þar með aðalhlutverk-
ið heldur er hún einnig fram-
leiðandi myndarinnar og þar
með orðin yngsti kvikmynda-
framleiðandi sem sögur fara af
í Hollywood.
Tilboðin streymdu inn eftir
frammistöðuna í Clueless og
nýverið þáði Alicia boð um að
leika Batgirl fyrir litlar 1,5 millj-
ónir dollara í næstu Batman-
mynd á móti George Clooney
úr Bráðavaktinni og Umu
Thurman.
Ferill Aliciu fyrir framan
Ungstirnið í Hollywood,
Alicia Silverstone, er aðeins
19 ára og hefur þegið boð
um að leika Batgirl í
næstu Batman-mynd.
myndavélina hófst þegar hún
var aðeins átta ára en þá var
það faðir hennar sem fór hönd-
um um vélina og vildi gera úr
stúlkunni fyrirsætu. Ekki löngu
síðar fór hún að fá verkefni fyr-
ir ekki ómerkari vörumerki en
YSL og Levi’s. En fljótt komst
hún að því að fyrirsætustarfið
átti ekki við hana. Fjórum ár-
um síðar, eða 12 ára, fór hún í
leiklistartíma og þar fann hún
sig. Og aðeins 14 ára var hún
komin til Hollywood.
Fyrir þá sem þær upplýsing-
ar vilja má geta þess að Alicia
er ekki á föstu. Ástæðuna segir
hún vera þá að enginn bjóði
sér út.
Michael Caine er
i ilaK orðinii eig-
amli fíiiiiii mat-
sölustaða sem
lialila Iioiiiiiii i
tcilgsluiii við
veujulegt fólk.
- Matarást Michaels Caines
Það kemur ósjaldan fyrir að
fólk sem skyndilega stekkur
upp á stjörnuhimininn endi
innilokað í fílabeinsturni og
missi þar með öll tengsl við það
sem er að gerast hjá venjulegu
fólki. Um þetta var breski
stjörnuleikarinn Michael Caine
sér vel meðvitandi þegar hann
varð stjarna á einni nóttu fyrir
25 árum. Til þess að missa ekki
jarðtenginguna ákvað hann að
finna leið til þess að geta um-
gengist venjulegt fólk og varð
niðurstaðan sú, eftir umhugs-
un, að fjárfesta í veitingastað
enda leikarinn mikill áhuga-
maður um mat. „Sem mikill
sælkeri hef ég borðað á öllum
toppveitingastöðum um allan
heim svo að opnun eigin veit-
ingahúss hafði því jafnframt
með eitt af mínum aðaláhuga-
málum að gera,“ sagði sælker-
inn á dögunum í samtali við
breskt tímarit.
í fyrstu keypti Michael Caine
lítinn hlut í mörgum litlum mat-
sölustöðum og komst svo
smátt og smátt að því að veit-
ingabransinn átti vel við hann.
Það leið því ekki á löngu þar til
hann fór að gera sig breiðan
þar sem annars staðar.
,,Eins undarlega og það kann
að hljóma er ein meginástæðan
fyrir |iví að ég ákvað að beina
aukakröftum mínum að veit-
ingarekstri sú að mér finnst
margt líkt með sjóbissnes og
veitingahúsarekstri. Þegar
frumsýndar eru kvikmyndir
eða leikrit eða opnaður mat-
sölustaður vakna sömu spurn-
ingarnar: Gengur dæmið upp?
Mætir einhver? Líkar fólki? Mun
reksturinn standa undir sér?“
Michael segist hafa sérstakan
áhuga á vel matreiddu fiskmeti
um þessar mundir. „Þar sem
faðir minn starfaði alla tíð á
fiskmarkaði er ég svo að segja
alinn upp á fiski en var vægast
sagt orðinn þreyttur á fisklykt-
inni á unglingsárunum; svo
mjög að í lengi vel fékk ég haus-
verk við tilhugsunina um fisk.“
Þess í stað borðaði hann kjöt
í nánast hvert mál. Shakira eig-
inkona hans, sem er indversk,
borðar mikið af fiski en lítur
ekki við kjöti og þess vegna seg-
ist Michael smátt og smátt hafa
lært að meta fisk á ný, reyndar
öðruvísi matreiddan en bara
steiktan og soðinn eins og hann
hafi verið alinn upp á. Eins og
gefur að skilja er mikið snætt af
indverskum mat á heimili
þeirra hjóna; alls konar karr-
íréttum og ekki síst góðu og vel
matreiddu grænmeti. Uppá-
haldshráefni Michaels þessa
dagana er mismunandi eldað
og kryddað eggaldin. „Við hjón-
in lifum á mjög hollri fæðu. Það
er ástæðan fyrir því að við eig-
um aldrei í vandræðum með
líkamsþyngd okkar og kennum
okkur aldrei meins.“
Michel segir að þrátt fyrir að
hann sé frábær amatör í eld-
húsinu láti hann öðrum eftir að
sjá um eldhúsin á veitingahús-
um í hans eigu sem nú eru orð-
in fimm talsins. Það eru The
Canteen, Langan’s, Langan’s
Brassiere, Odin’s and Shep-
herd’s og sá fimmti verður opn-
aður í Miami í haust.
Upphálds veitingastaður leik-
arans og konu hans um þessar
mundir er The Canteen sem er
við hlið Chelsea Harbour,
skammt frá heimili þeirra í
London. Þar snæða þau reglu-
lega tvisvar til þrisvar í viku.
Svo að ef einhverjir íslendingar
vilja freista þess að hitta einn
besta leikara nútímans þegar
þeir eiga leið um London vita
þeir hvert halda skal.
Trainspotting
Undir verulegum áhrifum
Þótt kvikmyndin Train-
spotting þyki með frum-
legustu kvikmyndum ársins
hafa glöggir menn greint eitt
og annað í þeirri mynd sem
þykir svipa til þess sem áður
hefur verið gert í kvikmynda-
heiminum. Þarna sannast
enn og aftur hið fornkveðna
að ekkert er nýtt undir sól-
inni. Hér koma tíu dæmi um
það:
Trainspotting
ljHvernig aöalleikarinn er
kynntur i upphafi.
2)Hinn snarbilaði síkópati
Robert Carlye (annar frá
vinstri) kúgar vini sína til
hlýðni.
3)Mikil alúö lögð við þaö
að sýna í smáatriðum þá
athöfn að sprauta sig
með heróíni.
4)Renton lokaður inni í
herbergi þar sem hann er
látinn kljást við fráhvarfs-
einkenni eiturlyfjaneysl-
5)Renton neglir fýrir dyrn-
ar á meðan hann er að
láta renna af sér til þess
aö foröast utanaökom-
andi áhrif (eiturlyfin).
6)Strákagengið á flótta
undan æstum spæjurum
um götur Edinborgar.
7)Veggirnir á diskótekinu
skreyttir hvítum stöfum í
anda þess sem sást víða
um og upp úr 1970. Tak-
ið eftir orðinu ,,voloko“.
8)Spud og Tommy í
hrókasamræðum undir
dynjandi tónlist á disk-
ótekinu.
9)A meðan Renton er í af-
eitruninni sér hann fyrir
sér látið barn sem skríður
í loftinu og snýr höfðinu í
hringi.
10)í upptalningunni í lok
myndarinnar kemur á
skjáinn svart/hvít stilli-
mynd við gervileg tónlist í
anda sjöunda áratugarins
sem samin er af Damon
Albarn í Blur.
Aðrar og eldri myndir
l)Mean Streets (Martin
Scorsese)
Hvernig aðalleikarinn er
kynntur í upphafi.
2)GoodFellas (Martin Scors-
ese)
Hinn snarbilaöi síkópati Joe
Pesci kúgar vini sína til
hlýðni.
3)Drugstore Cowboy (Gus
Van Sant)
Athöfnin að sprauta sig
meö lyfi er upphafin af mik-
illi nákvæmni.
4) The Man with the Golden
Arm (Otto Preminger)
Herófnfíkillinn Frank Sinatra
lokaður inni í íbúð þar sem
hann er látinn takast á við
fráhvarfseinkenni eiturlyfj-
anna.
5) The Knack...and How to
Get it (Richard Lester)
Micheal Crawford lokar
sjálfan sig inni til þess að
forðast utanaðkomandi
óþægileg áhrif (kynlíf).
6)A Hard Day's Night (Ri-
chard Lester)
Bítlarnir á flótta undan æst-
um aðdáendum um götur
London.
7)A Clockwork Orange
(Stanlay Kubrick)
Veggirnir á Korova ísbúðinni
með hvítum sixties-stöfum.
Takið eftir oröinu ,,mo-
loko“.
8) Twin Peaks: Fire Walk
with Me (David Lynch)
Laura Palmer, Ronette Pu-
laski og Jacques Renault í
hrókasamræðum undir
dynjandi diskótónlist (eitur-
lyf voru inntakið).
9) The Exorcist (William Fri-
edkin)
Undir djöfullegum áhrifum
snýr Linda Blair höfði sínu í
hringi.
10)Alfie (Lewis Gilbert)
Svart/hvítri mynd af aöal-
leikaranum stillt upp þegar
nafnalistinn rennur í gegn -
undir upprunalegum sam-
tímatónum Sonnys Rollins.