Helgarpósturinn - 29.08.1996, Blaðsíða 23
FlMIVmiDAGUR 29. ÁGÚST1996
„Þeir sem vora í 16 manna hópn-
um á sunnudaginn áttu það allir
skilið."
Lúlli og Nökkvi
hættir í ÍBV?
E^aö vakti athygli aö hvorki Nökkvi
Sveins né Lúili Jónasar voru í hópi
ÍBV fyrir bikarúrslitaleikinn gegn ÍA. f staö
þeirra var 18 ára gutti sem ekki hefur spil-
aö einn einasta deildarieik í hóitnum, eini
varnarmaöurinn á varamannabe'kknum.
Undirrituðum hefur borist til eyma aö
Nðkkvl og Lúlli séu hættir meö ÍBV og þvi
var haft samband viö Atia Eðvalds til aö fá
fregnina staöfesta.
..Bjöm hefur staöiö sig svo vel að hann
átti þetta skiliö. Hann var þúinn aö standa
sig betur en hinir. Ef þeir eru ánægöir meö
sína frammistöðu í sumar þá þeir um þaö
en þessir sextán sem voru í hópnum á
sunnudaginn áttu þaö allir skilið."
En eru Lúlli og Nökkvi hœttir?
,,Ég veit þaö ekki, ég hef ekki heyrt frá
þeim. Þeir mættu ekki á æfingu á mánu-
daginn og ég veit þaö eitt aö Lúllí er í bæn-
um þannig aö ég get ekki sagt neitt um
þaö. Ég get ekki verið aö hringia í menn og
spyrja þá af hverju þeir mæti ekkí á æf-
ingu," sagði Atli. Þaö er því líklegt að hörg-
ull veröi á vamarmönnum f Vestmannaeyj-
um á næstunni. En eins og menn muna
spilaði Atli sjálfur I fyrra og ef mikiö veröur
um meiösl er aldrei aö vita nema hann taki
fram skóna og sýni Hólsgenginu hvernig á
aö spila vörn.
„Ekki-brotið“var
fyrir utan teig!
^að er kannski aö bera í bakkafullan
”lækinn aö fjalla um bikarúrslitaleik-
inn en ég læt mig hafa það. Stemningin
á veilinum var mjög góö og stuðnings-
menn beggja liöa voru til fyrirmyndar.
Áhorfendur fengu fullmikia athygli press-
unnar aö mati Gylfa Orrasonar sem
greinilega fannst hann vera afskiptur.
Ekki veit ég hvernig ööruvísi er hægt aö
útskýra af hverju hann gaf !a víti. Adolf
Ingi, sem réttilega hefur fengiö orö í
eyra hjá mér í sumar, fær rós í hnappa-
gatið fyrir aö sýna í sjónvarpsfréttum síö-
astliðiö þriöjudagskvöld aö „meint" brot
var fyrir utan teig. Húrra Adolf. Reyndar
sagöist Adolf ekki vilja segja til um hvort
um brot hefði verið aö ræöa en sýndi og
sannaöi meö hjálp myndavélar, sem var
staösett gegnt vítateigslínu. aö umrætt
atvik geröist fyrlr utan teig. Vafasamur
dómur? Vafasamur! Hallóóó, er ekki ailt
í lagi? Þaö er grátlegt aö fjölmiðlar skuli
ekki lengur hafa sjálfstæöar skoðanir;
annaö hvort finnst mönnum að víta-
spyrnudómurinn hafi veriö réttmætur
eöa ekki. Því ber aö fagna aö í þaö
minnsta einn íþróttafréttamaður segir
það sem honum finnst.
Dómarar og línuveröir (ó, fyrirgefiö —
aöstoöardómarar) vernda knattspyrnu-
menn gegn Ijótum brotum, halda uppi aga
innan vallar og sjá til þess aö reglum
leiksins sé fylgt. Án dómara væri knatt-
spyrnan ekki til. Dómurum veröa oft á
mistök, stundum afdrifarik. Eftir aö lands-
menn eru búnir aö sjá atvikiö umtalaöa í
sjónvarpi margoft eru langflestir sammála
um aö dómurinn hafi veriö rangur. Þetta
hljóta dómari leiksins, Gylfi, og EgiU Már
línuvöröur aö sjá núna. Egill gaf Gylfa
merki um aö meint brot heföi verið innan
teigs. Sami línuvöröur flaggaöi rangstöðu
á Tryggva í upphafi leiks og þaö sést á
sjónvarpsupptökum að hann er ekki rang-
stæöur. En þaö er víst ekki fordæmi fyrir
því aö dómarastéttin afsaki sig á einn
eða annan hátt. Ég segi fyrir mig: þetta
var ekki víti og ef Haralilur Ingólfs er
vanur aö detta ef fluga sest á bakið á
honum þá á hann erfiöa ævi fyrir hönd-
um. Þaö getur vel verið aö Frikki Sæ-
bjöms hafi „stutt" á bak Haraldi en ég
dreg í efa aö þaö hafi veriö jafn hraust-
lega gert og Haraldur vill vera láta. Hafi
Frikki ýtt þá er mér fyrirmunað aö skilja
hvemig Gylfi gat séö þetta. Annars dettur
mér ekki I hug aö taka neitt frá Skaga-
mönnum; þeir unnu leikinn og eru meö
sterkara lið en ÍBV.
Stjömumenn of góðir fyrir jójó-mglið
— Þegar enn eru eftir 5 umferðir er Stjarnan með 18 stig í fjórða sæti deildarinnar og
möguleikarnir á Evrópusæti allgóðir
Stjarnan hefur í gegnum tíð-
ina verið háifgert jójó-lið.
Það hefur ýmist verið á toppi
annarrar deildar eða á botni
þeirrar fyrstu. Mönnum ber
saman um að Stjörnumenn hafi
í gegnum tíðina spilað ágætis-
fótbolta enda hafa spilað með
þeim góðir knattspyrnumenn á
borð við Áraa Sveins, Láras
Guðmunds.Togga Þráins og
Sveinbjörn Hákonar, að
ógleymdum fyrrum atvinnu-
manni hjá Raufoss, Valgeiri
Baldurs. Stjörnumenn, sem
virðast úr allri fallhættu, gætu
vel tekið upp á því að tapa
næstu Ieikjum og jafnvel falla.
Það er þó fjarlægur möguleiki
og liðið er alltof gott til þess.
Það veikir liðið talsvert að
krafta Kidda Lár og Ómars Sig-
tryggs nýtur ekki lengur við
þar sem þeir eru farnir utan til
náms. Það veikir hóp Stjörn-
unnar enn frekar en hann er
ekki alltof breiður fyrir.
Öldruð vörn en
engu að síður öflug
Stjarnan leikur 4-5-1 sem
sjaldan eða aldrei breytist í 4-
3-3. Fyrrum landsliðsmark-
vörðurinn Bjami Sig ver mark
Stjörnunnar og er enn einn af
betri línumarkmönnum á land-
inu. Hann er sterkur einn á
móti einum en hann mætir
manninum tiltölulega seint.
Veikleiki Bjarna er án efa
hversu staður hann er á lín-
unni. Hann er ekki nægilega
duglegur að hirða fyrirgjafir og
hann er af þeirri kynslóð mark-
manna sem eiga ekkert sérlega
gott með að koma boltanum í
spil eftir að hafa fengið send-
ingu frá varnarmanni. Bjarni
hefur engu að síður átt ágætt
tímabil hjá Stjörnunni. Varnar-
menn Stjörnunnar eru iðulega
fjórir. Lestrarhesturinn Helgi
Björgvins er svíper Stjörnunn-
ar og les leikinn vel. Hann er
ekki sá fljótasti í boltanum en
er fastur fyrir og staðsetur sig
mjög vel. Fyrrum fyrirliði HK,
Reynir Bjömsson, er einn af
nýliðum ársins í deildinni.
Hann hefur spilað fyrir framan
Helga í vörninni. Reynir er góð-
ur skallamaður og eldsnöggur.
Þá er hann mjög góður tækl-
ari.Hemmi Ara og Heimir Er-
Iings hafa verið bakvarðapar
Stjörnunnar og staðið sig
ágætlega. Birgir Sigfússon hef-
ur spilað til skiptis á kantinum
og í vörninni og skilað sínu
hlutverki með sóma. Eðlilega
reyna Stjörnumenn að byggja
spil í kringum bakverðina og
að mínu viti mættu þeir nota
þá meira í sókninni.
Baldur ojg Valdi í
sérflokki á miðjunni
Að öðrum ólöstuðum eru
Baldur Bjarna og Valdi Krist-
ófers búnir að spila einna
best Stjörnumanna. Reyndar
fer því fjarri að Baldur sé sér-
lega slyngur varnarmaður. Þó
hefur honum farið mikið fram
á síðastliðnu ári í varnarhlut-
verkinu. Hann er þeirra öflug-
asti sóknarmaður en er á
Ingólfur Ingólfsson, meiðslagemsi
Stjörnumanna númer eitt, hefur
kornið sterkur inn og skorað mikil-
væg mörk.
stundum fullgjarn á að klappa
boltanum. Það er mikið gleði-
efni fyrir aðdáendur Stjörn-
unnar (sem reyndar eru
skammarlega fáir og hryllilega
slappir) að Valdi hefur verið
nokkurn veginn heill í sumar.
(Reyndar er ekki víst að hann
verði með í kvöld en hann hef-
ur náð að vera með í ótrúlega
mörgum leikjum í sumar.)
Valdi er að spila sitt besta
tímabil í mörg ár. Þá er ótal-
inn annar meiðslagemsi, Ing-
ólfur Ingólfs, sem virðist loks-
ins vera að ná sér en hann hef-
ur ekki spilað heilt keppnis-
tímabil síðan í 5. flokki. Það
sama gildir um Bigga og Ingó;
þeir hafa verið meiddir eða í
liðinu á víxl og það er lykilat-
riði að þeir verði heilir í loka-
umferðunum — ekki er hópur-
inn svo breiður.
róttir
Sigurður
Ágústsson
Hættunni bægt frá Stjörnumarkinu -
Gumma Ben og Hemma Ara.
Goran Micic fær dæmd á sig of
mörg klaufabrot í sókninni. Það er
greinilegt að Stjörnumenn vantar
tvo nýja sentera fyrir næsta ár ef
þeir ætla ekki að slá met Leeds.
Senterapar Leeds er samanlagt 68
ára.
Vantar yfirvegun
Ungu strákarnir á miðjunni
eru þeir Rúni Sigmunds og
Raggi Áma. Rúna var ætlað að
vera akkerið á miðjunni. Sann-
ast sagna hefur það gengið upp
og ofan hjá honum. Hann vant-
ar enn stöðugleika sem leik-
maður. Raggi er eldfljótur
vængmaður með hæfileika til
að taka menn á. Hins vegar
virðist hann stundum vanta
nauðsynlega yfirvegun og hann
er ekki nægilega góður að klára
flærin sín. Þá er ótalinn vara-
maður Gorans, Bjarai Gaukur,
en hann hefur fengið nokkur
mjög góð færi í sumar án þess
að klára þau. Yirleitt hefur
hann spilað frammi eða á
vængnum. Hann er fljótur og
að sinni. Birgir Sigfússon, Himmi Hollywood, Bjarni Sig og í baksýn glittir í
Aldrei sama liðið
Störnumenn, sem hafa lengi
haft þann stimpil á sér að vera
óttalegir pabbastrákar virðast
vera að reka af sér slyðruorð-
ið. Doddi „Ferguson“ virðist
vera að gera góða hluti með
liðið og Starnan er að leika
nokkuð jafna leiki. Það stend-
ur þeim þó fyrir þrifum að
þeir hafa varla stillt upp sama
liðinu tvo leiki í röð. Jójó-
stimpillinn fer að detta af
þeim ef svo fer fram sem horf-
ir. Liðið er nokkuð massíft;
vörnin er öflug en á miðjuna
vantar fleiri markaskorara. Að
manni læðast þær grunsemdir
að félagið sé ekki nægilega vel
rekið og fjöldi áhangenda liðs-
ins er til skammar. Að bæjar-
félagið skuli ekki geta samein-
ast um eitt íþróttafélag er fyr-
ir neðan allar hellur. Hver veit
þó nema að úr rætist þegar
Stjarnan byrjar sitt annað
tímabil í röð í fyrstu deild
næsta vor.
Stjarnan-Leiftur
Liðin í þriðja og fjórða sæti
eigast við í kvöld. Leikurinn er
gríðarlega mikilvægur fyrir
bæði liðin; Stjörnumenn eiga
góða möguleika á Evrópusæt-
inu sem Leiftur situr nú í. Síð-
asti leikur var mikill markal-
eikur, fór 5-3 fyrir heima-
menn. Það vill Stjörnumönn-
um til happs í kvöld að Leift-
ursmenn hafa verið brokk-
gengir í leikjum sínum, sér-
staklega gegn slakari liðum
deildarinnar. Þá mun í kvöld
spila sinn fyrsta deildarleik
gegn gömlum félögum fyrrum
fyrirliði Stjörnunnar, Ragnar
Gíslason.
Hermann Arason hefur spilað vel í
vörn Stjörnunnar en er, eins og
flestir varnarmenn Stjörnunnar,
kominn á „efri ár“.
duglegur en það sama á við um
hann og Ragga og Rúna; það
vantar enn talsvert upp á til að
þeir teljist verulega sterkir
knattspyrnumenn.
„Old-boys“-
kallinn sterkur
Hvort sem menn trú því eða
ekki þá er Goran Micic orðinn
34 ára. Það er ótrúlegt ef taka á
mið af því hve sprækur hann
er. Sannast sagna er Goran
sterkasti senterinn á landinu í
4-5-1 leikkerfi — það sást best í
leik Stjörnunnar og KR þar
sem hann fór illa með fjóra
varnarmenn KR hvað eftir ann-
að. Goran er mjög gráðugur og
skýlir bolta vel; nær þannig oft
að halda boltanum þar til
hjálpin berst. Helsti gallinn við
hann er hversu gjarn hann er á
að brjóta af sér í sókninni.
Skemmtileg umferð
Eftir alllangt hlé byrjar bolt-
inn að rúlla í fyrstu deild í
kvöld. Heil umferð er á dagskrá
og eins og alltaf eru allir Ieikirn-
ir „úrslitaleikir“ og öll lið ætla
að leika til „sigurs“. Hvað um
það. Stórleikur umferðarinnar
verður á Stjörnuvellinum þar
sem Stjarnan tekur á móti
Leiftri. Þarna eigast við liðin í
3ja og 4ða sæti deildarinnar og
nú fer hver að verða síðastur
að tryggja sér Evrópusæti.
Leiftursmenn, sem hafa ekki
verið nægilega stöðugir í sínum
leik, vita vel að það er krafa Ól-
afsfirðinga að standa sig og
tryggja Evrópusætið þannig að
pressan á þeim verður tals-
verð. Leikmenn liðsins eru allir
leikreyndir og ættu að þola
pressuna vel. Stjörnurnar í
Stjörnunni geta mætt afslapp-
aðir til leiks enda er þetta í
fyrsta skipti í langan tíma sem
liðið er ekki í fallbaráttu.
Spurningin er hvort menn þar
á bæ eru nægilega gráðugir til
að tryggja sér almennilegt sæti.
Blikarnir þurfa að fara upp á
Skaga að etja kappi við ÍA og
munu reyna að fylgja eftir góð-
um úrslitum gegn KR. Þrátt fyr-
ir að Siggi Donna, Pálmi Har-
alds og „sóknarbakvörðurinn“
Teddi Hervars séu öllum hnút-
um kunnugir á Skaganum er
óvíst hvort það dugar til.
Skagamenn ætla sér áreiðan-
lega að sýna að bikarmeistara-
titillinn var verðskuldaður og
að það hafi verið rétt ákvörð-
un hjá þeim að láta Bíbi fara.
Addi Grétars, sem nýlega
missti landsliðssæti sitt, hefur
allt að sanna og berst nú í
bökkum með samherjum sín-
um í Breiðabliki og hver veit
nema að Blikum takist að
leggja Skagann og KR með 10
daga millibili. Róðurinn verður
þungur fyrir Blika en þó hjálp-
ar það þeim að Skagamenn
hafa átt verulega annríkt að
undanförnu en Blikar verið í
fríi.
Ætli Keflvíkingar sér að tolla
uppi verða þeir að fara að taka
sér tak og „bíta“ betur frá sér.
Það er stutt í næstu lið - - mikið
rétt — en það er líka stutt eftir
af mótinu. Valsarar eru, eins og
ansi mörg lið, í bullandi séns á
að komast í Evrópukeppnina.
Það er að verða mesta spennan
að sjá hvaða lið hreppir Evr-
ópusæti. Bæði lið hafa fengið
dágóða hvíld og ættu því að
koma fersk til leiks. Það er ekki
líklegt að mörg mörk líti dags-
ins ljós í Keflavík í kvöld. Liðin
eru þekkt fyrir góðan varnar-
leik og slakan sóknarleik þann-
ig að útkoman ætti ekki að
verða ótölulegur fjöldi marka.
Valsmenn hafa einungis fengið
á sig 16 mörk en liðin hafa skor-
að jafnmörg kvikindi, 12 talsins.
Hvernig sem leikurinn fer verð-
ur væntanlega eitthvað um
bókanir.
KR-ingar verða að vinna
Ætli KR-ingar að láta draum-
inn rætast og vinna íslands-
meistaratitilinn verða þeir að
vinna Fylki í kvöld. Svo einfalt
er það. Skagamenn eru ekki
líklegir til að tapa mörgum
stigum það sem eftir lifir móts
og ekkert er fjær þeim en að
gefa Vesturbæingum snemm-
búna jólagjöf. Þetta vita KR-
ingar og væntanlega mun ein-
hvers taugatitrings gæta í her-
búðum þeirra. KR- ingar hafa
hins vegar verið að spila mjög
vel og gjörsigruðu Mozyr fyrir
skömmu þannig að egóið ætti
að vera í góðu lagi. Fylkis-
menn eru hins vegar á mikilli
siglingu og hefur gengið
þokkalega eftir að nýr þjálfari
tók við. Auk þess hefur Bjarki
Péturs hleypt lífi í leik liðsins.
Þá eru og teikn á lofti um að
markamaskínan Kiddi Tomm
sé að vakna til lífsins og það
munar um minna. KR-ingar á
heimavelli, með Gumma,
Heimi og Einsa, eru þó mun
sigurstranglegri.
Vonsviknir Vestmannaeying-
ar munu væntanlega eiga fullt í
fangi með að ná sér á strik eftir
ófarirnar í Eyjum. Atla bíður
það verðuga verkefni að koma
mönnum á tærnar því Grind-
víkingar eru sýnd veiði en ekki
gefin. Til að vinna leikinn þurfa
Lundarnir að stoppa Mr.
Torfason og Zoran; þeir bera
liðið uppi og eru illviðráðan-
legir. Með sigri myndu Grind-
víkingar fjarlægjast botninn en
tap þýðir að þeir eru komnir í
fallpakkann. Að sama skapi
þýðir ósigur ÍBV að draumur-
inn um Evrópusæti er úti og þá
lætur Hólsgengið væntanlega í
sér heyra svo um munar. Það
væru npkkurs konar sárabæt-
ur fyrir ÍBV að vinna leikinn en
salt í sárin að tapa. Annars er
ekkert víst að leikurinn fari
fram í kvöld vegna þess að það
er ófært til Alcatraz annan
hvern dag og ég man ekki
hvort það var ófært í gær eða
fyrradag.