Helgarpósturinn - 29.08.1996, Qupperneq 24
I
I
I
HELGARPÓSTURINN
29. ÁGÚST 1996 34. TBL. 3. ÁRG. VERÐ 250 KR.
Slagurinn á bjórmarkaði er harður og ekkert
gefið eftir. Hér er á markaði hollenskur bjór
sem nefnist Grolsch og ku hafa náð nokkurri fót-
festu á markaðnum enda vinsæll drykkur í Hol-
landi þar sem Tslenskir ferðalangar hafa komist á
bragðið. Það var Ingi Björn Albertsson sem
hafði umboð fyrir Grolschinn en nú hefur verið skipt um um-
boðsmann og Eggert ísfeld tekið við umboðinu. Menn úr bjór-
heiminum halda því fram að Ingi Björn hafi verið sviptur
Grolsch-umboðinu. Verksmiðjan í Hollandi hafi sent honum
nokkrar birgðir af fríum bjór til að kynna mjöðinn. Síðan hafi
sölustjóri komið að utan til að kanna hvernig kynningarstarfið
hafi gengið en þá komið í Ijós að Ingi Björn hafði selt giafabjór-
inn í stað þess að gefa hann...
Nýtt tímarit hefur hafið göngu sína og nefnist það Óðs
manns æði. Fram kemur að blaðinu er ætlað að vera
„traustasta verja ríkisstjórnarinnar“ og gefa „kröftuga leysandi
verkun'L Efni blaðsins er allt á léttu nótunum og má ætla að
með þessari útgáfu sé hafin enn ein tilraunin til að gefa út
tímarit í anda Spegilsins sáluga. Útgefandi er Gulltanni ehf. en
bak við það fyrirtæki leynist Jón Daníelsson, blaðamaður með
meiru, sem búsettur er á Tannastöðum í Hrútafirði...
Akureyringar halda upp á afmæli bæjarins í dag og ýmislegt
er á dagskrá í tilefni dagsins. Til dæmis verður Dagur lagður
niðurtil hátíðabrigða en auk þess verður Götuleikhús bæjarins
með afmælisboð á Ráðhústorgi. Það verður hins vegar engin
Halló Akureyri stemning í því boði. Gestum oggangandi veröur
boðið upp á vínarbrauð frá Kristjánsbakaríi og mjólk frá KEA...
Eftir ítarlega skoðun hefur Jóhann G. Berg-
þórsson ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar í
heild sinni dómi Héraðsdóms Reykjaness þar
sem hann var dæmdur til að greiða fjórar miiljónir
króna í sekt eða sæta fangelsi ella. Jóhann segir
slíka sekt á hendur einstaklingi jaðra við skuldafangelsi. Jó-
hann telur að freklega hafi verið brotin á sér jafnræðisregla og
dómurinn hljóti að vera brot á almennum mannréttindum.
Hann hefur enn fremur falið lögmanni sínum aö kanna ýmis-
legt í umfjöllun um mál hans í kjölfar dómsins með hliðsjón af
lögum um ærumeiðingar...
Loksins geta kexætur hér á landi fengið hið þekkta banda-
riska Nabisko kex til að maula. Þetta er kexið sem allir
bandariskir kexarar halda upp á og er svona álíka þjóðarréttur
þar og Prins Polo hér á landi. Það er enginn annar en Rolf Jo-
hansen stórkaupmaður sem hefur umboðið fyrir Nabisko hér á
landi. Alltaf er Rolf jafn seigur að næla T þ.ær vörur sem selj-
ast...
Askriftargjald að Stöð 2 hækkar um 5% um mánaðamótin án
þess að hækkunin hafi verið auglýst. Magnús Kristjáns-
son, markaösstjóri íslenska útvarpsfélagsins, segir í Moggan-
um að þeir sem greiði með greiðslukorti fái hækkunina endur-
greidda hafi þeir ekki gert sér Ijóst að gjaldið hækkaði. Þessi
yfirlýsing vekur furðu margra í Ijósi þess að áskriftargjaldið fell-
ur ekki í gjalddaga fyrr en í næstu viku. Nú þurfa korthafar að
halda því vandlega leyndu að þeir lesi Morgunblaðið til að geta
fengið hækkunina endurgreidda...
IBorgarleikhúsinu er hafnar æfingar á banda-
ríska gamanleikritinu Svánurinn og verður verk-
ið frumsýnt á litla sviðinu þegar kemur fram í okt-
óber. Það er engin önnur en María Ellingsen
sem fer með aðalhlutverkið en aðrir leikendur eru
Björn Ingi Hihnarsson og Ingvar E. Sigurðsson. Leikstjóri
Svansins er Kevin Kuhlke, aðalleiðbeinandi Experimental
Theater Wing við New York háskóla...
Austurstræti 3 • Suðurlandsbraut 46 • Miðbær • Kaupvangsstræti
v/Faxafen Hafnarfirði Akureyri
«subwry*
Vönduð vinna unnin aðeins af fagmönnum!
FULLKOMINN SPRAUTUKLEFI OG LAKKBÖKUN
slkkens
BÍLALÖKK
ÞJÓNUSTUAÐILI FYRIR <S8> TOYOTA
Nýbýlavegi 10
200 Kópavogi
554 2510
RETTINqfíR
AUÐUNS
Svokallaðar Bessastaðabækur Alþýðublaðsins hafa vakið
misjöfn viðbrögð meöal áskrifenda blaðsins — sem eru að
vísu ekki margir. Um er að ræða uppdiktaðar dagbókarfærslur
herra Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og fer höfundur oft á
kostum í gamansömum skrifum. Einhverjir áskrifendur munu
hafa sagt upp blaðinu, þar sem þeir þola ekki að verið sé að
gera grín að forsetanum og forsetafrúnni, en nokkrir nýir áskrif-
endur hafa fyllt upp í skörðin. Ýmsar getgátur eru á lofti um
hver sé höfundur Bessastaöabóka. Sumir telja að það sé
Hrafn Jökuisson ritstjóri, aðrir hafa Össur Skarphéðinsson
grunaðan um skrifin. Einnig hafa verið nefnd nöfn þeirra Guð-
rúnar Pétursdóttur, fyrrum forsetaframbjóðanda, Sighvats
Björgvinssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar en Jón
sver af sér bækurnar. Nágrannar Alþýðublaðsins hafa hins veg-
ar hvíslað því að HP að Gunnar Smárí Egilsson þlaöamaður
hafi aö undanförnu gert sér tíðförult á fund Hrafns ritstjóra...
Talaðu við okkur um
BÍLARÉTTINGAR
SóLON ISLANDUS
CBiWlWliiH