Helgarpósturinn - 26.09.1996, Síða 16

Helgarpósturinn - 26.09.1996, Síða 16
FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER1996 16 ammmm * IIP ID4 ★ Geimverur ráðast á jörðina og náttúrulega reka Ameríkán- ar þær á brott. Misheppnuð endurgerð á Innrásinni frá Mars eftir H.G. Wells. And- laust brelluævintýri svo fullt af þjóðrembu að ekki einu sinni Oliver Stone hefði getað bjarg- að nokkru. Einungis fyrir tölvufíkla. Twister ★ Veðurfræðingar að elta felli- byli. Þunnur söguþráður og slöpp ieikstjórn drepa spenn- una í þessari. Álíka misheppn- uð og ID4 en með flottari brell- um. Eraser ★ ★ ril be back! John Kruger fær það verkefni að passa upp á vitni að ólöglegri vopnasölu. Tvö eða þrjú góð atriði. Mynd sem maður fer á bara til þess að sjá Amold. Phenomenon ★ ★ ★ Travolta var flottari í Pulp Fiction. Myndin fjallar um stóra hluti, líf og dauða, en sleppir öllu tæknirugli og ein- beitir sér að sögunni sjálfri. Kemur vel út og er þess virði að sjá. Chain Reaction ★ i Keanu Reeves er álíka feitur og Balti I Djöflaeyjunni og Morgan Freeman leikur fram- hald af William Somerset í Se- ven. Algjört kjaftæði og leik- stjóranum liggur svo á að koma sér úr innganginum yfir í söguna að maður getur ekki annað en hlegið. Happy Gilmore ★ ★ ★ i El þú hefur heyrt um Adam Sandler þá veistu alveg hvern- ig mynd þetta er. Ef ekki, búðu þig þá undir alveg brilljant vit- lausa mynd, lélega útfærslu á fáránlegu handriti. Þú hlærð þig til Jótlands og markmiðinu er náð. Jerúsalem ★ ★ ★ ★ Vissulega er det en nordisk film, en vá! Jerúsalem er mynd sem hefur allt: spennu, drama & rómantík, húmor og umfram allt; Bille August í leikstjóra- stólnum. Max von Sydow er loksins í góðu hlutverki og Maria Bonnevie alltaf sæt. Verðlaunagetraun Helgarpóstsins, Máls og menningar og íslensku kvikmyndasamsteypunnar Eftir viku verður Djöflaeyjan, íslenska stórmyndin sem öll þjóðin bíður eftir, frumsýnd í þremur bíóum. Myndin er gerð eftir vinsæl- ustu bókum sem gefnar hafa verið út á íslandi síðari ár. Sögur Einars Kárasonar um lífið í Thulekampi, sem Mál og menning gaf út á síðasta áratug, náðu fáheyrðum vinsældum. Yfir 45.000 eintök af bókunum hafa selst fram til dagsins í dag. Dýrasta íslenska kvikmyndin til þessa Upptökur Djöflaeyjunnar fóru fram síðastliðinn vetur og vor í braggahverfi sem byggt var fyrir myndina vestast á Seltjarnarnesi. Er þetta braggahverfi stærsta og dýrasta leikmynd sem gerð hefur verið á íslandi. Framleiðsla myndarinnar hefur staðið yfir í þrjú ár og kostað eitt hundrað og sjötíu milljónir króna. Þú hefur tækifæri til þess að vinna þér inn glæsileg verðlaun ef þú svarar öllum spurningunum hér að neðan rétt. ->■8- Hvers vegna bjó fólk í bröggum? □ 1 Það þótti hlýrra í bröggum en öðrum húsa- kynnum □ 2 Fólk var þar í sóttkví vegna lúsafaraldursins mikla á árunum eftir stríð. □ 3 Vegna húsnæðiseklu í Reykjavík eftir stríð Hver er útgefandi bóka Einars Kárasonar um fólkið í Thulekampi? □ 1 Fámenna bókafélagið □ 2 Mál og menning □ 3 íslenska kvikmyndasamsteypan Nafn____________________________________________ Heimilisfang ----------------------------------- Vinningar: 150 miöar á fslensku stórmyndina Djöflaeyjuna, ÍO stórbækur Einars Kárasonar og ÍO áskriftir aö HP. Klippið svarseðilinn út og skilið honum fyrir þriðjudaginn 1. október á skrifstofu Helgarpóstsins, Borgartúni 27,105 Rvk. Nöfn vinningshafa verða birt í næsta Helgarpósti. Hver er leikstjóri kvikmyndarinnar „Djöflaeyjan“? □ 1 Friðrik Þór Friðriksson □ 2 Einar Kárason □ 3 Baltasar Kormákur Hvað hafa bækur Einars Kárasonar um fólkið í Thulekampi selst í mörgum eintökum? □ 1 45.000 □ 2 25.000 □ 3 35.000 Hvað kostaði gerð kvikmyndarinnar „Djöflaeyjan“? □ 1 17 þúsund kr. □ 2 17 milljónir kr. □ 3 170 milljónir kr. BtfflKmyndir Ari Eldjárn Verri leikstjórí en leikarí Aðalleikendur: Jean-Claude VanDamme, Roger Moore og Janet Gunn Leikstjóm: Jean-Claude Van Damme Kvikmyndin The Quest er frumraun Van Damme sem leikstjóra og finnst mér myndin sýna að hann sé verri leikstjóri en leikari (ef slíkt er mögulegt). Hið fárán- lega handrit myndarinnar snýst um einhvers konar keppni bestu slagsmálamanna í heimi og verðlaunin í henni: Gulldrenginn góða. Van Damme byrjar myndina sem einhvers konar „Hrói höttur í stórborg“ þar sem hann er konungur klókra krakka sem eru leikin í alls konar þjófnaði. Náttúrulega er hann meist- ari í bardagalist (sem er hálf- fyndið því að samkvæmt sögu- manni lærir hann ekkert í þeim efnum fyrr en seinna í mynd- inni) og sú list á eftir að reyn- ast honum vel seinna meir. Nógu um það. Þá víkjum við sögunni að gömlum vini okkar, Roger Moore. Aumingja Roger virðist ekki geta gert upp við sig hvort hann eigi að vera James Bond með skegg eða lúmskur svikahrappur sem er erfitt að líka illa við. Allaveg- ana reynir hann hvort tveggja og það er hálffyndið að sjá tæplega sjötugan mann láta reyna á alla gömlu Bond-takt- ana sína: Vindillinn góði, hið fræga augnaráð hans og verst af öllu: „Dobbs... Lord Dobbs“. Satt best að segja beið ég bara eftir að heyra: „Shaken... not stirred!" — það hefði verið öllu frumlegra. Svo er þarna leikkona sem ég hef aldrei áð- ur heyrt 'getið, Janet nokkur Gunn, og er hún álíka léleg og hinir leikararnir, bara betur út- lítandi. Hinn svokallaði há- punktur myndarinnar er hvorki meira né minna en hálf bíómyndin og eins og við mátti búast þá er hann jafn óspennandi og hann er ófrum- legur. Það fyndna við hann er þó hvernig þeir skapa útlit fyr- ir hverja þjóð, það er einstak- lega fáránlegt. Japaninn er náttúrulega súmó-kappi, Kín- verjinn karatesnillingur, Skot- inn er í skotapilsi!!! (manni dettur það nú í hug að slags- málamaður myndi ekki hafa komist svona langt í skota- pilsi) og Spánverjinn er sá fá- ránlegasti af öllu. Alltaf með einhverjar flamengó-hreyfing- ar og fáránlegar tilfæringar, það eina sem hann vantaði var gítar og rós í munninn, þar með væru sérkennin öll upp talin... Olé! Niðurstaða: The Quest er vond mynd sem er of dýr mið- að við gæði. Hún hefði kannski betur notið sín í Jackie Chan- stílnum: Einföld, ódýr og léleg.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.