Helgarpósturinn - 07.11.1996, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 07.11.1996, Blaðsíða 2
mm RMIVmJDAGUR 7. NÓVEMBER1996 RÚV tekur upp Stórhöföasvítuna í staðinn fyrir Galdra-Loft „Kannt þú eitthvert lag eftir Árna Johnsen — spyr Jón Ásgeirsson tónskáld Eg hafði fengið vilyrði fyrir því hjá útvarpsstjóra að RÚV tæki óperuna Galdra-Loft upp fyrir útvarp, en þeirri ákvörðun var hnekkt. Guð- mundur Emilsson, tónlistar- ráðunautur útvarpsins, ákvað þess í stað að taka upp Stór- höfðasvítuna eftir Áma John- sen,“ sagði Jón Ásgeirsson tónskáld, sem var undrandi á ákvörðun tónlistarráðunautar- ins. Að sögn Jóns vekur þessi ákvörðun ennfremur furðu vegna þess að Sinfóníuhljóm- sveitin kann Galdra-Loft til hlít- ar, en óperan var frumflutt á Listahátíð síðastliðið sumar. Hljómsveitin hefur hins vegar átt í erfiðleikum með að æfa Stórhöfðasvítuna, einkum vegna þess hvað^ tíminn var knappur sem RÚV hafði til upptökunnar. Jón hefur verið afkastamikill lagahöfundur í gegnum árin og fjölmörg laga hans notið mik- illa vinsælda meðal almenn- ings. Nægir þar að nefna Maí- stjörnuna, sem hvert íslenskt mannsbarn kann. Óperan Galdra-Loftur fékk afbragðsviðtökur síðastliðið sumar en Stórhöfðasvítan hef- ur hins vegar legið á borði Sin- fóníunnar í mörg ár, þar til hún var tekin til æfinga nú fyrir skemmstu. Það er því von að Jón sé undrandi á að RÚV skuli ekki vilja taka upp Galdra-Loft eftir að Sinfónían hafði eytt ómældum tíma í að æfa verkið og hann spurði blaðamann: „Kanntu kannski eitthvert lag eftir Árna Johnsen?" Nei, blaðamaður kunni ekk- ert lag eftir Árna. Jón Ásgeirsson furðar sig á þeirri ákvörðun að Stórhöfðasvíta Áma Johnsen skuli hafa verið tekin framyfir óperuna Galdra- Loft. Um fátt hefurverið meira rætt undanfarna daga en fréttaflutning Stöðvar 2 af meintu áfengisvandamáli þjóðgarðsvarðarins á Þingvöllum. Margir eru þeirrar skoðunar að leggja megi þennan nýstárlega og „kven-niðrandi“ fréttaflutning að jöfnu við að farið verði að flytja fréttir af framhjáhaldi fólks. Stöð 2 með Hönnu Maríu í sigtmu „Flytjum fleiri fréttir af Hönnu Maríu ef tilefni gefst til“ - segir Sigmundur Ernir Rúnarsson. varafréttastjóri Stöðvar 2 HP var bent á að það hefði aldrei þótt fréttnæmt þó að mun hærra settir embættismenn en Hanna María Péturs- dóttir hefðu gerst „sekir“ um fyllerí á þingum erlendis, hvað þá á Alþingi íslendinga. Fréttaflutningur Stöðvar 2 af meintu áfengisvandamáli séra Hönnu Maríu Pétursdótt- ur, þjóðgarðsvarðar á Þingvöll- um, sem hnýtt var aftan við frétt um afsögn hennar úr emb- ætti í síðustu viku, hefur orðið mörgum umhugsunarefni. Eru langflestir ef ekki allir sem lýst hafa skoðun sinni á þessu máli á opinberum vettvangi á einu máli um það að þarna hafi verið farið yfir hina fínu línu sem sker á milli opinbers lífs og einkalífs. Varð þessi fréttaflutningur til að mynda landsfundarfulltrú- um Kvennalistans um helgina tilefni ályktunar þess efnis að: Fjölmiðlar eiga að stuðla að gagnrýnni lýðrœðislegri umrœðu og veita nauðsynlegt aðhald, jafnframt því að virða einkalíf fólks og mannhelgi. „Þetta er svo hræðilegt mál að maður á vart orð yfir það. Ég minnist þess ekki að það hafi nokkru sinni verið fjallað svona um nokkurn einstakling hér á landi. Jafnvel þó að það sé stað- reynd að margir fulltrúar þjóð- arinnar og forstjórar — sem síðan hafa verið sendir á Free- port eða Vog — hafi verið velt- andi um á fylleríum hefur það aldrei áður þótt efni í frétta- mál,“ segir Kristín Ástgeirs- dóttir, þingkona Kvennalista, sem tekur undir það sjónarmið sem bæði Ulugi Jökulsson, pistlahöfundur á Rás 2, og fleiri hafa velt upp, að hér skipti sú staðreynd sköpum að embætt- ismaðurinn er kona sem liggur vel við höggi. „Urmull heimilda“ Sigmundur Ernir Rúnars- son, varafréttastjóri Stöðvar 2, sem var á vakt daginn sem fréttin fór í loftið, heldur því hins vegar fram að þeir sem gagnrýna fréttaflutning þennan á forsendum kynjamisréttis séu hreint ekki í takt við jafnrétti- sumræðuna. Aðspurður hvað lægi að baki því að Stöð 2 sá ástæðu til að að segja frá meintu áfengisvandamáli Hönnu Maríu og hvort rétt væri að Stöð 2 væri að kanna málið frekar svaraði Sigmundur því til að þar kæmu að sjálfsögðu til þeirra heimildir. „Við erum með slíkan urmul heimilda á bak við þessa frétt að í sjálfu sér væri það efni í mikinn og langvarandi fréttaflutning, en við ætlum að láta hér við sitja nema tilefni gefist til. Við töld- um okkur fara jafnmjúklega í málið og mögulegt var á þeim tíma sem fréttin var sögð,“ svaraði Sigmundur. Sagði hann fréttina af afsögn Hönnu Maríu síður en svo byggða á rýmra fréttamati Stöðvar 2 en áður; fréttin væri fullkomlega í takt við fréttamat- ið hingað til. Nefndi hann máli sínu til stuðnings fréttina af Davíð Oddssyni og Bermúda- skálinni. Bæði Kristín Ástgeirsdóttir og Ragnhildur Vigfúsdóttir, fyrrverandi ritstýra Veru og jafnréttisfulltrúi Akureyrarbæj- ar, sem vakti máls á þessari frétt á kvennafundinum í Nor- ræna húsinu sl. föstudags- kvöld, eru á öndverðum meiði við Sigmund og segja engan rökstuðning að baki fréttinni þar sem hvergi hafi verið vakið máls á henni áður, auk þess sem lítið hafi borið á Hönnu Maríu í fjölmiðlum. „Ég tel að þetta hafi með tvennt að gera,“ segir Ragnhildur. „Það er auð- séð að búið er að gefa út veiði- leyfi á Þjóðkirkjuna og alla þjóna hennar og að auki er einnig búið að gefa út veiðileyfi á konur. Trekk í trekk er verið að rakka niður konur og kvennabaráttu. Nýleg dæmi um það eru dónaskapur Elínar Hirst á landsfundi Kvennalist- ans og viðtal Hrafns Jökulsson- ar við Kristínu Ástgeirsdóttur í Dagsljósi á þriðjudagskvöld. Kvenprestur þýðir því tvöfald- ur blóraböggull." Mannorðsmorð Sigmundur Ernir leggur mál Hönnu Maríu að jöfnu við Ber- múdaskál Davíðs Oddssonar og segir að auki að sú stað- reynd skipti miklu að Hanna María skipar eitt virðulegasta embætti Þjóðkirkjunnar á helg- asta stað þjóðarinnar, sem lað- ar til sín fleiri ferðamenn en nokkur annar staður. En þarna finnst mörgum ólíku saman að jafna; Bermúdaskálin hafi ver- ið í beinni útsendingu en frétt- in af Hönnu Maríu komið órök- studd þegar hún var búin að segja af sér. Einn viðmælenda HP benti jafnframt á að það hefði aldrei þótt fréttnæmt þó að mun hærra settir embættis- menn en Hanna María hefðu gerst „sekir“ um fyllerí á þing- um erlendis, hvað þá á Alþingi íslendinga. „Það er eitt þegar opinber- lega kjörnir fulltrúar koma fram fyrir hönd lands síns blindfullir, eins og fór ekki á milli mála með Borís Jeltsín þegar hann skandalíseraði, og annað þegar þeir detta í það heima hjá sér eða þar sem það skaðar ekki starf þeirra. Þarna sker á milli opinbers lífs og einkalífs," segir Kristín og bæt- ir því að fréttaflutningur þessi jafnist siðferðislega á við að segja hver haldi framhjá hverj- um. Frétt þessi kom eins og köld vatnsgusa framan í marga, ekki síst Hönnu Maríu sjálfa, eins og hún lýsti í Degi-Tímanum á dögunum, og vonast flestir til þess að fleiri „mannorðsmorð" af svipuðum toga verði ekki framin. Á áðurnefndum fundi í Nor- ræna húsinu á föstudag spurði einmitt Ragnhildur Vigfúsdótt- ir Elínu Hirst, fyrrverandi fréttastjóra Stöðvar 2, hvort hún hefði sagt frá meintri áfengissýki þjóðgarðsvarðar- ins, en hún svaraði því neit- andi. _gk Gert ráð fyrir að Elín Hirst taki við af Boga Ágústssyni á fréttastofu Sj ónvarps Elín Hirst, fýrrverandi fréttastjóri Stöövar 2, er líklegur eftirmaöur Boga Agústssonar, fréttastjóra Rík- issjónvarpsins, en Bogi mun hækka í tign og verður framkvæmdastjóri sjónvarpsins. Uppsögn Elínar Hirst á Stöð 2 var áfall fyrir valdahóp- inn í kringum Davíð Oddsson forsætisráðherra og náinn sam- starfsmaður Davíðs og vinur El- ínar, Hannes Hólmsteinn Giss- urarson, hefur ekki legið á þeirri skoðun sinni að ótækt sé að við svo búið standi. Málefni Ríkissjónvarpsins heyra undir Björn Bjarnason menntamálaráðherra, en Björn er sá ráðherra sem Davíð treystir best. Til að Elín Hirst fái framgang í stöðu Boga þarf að hliðra til í toppembættum hjá Ríkisútvarpinu og víðar. Heimir Steinsson útvarps- stjóri er meðal umsækjenda um stöðu þjóðgarðsvarðar á Þing- völlum, en Hanna María Pét- ursdóttir er hætt sem þjóð- garðsvörður. Menntamálaráð- herra skipar í stöðu þjóðgarð- svarðar og Björn Bjárnason lagði sitt lóð á vogarskálarnar til að Hanna María segði úþþ störfum, m.a. með því að gagn- rýna frammistöðu hennar opin- berlega. Heimir Steinsson hefur ekki þótt hafa náð tökum á starfi út- varpsstjóra og umsókn hans um Þingvallaflutning er stað- festing á því að hann telji full- reynt í Efstaleiti. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur mann til að taka við stöðu Heimis og það er Pétur Guðfinnsson, fram- kvæmdastjóri sjónvarps. Þegar Hrafn Gunnlaugsson, vinur og skjólstæðingur Davíðs Odds- sonar, þurfti að komast í topp- embætti hjá RÚV til að jafna sakir við þá sem flæmdu hann burt úr stöðu innlends dag- skrárstjóra hittist svo á að Pét- ur hafði sótt um leyfi og þar með var rúm fyrir Hrafn. A sín- um tíma sótti Pétur um starf út- varpsstjóra en þáverandi menntamálaráðherra Sjálfstæð- isflokksins, Ólafur G. Einars- son, véitti Héimi stöðuna. Verði Pétur útvarpsstjóri er hægt að bjóða Boga stóí fram- kvæmdastjóra sjónvarps. Sam- starf Boga og Elínar var með ágætum þegar hún gegndi stöðu fréttastjóra Stöðvar 2 en fréttastofurnar sameinuðu krafta sína undir sérstökum kringumstæðum, s.s. við kosn- ingar. — Ég hef aldrei litið á starf fréttastjóra sjónvarps sem ævi- starf. Þetta er lýjandi starf, seg- ir Bogi en bætir við að hann hafi hugsað sér að starfa áfram sem fréttamaður þegar hann hætti starfi fréttastjóra. Þrátt fyrir að valdahópurinn í kringum Davíð Oddsson hafi alla þræði í hendi sér er ekki sjálfsagt að fléttan gangi upp. Bæði er að Sjálfstæðisflokkur- inn brenndi sig á Hrafnsmálinu, enda þótti mörgum sem þar hefði verið stigið skrefi of langt, og eins hitt að allnokkur hópur fréttamanna á sjónvarpinu hef- Bogi: Starf fréttastjóra er lýjandi og ég hef ekki hugsað mér að gera það að ævistarfi. ur fulla burði til að taka við starfi Boga, kjósi hann að hætta. Meðal þeirra eru Helgi Már Arthúrsson, Helgi H. Jónsson, Kristín Þorsteinsdótt- ir og Ólöf Rún Skúladóttir. Þá er ekki víst að Markús Öm Antonsson, fyrrverandi út- varpsstjóri og núverandi fram- kvæmdastjóri útvarps, fallist á að framhjá sér verði gengið. Markús tók að sér embætti borgarstjóra fyrir beiðni Dav- íðs þegar sá síðarnefndi varð forsætisráðherra fyrir fimm ár- Björn: Nánasti samstarfsmaður Davíðs ræður toppembættunum hjá sjónvarpinu. um. Þegar Markús sá fram á að tapa síðustu borgarstjórnar- kosningum fyrir Reykjavíkur- listanum vék hann fyrir Áma Sigfússyni, sem talinn var lík- legri til að geta keppt við Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur. Bogi Ágústsson hefur tuttugu ára starfsreynslu á sjónvarpinu og varð fréttastjóri sumarið 1988 með stuðningi Sjálfstæðis- flokksins. Meðal þeirra sem sóttu um var Sigrún Stefáns- dóttir, lektor við Háskólann og fjölmiðlafræðingur, en hún átti Elín: Valdahópurinn í kríngum Dav- íð Oddsson forsætisráðherra vill gera hana að fréttastjóra sjón- varpsins. að baki langan feril sem sjón- varpsfréttamaður. Sigrún lét svo um mælt þegar niðurstað- an lá fyrir að líklega þyrfti hún að ganga í stjórnmálaflokk til að eiga kost á fréttastjórastarfinu og nefndi Kvennalistann í því sambandi. Núna kemur Kvennalistinn aftur við sögu, en í öðru samhengi. Elín Hirst hundskammaði Kvennalista- konur á fundi í Norræna húsinu á föstudag fyrir að reka von- lausa pólitík og halda úti kven- kyns stjórnmálaflokki. Sjónar- mið Elínar eru mjög í anda sjálf- stæðra kvenna Sjálfstæðis- flokksins.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.