Helgarpósturinn - 07.11.1996, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 07.11.1996, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 7. NOVEMBER1996 5 X Húsnæðisstofnun veitti fyrir fjórum árum einstaklingi byggingarsjóðslán upp á 13 milljónir króna sem var afborgunarlaust í tvö ár. Að fjórum árum liðnum er lánið allt í vanskilum en eignin hefur enn ekki verið sett á uppboð. Lántakandinn hefur hins vegar verið búsettur í Noregi síðastliðin tíu ár... Húsnæðisstofnun keypti einbýlishús og seldi dótturinni á vildarkjörum eftir að foreldrarnir misstu það á uppboði 'i,\ *•%' 'i/lU 1-'-'i.\,v. v ftlií s»a.uwlB0, ^5® B o X "'VI-J.VÍI, c o B C I I e,NB*LJ Ehl.j h í Li5ði>> _ D*Öbjö^t -•> «'”«>» v.t,V u . X 04 •' J l.Sfi K! 1B>3£, ‘Kj.l J**<>3aeo ®f**a kv„.v °‘J0^ °9 Öríííu»- ,na* Jon* BB2S.Ó B1S8. o 3198,0 3198, o A-o*i68vse llppový L't VJf vUvH S-23°.o£1 J?' ^B-SO ??■ °3- 9S *• »00.000 C3> 03. gg Ath* UMBOU UWBot) VEBLEypj ÍMBOB APSíU. 54*iÍ-69 *«. 10.89 M-u.as ‘‘•07.90 >0.07.90 BS.03.9s Húsnæðisstofnun veitti fyr- ir fjórum árum þrjú bygg- ingarsjóðslán vegna kaupa á Ásvallagötu 60 upp á samtals 13 milljónir króna. Lánin voru afborgunarlaus í tvö ár og hafa verið í vanskilum í önnur tvö. Eigi að síður hefur eignin ekki verið sett á uppboð, en venju- lega er send uppboðsbeiðni til sýslumanns hálfu ári frá van- skilum. Þykja þessar lánveit- ingar Húsnæðisstofnunar með ólíkindum, ekki síst í ljósi þess að ekki eru lánaðar slíkar fjár- hæðir til einstaklinga auk þess sem kaupandinn hefur í um tíu ár verið búsettur í Noregi. LÁNIÐ ALLT I VANSKILUM Húseignin á Ásvallagötu 60 hefur gengið kaupum og sölum síðustu ár en það var í nóv- ember 1989 sem Sigfinnur Sig- urðsson hagfræðingur og Helga Sveinsdóttir eignuðust hana fyrir 12 milljónir króna. Sigfinnur og Helga fluttu inn í húsið en borguðu lítið af bygg- ingarsjóðslánunum sem þau tóku samfara kaupunum og var eignin slegin Húsnæðis- stofnun á uppboði í febrúar 1992 fyrir rúmar tólf milljónir. Skömmu síðar seldi Húsnæðis- stofnun eignina til Dagbjartar Sigfinnsdóttur, en hún er dótt- ir Sigfinns og Helgu. Samfara kaupunum tók Dagbjört þrjú byggingarsjóðslán; eitt lán upp á átta og hálfa milljón króna og tvö lán upp á rúmar tvær millj- ónir. Ársvextir þessara lána voru 4,9% og lánstími tveggja bréfa til tuttugu og fimm ára — samtals 13 milljónir króna. Lánstími eins bréfsins, sem er upp á 2.250 þúsund, var hins vegar fimm ár. Veðskuldabréf- in voru móttekin til þinglýsing- ar í apríl 1992 og voru afborg- unarlaus fyrstu tvö árin. Sam- kvæmt heimildum frá hús- bréfadeild hafa slík byggingar- sjóðslán aldrei viðgengist, en til samanburðar lánaði stofn- unin í júlí til september árið 1991 4,9 milljónir króna þeim sem voru að kaupa sína fyrstu íbúð. Á þessum tíma voru bygg- ingarsjóðslánin aflögð en hús- bréfalán tekin við. Engu að síð- ur gat Dagbjört fengið peninga úr gamla kerfinu ef hún hafði haft lánsloforð upp á vasann. Hvort Dagbjört var með Iáns- loforð fyrir þennan tíma skal ósagt látið, en það skal tekið fram að hún hefur átt lögheim- ili í Noregi frá því 1986. Það verður að teljast fremur ólík- legt að hún hafi sótt um lán hjá Húsnæðisstofnun, en ekki er þó loku fyrir það skotið. Hjá Húsnæðisstofnun fengust þær upplýsingar að íslensk mann- eskja búsett erlendis gæti feng- ið lán hjá stofnuninni svo fram- arlega sem viðkomandi hefði ekki breytt um ríkisfang. Sig- Veðbókarvottorð sem sýnir að eig- andi Ásvallagötu 60 fékk 13 millj- ónir króna í byggingarsjóðslán í mars 1992. Hjá húsbréfadeild fengust þær uppiýsingar að slík lán væru aldrei hærri en fimm milljónir. Sigfinnur Sigurðsson kann- aðist ekkert við að dóttir hans hefði fengið 13 milljóna króna lán og sagði að það hefði hugsanlega verið um 10 milljónir. Hann sagðist ekkert kannast við að neinar reglur væru í gildi um hámark lána, en sagði að brunabótamat hússins hefði náð því. Þegar blaðamaður spurði hvort hann hefði þá fengið 10 miilj- ónir en ekki 13 milljónir króna í lán svaraði hann: „Það eru þín orð en ekki mín.“ finnur, sem er bróðir Skúla Sigurðssonar, fyrrverandi skrifstofustjóra Húsnæðis- stofnunar, hefur því búið ásamt eiginkonu sinni í húsinu frá því að þau keyptu það árið 1989. Lánin sem Dagbjört dóttir þeirra fékk voru upp á 13 millj- ónir og samkvæmt útreikning- um blaðsins hefði hún þurft að hafa um 70 þúsund króna greiðslugetu eða um 400 þús- und krónur í tekjur á mánuði. Slík laun hafa ekki allir. Sú spurning vaknar óhjákvæmi- Iega hvort hún hafi einhvern tíma undirgengist svokallað greiðslumat, sem viðskiptavin- ir Húsnæðisstofnunar eru skyldugir til að gera. I stjórnsýsluendurskoðun Ríkisendurskoðunar á Hús- næðisstofnun, sem nýlega kom út, segir að umsóknir um lán úr Byggingarsjóði ríkisins séu á ári hverju innan við hundrað. Þar sé um að ræða umsóknir um lán vegna sérþarfa, fötlun- ar umsækjenda eða meirihátt- ar röskunar á högum, lán til byggingar dvalarheimila og styrki til tækninýjunga í bygg- ingariðnaði. Þessi sérþarfalán hafa hins vegar alltaf verið lægri, samkvæmt fyrirspurn- um blaðsins hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar. í stjórnsýsluendurskoðun Ríkisendurskoðunar er fátt sem gefur tilefni til grunsemda um furðulega fyrirgreiðslu húsbréfadeildar á lánum til einstaklinga. Meðal annars er rætt um breytingar á starfs- háttum deildarinnar og nauð- syn þess að gera nýja samn- SKRAUTLEGUR STARFSFERILL Sigfinnur hefur komið víða við á starfsferli sínum og gegnt ýmsum valdamiklum og virð; ingarverðum embættum. í upphafi 8. áratugarins var hann meðal annars fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitar- félaga á Suðurlandi. Árið 1975 tók hann við starfi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum en staldr- aði stutt við, því nokkur óánægja skapaðist með störf hans að sögn Sigurðar Jóns- sonar, sem þá var fulltrúi í bæjarstjórn. Meðal annars þótti hann fara út fyrir verk- svið sitt og þótti til dæmis ósínkur á risnukostnað. Um svipað leyti komst það í há- mæli að viðskilnaður Sigfinns hjá Samtökum sveitarfélaga hefði ekki verið með felldu. Þótti hann hafa farið allfrjáls- Iega með fé sem safnað var vegna eldgossins í Vestmanna- eyjum árið 1973. Að sögn Sig- urðar tók Sigfinnur nær allt söfnunarféð og færði yfir á eig- in bankabók. Hann eyddi öllu söfnunarfénu, sem var tals- verð upphæð á sínum tíma, í eigin þágu. REGLUR Á REIKI Það þykir undarlegt að lán upp á 13 milljónir króna skuli hafa verið í vanskilum í yfir tvö ár og eignin ekki löngu komin í uppboðsmeðferð hjá sýslu- manninum í Reykjavík. Það er veðdeild Landsbankans sem hefur umsjón með gömlu bygg- ingarsjóðslánunum og ef slíkt lán fer í vanskil er uppboðs- beiðni send sýslumanni fimm til sex mánuðum frá viðkom- andi gjalddaga. Sýslumaður sendir þá ítrekun til skuldara og ef greiðandi sinnir ekki ítrekuðum óskum er eignin send á uppboð að nokkrum vikum liðnum. Ef greiðandi er búsettur erlendis geta liðið nokkrar vikur til viðbótar áður en eignin fer á uppboð. Jón Péturssson, skrifstofu- stjóri hjá veðdeild Landsbank- ans, sagði að ekki liðu nema fimm eða sex mánuðir frá van- skiladegi þar til uppboðs- beiðni væri send sýslumanni. „Það getur verið á einhverjum stigum málsins að einstakling- ar vilji semja um lán og þá er frekari innheimtuaðgerðum frestað. Ennfremur getur málið dregist ef viðkomandi býr er- lendis, ekki síst ef erfitt er að ná í hann. Hvort málið getur dregist um nokkur ár skal ég ekki segja til um, það hefur ekki verið skoðað sérstaklega." Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðis- stofnunar ríkisins, vildi lítið tjá sig um málið við blaðið. Hann sagði að hann ræddi ekki einkamál einstaklinga við fjöl- miðla, enda væri það bannað samkvæmt stjórnsýslulögum. Aðspurður um hvort venja hefði verið að eignir væru seld- ar afborgunarlausar fyrstu tvö árin sagði hann að engar regl- ur hefðu þá verið í gildi um slíkt. Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar, vildi ekki ræða um 13 milljóna króna byggingarsjóðslán til einstaklings við HP.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.