Helgarpósturinn - 07.11.1996, Síða 10

Helgarpósturinn - 07.11.1996, Síða 10
10 FIMIVmJDAGllR 7. NOVEMBER1996 HELCARPÓSTURINN Útgefandi: Lesmál ehf. Framkvæmdastjórí: Árni Björn Ómarsson Ritsyóri: Páll Vilhjálmsson Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Vertíðarlok Jóns Baldvins Hannibalssonar Um helgina lætur Jón Baldvin Hannibalsson af hendi stjórntauma Alþýðuflokksins eftir tólf ára formennsku. Jón Baldvin leiddi flokkinn í þremur ríkisstjórnum á tveimur kjörtímabilum. Fyrst var hann fjármálaráðherra í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar, síðan utan- ríkisráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar og aftur í stjórn Davíðs Oddssonar. A flokksmælikvarða er þetta góður árangur og þótt Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi varaformaður Alþýðuflokks- ins, hafi klofið flokkinn fyrir síðustu kosningar er Jón Baldvin svo gott sem búinn að tryggja heimkomu hennar með sameiningu þingflokka Alþýðuflokks og Þjóðvaka. Sé flokkskvarðinn lagður til hliðar og almennt pólitískt mat lagt á formannstíð Jóns Baldvins Hannibalssonar blasa við ævintýralegir loftfimleikar. Jón Baldvin hóf tímabilið með yfirlýsingum um að Fram- sóknarflokknum ætti að gefa frí frá stjórnarráðinu. í ríkisstjórn fór Al- þýðuflokkurinn með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. Stjórn Þorsteins Pálssonar sprakk í beinni sjónvarpsútsendingu og Alþýðu- flokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag tóku höndum saman undir forsæti Steingríms Hermannssonar. Merkilegasta afrek þeirrar ríkisstjórnar var að hafa frumkvæði að þjóðarsátt um að kveða verð- bólguna í kútinn. Formaður Alþýðuflokksins auglýsti eftir Jafnaðar- mannaflokki íslands þegar leið á kjörtímabil ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar og um tíma leit út fyrir að A-flokkarnir gætu runnið saman. Reyndin varð önnur. Eftir kosningarnar 1991 batt Jón Baldvin Hannibalsson trúss sitt við Sjálfstæðisflokkinn undir forystu Davíðs Oddssonar. Ákvörðun Jóns Baldvins um samstarf við Sjálfstæðisflokkinn var torskilin á sínum tíma, en sé atburðarásin síðustu ár gaumgæfð er heildarmyndin ekki flókin. í upphafi áratugarins gerði Jón Baldvin ráð fyrir að utanríkismál yfirgnæfðu flesta aðra málaflokka næstu árin. Árið 1991 var Davíð Oddsson blautur á bak við eyrun í landsmálum og hafði enga reynslu af alþjóðastjórnmálum. Formaður Alþýðu- flokksins gat búist við að hafa frumkvæðið í utanríkismálum, sérstak- lega hvað varðar Evrópusambandið, sem Jón Baldvin kynntist vel vegna EES-samningsins. Yrði Davíð ekki leiðitamur eygði Jón Baldvin möguleika á að höfða til Evrópusambandssinna í Sjálfstæðisflokkn- um. Á þessum tíma talaði formaður Alþýðuflokksins um að hugtökin vinstri og hægri skiptu ekki lengur máli í póiitík og þar með væri til- gangslaust að ræða sameiningu vinstrimanna. Taktík Jóns Baldvins gekk ekki upp. Davíð Oddsson náði fljótlega frumkvæðinu í stjórnarsamstarfinu og gerði sér far um að setja sig vel inn í Evrópusambandsumræðuna. Aðstæðurnar voru Davíð að mörgu leyti hliðhollar. Evrópusambandið hægði á sér eftir að Maastr- ict-samkomulagið var fellt í Danmörku og rétt slapp fyrir horn í Frakk- landi. Tónninn frá Brussel var sá að frekari stækkun ESB skyldi bíða fram yfir ríkjaráðstefnuna. Þegar Norðmenn felldu í þjóðaratkvæða- greiðslu aðild að ESB var ekki í mörg hús að venda fyrir Aljiýðuflokk- inn. Engu að síður tók Jón Baldvin þá ákvörðun að gera aðildarum- sókn að kosningamáli fyrir síðustu þingkosningar og vonast eftir fylgi frá Sjálfstæðisflokknum. Örvænting réð ákvörðuninni fremur en köld skynsemi. Alþýðuflokkurinn var lamaður vegna spillingarumræðunn- ar í kringum Guðmund Árna Stefánsson og Jóhanna Sigurðardóttir bauð fram Þjóðvaka. Kosningaúrslitin voru flokkslegur varnarsigur en allt í kringum Alþýðuflokkinn var eyðimörk. Engin sóknarfæri voru í sjónmáli, hvorki til hægri né vinstri, ekki til Evrópu og svo sannar- lega ekki inn á landsbyggðina þar sem flokkurinn fær annað slagið stöku þingmann meira fyrir hendingu en skipulegt stjórnmálastarf. Verkefni næsta formanns er að staðsetja Alþýðuflokkinn í íslensk- um stjórnmálum. Eftir ævintýramennskuna er ærið starf að finna flokknum farveg inn í 21. öldina og hvort hann ætlar að halda þangað einn eða í samstarfi við aðra. Á meðan flokkurinn býr sig undir að velja á miili tveggja eða fleiri frambjóðenda í formannsstólinn leggur fráfarandi formaður drög að einu litlu ævintýrinu enn, svona eins og til að minna á að lífið er lotterí. Fimm dálka leiðari í Alþýðublaðinu fyrir viku, ómerktur en með skýrum höfundareinkennum Jóns Bald- vins, boðar að Framsóknarflokkurinn sé orðinn sjálfsagður sam- starfsflokkur Alþýðuflokksins. Grasið í girðingu Framsóknar er grænt — séð frá sviðinni jörð Aiþýðuflokksins. Jón Baldvin Hannibalsson er stórskemmtilegur maður og geðþekk manneskja. En hann er varasamur stjórnmálamaður og þjóðin má prísa sig sæla að hann var ekki formaður í stærri flokki en Alþýðu- flokknum. Helgarpósturinn Borgartúni 27, 105 Reykjavík Sími: 552-2211 Bréfasími: 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2311, fréttaskotið: 552-1900, tæknideild: 552-4777, auglýsingadeiid: 552-4888, dreifing: 552-4999. Netfang: hp@this.is Áskrift kostar kr. 800 á mánuði efgreitt er með greiðslukorti, en annars kr. 900. LOGGJAFATONSKALD OG LANDKYNNINGU J''* , Þorgeir Þorgeirson skrifar Wú verð ég að taka upp hanskann fyrir Árna Johnsen, þingmann og tilvon- andi sinfóníutónskáld, sem HP var að atyrða í seinustu viku fyrir það að vera með puttana í listaverkasölu til sunnlenskra sveitarstjórna. Og hvað með það? Er þetta ekki hans kjör- dæmi? Því skyldi einn þing- maður sýna af sér annað sið- ferði en hinir? Er ekki til full mikils ætlast að Árni Johnsen (af öllum mönnum) fari að skera sig úr í þeim efnum? Bendir ekki blaðið einmitt á það að Árni situr í fjárveitinga- nefnd og hefur aðstöðu til að færa þessum sveitarstjórnum margfaldar þær upphæðir sem greiddar hafa verið fyrir af- steypurnar af þokkagyðjun- um? Því mega ekki sunnlenskar hreppsnefndir eignast afsteyp- ur af grassíunum þrem og er- osi eftir Thorvaldsen ef þær telja sig hagnast á kaupunum? Slyngur listaverkasali verður þó enginn nema hann kunni að hafa upp á þeim sem eiga pen- ingahagsmuna að gæta með kaupunum. Og blaðið er að telja það eft- ir þó Árnj hafi lagt 300% á vöru sína. En Árni situr (eins og fyrr var sagt) í fjárveitinganefnd og hlýtur því að gæta hagsmuna ríkissjóðs í hvívetna (eins og kollegar hans á Alþingi mundu orða það). Því hærra sem sölu- verð þokkagyðjanna verður þeim mun hærri verður sölu- skatturinn. Ef hver afsteypa selst á kr. 400.000,- (eins og HP segir) þá hagnast ríkissjóður um meir en hálfa milljón á framtaki Árna, svo fremi af- steypurnar tíu seljist allar og virðisaukaskatturinn skili sér. En málið hefur aðra og merkilegri hlið en bara pening- ana. Nýlega var semsé greint frá því í flestum blöðum landsins hvernig Árni varði ágóðanum af þokkagyðjusölunni. Hann fór suður til Bretlands á fund góðs tónskálds þar, blístraði fyrir hann lögin sín og greiddi honum („úr eigin vasa“ eins og blöðin segja) fyrir það að semja upp úr þeim tónverkið „Stórhöfðasvítu'1 sem Sinfóníu- hljómsveit íslands hefur séð sér leik á borði að flytja og fara með í tónleikaferð um kjör- dæmi Árna. Æfingar eru þegar hafnar, „að höfundinum, Árna Johnsen viðstöddum“, eins og Morgunblaðið tekur fram. Og fylgir mynd af hinu upprenn- andi sinfoníutónskáldi í hópi vonglaðra hljóðfæraleikara. Ef HP eða aðrir vilja rengja það að hér sé um tímamóta- verk að ræða má benda á þá staðreynd að sjálfur tónlistar- ráðunautur Ríkisútvarpsins, doktor Guðmundur Emilsson, hefur ákveðið að „Stórhöfðas- vítan“ eftir Árna Johnsen verði tekin upp á vegum RÚV og varðveitt á segulbandi til af- nota fyrir alda og óborna. Því vitaskuld er þessi svíta tímamótaverk. „Eftir á (þegar peningarnir eru farnir að streyma í tónlistar- lífinu) munu allir fagna þessu og þakka Árna fyrir frumkvæðið." • Hún er ekki bara merkur áfangi í menningarstarfsemi Sjálfstæðismanna á Suðurlandi (eins og forseti Alþingis mundi segja) heldur tímamót í hér- lendri menningarsögu, og jafn- vel að sumu leyti tímamót í tónlistarsögu heimsins (gæti doktor Guðmundur vel sagt, ef á þyrfti að halda). Fram að þessu hefur það tíðkast að tónskáld sem gera svítur úr lögum annarra eða þjóðlögum eigi höfundarétt að verki sínu, en Árni Johnsen verður skráður höfundur „Stórhöfðasvítunnar". Þessi nýja tilhögun opnar ferskar víddir, ekki bara fyrir atvinnu- lausa breska tónsmiði heldur fyrir alla sem kunna að blístra. Héðan af getur hver sem hefur peninga milli handanna gerst sinfóníst tónskáld þó hann búi við andlega örbirgð á því sviði. Og doktor Guðmundur sér stórar framtíðarsýnir í þessu sambandi. Varla líður á löngu þar til sú nýjung verður orðin hér að „dellu“ eins og aðrar nýjungar. Orðið löggjafarþing fær alveg nýja merkingu. Þingmenn láta kjósa sig í fjárveitingarnefnd, fara blístrandi suður tii Bret- lands að gefa sig fram við at- vinnulaus tónskáld með lögin sín. Og Sinfóníuhljómsveit ís- lands fær „Eystrahornssvítu" eftir Halldór Ásgrímsson, „Tónaljóðið Blöndu" eftir Pál Pétursson, „Öskjuhlíðarrap- sódíuna" eftir Bjöm Bjarna- son, „Stórhöfðasvítu 11“ eftir Kristínu Ástgeirsdóttur, „Rímnalagakóral" eftir Halldór Blöndal, „Hallormsstaðar- blús“ eftir Hjörleif Guttorms- son, „Ráðhúsmarsinn“ eftir Davíð Oddsson og fleira og fleira til flutnings. Alþingi verður (rétt upp úr aldamótum) orðið fyrsta lög- gjafarþing í heimi þar sem allir fulltrúarnir eru meðlimir Tón- skáldafélagsins. Það verður ekki lítil land- kynning. Og þar sem Tónskáldafélag- ið „á“ þá alla fjárveitinganefnd, sem og aðrar nefndir þingsins, verða byggðar veglegar tón- listarhallir í hverri krumma- skuð á landinu. Spádómar Pýramídans mikla um forystuhlutverk íslendinga rætast. Eftir á (þegar peningarnir eru farnir að streyma í tónlist- arlífinu) munu allir fagna þessu og þakka Árna fyrir frumkvæðið. Framtíð listastórveldisins ís- lands hefur verið tryggð (með varanlegum hætti, eins og for- seti Alþingis áreiðanlega kem- ur til með að segja). Frá lesendum Ungur maður hringdi og sagði frá steggjapartíi þar sem erlend nekt- ardansmær var fengin til að halda sýningu fyrir væntanlegan brúö- guma og vini hans. Stúlkan gekk svo fram af ungu mönnunum aö þeir héldu ekki sýninguna út og forðuöu sér. Miöaldra karlmaöur sló á þráöinn til að fá uppskrift aö chili con carne sem birtist í blaöinu fýrir skömmu. Sunnlendingur var í sambandi viö blaðið vegna umfjöllunar í síðasta tölublaöi um listaverkasölu Áma Johnsen og taldi áhugavert að fræöast um ýmsar aörar aukabú- greinar þingmannsins. Einar á Ægisíöu hringdi og efaöist um aö þaö heföi veriö kötturinn Jordan sem hljóp í fang Helgu Guðrúnar Johnson í fréttaþættin- um íslandi í dag og viö sögðum frá í síöasta tölublaöi. Einar taldi lík- legt aö heimilisköttur hans heföi gert sér dælt viö Helgu, enda var hún viö upptöku við Ægisíöuna. Áhugamaður um umferöaröryggi lét í sér heyra og sagði óráð hjá þing- mönnum aö hækka leyfilegan há- markshraða á þjóövegum. Fæstir vegir bæru þann hraöa sem menn eins og Vilhjálmur Egilsson og Ámi Johnsen vildu lögleiöa. Áhugamaöurinn velti því fyrir sér hvort viðleitni nefndra þingmanna til aö hækka hámarkshraða stæöi í sambandi við veglegan bílakost þeirra; Árni er á nýjum Citroén og Vilhjálmur á nýlegum jeppa.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.