Helgarpósturinn - 07.11.1996, Síða 11
HMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1996
11
IB-j
Sósíalistinn Styrmir -
sj áJfstæðismaðurinn Steingrímur J.
Styrmir Gunnarsson, rit-
stjóri Morgunblaðsins, er
síðasti „alvöru" sósíalistinn á
íslandi, sagði Kristján Ragn-
arsson, formaður Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna,
í setningarræðu á aðalfundi
LÍÚ á fimmtudag. í fjölmiðlum
voru orð Kristjáns höfð í flimt-
ingum en lítið rýnt í samhengi
þeirra. Raunveruleg merking
yfirlýsingarinnar fór þess
vegna fyrir ofan garð og neð-
an.
Formaður LÍÚ er ekki pólit-
ískur hugmyndafræðingur.
Hann er snauður að formlegri
menntun en greindur og bráð-
duglegur talsmaður stórút-
gerðarinnar. Langskólageng-
inn maður, smitaður af er-
iendri hugmyndasögu, myndi
ekki láta sér til hugar koma að
kenna ritstjóra Morgunblaðs-
ins við sósíalisma. Kristján
Ragnarsson er ótruflaður af
útlendum hugmyndastraum-
um og sér hlutina í rammís-
lensku samhengi. Rökin fyrir
því að Styrmir Gunnarsson sé
sósíalisti eru áminning um
þverstæðu. Þjóðin er evrópsk
en þó ekki meira en svo að
borgaraleg stjórnmálamenn-
ing er unga lýðveldinu fram-
andi og nokkra áratugi vantar
enn til að vega upp þá menn-
ingarlegu mishröðun sem
staðfest er á milli meginlands-
ins og eyjunnar á úthafinu.
Kristján nefndi ekki Styrmi
Gunnarsson á nafn í setningar-
ræðunni, samkvæmt frásögn
fjölmiðla. En engum duldist þó
að hann ætti við Styrmi en
ekki Matthías Johannessen,
hinn ritstjóra Morgunblaðs-
ins, þegar hann sagði að
,,[þ]að hefði einhvern tíma
þótt eftirtektarvert að síðasta
alvöru sósíalistann skuli daga
uppi sem ritstjóri Morgun-
blaðsins".
Formaður LÍÚ veit ósköp vel
að þeir íslendingar eru til sem
opinberlega kenna sig við
sósíalisma. Til að mynda hélt
Sósíalistafélagið upp á tveggja
ára afmæli sitt nokkrum dög-
Stjórnmál
Páll Vilhjálmsson
skrifar
um fyrir aðalfund LÍÚ og fékk
grfnumfjöllun á Stöð 2. I aug-
um Kristjáns eru meðlimir
Sósíalistafélagsins ekki „al-
vöru sósíalistar" vegna þess
að þeir eru áhrifalausir. Krist-
ján gefur lítið fyrir pólitískar
hugmyndir, hann lifir og hrær-
ist í beinhörðum hagsmunum
þar sem tekist er á um völd og
áhrif. Og réttnefndir sósíalist-
ar eru ekki einu sinni peð í
þeirri skák, þeir eru einfald-
lega ekki á taflborðinu.
Styrmir Gunnarsson er hins
vegar fyrirferðarmikill í valda-
taflinu. Sem ritstjóri Morgun-
blaðsins hefur hann haldið
fram þeim sjónarmiðum að út-
gerðin eigi að greiða þjóðinni
fyrir afnot af sameiginlegri
auðlind hennar. Rauði þráður-
inn í röksemdafærslu Styrmis
er réttlæti. Útgerðarmenn
versla sín á milli með afla-
heimildir sem þeir upphaflega
fá afhentar ókeypis. Ritstjóri
Morgunblaðsins vill að útgerð-
in borgi veiðileyfagjald til
þjóðarinnar. Kristján Ragnars-
son lítur málflutning ritstjór-
ans allt öðrum augum. Styrmir
berst fyrir „auknum ríkisaf-
skiptum, aukinni skattheimtu
og meiri sósíalisma", segir for-
maður LÍÚ og hljómar eins og
Heimdellingur sem ekki er
vaxin grön.
Steingrímur J. Sigfússon,
þingmaður Alþýðubandalags-
ins og formaður sjávarútvegs-
nefndar Alþingis, er andstæð-
ingur veiðileyfagjalds. Sam-
kvæmt skilgreiningu Kristjáns
Ragnarssonar er Steingrímur
nær því að vera sjálfstæðis-
maður en sósíalisti. Sjálfur
myndi Steingrímur staðsetja
sig til vinstri og gæti vísað til
gildra raka þar um. En þegar
almennri afstöðu sleppir, s.s.
til jafnréttismála og jöfnunar
lífskjara, gæti hann trauðla
bent á álíka mikilvægt mál og
Krístján Ragnarsson stóð báðum fótum í ís- Styrmir Gunnarsson rítstjórí flytur sjónarmið
lenskri hefð þegar hann sagði ritstjóra Morgun- upplýstra menntamanna en talar þó fyrír dauf-
blaðsins sósíalista. um eyrum.
Steingrímur J. Sigfússon er með lykilinn að nýju
samkomulagi um breytingar á fiskveiðistjórnun-
inni.
fiskveiðistjórnunina sem próf-
stein á það hvort menn séu
vinstri- eða hægrimenn; sósí-
alistar eða einstaklingshyggju-
menn.
Steingrímur, líkt og aðrir
stjórnmálamenn, glímir við
þann vanda að stærstu pólit-
ísku deilumál þjóðarinnar eru
handan hefðbundinna skil-
greininga, sem, vel að merkja,
eru innfluttar. Vandi vinstri-
manna er sýnu meiri en hægri-
manna. Tveir af áhrifameiri
stjórnmálamönnum af vinstri
kantinum, Gylfi Þ. Gíslason,
fyrrverandi formaður Alþýðu-
flokksins, og Einar Olgeirs-
son, formaður Sósíalista-
flokksins, fyrirrennara Alþýðu-
bandalagsins, rekja í bókum
sínum klofning vinstrimanna
til evrópskrar meginlands-
sögu. í bókinni Jafnaðarstefn-
an frá árinu 1977 skrifar Gylfi
að vinstrimenn hafi klofnað í
jafnaðarmannaflokka annars
vegar og kommúnistaflokka
hins vegar vegna ólíkrar af-
stöðu til heimsstyrjaldarinnar
fyrri. Árið 1983 endurtekur
Einar sömu skoðanir í bókinni
Kraftaverk einnar kynslóðar.
Hvorki Gylfi né Einar láta
þess getið að afstaða evr-
ópskra vinstrimanna til fyrri
heimsstyrjaldar skipti ná-
kvæmlega engu máli fyrir ís-
lendinga yfirhöfuð, hvað þá
að andstæðurnar ættu erindi
inn í flokkapólitík á Fróni.
Þögn tvímenninganna stafaði
ekki af því að þeim fannst
óþarfi að tíunda það sem ligg-
ur í augum uppi. Stjórnmála-
ferill beggja miðaðist við að
íslenska sögulegan klofning
evrópskra vinstrimanna. Á
dögum kalda stríðsins tókst
bærilega að finna stærri og þó
oftast smærri ágreiningsefni
sem réttlættu tvo A-flokka.
Fall Berlínarmúrsins opinber-
aði fánýti þessa stjórnmála-
starfs.
Formaður LÍÚ gat uppnefnt
ritstjóra Morgunblaðsins sósí-
alista án þess að verða að at-
hlægi af þeirri ástæðu að hug-
takið sósíalismi er merkingar-
snautt á íslensku, það vísar
ekki til neinnar pólitískrar
hefðar. Kristján hefði alveg
eins getað sagt að Styrmir
Gunnarsson væri haldinn út-
lendri villukenningu, enda er
það það sem hann á við. OréÞ
ræða Kristjáns á aðalfundi LÍÚ
styðst við séríslenska hefð.
Hún er að klístra neikvæðum
útlendum merkimiðum á hug-
myndir sem manni er illa við.
Á þriðja áratugnum kallaði
Morgunblaðið Jónas Jónsson
frá Hriflu bolsévikka; Jónas
notaði hugtakið úrkynjuð list
úr orðabókum fasista til að
fordæma abstrakt málverkið
fyrir miðja öldina og eftir stríð
voru kratar skírðir kvislingar
af herstöðvaandstæðingum.
í umræðunni um veiðileyfa-
gjald heldur ritstjóri Morgun-
blaðsins á loft borgaralegum
réttlætissjónarmiðum sem
hljóma kunnuglega í eyrum
evrópskra menntamanna. For-
maður LÍÚ er í hlutverki harð-
drægs sérhagsmunagæslu-
manns sem notar þau rök er
hendi eru næst til að berja á
andstæðingum sínum. Lykill-
inn að lausninni er í höndum
Steingríms J. Sigfússonar, sem
er byggðapólitíkus fyrst og
síðast. Steingrímur mun ekki
fallast á aðra niðurstöðu en þá
sem hann sáttur getur farið
með heim í Norðurlandskjör-
dæmi eystra og sagt við út-
gerðarmenn, sjómenn og land-
verkafólk: Við þurftum að gefa
eftir í fiskveiðistjórnunarmál-
inu en í staðinn fáum við
byggðapólitík sem gerir bú-
setu hérna lífvænlega.
í stuttu máli skipta vinstri
og hægri, sósíalismi og kapít-
alismi, frjálshyggja og félags-
hyggja engu máli við lausn á
stærsta pólitíska deilumáli ís-
lenskra stjórnmála síðari ára.
Pólitíkusar plotta
Bréf frá Kaupmannahöfn
Audur Stefánsdóttir
skrifar
Pað var eins og við manninn
mælt: Um leið og búið var
að dásama danska haustið dró
fyrir sólu og rigningin steyptist
niður og í heila viku hefur varla
stytt upp. Napur haustvindur
fylgir með og laufin fljúga af
trjánum og mynda þykkt teppi
á gangstéttum og í görðum
borgarinnar. Það er líka eins og
allt í einu sé komið haust í lífi
margra Dana, sérstaklega með-
al stjórnmálamanna, þegar litið
er til þess hve ævisöguritun
virðist vera mikið í tísku hér
um þessar mundir. Einhvern
veginn finnst manni að ævisaga
einstaklings eigi ekki að koma
út fyrr en viðkomandi er kom-
inn á efri ár og hefur frá ein-
hverju að segja, en stjórnmála-
menn virðast keppast við að
gefa bækurnar út í þeirri von að
þær auki vinsældir þeirra í
starfi.
Pólitískir skandalar
Allt byrjaði þetta með að gef-
in vcir út ævisaga Margrétar
drottningar, sem reyndist síð-
an fréttnæmust fyrir það að
Friðrik krónprins trúði lesend-
um fyrir angist sinni yfir því að
verða konungur. Síðan gaf fyrr-
verandi eiginkona Svends Auk-
en út bók sem sagði meðal ann-
ars frá plottinu á bak við það að
Paul Nyrup-Rasmussen forsæt-
isráðherra velti honum úr sessi
sem formanni Jafnaðarmanna-
flokksins. Mörgum þótti nóg
um þær samsæriskenningar
sem fram komu í bókinni, en
umræðan var ekki alveg þögn-
uð þegar utanríkisráðherrann
Niels Helveg Petersen kom
með sína ævisögu á markaðinn.
Þá fyrst fór fjör að færast í leik-
inn. Hann skýrði nefnilega frá
einkasamtölum sínum við Paul
Nyrup og sagði frá því hvernig
þeir hefðu í sameiningu ákveð-
ið að Svend Auken yrði aldrei
forsætisráðherra og hvernig
Paul Nyrup ætti að standa að
því að ná formannsembættinu í
flokknum. Forsætisráðherrann
Paul Nyrup- Rasmussen sór allt
af sér í sjónvarpsviðtali og
sagðist sjálfur vita best hvað
gerst hefði. Um leið notaði
hann tækifærið og bannaði ráð-
herrum í ríkisstjórn sinni að
gefa út ævisögur á meðan þeir
sætu á ráðherrastóli. Niels Hel-
veg varð að biðjast opinberlega
afsökunar til að halda embætt-
inu. Hann viðurkenndi reyndar
aldrei að hafa farið með rangt
mál og það var ekki gengið eftir
því að hann gerði það.
Mörgum Dönum þótti fá-
dæma barnalegt af Niels Helveg
að láta sér detta í hug að opin-
bera einkasamtöl við aðra
stjórnmálamenn, sérstaklega
þar sem hann er í nánu sam-
starfi við sömu aðila í dag. Sam-
kvæmt blaðaskrifum þótti víst
að utanríkisráðherrann hefði
ætlað að auka vinsældir sínar
með skrifunum. Að minnsta
kosti var hann búinn að ákveða
ferðalög vítt og breitt um land:
ið til að árita nýju bókina. í
staðinn birtust skopmyndir af
honum í blöðunum þar sem for-
sætisráðherrann tekur hann á
hné sér og flengir hann.
Prinsinn betlar sígarettur
Á meðan Niels Helveg mátti
þola niðurlægingu fyrir sína
sögu baðaði Uffe Elleman
Jensen, formaður Vinstri-
flokksins, sig í ljómanum af
sinni ævisögu. Hann hafði
nefnilega haft vit á að skrifa
ekkert í bókina um afskipti sín
af dönskum stjórnmálum, enda
ennþá í fullu fjöri sem stjórn-
málamaður, eins og hann segir
sjálfur. Reyndar var talið óþarfi
að gefa bókina út, þar sem hún
segði ekki frá neinu merkilegu.
Síðastur í röðinni var svo
sjálfur Henrik prins með bók
sína Skœbnen forpligter, þar
sem hann greinir meðal annars
frá því að þrátt fyrir strangt
uppeldi og löðrunga föður síns
hafi hann verið hamingjusam-
ur í æsku. Ef trúa má því sem
BT skrifar er áætlað að tekjur
prinsins af bókinni verði um
það bil 1,9 milljónir danskra
króna. Þá geti hann með góðri
samvisku kallað sig milljóna-
mæring, enda hafi hann sjáifur
þénað þessa peninga. Prinsinn
var lengi óánægður með að fá
ekki peninga til eigin nota frá
ríkinu og lét fyrir nokkrum ár-
um hafa eftir sér að hann þyrfti
„Um leið notaði
hann tækifærið og
bannaði ráðherrum í
ríkisstjórn sinni að
gefa út ævisögur á
meðan þeir sætu
á ráðherrastóli.“
að „betla“ sígarettur. Sú at-
hugasemd varð reyndar til
þess að hann fær 400.000
danskar krónur í vasapeninga.
G@g og Gokke
En það á ekki af ríkisstjórn-
inni að ganga. Nýjasta hneyksl-
ið er það að Danir neituðu að
taka á móti rithöfundinum Sal-
man Rushdie, en hann átti að
taka á móti bókmenntaverð-
launum Evrópuráðsins í Dan-
mörku þann 14. nóvember. Því
var borið við að danska lög-
reglan væri svo upptekin við
mál í sambandi við rokkara-
stríðið að hún gæti ekki tryggt
öryggi Rushdies. Þetta mál
vakti þvílíka athygli og umræð-
ur að stjórnarandstöðumenn
tala nú um að ríkisstjórnin
verði að segja af sér vegna
þess. Einna mesta athyglina
hefur vakið að Rushdie fékk til-
kynninguna um þetta á faxi á
bréfsefni sem ekki var með
haus og þar að auki var bréfið
óundirritað. Einnig að Paul
Nyrup hefur sagt að 10. októ-
ber hafi það legið ljóst fyrir að
ekki yrði hægt að taka á móti
honum, en það var fyrst þrem-
ur vikum seinna sem Rushdie
fékk tilkynninguna. Og nú eru
þeir fóstbræður forsætisráð-
herrann Paul Nyrup-Rasmus-
sen og utanríkisráðherrann Ni-
els Helveg Petersen kallaðir
Gog og Gokke í dagblöðunum.
Þegar þetta er skrifað er búið
að biðja Salman Rushdie opin-
berlega afsökunar og ákveða
að afhending verðlaunanna fari
fram einhvern tímann í des-
ember, en það er ekki komið á
hreint hvort borin verður fram
vantrauststillaga á ríkisstjórn-
ina. Það fer eftir því hvort Paul
Nyrup tekst að gefa viðunandi
skýringar á málinu á næstu
dögum. Hvort þessar ófarir
tengjast því hve þingmenn og
ráðherrar hafa verið uppteknir
við ævisöguritun skal ósagt lát-
ið, en ef svo er ættu íslenskir
ráðamenn að hugsa sig tvisvar
um áður en þeir taka til við rit-
un slíkra sagna. Enda lítur út
fyrir að haustið á íslandi sé vik-
ið fyrir vetri — í bili að minnsta
kosti.
Höfundur er kennari í framhaldsnámi
í Kaupmannahöfn.