Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.11.1996, Qupperneq 24

Helgarpósturinn - 07.11.1996, Qupperneq 24
HELGARPOSTURINN 7. NÓVEMBER 1996 44. TBL. 3. ÁRG. VERÐ 250 KR. Fyrir skömmu sagði landsliðsnefnd kvenna í handknattleik af sér á einu bretti. Ástæðan mun vera sú að nefndin neitaði að standa fyrir fjársöfnun vegna fyrirhugaðrar ferðar kvenna- landsliðsins um jólin. Landsliðsnefndin treysti sér ekki til að standa fyrir söfnuninni og sagði af sér T kjölfarið. Þessa dagana er forysta HSl að finna konur til að starfa í næstu nefnd en sjálfsagt verður það erfitt, enda fjárhagur sambandsins knappur og lítið fjármagn sem kvennalandsliðið hefur á milli handanna. En forysta HSÍ hefur svörin á reiðum höndum og þau skilaPoð fengust hjá Erni Magnússyni, framkvæmdastjóra HSl, aö sambandið borgaði aldrei æfingaferðir A-landsliða. Gilti þar einu hvort um ferðir karla eða kvenna væri að ræða... Og meira af handbolta. Á dögunum lék karlalandsliöið tvo leiki við Eistiendinga á fjölum Laugardalshallar og bauð HSÍ áhorfendum frítt inn á síðari leikinn. Þessi ráðstöfun hand- knattleiksforystunnar er góöra gjalda verð en undarleg í Ijósi afsagnar landsliðsnefndar kvenna og bágrar fjárhagsstöðu samtakanna. Hefur þetta vakið mikla gremju hjá kvennalands- liðinu, sem lengi hefur mátt lepja dauðann úr skel. Að sögn innanbúðarmanna hjá HSÍ mun taktík forystunnar hins vegar hafa veriö sú að koma til móts við almenning í síðari leiknum við Eistlendinga, sem síðar yrði endurgoldið í leiknum viö Dani, Því vonast HSÍ-forystan til aö áhorfendur fjölmenni í Laugar- dalshöllina og styðji við bakið á „strákunum okkar" gegn Dön- um. Leikurinn kann nefnilega að ráða úrslitum um hvor þjóðin kemst á HM í Japan á næsta ári... Elín Hirst, fráfarandi fréttastjóri Stöðvar 2, er oröuð við frétta- stofu Stöðvar 3, sem gert er ráð fyrir að hefji rekstur á nýju ári. Ólík- legt er þó að Gunnar Hansson, fyrn/erandi forstjóri Nýherja og að- almaðurinn á bak við endurfjármögnun Stöðvar 3, muni sam- þykkja Elínu vegna fyrri samskipta þeirra. I fréttastjóratíð sinni á Stöð 2 geröi Elín frétt um starfslok Gunnars hjá Nýherja sem var honum ekki að skapi og hafði hann á sínum tíma stór orð um málið... Amgrímur Jóhannesson, flugstjóri og aðaT eigandi flugfélagsins Atlanta, varð fyrir því óhappi á Akureyrarflugveili í síöustu viku að lenda Tristar-þotu áður en hún var komin á flug- brautina. Tjakkur í hjólabúnaði vélarinnar brotn- aöi við lendinguna en aðrar skemmdir urðu ekki og áhöfninni, sem var ein í þotunni, varð ekki meint af... Engu mun hafa munað að Islendingur hreppti titilinn „Herra Skandinavía" þriðja árið I röð. Sá sem þátt tók I keppninni í ár heitir Einar Birgisson og var hann grafinn upp þar sem hann var að selja vörur fyrir Ásbjöm Ólafsson. Hann fór þó ekki heim alveg tómhentur heldur lenti hann í öðru sæti keppninnar og fékk að auki þann farareyri að taka þátt í „Best Model of the World" sem fram fer í Tyrklandi 14. desember. Þó að Birgir hafi hafnað í öðru sæti hefur HP heim- ildirfyrir því að hann hafi vakið mesta athygli í Finnlandi, þar sem keppnin var haidin, sem merkja mátti meðal annars á því að yfir 90 prósent áhorfenda sjónvarpsstöövarinnar sem sendi keppnina beint út veðjuðu á Einar, blaðamenn töldu hann einn- ig álitlegastan sem og salurinn. En allt kom fyrir ekki. Dóm- nefndin, sem réð úrslitum, valdi Danann Martin sem álitleg- asta kostinn, T þriðja sæti varö svo hinn finnski Simo... Sighvatur Björgvinsson er talinn fullkom- lega öruggur um aö ná kjöri sem formaður Alþýðuflokksins á flokksþinginu sem hefst á morgun. Það er nú jafnvel haft við orð að Guð- mundurÁmi kunni aö fá svo lítiö fylgi að úrslit- in skaði hann. Alls verða sennilega upp undir 350 fulltrúar á þinginu, sem þar með verður eitt stærsta þing í sögu Alþýðuflokksins. Eins og gengur fer tvennum sögum af fylgi frambjóðendanna en sam- kvæmt lægstu spárn fær Guðmundur Árni einungis um eöa innan við 100 atkvæði... http://this.is/n Htndúnar á hHsttMi Skipholti 19 Sími: 552 9800 Grensásvegi 11 Sími: 5 886 886 Nýr og minni Game Boy með skarpari mynd. Fákafeni 11. Sími 568 8005 Super l\lintenda Rannveig Guðmundsdóttir lýsti því loks yfir í gær að hún gæfi ekki kost á sér til for- mennsku I Alþýðuflokknum. Rann- veig harðneitaði að gefa neina yfir- lýsingu um það hvorn frambjóð- andann hún styddi. Sumir þeirra sem gerst þekkja telja þó mun líklegra að sjálf muni hún Ijá Guðmundi Áma atkvæði sitt... Ekki er fullljóst hvað verður um fylgi Kópavogskrata eftir að ijóst varð að Rannveig Guð- mundsdóttir færi ekki fram, en vísast að það skiptist nokkuð á milli frambjóðendanna. Hefði Rannveig gefið kost á sér var talið öruggt að hún hefði fylgi hvers^einasta fulltrúa Kópavogsfélagsins — nema e.t.v. Guðmundar Oddssonar, sem er mjög harður stuöningsmað- ur Sighvats. Guðmundur er þungavigtarmaður í félaginu og afstaða hans kann að hafa þau áhrif að Guðmundur Ámi fái færri atkvæði úr Kópa- voginum en annars hefði mátt ætla... MT Aflokksþingi kratanna verður ekki einungis kosið um formann heidur að líkindum einn- ig nýjan varaformann, enda varla líkur til aö Guð- mundur Ámi sækist eftir stólnum áfram eftir tap í formannsslagnum. Tvö nöfn hafa einkum heyrst nefnd T sæti varaformanns í flokknum. Þetta eru Gunnar Ingi Gunnars- son og Sigrún Benediktsdóttir. Gunnar Ingi er formaður flokksfé- lagsins í Reykjavík og er flestum kunnur eftir læknadeiluna T sumar. Sigrún er minna þekkt, en hún er lögfræðingur aö mennt og er nú til viöbót- ar aö Ijúka viöskiptafræði í Háskólanum. Þá er talið að ungi maöurinn með stóra nafnið, Gylfi Þ. Gíslason, hyggist gefa kost á sér í varafor- mannssætiö en fremur takmarkaðar líkur á að hann fái mikið fylgi... Bjórframleiðendur hafa verið manna hug- myndaríkastir við að sniðganga bann við áfengisauglýsingum. Það allra nýjasta í þessu efni eru heilsíðuauglýsingar sem að undanförnu hafa birst í Morgunblaðinu. Þar eru myndir af Ijónsunga ogfullvöxnu Ijóni. Með áberandi letri er lesandanum síðan gefin upp slóð á Internet- inu. Þeir sem rekja netslóðina til að svala forvitn- inni fá upp sömu mynd og í blaðaauglýsingunni að því undanskildu að í stað Ijónsungans og full- vaxna Ijónsins eru komnar lítil og stór dós af Lö- wenbráu. Á Netinu fýlgja svo enn frekari upplýs- ingar um ágæti þessarar bjórtegundar...

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.